Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að hafa samband í síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is og panta tíma til skoðunar. Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi. STILLHOLT 21 - AKRANESI Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu. Sýningaríbúð á 1. hæð. Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandnum HTH Innhurðir og flísar frá Parka Heimilistæki frá Ormsson Skáksamband Íslands birti ádögunum lista yfir þá tíukeppendur sem hugðusttefla í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands sem hefst í Garða- bæ 22. ágúst. Mótið er haldið í Garðabæ í tilefni 40 ára afmælis Taflfélags Garðabæjar. Síðan drógu sig út úr mótinu þeir Jóhann Hjartarson og Héðinn Steingríms- son. Hugsanlegt er að Margeir Pétursson og Þröstur Þórhallsson taki sæti þeirra. En þessir eru skráðir til leiks: Íslandsmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Guðmundur Kjartansson, Bragi Þorfinnsson, Helgi Áss Grétarsson, Dagur Ragnarsson, Vignir Vatnar Stef- ánsson og Gauti Páll Jónsson. Goðsagnir að tafli Ég var farinn að halda að skipu- leggjendur mótaraðarinnar sem kennd er við Magnús Carlsen hefðu gleymt að bjóða til leiks nokkrum af hinum frábæru meisturum sem ný- lega skriðu yfir fimmtugt og eru því komnir samkvæmt skilgreiningu Jóns Þorvaldssonar á „viskualdur- inn“. En á fjórða mótinu í mótaröð- inni sem ber nafnið Goðsagnir skákarinnar – Legends of chess – og hófst 21. júlí tefla nú Anand, Ívant- sjúk og Gelfand og einnig Vladimír Kramnik, 45 ára, sem í fyrra kvaðst vera hættur að tefla en vill greini- lega vera með á mótum með styttri umhugsnartíma. Fyrirkomulagið er sem fyrr nokkuð flókið, en keppend- urnir tíu tefla allir við alla fjögurra skáka einvígi með tímamörkunum 15 10. Sigurvegarinn fær 3 stig. Þegar einvígismótinu lýkur tekur við út- sláttarkeppni átta efstu manna. Eftir þriðju umferð sem tefld var á fimmtudaginn var Magnús Carlsen búinn að vinna viðureignir sínar og var með 9 stig en helsti keppinautur hans virðist ætla að verða Nepomni- achtchi sem einnig var með 9 stig. Ívantsjúk, sem ekki hefur sést við taflið lengi, vann Ungverjann Leko glæsilega með því að beita kóngs- bragði, og Boris Gelfand vann Liren Ding í aðeins 16 leikjum. Það er góð skemmtun að fylgjast með þessum skákum á Chess24.com. Lítum á glæsilegan sigur Nepo úr 2. umferð: Jan Nepomniachtchi – Liren Ding Skoski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rxc6 bxc6 6. e5 De7 7. De2 Rd5 8. c4 Ba6 9. h4!? Skemmtilegur leikur sem sést af og til. Með þessu getur hvítur virkj- að hrókinn á h1. 9. …f6 10. Hh3 fxe5 11. Bg5 Rf6 12. He3 d6 13. Df3 e4 14. Dd1 d5?! Hér sést vel hversu viðkvæm staðan er. Svartur varð að draga biskup sinn til b7 og reyna að hró- kera langt. 15. Rc3 Bb7 16. cxd5 cxd5? Eftir annan ónákvæman leik á svartur sér ekki viðreisnar von. Nokkurt hald var í 16. … O-O-O. 17. Bxf6 Dxf6 18. Rxd5 Bxd5 19. Bb5+! Nú tekur við ágætis kennslu- stund í því hvernig menn geta not- fært sér leppanir. 19. … Bc6 20. Hxe4+! Be7 21. Dd5! 21. … Hd8 21. … Bxb5 22. Dxa8+ Kf7 23. Dd5+! er alveg vonlaust. 22. Bxc6+ Kf8 23. Dc4 Bd6 24. Hd1 g6 25. Hd3 Kg7 26. Hf3 Dxb2 27. Hf7+ Kh6 28. g4? Þetta virðist ætla að enda með máti en nákvæmara var samt 28. Kf1! og síðan g4. 28. … Db1+? Hann gat haldið jöfnu með 28. .. Da2 29. Ke2 og nú 29. … Bb4! Hér munar öllu að d4-reiturinn er vald- aður. 29. Ke2 Bb4 30. Hd4! Hhe8+ 31. Kf3 Kóngurinn virðist berskjaldaður en biskupinn skýlir honum. 31. … Dh1+ 32. Kg3 He3+ 33. fxe3 Dxe3+ 34. Bf3 - og svartur gafst upp. Keppni í landsliðsflokki hefst 22. ágúst Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Einar S. Einarsson Vignir Vatnar Stefánsson vann hið árlega hraðskákmót skákdeildar KR við Selvatn en í öðru sæti varð Jóhanna Björg Jóhannsdóttir. Þau eru hér með formanni skákdeildar, Kristjáni Stefánssyni. Á fundi borgarráðs hinn 23. júlí sl. var lagt fram bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneyt- inu, dags. 22. júní 2020, og var efni þess sam- komulag ríkisins og Reykjavíkurborgar um skipulag og uppbygg- ingu á landi við Skerja- fjörð. Kynnti borgar- stjóri að bréfið hefði borist Reykjavíkurborg í kjölfar fyrirspurnar á Alþingi til fjármála- og efnahagsráðherra um efnið, sem þeg- ar betur var að gáð var frá formanni Miðflokksins, Sigmundi Davíð Gunn- laugssyni. Í