Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020
Við Fellsmúla | Sími: 585 2888
ÚRVAL ÚTILJÓSA
Þurrkar hafa víða haftalvarlegar afleiðingareins og nýlegir skógar-eldar í Ástralíu bera með
sér. Spennusagan Ógnarhiti eftir
Jane Harper fellur vel að stað-
háttum í suðausturhluta landsins
og frá fyrstu til síðustu síðu er
lesandinn dreginn inn í veröld sem
hann vill síst vera hluti af. Vel
samin og uppbyggð saga í ógn-
vænlegu umhverfi.
Lífið getur verið ömurlegt, ekki
síst þegar flest eggin eru í sömu
körfu og ytri aðstæður hafa mikil
áhrif á af-
komu íbú-
anna.
Lögreglu-
maðurinn
Aaron Falk er
í aðalhlut-
verki sög-
unnar. Hann
ólst upp í
smábæ og eft-
ir að hafa
hrökklast með
föður sínum í burtu og sest að í
Melbourne kemur hann aftur
tveimur áratugum síðar til þess að
fylgja Luke Hadler, æskuvini sín-
um, og fjölskyldu hans til grafar.
Honum er vægast sagt illa tekið
og gamlar ásakanir um að hafa átt
þátt í dauða Ellíar Deacon, vin-
konu þeirra, fá byr undir báða
vængi. Aukinheldur virðist
kveikjuþáðurinn víða stuttur, ekki
síst vegna langvarandi þurrka og
uppskerubrests, og múgsefjunin
virðist vera það helsta sem
blómstrar.
Allt bendir til þess að Luke hafi
myrt eiginkonu sína og son þeirra
og síðan framið sjálfsmorð. Við
þessar erfiðu aðstæður biðja for-
eldrar Lukes Falk að rannsaka
hvað hafi legið að baki og með
semingi fellst hann á það. Eftir
því sem fleiri steinum er velt við
kemur meira, sem þolir illa dags-
birtu, upp á yfirborðið og hitinn
eykst stöðugt.
Allt við söguna virkar raunveru-
legt. Umhverfið, náttúruöflin, per-
sónur og leikendur.
Eineltið, klíkurnar, foringinn og
fylgjendur hans, vonleysið, mis-
notkunin og flóttinn frá veru-
leikanum. Sviðsmynd sem sjá má
víða og gerir þessa spennandi
glæpasögu sérlega trúverðuga.
Ógnarhiti er ekki aðeins spenn-
andi og trúverðug glæpasaga
heldur varpar hún ljósi á vanda-
mál, sem ýmist er gjarnan litið
framhjá og sópað undir teppi eða
útkljáð með ofstæki, lygum og
fjandskap. Þess vegna hittir hún í
mark.
Ógnarstjórn og ofstæki hættuleg blanda
Höfundurinn Ógnarhiti eftir Jane Harper er vel samin og uppbyggð saga í
ógnvænlegu umhverfi, að mati gagnrýnanda sem segir bókina hitta í mark.
Spennusaga
Ógnarhiti bbbbm
Eftir Jane Harper.
Gísli Rúnar Jónsson íslenskaði.
Sögur útgáfa 2020. Kilja, 350 bls
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar
sýninguna Flæði í Einkasafninu í dag
kl. 12 og mun hún taka á móti gestum
með fljótandi veigum og öðru sem
náttúra staðarins hefur upp á að
bjóða, eins og segir í tilkynningu.
Aðalheiður hefur dvalið í safninu
undanfarið og andað að sér alltum-
lykjandi náttúru og andagift, eins og
því er lýst. Hún vinnur með timbur á
ýmsa vegu og tengir flæði líðandi
stundar því sjálfsprottna sem fyrir
er. Sýningin verður einnig opin á
morgun, sunnudag, frá kl. 14 til 17 og
líka 1. og 2. ágúst á sama tíma.
Aðalheiður hefur unnið ýmis störf
á sviði myndlistar ásamt því að vera
athafnasamur myndlistarmaður. Hún
starfrækti Kompuna, gallerí á Akur-
eyri, í átta ár, tók virkan þátt í upp-
byggingu Listagilsins svonefnda á
Akureyri og er auk þess einn stofn-
enda Verksmiðjunnar á Hjalteyri.
Hún hefur verið í sýningarnefnd
Skaftfells á Seyðisfirð, gjaldkeri Gil-
félagsins á Akureyri og varaformaður
Myndlistarfélagsins á Akureyri. Í
desember 2011 keypti Aðalheiður Al-
þýðuhúsið á Siglufirði og hefur komið
upp vinnustofu þar og stendur auk
þess þar fyrir mánaðarlegum menn-
ingarviðburðum. Hún hlaut menning-
arverðlaun DV árið 2015 og var til-
nefnd til Eyrarrósarinnar árin 2017
og 2020 fyrir starfið í Alþýðuhúsinu.
Einkasafnið er verkefni mynd-
listarmannsins Aðalsteins Þórssonar
en í því gengur hann út frá því að af-
gangar neyslu sinnar séu menningar-
verðmæti, segir í tilkynningu, á svip-
aðan hátt og litið sé á hefðbundna
sköpun, afganga hugans, sem menn-
ingarverðmæti.
„Vorið 2017 byrjaði Aðalsteinn að
byggja Miðstöð Einkasafnsins, heim-
ili þess, þar sem hægt er að sjá safn-
kostinn til frambúðar. Stefnt er að því
að Miðstöð Einkasafnsins verði sjálf-
bær eining hvað varðar orkuöflun og
meðferð úrgangs. Leitast er við að
Einkasafnið gefi eins heillega mynd
af fyrirferð einstaklings í umhverfinu
og nokkur kostur er og skoði um leið
áhrif þessarar fyrirferðar á umhverf-
ið,“ segir í tilkynningu um safnið og
að sýning Aðalheiðar sé sú þriðja og
síðasta í sýningaröð þriggja lista-
manna sem sækja Einkasafnið heim
nú í sumar. Aðalheiður kemur í kjöl-
far þeirra Hrafnkels Sigurðssonar og
Örnu G. Valsdóttur.
Einkasafnið er um 10 km sunnan
Akureyrar og stendur við syðri af-
leggjara þjóðvegar 822, Kristnes-
vegar. Frekari fróðleik um Einka-
safnið má finna á steini.art.
Þriðja Aðalheiður er þriðji listamaðurinn sem sýnir í Einkasafninu í sumar.
Hér sést hún með verk í vinnslu í Einkasafninu norður í landi.
Aðalheiður sýnir í
Einkasafni Aðalsteins
Sýning á verkum Aðalsteins G.
Aðalsteinssonar verður opnuð í
dag, laugardag, kl. 14 í Borgar-
bókasafninu Kringlunni. Aðalsteinn
á langan feril að baki í myndlist, er
að mestu sjálfmenntaður en hefur
sótt námskeið bæði í teiknun og
málun. Á sýningunni gefur að líta
teikningar og málverk og stendur
hún yfir til 15. ágúst.
Aðalsteinn sýnir verk sín í Kringlunni
Litríkt Eitt af verkum Aðalsteins.