Morgunblaðið - 22.07.2020, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. J Ú L Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 171. tölublað 108. árgangur
SKRÝTIÐ AÐ SPILA
GEGN ÞESSUM
STÓRU NÖFNUM
VILJA SÖGUR
AF BJÖRNUM
OG MÖNNUM
VON Á TVEIMUR
NÝJUM VÉLUM
Í FLOTANN
TIGNARLEG DÝR 10 VIÐSKIPTAMOGGINNANDRI FANNAR 23
„Áhuginn á Ís-
landi er sann-
arlega til staðar
og ímynd okkar
er mjög jákvæð,“
segir Birna Ósk
Einarsdóttir,
framkvæmda-
stjóri sölu- og
þjónustusviðs
Icelandair. Í nýj-
ustu mælingum
félagsins á lykilmörkuðum var fólk
spurt hvert það vildi helst ferðast
miðað við aðstæður sökum farald-
urs kórónuveirunnar. „Þá lenti Ís-
land oftast í einu af þremur efstu
sætunum,“ segir Birna.
Fyrirtækið Pollstat gerði könn-
un fyrir félagið í Noregi og sýndi
hún að 65% töldu Danmörku vera
öruggasta áfangastaðinn utan
Noregs. Þar á eftir kom Ísland með
54% svarenda og svo Finnland með
44%.
„Það sem við erum að fljúga
gengur mjög vel. Við erum með
ágætisnýtingu á sætum og fólk
mætir í flug. Á meðan allt var lok-
að var fólk með bókanir en kom
ekki.“ »2
Áfram áhugi á að
ferðast til Íslands
Birna Ósk
Einarsdóttir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Starfsmönnum Íslandspósts hefur
fækkað um fjórðung síðan endur-
skipulagning félagsins hófst fyrir ári
eftir þungan rekstur árum saman.
Birgir Jónsson, forstjóri Íslands-
pósts, tók við félaginu í maí í fyrra.
Síðan hefur hann meðal annars
fækkað stjórnendum um 30%, starfs-
mönnum í upplýsingatækni um 25%
og almennum skrifstofumönnum um
27%. Fyrir vikið hefur starfsfólki
fækkað úr 1.060 í 790.
Selja dótturfélög og fasteignir
Jafnframt hafa dótturfélög verið
seld og fasteignir verið settar í sölu.
„Það lætur nærri að við höfum náð
að skera kostnað niður um 1.100
milljónir á ári,“ segir Birgir.
„Það er gríðarlegur metnaður hjá
okkur öllum hjá Póstinum að standa
okkur vel í þessu verkefni og sem
dæmi afsöluðu lykilstjórnendur
Póstsins sér kjarasamningsbundnum
launahækkunum nú í vor,“ segir
Birgir, en ýtarlegt viðtal við hann
birtist í ViðskiptaMogganum í dag.
Hann segir tekjur hafa dregist
saman um 500-700 milljónir vegna
faraldursins. Óvíst sé hvort þetta sé
tekjutilfærsla eða tekjutap. Á hinn
bóginn sé stefnt að því að geta senn
greitt eigandanum, ríkinu, arð.
Vægi bréfanna á niðurleið
Birgir segir aðspurður að magn
hefðbundins bréfapósts sé að minnka
svo mikið að eftir 2-3 ár „verði erfitt
að réttlæta það þjónustustig sem sett
er fram í póstlögum“. Hann áætlar að
árið 2025 komi 70% tekna frá
pakkasendingum.
Pósturinn vinni markvisst að því að
efla þann þátt þjónustunnar. Í því
skyni verði 40 ný póstbox tekin í
notkun í ár. Þar af verði um helm-
ingur settur upp á landsbyggðinni.
Birgir segir unnið að því að hægt
verði að póstleggja í gegnum þessa
staði. Það verði bylting.
Skáru niður yfirbyggingu
og afþökkuðu hærri laun
Ný stjórn Póstsins lækkaði kostnað um rúman milljarð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á uppleið Hlutfall pakkapósts eykst
stöðugt hjá Póstinum með netsölu.
Unnið var í óðaönn að því að fræsa svokallaða
lása í veginn á Gullinbrú í gærkvöldi, þegar
ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið um,
en það er gert til að tengja saman gamalt
undirlag við nýtt malbik. Að því loknu hófst
sjálf malbikunin og sagðist verktakinn Hlað-
annars vegar og Grafarvogshverfi hins veg-
ar, með brú yfir sjálfan Grafarvog þar sem
hann liggur inn af Elliðavogi.
bær Colas gera ráð fyrir að vegurinn yrði op-
inn umferð að nýju um klukkan fimm í morg-
un. Vegurinn tengir saman Höfðahverfi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gert klárt fyrir nýtt malbik á Gullinbrú yfir Grafarvog
Samkvæmt úttekt Viðskipta-
Mogga á íslenskum pítsumarkaði
seljast um fimm milljónir pítsa á
pítsustöðum landsins árið um
kring. Sé miðað við að pítsa kosti
2.500 kr. nemur heildareyðsla hér á
landi í pítsur um 12,5 milljörðum
króna. Að sögn Birgis Arnar Birg-
issonar, forstjóra Domino’s, er sam-
keppnin á pítsumarkaði gríðarleg
og hafa 50 nýir staðir komið inn á
skyndibitamarkaðinn frá 2018.
„Sem er auðvitað langt umfram
fjölgun maga sem þarf að metta og
þýðir einfaldlega að peningurinn
sem fer í skyndibita er að dreifast á
fleiri. Það er alveg ljóst að það eru
mjög margir í ósjálfbærum
rekstri.“
Morgunblaðið/Ómar
Pítsur Íslendingar eru mikil pítsuþjóð.
Fimm milljónir pítsa
seljast á einu ári