bréfi fjármálaráðuneytisins kem- ur fram að ráðuneytið veki athygli á að samkvæmt umræddu sam- komulagi var gert ráð fyrir að allt byggingarland yrði selt með opnum og gegnsæjum hætti þar sem samið yrði við hæstbjóðanda á einstökum lóðum og lóðarhlutum. Ráðuneytið benti jafnframt á að samkvæmt fyrir- liggjandi úthlutunaráætlun stæði til að ráðstafa án auglýsingar tilteknum byggingarreitum í sérstökum til- gangi, þ.e. til Bjargs, Félagsstofn- unar stúdenta og til byggingar hag- kvæmra íbúða sem borga lítinn eða engan byggingarrétt af lóðum. Þá benti ráðuneytið jafnframt á að tæki Reykjavíkurborg ákvörðun um að fara þá leið þyrfti að taka mið af því í uppgjöri ríkis og borgar á sölu- andvirði byggingarréttarins og kæmi það til með að leiða til þess að borgin fengi lægri hlut í heildarsöluverði sem næmi þeim mismun sem yrði á úthlutunarverði og markaðsverði við- komandi lóða og byggingarreita. Kaupverð Reykjavíkur á landinu var ákvarðað 440 milljónir í samningnum frá 2013, sem skilgreindar voru sem lágmarksverð fyrir landið. Var skilyrt að kaupverð fyrir land ríkisins yrði greitt þegar afsal yrði gefið út þegar fyrir lægi formleg tilkynning þáver- andi innanríkisráðuneytis/Isavia til Reykjavíkurborgar um að lokun norðaustur/suðvestur-flugbrautar (neyðarbrautin) hefði tekið gildi gagnvart öllu flugi. Samkvæmt bréfinu frá ráðuneyt- inu gekk kaupsamningur og afsal eftir hinn 11. ágúst 2016. Samkvæmt sam- komulaginu á Reykja- víkurborg að fá fyrstu 440 milljónirnar af sölu byggingarréttar áður en ríkið fær krónu, en ríkið á að fá 560 millj- ónir stighækkandi þeg- ar 1,25 milljörðum er náð á sölunni, og 30% til viðbótar þegar þeirri upphæð er náð. Með öðrum orðum: Borgin var í yfirburðastöðu í þessum samningum því Samfylkingin í borgarstjórn og Samfylkingin í ríkisstjórn gengu frá þessum díl. Þessi samningur Dags B. Egg- ertssonar og Katrínar Júlíusdóttur, þáverandi fjármálaráðherra, var ein- hliða borginni í hag en ekki ríkinu, því líta má svo á að kaupverð Reykjavíkurborgar hafi verið lán til ríkisins. Eða enn frekar; gjöf ríkisins til Reykjavíkurborgar því ríkið átti 63,06% af landsvæðinu öllu. Ef borgarstjóri og núverandi meirihluti nær ekki að selja byggingarréttinn fyrir meira en 440 milljónir fær ríkið ekkert í sinn hlut. Nái Reykjavíkur- borg að selja byggingaréttinn fyrir 700 milljónir fær ríkið í sinn hlut ein- ungis 260 milljónir. Nú er fjármála- og efnahagsráðu- neytið að átta sig á orðnum hlut og er að úrskurða að Reykjavíkurborg beri tjón af því að auglýsa ekki bygg- ingarréttinn á landinu og selja til hæstbjóðanda samkvæmt samn- ingnum til að hámarka virði ríkisins. Ég lít svo á að borgarstjóra sé alveg sama hvað útsvarsgreiðendum í Reykjavík blæði í endurgreiðslum til ríkisins fyrir flugvallarsvæðið – hans markmið og Samfylkingarinnar er að koma flugvellinum burt úr Vatns- mýrinni „sama hvað það kostar“. Aðförin að Reykjavíkur- flugvelli í Vatnsmýrinni Eftir Vigdísi Hauksdóttur » Samkvæmt sam- komulaginu á Reykjavíkurborg að fá fyrstu 440 milljónirnar af sölu byggingarréttar áður en ríkið fær krónu Vigdís Hauksdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins. Páll Steingrímsson fæddist 25. júlí 1930 í Vestmanna- eyjum. Foreldrar hans voru hjónin Steingrímur Benediktsson skólastjóri, f. 1901, d. 1971, og Hallfríður Kristjánsdóttir hús- móðir, f. 1899, d. 1967. Páll lauk prófi frá Kenn- araskóla Íslands árið 1951 og útskrifaðist frá kvikmynda- deild í New York-háskóla 1972. Páll var kennari í Vest- mannaeyjum og stofnaði myndlistaskóla þar og rak til fjölda ára. Hann fluttist síðan til Reykjavíkur og gerðist kvik- myndagerðarmaður. Hann var einn af stofnendum Félags kvikmyndagerðarmanna og formaður félagsins um skeið. Meðal mynda Páls má nefna Eldeyjan (1973), Hvalakyn og hvalveiðar (1988), Oddaflug (1993) og Öræfakyrrð (2004). Páll hlaut fjölmargar viður- kenningar fyrir störf sín hér á landi og erlendis. Eldeyjan hlaut til að mynda gullverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í Atlanta í Bandaríkjunum. Hann hlaut heiðursverðlaun Ís- lensku kvikmynda- og sjón- varpsakademíunnar árið 2004 og fjölmiðlaverðlaun umhverf- is- og auðlindaráðuneytisins 2013 fyrir störf í þágu íslenskr- ar náttúru. Börn Páls eru þrjú. Páll lést 11. nóvember 2016. Merkir Íslendingar Páll Stein- grímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.