Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2020 60 ára Ingvar er frá Stykkishólmi en býr í Reykjavík. Hann er grafískur hönnuður frá Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands og er sjálfstætt starfandi. Ingvar hefur aðallega unnið við hönnun á bókum og geisla- diskum en einnig við almenna auglýs- ingagerð. Systkini: Jóhann, f. 1946, d. 2013, Guð- rún, f. 1947, Skúli, f. 1949, og Halldór, f. 1957. Foreldrar: Víkingur Jóhannsson, f. 1921, d. 1985, tónlistarmaður, og Sigurborg Skúladóttir, f. 1919, d. 2015, bókari. Þau voru búsett í Stykkishólmi. Ingvar Víkingsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Forðastu að lenda í þeirri aðstöðu að þurfa að taka afstöðu með einum eða öðrum. Reyndu að ná tökum á þeim svo þú getir hrósað sigri. 20. apríl - 20. maí  Naut Þetta er skemmtilegur dagur til að sinna viðskiptum. Treystu á innsæi þitt. Til er fólk sem alltaf hefur skoðanir sem sjaldnast koma þér að gagni á þinni veg- ferð. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Einu gildir hversu rólega dag- urinn fer af stað, það verður meira en nóg að gera. Sestu niður og farðu í gegnum fjármál þín og komdu þeim á hreint. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert mjög í sviðsljósinu um þess- ar mundir svo mikið ríður á að þú sýnir þín- ar bestu hliðar. Snúðu þér að nútíðinni og láttu reynslu þína verða þér til góðs. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert að velta fyrir þér hugsanlegum breytingum í vinnunni eða á heimilinu. En hálfnað er verk þá hafið er og vilji er allt sem þarf til þess að þú náir árangri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur allt sem þarf til að takast á við erfiðleikana. Hvort sem það er með skriftum, fyrirlestrum, kennslu eða ferða- lögum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er rétti tíminn til þess að taka til hendinni heima fyrir og koma því fyrir sem þú hefur ekki þörf fyrir lengur. En þú kemst ekki hjá því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ástardraumar fela í sér skila- boð. Vertu opinn fyrir ábendingum því þú veist ekki hvaðan næsta heilræði kemur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gefðu þér tíma til útiveru því það hressir upp á sálarlífið. Gefðu þeim tækifæri og þá mun koma í ljós hvorum megin þeir standa. 22. des. - 19. janúar Steingeit Reyndu að gefa þér tíma til að skemmta þér með börnum í dag. Hlustaðu ekki á umtal um fólk sem þú þekkir engin deili á. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fjármálin eru þér ofarlega í huga og þú kemur auga á nýja möguleika til fjáröflunar. Farðu gætilega í fjármálum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það þarf ekki stóra hluti til þess að setja allt úr skorðum. Hvaðeina sem þú gerir mun koma þér og öðrum til góða. Við Siggi eignuðumst sex börn svo alltaf var nóg að sýsla. Við höfðum mjög gaman að því að skreppa í bíl- túra og ferðalög. Þá var stundum sama í þessu starfi og fann ávallt fyrir miklu trausti frá þeim konum sem ég sinnti, en ljósubörnin mín urðu vel yfir 800 talsins. E lín Guðrún Sigurðar- dóttir fæddist 22. júlí 1930 að Dal í Mikla- holtshreppi á Snæ- fellsnesi og var sjö- unda barn í ellefu systkina hópi. Fjölskyldan fluttist að Hrísdal ári síðar og þar ólst Elín upp. „Æskan var góð á mannmörgu stóru heimili þar sem mikið var um að vera þó lengi hafi húsakynnin verið þröng. Pabbi var bóndi og upp- fræðari af lífi og sál og kenndi okkur að lesa í náttúruna, sagði okkur sög- ur og söng mikið með okkur. Hann var líka forsöngvari í kirkjunni okk- ar á Fáskrúðarbakka og hafði mikið yndi af tónlist. Til marks um það fór hann til Reykjavíkur til að sjá fyrstu óperuuppfærsluna í Þjóðleikhúsinu. Mamma var sístarfandi innanhúss í matartilbúningi og sinnti börnum eins og var hlutskipti kvenna á þeim tíma. Ég gekk í farskóla eins og þá tíðk- aðist til sveita og hafði gaman af að læra. Einnig var ég send til Reykja- víkur sem barnapía og á sund- námskeið í Sundhöll Reykjavíkur, þetta var á stríðsárunum og mikið ævintýri fyrir ungling sem kom úr sveit til höfuðborgarinnar.