Morgunblaðið - 03.07.2020, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 2020
Keflavík fer vel af stað í Lengju-
deild kvenna í fótbolta eftir fall úr
efstu deild síðasta sumar, en liðið
vann 5:0-stórsigur á Augnabliki á
heimavelli í gærkvöld og komst fyr-
ir vikið í toppsætið. Voru Keflvík-
ingar komnir í 4:0 í hálfleik og
seinni hálfleikurinn var forms-
atriði. Aníta Lind Daníelsdóttir
gerði tvö mörk fyrir Keflavík og
þær Dröfn Einarsdóttir, Paula Wat-
nick og Natasha Anasi skoruðu
einnig. Augnablik er með eitt stig
eftir tvo leiki. Haukum var spáð
góðu gengi fyrir mót en Haukakon-
ur eru aðeins með einn sigur eftir
2:2-jafntefli við ÍA á heimavelli.
Hrafnhildur Arín Sigfúsdóttir kom
ÍA yfir en Vienna Behnke og Krist-
ín Fjóla sneru taflinu við með mörk-
um í sitt hvorum hálfleiknum. ÍA
átti hins vegar lokaorðið því Erla
Karítas Jóhannesdóttir jafnaði sex
mínútum fyrir leikslok. Þá skildu
Grótta og Afturelding jafnar, 0:0.
Kaela Dickerman fékk besta færi
leiksins fyrir Aftureldingu en hún
nýtti ekki vítaspyrnu á 43. mínútu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Haukar Vienna Behnke skoraði fyrir Hauka en það dugði ekki til sigurs.
Keflavíkurkonur einar á
toppnum eftir stórsigur
HANDBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Hin 23 ára gamla Ragnheiður Júl-
íusdóttir hefur síðustu ár verið einn
allra besti leikmaður úrvalsdeildar-
innar í handknattleik. Skyttan hefur
allan ferilinn leikið með uppeldis-
félaginu Fram og þrisvar fagnað Ís-
landsmeistaratitlinum og tvisvar
bikarmeistaratitlinum. Þá hefur hún
leikið 25 landsleiki. Landsliðið hefur
undanfarnar tæpar þrjár vikur æft
saman en liðið leikur í forkeppni HM
2021 í nóvember eða desember. Ís-
land verður í öðrum styrkleikaflokki
af fjórum þegar dregið verður í riðla
8. júlí.
Morgunblaðið ræddi við Ragn-
heiði fyrir landsliðsæfingu í vikunni
og hún viðurkenndi að vera enn
svekkt yfir að Fram hafi ekki fengið
tækifæri til að endurheimta Íslands-
meistaratitilinn, en tímabilinu var
aflýst vegna kórónuveirunnar áður
en úrslitakeppnin fór af stað. Fram
varð því að láta sér nægja að verða
deildar- og bikarmeistari en Vals-
konur verða áfram Íslandsmeist-
arar, þrátt fyrir yfirburði Fram á
síðustu leiktíð.
Sennilega svekkt að eilífu
„Ég er enn þá svekkt. Við vorum
búnar að standa okkur ótrúlega vel
allt tímabilið og vorum flottar í bik-
arnum. Okkur langaði rosalega að
vinna þetta í ár eftir að hafa tapað
þessu í fyrra, þess vegna er ég mjög
svekkt og verð sennilega svekkt að
eilífu. Ég er nokkurn veginn komin
yfir þetta, en þetta er samt svekkj-
andi. Það svíður mjög að Valur sé
enn ríkjandi meistari, en það voru
tveir titlar í boði í vetur og við tókum
þá báða, svo við verðum að byggja á
því,“ sagði Ragnhildur.
Segir hún landsliðsæfingarnar
hafa verið með rólegu móti til þessa.
„Þetta er búið að vera rosalega ró-
legt, við erum aðeins að slípa okkur
saman og fara yfir ákveðnar
áherslur og leikskipulag. Það er
mjög mikilvægt að koma okkur inn í
þessa hluti þar sem það vantar
nokkuð marga leikmenn. Það eru
nokkrar sem eru annaðhvort alveg
nýjar eða nýbyrjaðar í landsliðinu og
það er skemmtilegt.“
Ragnheiður er mjög góður skot-
maður og gerði hún 113 mörk í 18
leikjum með Fram í vetur. Var hún
eini leikmaður liðsins sem skoraði
yfir 100 mörk, en eftir nokkurra
vikna hlé viðurkennir hún að það
þurfi að stilla miðið á ný. „Það er
mismunandi eftir liðum hvernig við
höfum æft. Við hjá Fram höfum ekki
verið mikið með bolta, við tókum ein-
hverjar fjórar æfingar í maí og þess
vegna var smá skrítið að byrja að
skjóta almennilega á markið. Ég
finn að höndin mín er ekki eins og
hún er vön að vera. Þetta kemur
með hverri æfingunni, en maður er
smá ryðgaður og það er eðlilegt. Ég
þarf aðeins að stilla miðið.“
Nýliðar í landsliðinu
Markverðirnir Andrea Gunn-
laugsdóttir og Katrín Ósk Magnús-
dóttir og útispilararnir Ragnheiður
Tómasdóttir og Katrín Tinna Jens-
dóttir eru í hópnum, en þær hafa
ekki leikið með A-landsliðinu áður.
