Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 40
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Um 40 skákmenn voru orðnir þreyttir
á því að tefla á netinu og fylltu úti-
svæði Kex Hostel á fimmtudag, þar
sem skákmót Miðbæjarskákar fór
fram í sólskinsveðri. Samkomutak-
markanir hafa haft hamlandi áhrif á
íslenskt skáklíf og hafa skákmót í
auknum mæli því farið fram á netinu.
Hver maður veit þó að raunheimur
býður upp á mun skemmtilegri
reynslu en netheimur og var því
framtak Miðbæjarskákar kærkomið
tækifæri fyrir skákmenn til að taka
upp þráðinn, finna fyrir keppnis-
skapinu og rifja upp gamla takta við
alvöru skákborð.
„Þetta er mjög skemmtileg stað-
setning og það eru allir í góðu skapi.
Allir eru bara búnir að vera inni
síðastliðna mánuði og ég held að þetta
sé fyrsta útimótið í langan tíma,“
sagði Dagur Ragnarsson, landsliðs-
maður í skák. Dagur var með fullt hús
vinninga þegar blaðamaður tók hann
tali að fimm umferðum loknum: „Ég
er einhvers staðar í kringum annað
sætið,“ sagði Dagur.
Ingi Tandri Traustason lætur sig
sjaldan vanta á hraðskákmótin, enda
teflt í 18 ár.
„Mér hefur reyndar ekki gengið
svo vel til þessa, en þetta er stór-
skemmtilegt mót. Gott veður og gott
andrúmsloft,“ sagði Ingi.
Róbert Lagerman, skákmaður og
formaður Vinaskákfélagsins, gætti
ítrasta hreinlætis á skákstað, búinn
andlitsgrímu og hönskum:
„Það verður að passa upp á hrein-
lætið,“ sagði hann.
15 manns á fyrsta mótinu
„Þetta gekk fram úr björtustu
vonum,“ sagði Elvar Örn Hjaltason,
einn stofnenda skákfélagsins Mið-
bæjarskákar, sem kom eins og
stormsveipur í íslenskt skáklíf. Er
líklega helsta sérstaða félagsins að
það stendur fyrir mótum fyrir hinn
hefðbundna skákáhugamann, sem
stundum er kallaður kaffihúsa-
skákmaðurinn.
„Fyrsta mótið sem við héldum
var í ágúst 2018. Ætli það hafi ekki
komið svona 15 manns,“ sagði
Elvar.
„Ég og Héðinn Briem vinur minn
stofnuðum félagið, okkur fannst
vanta mót af þessu tagi. Við vorum
kannski oft að fara á kaffihús, taka
vini með og tefla. Síðan fórum við að
heyra í kaffihúsum sem tóku vel í
hugmyndina,“ segir hann.
Síðan í júní 2019 hefur félagið
haldið mót í hverjum mánuði, ýmist
á netinu eða í raunheimi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barátta Mikið keppnisskap er nauðsynlegt sem og gífurleg þrautseigja þegar barist er um sigur yfir taflborðinu.
Þjálfa hugann í sólinni
eftir langa inniveru
Netskák í samkomubanni liðin tíð Um 40 mættu á Kex
Teflt Róbert Lagerman, formaður
Vinaskákfélagsins, var vel búinn.
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 207. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Ég er að spila með leikmönnum sem ég þekki og
voru jafnvel með mér í yngri flokkunum. Þótt það
sé auðvitað aldrei skemmtilegt að þurfa að skipta
um lið af því að hlutirnir ganga ekki upp, þá er frá-
bært að geta farið í uppeldisfélagið,“ segir Ívar Örn
Jónsson, sem er nýkominn aftur til HK eftir átta
ára fjarveru og var í stóru hlutverki í óvæntum sigri
liðsins á Breiðabliki í Pepsi Max-deild karla í fót-
bolta. »33
Frábært að geta farið
í uppeldisfélagið
ÍÞRÓTTIR MENNING
Á áttundu tónleikum sumardjasstónleikaraðar veit-
ingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu, sem haldn-
ir verða í dag, laugardaginn 25. júlí, kemur fram tríó
gítarleikarans Björns Thoroddsen ásamt söngkonunni
og fiðluleikaranum Unni Birnu Bassadóttur. Sigurgeir
Skafti Flosason leikur á bassa og Skúli Gíslason á
trommur. Hljómsveitin mun flytja fjölbreytta efnisskrá
og fara tónleikarnir fram utandyra, á Jómfrúartorginu,
að venju og hefjast klukkan 15. Aðgangur er ókeypis.
Tríó Björns á Jómfrúartorgi