Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2020 Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir  í síma  Morgunblaðið óskar eftir blaðbera    Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Tæknilæsi Android kl. 9-12. Tæknilæsi Apple kl. 13-16. Hádegismatur kl. 11.30 –13. Kaffisala kl. 14.45 –15.30. Allir velkomnir í Félagsstarfið s: 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Hlátur og húmor kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við vinnum eftir samfélagssáttmálanum, þannig höldum við áfram að ná árangri. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13.45 -15.15. Skrifstofa Félags eldri borgara er lokuð í júlí. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Gerðuberg 3-5 Miðvikudagur kl. 8.30-16. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Útskurður kl. 11.-11.30 Leikfimi Helgu Ben kl 12.30-15. Döff Félag heyrnalausra kl. 13.-16. Útskurður kl. 13. Ganga um hverfið Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 8. Billjard kl. 8. Bingó kl. 13. Spjallhópur/handavinna kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Hlátur og húmor kl. 10.30. Framhaldssaga kl 13.30. Korpúlfar Gönguhópur kl. 10. í dag gengið frá Borgum, morgunleik- fimi kl, 9.45 í Borgum. Korpúlfabingó á vegum skemmtinefndar Korpúlfa kl. 13. í dag í Borgum allir velkomnir ungir sem aldnir. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag, klukkan 9.30, kemur sjúkraþjálfari til okkar frá stofunni Hæfi og verður með hreyfiþjálfun í setustofunni. Eftir hádegi verður hreyfiteymið okkar með Kubb úti ef veður leyfir. Klukkan 14:30 verður tónlist í salnum og ætlar Dúóið Ýr og Agga að leika fyrir okkur á fiðlu og flautu. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Dagskráin í dag miðvikudaginn 22.júlí. Kl. 10.30 er kaffispjall í króknum á Skólabraut. Kl. 11. er samvera á Skólabraut. Kl. 13.30 er botsía í salnum á Skólabraut. Kl. 18.30 er vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness. Hlökkum til að sjá ykkur. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 –16. Heitt á könnunni frá kl. 10 –11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 –12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 –15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nýir 2020 Mitsubishi Outlander PHEW. Flottur lúxus bíll á lægra verði en jepplingur. 800.000 undir listaverði á kr. 5.890.000,- 5 ára ábyrgð. Til sýnis á staðnum í nokkrum litum. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com með morgun- nu fasteignir ✝ Þuríður Freys-dóttir, Rúrý, fæddist á Húsavík 25. nóvember 1951. Hún andaðist á Heilbrigðis- stofnun Norður- lands, Húsavík, 14. júlí 2020. For- eldrar hennar voru Hallmar Freyr Bjarnason, f. 21. nóvember 1931, d. 21. júlí 1987, og Guðrún Her- borg Ingólfsdóttir, f. 23. októ- ber 1932, d. 24. maí 2008. Systkini Rúrýar eru Katrín, f. 1953, Jóna Björg, f. 1956, Ingólfur, f. 1958, og Sveinn, f. 1964. Rúrý eignaðist tvö börn. Fóstruskóla Íslands 1975. Að námi loknu kenndi hún við Barnaskóla Húsavíkur í sex ár og vann síðan á leikskólanum Bestabæ á Húsavík. Árið 1987 flutti hún til Vestmannaeyja og gerðist forstöðumaður á leik- skólanum Kirkjugerði. Starfaði síðan við Magnúsarbakarí, ásamt eiginmanni sínum. Eftir 18 ára búsetu í Eyjum flutti Rúrý til Reykjavíkur. Þar vann hún við umönnunarstörf, meðal annars á skammtímavistun fyr- ir ungmenni og á búsetukjarna. Árið 2009 flutti hún svo aftur heim til Húsavíkur og starfaði við leikskólann Grænuvelli til ársins 2017. Þuríður var mikil félags- málamanneskja og tók virkan þátt í ýmsum félagsstörfum í Vestmannaeyjum og á Húsavík, m.a. íþróttafélaginu Völsungi. