Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Fjöldi ríkja hefur gripið til um-fangsmikilla efnahagsaðgerða vegna kórónuveirunnar. Aðgerðir tengdar virðisaukaskatti eru meðal þeirra sem stjórnvöld hafa beitt til að örva efna- hagslífið og koma í veg fyrir að fyrir- tæki lentu í al- varlegum greiðsluerfið- leikum. Ísland er á meðal þess- ara ríkja, en hef- ur þó farið sér hægt í þessum efnum, slakaði á skil- um fyrirtækja á virðisaukaskatti innan mánaðar. Ýmsar útfærslur á aðgerðum hafa sést, allt frá lítils- háttar frestun upp í umtalsverða al- menna lækkun.    Frestanir á skattskilunum hafa ísumum tilvikum verið til nokkurra mánaða, jafnvel fram á næsta ár, en mörg ríki hafa líka gripið til þess að lækka verulega virðisaukaskatt á ákveðnar greinar sem orðið hafa sérstaklega illa fyr- ir barðinu á veirunni. Í því sam- bandi má nefna að Belgía lækkaði virðisaukaskatt á veitingaþjónustu úr 12% í 6% og Bretland úr 20% í 5% út þetta ár. Þjóðverjar gengu einn- ig langt í lækkun gagnvart veit- ingageiranum en lækkuðu svo al- menna þrepið úr 19% í 16% út árið, og sömuleiðis lægra þrepið úr 7% í 5%.    Hér á landi hafa fyrstu skrefefnahagsaðgerða verið stigin og þau hafa verið myndarleg og haft töluverða þýðingu. Nú er hins vegar tímabært að huga að frekari aðgerðum og horfa þá til skatta- lækkana. Æskilegt væri að slíkar aðgerðir yrðu afgreiddar í upphafi þings í haust og að þær næðu í það minnsta vel fram á næsta ár til að tryggja að hagkerfið rétti sig hratt og öruggleg af eftir þær hremm- ingar sem það gengur nú í gegnum. Aðgerðir í skattamálum STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hallamælingar við Næfurholt við Heklu sýna að þrýstingsauki sem byrjaði eftir gos í Heklu árið 2000 heldur áfram og telja vísindamenn hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Ís- lands að þrýstingur kviku undir Heklu sé núna umtalsvert hærri en hann var á undan gosunum 1991 og 2000. Mælingarnar eru tilefni til að minna á að mælanlegur aðdragandi Heklugosa er yfirleitt stuttur, tals- vert styttri en algengt er hjá öðr- um eldstöðvum, að því er fram kemur á vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. „Ekki er hægt að tryggja það að viðvaranir um yfirvofandi eld- gos berist í tæka tíð fyrir ferða- fólk að forða sér í öruggt skjól. Hér er þess einnig að gæta að gos í Heklu byrja oft með öflugu gjóskugosi. Hópur óviðbúins göngufólks á fjallinu hefur mjög takmarkaða möguleika til að bjarga sér.“ Mælingar hafa verið gerðar á hallamælilínu við Næfurholt í hálfa öld og sýna mælingarnar einkar vel hegðun Heklu og þrýstingsbreyt- ingar í kvikukerfi hennar. „Milli eldgosa vex landhallinn við Næfurholt, upp til austurs, sem stafar af landris umhverfis Heklu“, segir á vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. ragnhildur@mbl.is Þrýstingur hærri en fyrir eldgosin  Aðdragandi Heklugosa yfirleitt stuttur  Tími til að leita skjóls takmarkaður Morgunblaðið/RAX Eldfjall Hekla í öllu sínu veldi. Hið nýja skip Eimskips, Dettifoss, fór í fyrstu ferð sína frá Íslandi til Evrópu á miðvikudagskvöldið. Svo skemmtilega vill til að við stjórnvölinn eru feðgar, þeir Rík- harður Sverrisson skipstjóri og Rík- harður Björgvin Ríkharðsson yfir- stýrimaður. Er þetta í fyrsta sinn svo vitað sé sem feðgar gegna þess- um hlutverkum í sömu siglingu hjá Eimskip. Að sjálfsögðu fóru þeir í viðhafnarklæðnað í tilefni dagsins. Ríkharður eldri verður skipstjóri á Dettifossi á móti Braga Björg- vinssyni. Hann er margreyndur skipstjóri og hefur starfað hjá Eim- skip í 43 ár. Ríkharður yngri er 35 ára en hefur þrátt fyrir ungan aldur unnið sig upp í stöðu yfirstýri- manns. Gunnar Steingrímsson er yfirvél- stjóri í túrnum. Hann er sá eini skipverjanna sem fóru út til Kína 18. mars sem er enn um borð. Fjór- ir til viðbótar sem fóru út 15. apríl eru enn um borð. sisi@mbl.is Ljósmynd/Eimskip Í brúnni Feðgarnir um borð í Dettifossi áður en lagt var af stað til Evrópu. Feðgar við stýrið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.