Morgunblaðið - 22.07.2020, Síða 28
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hlaupatíminn er í hámarki. Sam-
kvæmt hefðinni nú á miðju sumri
fjölgar hlaupurum sem eru á ferð-
inni með hverjum deginum. Bæði
eru skilyrði til þess að taka á rás öll
hin bestu og svo eru margir að koma
sér í gírinn fyrir Reykjavíkur-
maraþonið sem verður 22. ágúst.
Reyndar eru margir sambærilegir
viðburðir á dagskránni, eins og sjá
má á vefnum hlaup.is. Þátttakan er
aðalatriðið og hlaup stundar fólk
jafnan á eigin forsendum.
Alls 530 manns tóku til dæmis þátt
í Laugavegshlaupinu sem var um sl.
helgi, þar sem farið er yfir „fjöllin
sjö“ á leiðinni úr Landmannalaugum
í Þórsmörk. Ætla má svo að ein-
hverjir sem fóru Laugaveginn stefni
svo á Reykjavíkurmaraþonið.
Aukinn kraftur á lokaspretti
Snorri Björnsson varð fyrstur Ís-
lendinga í mark á Laugaveginum sl.
laugardag. Tvö ár eru síðan Snorri
byrjaði að æfa hlaup, en hann fékk
áhugann eftir að hafa tekið hlað-
varpsviðtöl við Arnar Pétursson og
Kára Stein Karlsson, sem báðir eru
afreksmenn í íþróttinni. Síðan þá
hefur Snorri verið óstöðvandi, hefur
tekið þátt í ýmsum hlaupum – lengri
sem skemmri, meðal annars utan-
vegahlaupum.
Í Laugavegshlaupinu nú fór
Snorri, sem er 26 ára að aldri, úr
Laugum suður í Húsadal í Þórsmörk
á 4.38:33 sem er góður árangur og
raunar betri en hann sjálfur vænti.
„Að morgni hlaupadagsins sá ég
strax að aðstæður voru góðar svo að
ég taldi raunhæft að komast þessa
55 kílómetra sem Laugavegurinn er
á fjórum klukkustundum og 40 mín-
útum, eins og tókst og gott betur,“
segir Snorri. „En vissulega er þetta
þolraun, fyrsti hluti Laugavegarins,
10–15 kílómetrar, er allur upp í móti
og í Hrafntinnuskeri var talsvert
kalt. Þegar sunnar dró var hins veg-
ar hlýrra og veður allt öðruvísi. Svo
þegar lokamarkið nálgast og sést til
fólks sem hrópar hvatningarorð fær
maður aukinn kraft og tekur góðan
lokasprett.“
Utanvegahlaup eru ævintýri
Nokkrum dögum fyrir
Laugavegshlaupið fór Snorri að
finna fyrir eymslum í hægri ökkla
sem gerðu honum erfiðara fyrir.
„Sérstaklega reyndi þetta á þegar
hlaupið var niður í móti, en þá fékk
ég meðal annars högg á læri sem var
talsvert sársaukafullt. Undir slíkt
hafði ég hins vegar búið mig, sjúkra-
þjálfarinn sagði mér að hlaupa og
svo skyldum við athuga ökklann eftir
hlaup. Það verður líka gert – og
næstu daga hef ég hægt um mig,“
segir Snorri Björnsson, sem undir-
strikar að hlaup séu íþrótt fyrir alla.
Utanvegahlaup í fallegu umhverfi
séu ævintýri eitt, en í þessari
íþróttagrein eins og öðru sé mikil-
vægt að hver finni sína fjöl og hvað
sér henti.
Morgunblaðið/Eggert
Hlaupakonur Hreyfingu fylgir góð tilfinning fyrir líkama og sál – og í skokkinu finnur hver hvað sér hentar best.
Íslendingar taka á rás
Hlaupið um há-
sumar Snorri
var á Laugavegi
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Fjallahlauparinn Snorri Björnsson
er afar öflugur í sportinu.
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 204. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði þrennu fyrir Breiða-
blik þegar liðið fékk Íslandsmeistara Vals í heimsókn
í 7. umferð úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu, Pepsi
Max-deildarinnar á Kópavogsvöll í gær.
Blikastúlkur voru mun sterkari aðilinn allan leikinn.
Þær sköpuðu sér mun hættulegri færi í leiknum á
meðan Íslandsmeisturunum gekk afar illa að opna
vörn Kópavogsliðsins. Breiðablik hefur unnið alla
fimm leiki sína í sumar og er með 15 stig í öðru sæti
deildarinnar en Valur er með 16 stig eftir sjö spilaða
leiki. »22
Blikastúlkur tóku risastórt skref
í átt að Íslandsmeistaratitlinum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Heimildarmynd um Andreu Jónsdóttur er í smíðum og
leita höfundar hennar nú að efni tengdu útvarpskon-
unni kunnu sem oft er nefnd rokkamman. Leikstjóri
myndarinnar er Hrafnhildur Gunnarsdóttir og framleið-
andi Anna Hildur Hildibrandsdóttir á vegum fyrir-
tækisins Tattarrattat og biðla þær til Íslendinga að
senda efni tengt Andreu, útvarpsupptökur á kassettum
frá árdögum Rásar 2, myndir og myndbönd gömul og
ný. Hægt er að hafa samband og senda efni í gegnum
facebooksíðuna Rokkamman eða með tölvupósti á net-
fangið rokkamman@gmail.com. Rokkömmuna má einn-
ig finna á instagram.
Óska eftir efni með rokkömmunni