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 22. júlí 2020, og hefst athöfnin klukk- an 14. Sonur Rúrýar og Gísla Þorkels- sonar, f. 24. mars 1951, d. 25. maí 2005: Ágúst Örn, f. 30. september 1976. Sambýlis- kona Ágústs er Guðlaug Elísabet Bóasdóttir, f. 16. október 1967. Dóttir Rúrýar og Andrésar Sig- mundssonar, f. 11. desember 1949: Guðrún Heba, f. 6. októ- ber 1989, d. 29. október 2009. Andrés og Rúrý hófu sam- búð 1988 og gengu í hjónaband 1994. Þau slitu síðar sam- vistum. Þuríður lauk prófi frá Mín fyrstu kynni af Rúrý voru fyrir 40 árum þegar ég kom fyrst inn á heimili foreldra hennar þeirra Rúnu og Beysa á Torginu með Ingólfi. Heimilið iðaði af lífi og þar var Rúrý hrókur alls fagn- aðar, hún sagði sögur á svo skemmtilegan hátt að það var aðdáunarvert að hlusta. Málin voru rædd af miklum ákafa og oft með leikrænum tilburðum og þar tók Rúrý fullan þátt og hafði sterkar skoðanir á flestum hlut- um sem voru til umræðu m.a. hestum, kindum, Völsungi og ég tala nú ekki um bæjar- og lands- málunum. Rúrý var hreinskiptin og lá ekki á skoðunum sínum og maður vissi alltaf hvar maður hafði hana. Það var aldrei logn- molla í kringum Rúrý. Á þessum tíma var Rúrý búin að eignast hann Ágúst Örn og hann skoppaði fjögurra ára gam- all í kringum hana í vel strauj- uðum fötum svo eftir var tekið. Mér leiddist ekki að skoða inn í fataskápana hjá henni, þar var allt vel straujað og raðað í hillur eftir stífum reglum. Rúrý flutti til Vestmannaeyja árið 1987 og þar eignast hún Guðrúnu Hebu árið 1989 með eiginmanni sínum Andrési. Guðrún Heba varð bráðkvödd árið 2009 og var það Rúrý mikill harmur og átti eftir að fylgja henni til síðustu stund- ar. Rúrý flytur svo aftur til Húsa- víkur árið 2009 og þá verður hún tíður gestur á heimili okkar Ing- ólfs á Torginu og við nutum þess að bjóða henni í mat og kaffi og hlusta á hana segja sögur og ræða málefni líðandi stundar. Hún hafði mikinn húmor fyrir sjálfri sér og það sem við erum búin að hlæja mikið að sögum sem hún segir af sér sjálfri. Þær sögur eiga eftir að lifa með okkur um ókomin ár og verða rifjaðar upp með jöfnu millibili. Þessum eiginleika hélt Rúrý alveg fram á síðasta dag þó svo að hún væri orðin mikið veik. Síð- asta samtalið mitt við hana var nokkrum klukkutímum áður en hún lést og þá sagði hún mér frá því að hún væri í æfingabúðum að sofa í lazyboystól á sjúkrahúsinu. Við Ingólfur eigum eftir að sakna þess að fá Rúrý í heimsókn á Torgið og hlusta á hana taka umræðuna um ástandið í landinu og stjórnvöldin. Hún átti það til að flytja langar og kjarnyrtar ræður um þau málefni sem henni voru hugleikin. Hún spurði alltaf eftir barnabörnunum okkar Ing- ólfs, vildi fylgjast með því sem þau voru að gera. En minningin um einstaklega góða og skemmtilega manneskju mun lifa með okkur sem urðum henni samferða. Sögurnar og frá- sagnarhæfileikinn voru henni í blóð borin og þrátt fyrir erfið veikindi var alltaf stutt í húmor- inn. Þannig mun hún lifa með okkur. Það er með mikilli virðingu og þakklæti sem ég kveð Rúrý mág- konu mína um leið og ég votta Ágústi Erni og Guðlaugu mína dýpstu samúð. Guðrún Kristinsdóttir. Elsku Rúrý mín, mikið væri nú gott að geta spólað aðeins til baka og þú værir að kaupa ís handa mér og Guðrúnu Hebu í Ísjakanum í Eyjum. Lífið einfalt og