Morgunblaðið - 03.07.2020, Blaðsíða 32
Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans, eða Byzantine
Silhouette, kemur fram í Flóa í Hörpu í kvöld, 3. júlí, kl.
20. Tónleikarnir eru hluti af sumardagskrá Jazzklúbbs-
ins Múlans. Skuggamyndir frá Býsans er skipuð Hauki
Gröndal, Ásgeiri Ásgeirssyni, Þorgrími Jónssyni og Erik
Qvick. Hljómsveitin, sem er fræg fyrir flutning á
balkantónlist, fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir.
Á dagskrá tónleikanna verður nýtt efni í bland við eldra
af efnisskrá sveitarinnar; tónlist frá Grikklandi, Búlg-
aríu, Makedóníu og Tyrklandi.
Skuggamyndir frá Býsans leikur
balkantónlist í Hörpu í kvöld
FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 185. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Ragnheiður Júlíusdóttir, landsliðskona í handknattleik
úr Fram, kveðst ekki vera búin að jafna sig á því að Ís-
landsmótið skyldi vera blásið af í mars því það þýðir að
Fram fékk ekki tækifæri til að ná Íslandsmeistaratitl-
inum úr höndum Vals. „Ég verð sennilega svekkt að ei-
lífu,“ segir Ragnheiður, sem æfir af krafti með íslenska
landsliðinu þessa dagana, en það býr sig undir for-
keppni heimsmeistaramótsins. »26
Verður svekkt að eilífu yfir því að
ná ekki meistaratitlinum af Val
ÍÞRÓTTIR MENNING
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Um og yfir 100 stelpur sækja æfingabúðir sem Helena
Sverrisdóttir, landsliðskona í körfubolta úr Val, hefur
staðið fyrir á sumrin síðan árið 2008. Stelpubúðir Helenu
eru einu sumarnámskeiðin í körfubolta sem eru einungis
fyrir stúlkur og hefjast þau í tólfta skiptið í lok þessa
mánaðar.
„Þegar ég var yngri var lítið úrval af æfingabúðum,
hvað þá fyrir stelpur. Mér fannst skemmtilegt að geta
boðið upp á eitthvað sem var ekki til staðar þegar ég var
yngri og er ekki til staðar annars staðar ennþá. Stelpur
eru oft kannski feimnar og finnst erfiðara að vera í æf-
ingabúðum með strákum,“ segir Helena.
Æfingarnar fara fram í Origo-höllinni yfir eina helgi í
lok júlí þar sem farið verður í körfubolta og styrktaræf-
ingar og fyrirlestur haldinn um andlega heilsu.
Í vetur þjálfaði Helena stúlkur á aldrinum 8 til 9 ára,
en hjá þeim hópi snýst þjálfunin um meira en einungis
tækni og styrk. Í enda tímabilsins skildi Helena eftir já-
kvæð og uppbyggjandi skilaboð til hvers leikmanns.
„Ég hef verið að þjálfa í mörg ár en aldrei svona ung-
ar. Þú ert ekkert að kenna þeim voða mikið í körfu en
frekar að láta þær verða ástfangnar af körfubolta, hafa
gaman í körfu, vilja halda áfram og tileinka sér íþróttina.
Maður reynir auðvitað að leggja sig fram við að hafa
þetta skemmtilegt, svo að hver og ein geti fundið sig,“
segir Helena.
Í maí tilkynnti Helena að hún ætti von á öðru barni
sínu og tekur hún því hlé frá spilamennsku. Þó mun hún
stíga inn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá
Val í körfubolta og hlakkar til að geta lagt sig fram á nýj-
um vettvangi.
„Ég gerði þetta fyrir 2 til 3 árum með Haukum. Ég
held það verði bara skemmtilegt fyrir mig að fá annað
hlutverk en að sitja á bekknum,“ segir hún.
Helena reiknar með því að geta byrjað að spila með
Val eftir áramót og hlakkar til að fara aftur á völlinn.
„Ég er 32 ára núna og miðað við íslensku deildina er
ég orðin frekar gömul, því hún er frekar ung, deildin.
Mér líður enn bara vel í líkamanum og finnst gaman í
körfubolta. Mig langar ekkert að hætta strax. Ég ætla
bara að reyna að komast til baka sem fyrst eftir þessa
meðgöngu og fæðingu og vonandi spila meira í einhver
ár. Maður vonar að allt gangi vel svo maður geti komið til
baka sem fyrst,“ segir Helena.
- Hvað heillar þig mest við körfubolta?
„Ég hef verið í körfubolta síðan ég var fimm ára. Þetta
hefur verið stór hluti af lífi mínu og gefið mér ótrúlega
mikið. Ég hef búið í mörgum öðrum löndum en Íslandi og
fékk náttúrulega háskólamenntun út á þetta. Svo hef ég
alltaf verið virkur einstaklingur og þetta svalar þeim
þorsta. Síðan er gaman að vera í liði. Liðsfélagarnir eru
alltaf til staðar fyrir mann.“
Vekur körfubolta-
áhugann á sumrin
Ljósmynd/Aðsend
Vinsælt Æfingabúðirnar hafa verið fjölsóttar á undanförnum árum. Um og yfir hundrað stelpur sækja búðirnar.
Helena Sverrisdóttir með körfuboltabúðir í tólfta sinn
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Helena „Þetta hefur verið stór hluti af lífi mínu.“