“ Þegar Elín var u.þ.b. 17 ára var hún viðstödd nokkrar fæðingar og í framhaldi af því var hún hvött af ráðamönnum sveitarinnar að fara í Ljóðmæðraskólann og þaðan út- skrifaðist hún 1950. Eftir þetta var hún héraðsljósmóðir á Snæfellsnesi. „Svo flyt ég í Stykkishólm eftir að við Siggi giftum okkur 1952. Margt hefur breyst frá þessum fyrstu árum mínum í starfi ljósmóður. Til dæmis komu konur heim til mín þegar mæðraskoðanir byrjuðu. Árum sam- an var ég ein á svæðinu og engin af- leysing og fyrir kom sum árin að ekkert var hægt að fara frá þar sem einhver kona var komin að fæðingu. En það var bara sjálfsagt. Fyrstu árin voru þetta eingöngu heimafæð- ingar, en þegar frá leið færðust þær alfarið inn á sjúkrahús. Ég starfaði svo við fæðingarhjálp, mæðra- og ungbarnaeftirlit á spítalanum í Stykkishólmi fram yfir sjötugt. Í heildina verð ég að telja mig lán- farið með nesti og krakkahópinn út fyrir Nes, inn í Dali og jafnvel suður í Borgarfjörð. Eftir að börnin uxu úr grasi fórum við Siggi að ferðast til útlanda, bæði til sólarlanda, en einn- ig í skógræktarferðir til Noregs, en Siggi var lengi formaður Skógræktarfélags Stykkishólms.“ Elín hefur verið virk í ýmsum fé- lagsstörfum og alla tíð verið mikil framsóknarkona. Þá hefur hún verið lengi í Lionshreyfingunni, Kven- félagi Stykkishólms og formaður þess um tíma, setið í skólanefnd og barnaverndarnefnd, var formaður Vesturlandsdeildar Ljósmæðra- félagsins um nokkurra ára bil. Hún var einn af stofnendum og fyrsti for- maður Lionessuklúbbsins Hörpu. Hún var m.a. í stjórn heilsugæslu- stöðvarinnar, sjúkrahússins og dvalarheimilis aldraðra í Stykkis- hólmi. Fyrir nokkrum árum var hún gerð að heiðursborgara Stykk- ishólms. Síðastliðin tvö ár hefur Elín búið á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi . Fjölskylda Eiginmaður Elínar var Sigurður Ágústsson, f. 23.9. 1925, d. 22.12. 2010, starfsmaður Vegagerðarinnar. Foreldrar hans voru hjónin Magða- lena Níelsdóttir, f. 1897, d. 1975, húsmóðir og Hannes Ágúst Pálsson, f. 1896, d. 1959, skipstjóri og bóndi í Vík við Stykkishólm. Börn Elínar og Sigurðar eru 1) Magdalena, f. 9.9. 1952, hjúkrunar- fræðingur, búsett í Reykjavík, maki: Alfreð S. Jóhannsson, f. 1953, sölu- stjóri hjá Kaaber; 2) Þór f. 30.5. 1954, vélamaður, búsettur í Reykja- vík,maki: Hallfríður G. Einarsdóttir, f. 1955, skrifstofumaður. 3) Oddný, f. 5.12. 1956, læknaritari og söngkona, búsett í Reykjavík, maki: Eiríkur Jónsson, f. 1958, yfirlæknir. 4) Dagný, f. 31.10. 1959, gjaldkeri hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og söngkona, maki: Þor- valdur Jónsson f. 1954, frjótæknir og bóndi á Innri-Skeljabrekku; 5) Þor- gerður, f. 6.8. 1961, sjúkraþjálfari, búsett í Reykjavík, maki: Kristján Már Unnarsson, f. 1959, fréttamað- ur. 6) Sigríður, f. 24.9. 1963, lyfja- Elín Guðrún Sigurðardóttir ljósmóðir – 90 ára Ljósmóðirin Elín er heiðursborgari Stykkishólms. Ljósubörnin yfir átta hundruð Fjölskyldan Elín og Sigurður ásamt börnum sínum, frá vinstri: Dagný, Oddný, Þór, Sigríður, Þorgerður og Magdalena, árið 1998. 40 ára Guðlaugur er frá Akranesi en býr í Reykjavík. Hann er vélfræðingur að mennt frá Fjöltækni- skólanum og vinnur við viðhald og nýsmíði hjá Össuri. Maki: Sigrún Ósk Björgvinsdóttir, f. 1980, félagsráðgjafi í félagsþjónustunni Miðgarði. Dætur: Lilja María, f. 2012, og Marta Sigríður, f. 2017. Foreldrar: Hjörtur Gunnarsson, f. 1949, vann hjá Landsvirkjun í Búrfellsvirkjun, og Lilja Guðmundsdóttir, f. 1951, fyrrver- andi leikskólastjóri. Þau eru búsett á Akranesi. Guðlaugur Hjartarson Til hamingju með daginn Veiðivefur í samstarfi við Kópavogur Ronja Lísa fæddist 9. ágúst 2019 kl. 16.23. Hún vó 3.672 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Agnes Rut og Tryggvi Berg. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.