stutt til Kötu frænku að taka aðeins stöðuna með Hjalta og Rúnari. Það var gaman að koma til ykkar systra í Eyjum og hitta frændsystkinin sín. Fyrsta minn- ing mín af okkur er að kaupa ís í Eyjum en síðasta stundin okkar saman var á Heilsugæslunni á Húsavík þar sem ég var aðeins að laga tölvuna þína. Í enn eitt skiptið. Þú áttir í einstöku og flóknu sambandi við tölvur og tækni. Krafðist ekki mikils. Þurftir að geta skoðað Facebook, lesið blöð- in og flett upp í Íslendingabók. Þér tókst samt að gera hluti sem fáum datt í hug að hægt væri að gera. Ég þekki ekki marga sem geta sett skjámyndina á hvolf og tölvuna á rússnesku án þess að hafa hugmynd um hvernig. Töframaður á tölvu. Það klikkaði ekki að í hvert skipti sem svona atvik komu upp var hringt. „Hæ elskan mín, ertu til í að kíkja á tölvuna mína?“ „Já ég kem, hvað er að núna?“ „Veistu ég veit það ekki en núna er allt á þýsku“ Nýtt tungumál og enn ein óvissuferðin með tölvuna þína fram undan. Vandamálin voru sjaldnast mjög krefjandi heldur frekar fyndin. Eflaust hefðu margir pirrað sig á því að skjámyndin var kom- in á hvolf og Facebook á spænsku í enn eitt skiptið. En þú hafðir alltaf mikinn húmor fyrir sjálfri þér þegar kom að tölvuvanda- málunum þínum og hlóst mikið þegar ég spurði hvernig þér hefði tekist þetta. „Æ, ég ýtti bara á einhverja takka!“ Mér fannst það ekki alltaf jafn fyndið fyrst þegar ég kom upp í Sólbrekku en alltaf fór maður hlæjandi út. Líklega mínar bestu minning- ar af Rúrý og okkar bestu stund- ir. Saman að reyna að lesa annað tungumál með skjáinn á hvolfi. Nokkrir takkar á lyklaborðinu frekar erfiðir enda bræddir eftir smá sígarettuglóð. En það skipti engu máli sagði hún. Þarft bara að ýta fast. Ég votta Ágústi og Guðlaugu mína dýpstu samúð, minning um fyndna og skemmtilega frænku mun lifa um ókomin ár. Sindri Ingólfsson. Í dag kveð ég hinstu kveðju mína góðu vinkonu Rúrý. Við ól- umst upp saman á Húsavík en ég kynntist henni þó lítið fyrr en eft- ir að við vorum báðar fluttar til Reykjavíkur, ég sextán, hún nítján. Eftir að við fluttum til Reykja- víkur upp úr 1970 héldum við Húsavíkurstelpurnar mikið sam- an og það er óhætt að segja að við tókum skemmtanalífið mjög föst- um tökum. Partíin voru óteljandi og í minningunni endalaus skemmtun, gleði og glaumur. Það var mikið stuð þar sem Rúrý var og hún var alltaf hrókur alls fagnaðar. Hún hafði einstaka frásagnargáfu, eins og hún átti kyn til, og hún var nösk á að sjá spaugilegu hliðarnar á tilverunni og ekki síst á sjálfri sér. Í eitt af þessum partíum bauð ég Gísla skólabróður mínum og hæfilega mörgum mánuðum síðar fæddist Ágúst Örn, sólargeislinn í lífi hennar. Á löngu tímabili vorum við ekki í miklum samskiptum. Rúrý flutti aftur norður og síðan til Vestmannaeyja þar sem hún gift- ist Andrési og eignaðist Guðrúnu Hebu, hinn sólargeislann í lífi hennar. Í Vestmannaeyjum starfaði hún sem leikskólastjóri og rak bakarí með Andrési. Hún lagði líka sitt af mörkum til skemmtanalífs Eyjamanna, var eftirsóttur veislustjóri og var ekki fyrr gengin í eitthvert félag en búið var að kjósa hana í skemmtinefnd. Stundum liðu mörg ár án þess að við hittumst en aldrei slitnaði strengurinn á milli okkar. Það er óhætt að segja að Rúrý var úthlutað fleiri og stærri áföll- um í lífinu en við æskuvinkonur hennar höfum þurft að glíma við. Þau settu vissulega mark sitt á líf hennar, sem var henni ekki alltaf auðvelt. Hennar stærsta áfall var sviplegt fráfall Guðrúnar Hebu þegar hún var rétt