Þá hefur Mariam Eradze aðeins
leikið einn leik og Sandra Erlings-
dóttir tvo. Það er því meira um
reynsluminni leikmenn í hópnum en
oft áður. „Þær eru að koma vel inn í
þetta og hafa komið á óvart. Þær eru
búnar að vera flottar og þetta er góð
reynsla fyrir þær að koma inn og fá
að upplifa hvernig við erum á æfing-
um og fara eftir því sem við höfum
lagt áherslu á.“
Fá yngri leikmenn tækifæri m.a.
vegna þess að fyrirliðinn Karen
Knútsdóttir, Þórey Rósa Stef-
ánsdóttir og Esther Óskarsdóttir
eru allar með barni og vantar því
reynslumikla leikmenn í liðið. „Það
er mikill missir, þær eru búnar að
vera okkar helstu leikmenn í lands-
liðinu í mörg ár og það er gríðar-
legur missir að vera ekki með þær.
Nú kemur maður í manns stað og
það er mikilvægt að fá þennan tíma
til að fara yfir hlutina og sjá hvernig
þeir koma inn í þetta.“
Íslenska liðið lék síðast keppnis-
leik 29. september síðastliðinn gegn
Frakklandi í undankeppni EM. Var
undankeppninni aflýst vegna kór-
ónuveirunnar og verður því komið
meira en ár frá síðasta keppnisleik
þegar liðið leikur í forkeppninni.
Ragnheiður hefur hinsvegar litlar
áhyggjur af stöðunni. „Ég hef engar
áhyggjur af því. Ef við fáum al-
mennilegan tíma til að æfa saman
núna og í september þá hef ég ekki
áhyggjur. Við verðum allar með fé-
lagsliðunum okkar í sumar og við
verðum flottar þegar að því kemur,“
sagði hún.
Tekur Fram fram yfir
atvinnumennsku
Framarinn hefur vakið athygli er-
lendis fyrir góða frammistöðu und-
anfarin ár, en hún hefur ekki áhuga
á að reyna fyrir sér í atvinnu-
mennsku á næstunni. „Ég hef pælt í
því og ég hef fengið fyrirspurnir ut-
an frá en eins og staðan er í dag þá
er ég ótrúlega ánægð með Fram og
mér líður vel þar. Mér finnst ég allt-
af vera að bæta og tímabilið í vetur
var eitt besta tímabilið mitt til þessa.
Eins og er þá er ég ekki að pæla í at-
vinnumennsku, en við sjáum hvað
gerist,“ sagði Ragnheiður Júlíus-
dóttir.
Svíður mjög
að Valur sé
enn meistari
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skorar Ragnheiður Júlíusdóttir var næstmarkahæst í deildinni með 113
mörk í þeim 18 leikjum sem Fram hafði spilað þegar keppni var aflýst.
Ragnheiður er á sumaræfingum
með landsliðinu fyrir forkeppni HM
Lengjudeild karla
Þróttur R. – Þór........................................ 0:2
Staðan:
Þór 3 3 0 0 7:3 9
Keflavík 2 2 0 0 9:1 6
Fram 2 2 0 0 5:1 6
ÍBV 2 2 0 0 4:1 6
Leiknir R. 2 1 1 0 3:1 4
Grindavík 2 1 0 1 2:2 3
Víkingur Ó. 2 1 0 1 2:4 3
Vestri 2 0 1 1 0:2 1
Magni 2 0 0 2 1:4 0
Leiknir F. 2 0 0 2 2:6 0
Afturelding 2 0 0 2 2:7 0
Þróttur R. 3 0 0 3 1:6 0
2. deild karla
KF – Kári .................................................. 3:2
Kórdrengir – Njarðvík............................. 3:0
Staðan:
Kórdrengir 3 3 0 0 9:0 9
Haukar 2 2 0 0 6:3 6
Njarðvík 3 2 0 1 5:5 6
Fjarðabyggð 2 1 0 1 5:3 3
Selfoss 2 1 0 1 5:5 3
KF 3 1 0 2 3:4 3
ÍR 2 1 0 1 2:4 3
Víðir 2 1 0 1 1:3 3
Þróttur V. 2 0 2 0 2:2 2
Kári 3 0 1 2 6:8 1
Dalvík/Reynir 2 0 1 1 1:4 1
Völsungur 2 0 0 2 3:7 0
Lengjudeild kvenna
Haukar – ÍA .............................................. 2:2
Keflavík – Augnablik ............................... 5:0
Grótta – Afturelding ................................ 0:0
Staðan:
Keflavík 3 2 1 0 10:1 7
Haukar 3 1 2 0 5:3 5
Grótta 3 1 2 0 2:1 5
Tindastóll 2 1 1 0 3:1 4
