Morgunblaðið - 22.07.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.07.2020, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2020 Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð viðmyglu-gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr. 21.220 Verð kr. 59.100 Verð kr. 37.560Verð kr. 16.890 Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skrifað minnisblað til ráð- herra þar sem lagt er til að fjölda- takmarkanir verði rýmkaðar upp í 1.000 manns 4. ágúst næstkomandi. Sömuleiðis hefur verið lagt til að skemmtistaðir og veitingahús fái að hafa opið til miðnættis frá sama tíma. Á upplýsingafundi almanna- varna í gær lagði Þórólfur áherslu á að viðhalda varúðarráðstöfunum og að áfram þurfi að beita markvissum skimunum á landamærum í sex mánuði og jafnvel lengur. Þórólfur sagði þó að verið sé að breyta nálg- uninni á sóttvarnaráðstafanir. Lögð verði áhersla á daglegan rekstur verkefnisins frekar en að skipulagið taki mið af neyðaráætlun eins og hingað til. Faraldurinn ekki á undanhaldi Alls hafa 47.000 sýni verið tekin við landamærin frá því landamæra- skimun hófst 15. júní. Átján virk smit hafa greinst, 90 óvirk og beðið er eftir niðurstöðum úr mótefna- mælingum hjá tveimur. Þórólfur sagði í gær að ekki væri áformað að taka lönd af áhættulista en að það verði mögulega gert um mánaða- mót. Þá sagði Þórólfur það ljóst að faraldurinn sé ekki á undanhaldi í heiminum, þótt síður sé. Fjöldi nýrra smita á degi hverjum hefur aldrei verið meiri á heimsvísu og nú. Um 200.000 smit hafa greinst dag- lega að undanförnu. Þó sé hægt að fullyrða að nánast ekkert innlent smit sé hér á landi. Segir enn langt í bóluefni Þórólfur sagði að prófanir á nýju bóluefni gegn kórónuveirunni, sem vísindamenn við Oxford-háskóla hafa þróað, lofi góðu. Hann telur þó að enn sé nokkuð langt í land þang- að til hægt sé að bólusetja fjölda fólks fyrir veirunni. „Þetta er bara fyrsti hlutinn af mörgum sem gera það að verkum og eru forsenda þess að hægt sé að markaðssetja svona bóluefni. Ég held að það sé of snemmt að hrósa happi yfir því að við eigum von á einhverju góðu bóluefni. Það er óskandi að svo verði en það mun örugglega taka ár eða lengri tíma að markaðssetja gott bóluefni,“ sagði Þórólfur. Hann segir að jafnvel þó að tíðindin frá Oxford séu ánægjuleg og að flestir þeirra sem tekið hafi þátt í rann- sókninni hafi þróað mótefni, sé enn margt óljóst. Lengi að þróa öruggt efni Meðal annars eigi eftir að koma í ljóst hvort að mótefnið sé versnandi, hvort það forði frá veikindum, hversu lengi það endist og hversu öruggt bóluefnið sé. Ef bólusetja eigi hundruð milljóna eða jafnvel milljarða manna þurfi að vera full- vissa um að bóluefnið sé eins öruggt og mögulegt er og því þurfi að prófa bóluefnið á fleirum. Þá þurfi einnig að skoða hvort að hægt sé að fram- leiða bóluefnið í miklu magni, hverj- ir geti fengið það og svo framvegis. Reynslan af þróun bóluefna sýni að það taki langan tíma að þróa öruggt efni. Ómögulegt sé að segja til um það hvort að veiran eigi eftir að hverfa með tilkomu bóluefnis, enda á þróun veirunnar eftir að koma í ljós. Þórólfur sagði þó að heimsfar- aldur kórónuveirunnar sé faraldur sem við eigum eftir að lifa með næstu mánuði og jafnvel ár. Stefna á 1.000 manns 4. ágúst  Í minnisblaði sóttvarnalæknis til ráðherra er lagt til að sóttvarnatakmarkanir verði