tvítug og lífið varð aldrei samt eftir það. Þegar við vinkonurnar heim- sóttum hana eftir andlát Guðrún- ar Hebu var gott að geta leitað í skemmtilegar minningar frá ár- unum okkar saman þegar við vorum ungar og upprennandi í Reykjavík og létum okkur ekkert fyrir brjósti brenna. Það var hlegið og gert að gamni sínu þó að hún hafi verið að ganga í gegn- um þá mestu sorg sem hægt er að hugsa sér, að missa barnið sitt. Strax eftir jarðarför Guðrúnar Hebu flutti Rúrý til Húsavíkur og stuttu síðar tók ég þá ákvörð- un að flytja norður eftir 40 ár á mölinni. Þá var nú aldeilis gott að hafa hana Rúrý til að stytta með sér stundirnar. Þau sex ár sem ég bjó á Húsa- vík áttum við Rúrý óteljandi góð- ar og skemmtilegar stundir sam- an sem ég í dag er endalaust þakklát fyrir. Hún kom oft í viku í heimsókn til mín í Berg þar sem málin voru rædd og krufin og þar var mikið hlegið og einnig grátið. Hún saknaði Guðrúnar Hebu sinnar mjög sárt og við töluðum um hana í nánast hvert skipti sem við hittumst. Rúrý var mjög pólitísk enda alin upp á Rauðatorginu hjá for- eldrum sem brunnu fyrir að bæta og efla samfélag sitt. Pólitíkinni voru alltaf gerð góð skil í þessum heimsóknum. Hún gat talað sig hása yfir vitleysunni og ruglinu í öllum flokkum nema Samfylking- unni. Hann var hennar flokkur og gerði að sjálfsögðu ekki mis- tök. Rúrý hafði mikinn áhuga á íþróttum og lét ekkert fram hjá sér fara á því sviði, allavega ekki í boltanum, enda sjálf liðtæk bæði í handbolta og blaki á sínum yngri árum. Hún hafði einnig mikinn áhuga á spurningaþátt- um, var áhugasöm um ættfræði og elskaði að lesa góðan krimma. Rúrý var mjög félagslynd og vildi helst hafa fullt af fólki í kringum sig, elskaði að ræða málin, spjalla og segja skemmti- legar sögur, sem enginn gerði betur en hún. Hún átti auðvelt með að tala við fólk og enn auð- veldara með að koma því til að skellihlæja enda gat hún verið bæði skemmtilegasta og fyndn- asta manneskja í heimi þegar sá gállinn var á henni. Hún talaði við alla, gerði aldrei mannamun og kom ævinlega til dyranna eins og hún var klædd. Hún átti ekki í neinum vandræðum með að fá fólk til að opna sig og einhvern tíma var haft á orði að hún gæti látið dauðan mann segja sér ævi- sögu sína. Börnin mín kynntust henni þegar þau komu í heimsóknir til Húsavíkur og minnast þau henn- ar með gleði og væntumþykju. Rúrý var leikskólakennari að mennt hún hafði unun af því að vinna með börnum og vann á Grænuvöllum eftir að hún flutti aftur til Húsavíkur, á meðan hún hafði heilsu til. Það var gaman að sitja með henni á kaffihúsi á Húsavík og fylgjast með því hvað leikskólabörnin, sem hún hafði kennt, fögnuðu henni innilega þegar þau hittu hana. Hún Rúrý vinkona mín var fyrst og fremst góð og hjartahlý manneskja sem vildi öllum vel, réttsýn, heiðarleg, fyndin og skemmtileg. Dásamleg vinkona sem ég mun sakna og minnast með ást, hlýju og þakklæti. Þegar ég talaði síðast við hana í síma var mér ljóst í hvað stefndi. Ég hugsaði með mér eft- ir það samtal að líklega yrði næsta ferð mín til Húsavíkur að fylgja henni síðasta spölinn. Elsku Rúrý, ég veit að þú varst tilbúin að fara og sátt við að fá að kveðja þetta líf. Nú taka Guðrún Heba og foreldrar þínir á móti þér og þá verða fagnaðar- fundir. Þakka þér fyrir samfylgdina mín kæra vinkona. Ég votta Ágústi Erni, systk- inum Rúrýjar og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Dögg Káradóttir. Þuríður Freysdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.