Afturelding 3 1 1 1 2:2 4
ÍA 3 0 3 0 4:4 3
Víkingur R. 2 0 1 1 1:3 1
Augnablik 2 0 1 1 1:6 1
Fjölnir 2 0 0 2 0:3 0
Völsungur 1 0 0 1 0:4 0
2. deild kvenna
Álftanes – Fram........................................ 3:1
ÍR – Grindavík .......................................... 1:3
Staðan:
HK 2 2 0 0 6:0 6
FHL 2 2 0 0 8:5 6
Álftanes 2 2 0 0 5:2 6
Hamrarnir 3 2 0 1 6:5 6
ÍR 3 1 1 1 6:7 4
Grindavík 3 1 0 2 6:6 3
Fram 3 0 1 2 7:11 1
Sindri 2 0 0 2 2:4 0
Hamar 2 0 0 2 1:7 0
England
Sheffield United – Tottenham ................ 3:1
Manchester City – Liverpool .................. 4:0
Staðan:
Liverpool 32 28 2 2 70:25 86
Manch.City 32 21 3 8 81:33 66
Leicester 32 16 7 9 60:31 55
Chelsea 32 16 6 10 57:44 54
Manch.Utd 32 14 10 8 51:31 52
Wolves 32 13 13 6 45:34 52
Sheffield Utd 32 12 11 9 33:32 47
Arsenal 32 11 13 8 47:41 46
Tottenham 32 12 9 11 51:44 45
Burnley 32 13 6 13 36:45 45
Everton 32 12 8 12 40:47 44
Crystal Palace 32 11 9 12 28:37 42
Newcastle 32 11 9 12 33:43 42
Southampton 32 12 4 16 41:55 40
Brighton 32 7 12 13 34:44 33
West Ham 32 8 6 18 38:56 30
Watford 32 6 10 16 29:49 28
Aston Villa 32 7 6 19 36:60 27
Bournemouth 32 7 6 19 30:54 27
Norwich 32 5 6 21 25:60 21
Svíþjóð
Gautaborg – AIK ..................................... 1:0
Kolbeinn Sigþórsson lék fyrri hálfleikinn
með AIK.
Hammarby – Varberg............................. 1:0
Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna-
hópi Hammarby.
Örebro – Häcken ..................................... 0:0
Oskar Tor Sverrisson var ekki í leik-
mannahópi Häcken.
Staða efstu liða:
Norrköping 5 4 1 0 14:5 13
Malmö 5 2 3 0 8:5 9
Sirius 5 2 2 1 8:7 8
Gautaborg 5 2 2 1 7:6 8
Varberg 5 2 1 2 9:6 7
Tyrkland
B-deild:
Istanbulspor – Akhisarspor ................... 0:1
Theódór Elmar Bjarnason lék fyrstu 70
mínúturnar með Akhisarspor.
Spánn
Eibar – Osasuna ....................................... 0:2
Real Sociedad – Espanyol ....................... 2:1
Real Madrid – Getafe............................... 1:0
Staða efstu liða:
Real Madrid 33 22 8 3 61:21 74
Barcelona 33 21 7 5 74:35 70
Atlético Madrid 33 15 14 4 43:25 59
Sevilla 33 15 12 6 48:33 57
Villarreal 33 16 6 11 53:40 54
Getafe 33 14 10 9 42:31 52
Real Sociedad 33 15 5 13 50:42 50
Athletic Bilbao 33 12 12 9 38:28 48
Granada 33 13 7 13 40:38 46
Liverpool, sem varð Englands-
meistari í fótbolta síðastliðinn
fimmtudag, fékk stóran skell gegn
Manchester City í ensku úrvals-
deildinni í gær í fyrsta leik liðsins
eftir að titillinn var í höfn, 4:0. Svo
virtist sem leikmenn Liverpool
væru pakksaddir og City gekk á
lagið. Raheem Sterling, sem fyrst
kom fram á sjónarsviðið með Liver-
pool, reyndist sínum gömlu fé-
lögum erfiður og skoraði hann eitt
mark og átti stóran hlut í tveimur
til viðbótar, eins og Kevin De
Bruyne. Þrátt fyrir úrslitin munar
enn 20 stigum á liðunum; Liverpool
er með 86 stig og Manchester City
66. Hefur Liverpool nú tapað tveim-
ur leikjum á leiktíðinni, einum fleiri
en á síðustu leiktíð.
Í Sheffield gerðu heimamenn í
Sheffield United sér lítið fyrir og
unnu öruggan 3:1-sigur á Totten-
ham. Sheffield United er í sjöunda
sæti með 47 stig, fimm stigum frá
Manchester United í fimmta sæti.
AFP
Erfiður Raheem Sterling reyndist fyrrverandi liðsfélögum sínum erfiður.
Meistararnir aftur
niður á jörðina