rýmkaðar eftir verslunarmannahelgi  Horft er fram á að skimanir á landamærum verði til sex mánaða eða lengur Ljósmynd/lögreglan Upplýsingafundur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur að það muni líklega taka ár eða lengri tíma að markaðssetja bóluefni við kórónuveirunni. Um 250 manns hafa fengið staðfest- ingu yfirvalda á því að Útlendinga- stofnun álíti skilyrði uppfyllt til að hægt sé að veita þeim undanþágu frá ferðatakmörkunum einstaklinga frá ríkjum utan EES og EFTA til Ís- lands. Þetta kemur fram í svari utanrík- isráðuneytisins við fyrirspurn Morg- unblaðsins. Tekið er fram að starfs- hópur á vegum ráðuneytisins, sem skipaður sé starfsmönnum þess, at- vinnu- og nýsköpunarráðuneytisins og Íslandsstofu, fari yfir þær fyrir- spurnir sem berist varðandi undan- þágu vegna brýnna erindagjörða einstaklinga frá ríkjum utan EES og EFTA, „sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna starfa sem teljast efnahagslega mikilvæg og störf þeirra geta ekki verið framkvæmd síðar eða erlendis“, eins og segir í svarinu. Starfshópurinn hefur verið starf- ræktur síðan í maí en frá 15. júní hef- ur ráðuneytið tekið við vel á annað þúsund fyrirspurna, sem flestar varði lokanir landamæra. „Stór hluti fyrirspurna varðar fjöl- skyldur íslenskra ríkisborgara og ríkisborgara EES- og EFTA- ríkjanna, og þeirra sem hafa dval- arleyfi í ríkjum EES/Schengen en sumar fyrirspurnanna varða undan- þágu frá tímabundnum ferðatak- mörkunum vegna brýnna erinda- gjörða þeirra sem koma frá ríkjum utan EES og EFTA.“ Ráðuneytið taki engar ákvarðanir um undanþágur heldur leiti álits Út- lendingastofnunar, en landamæra- lögregla taki lokaákvörðun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Komufarþegar Starfshópurinn hefur verið starfræktur frá í maí. Lokaákvörðun er sögð landamæralögreglunnar. Um 250 uppfyllt skilyrði  Undanþágur veittar frá ferðatakmörkunum til Íslands  Landamæralögregla taki lokaákvörðun um undanþágur Fimm skipverjar dvelja nú í sóttvarnahúsinu við Rauðar- árstíg. Tveir þeirra eru með staðfest smit og hinir þrír í sóttkví vegna nálægðar við þá. Þetta staðfestir Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður hússins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru skipverjarnir af farskipinu Seaboss, sem lagðist að bryggju við Grundartanga á miðvikudag eftir siglingu þangað, frá Brasilíu. Alls dvelja nú 25 í sóttvarnahúsunum við Rauðarárstíg, þar af fimm með staðfest smit. Tveir smitaðir og þrír í sóttkví FIMM SKIPVERJAR Í SÓTTVARNAHÚSINU Jónas Óli Jónasson, meðeigandi skemmtistaðarins B5 við Banka- stræti, segir það töluverð vonbrigði að leyfilegur afgreiðslutími skemmtistaða verði ekki rýmkaður fyrr en 4. ágúst. Í samtali við mbl.is í gærkvöldi sagðist Jónas einnig hafa vonast eftir því að skemmti- staðir fengju að hafa opið lengur en til miðnættis. „Ég skil ekki alveg hver munurinn er á því að það sé troðfullt til miðnættis eða eitt, en okkur munar alveg gífurlega um það,“ segir Jónas. Þá segist Jónas furða sig á því að rekstur skemmti- staða sé enn háður takmörkunum stjórnvalda. „Við erum ein sem er- um enn þá í einhverjum takmörk- unum, það er allt annað opið og leyfilegt. Þetta er smá eins og ef veitingastaðir gætu bara haft opið frá 2 til 7 á morgnana.“ Segir fyrirhugaða afléttingu vonbrigði ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.