Morgunblaðið - 25.07.2020, Page 16

Morgunblaðið - 25.07.2020, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Úrval mælitækja frá STANGVEIÐI Eggert Skúlason eggertskula@mbl.is Línur eru nú farnar að skýrast varðandi laxveiðina. Ein á er í sér- flokki og er það Eystri Rangá. Þar er hreint út sagt ævintýraleg veiði og skilaði síðasta vika rétt rúmlega 700 löxum, samkvæmt tölum sem Landssamband veiði- félaga tekur saman vikulega. Ytri Rangá er að gefa ágæta veiði en er þó ekki hálfdrættingur á við systurána. Vesturlandið er vonbrigði þegar kemur að veiðitölum það sem af er sumri. Sérstaklega er Borgarfjörðurinn ekki að standa undir þeim væntingum sem fiski- fræðingar höfðu til smálaxafjölda í sumar. Stærstu straumarnir fyrir Borgarfjarðarárnar eru að baki og ljóst að veiðin í þessum ám, Norð- urá, Þverá/Kjarrá og fleiri gerir ekkert meira en að ná lélegu með- altali. Leigutaki á Vesturlandi sagði í samtali við Morgunblaðið að Borgarfjörðurinn væri í besta falli á „hálfu gasi“ miðað við það sem menn ættu að venjast. Norðurá er komin yfir heildar- veiði ársins í fyrra en það var það lélegasta í manna minnum og tal- að um það sem hörmungarár. Norðvesturlandið er sömuleiðis ekki að skila þeirri veiði sem von- ast var eftir. Þar er þó ekki útséð með niðurstöðuna. Sá straumur sem nú er nýbúinn að ná hámarki á að skila stærstum hluta af smá- laxi í húnvetnsku árnar. Ljóst er að fiskur er ekki að ganga í þeim mæli sem vonast var eftir. Norðurlandið er á svipuðum slóðum og er býsna rólegt víðast hvar. Þannig eru núna taldir bestu dagarnir í ánni og veiðin er dræm. Það er einna helst að Þistilfjörðurinn og Vopnafjörð- urinn gefi tilefni til bjartsýni. Hofsá og Selá eru báðar að byrja ágætlega og sömu sögu er að segja af Hafralónsá, Svalbarðsá og Sandá. Besta veiðin á Suðurlandi Sem fyrr segir er það Suður- landið sem gefið hefur bestu veið- ina. Það eru Rangárnar og svo var veiði í Þjórsá framan af sumri mjög mikil. Þjórsá er talin geyma einn stærsta laxastofn Íslands. Um 1.200 laxar eru gengnir í Elliðaárnar og er mun meira en var að gerast í fyrra. Veiðitöl- urnar endurspegla ekki þessa miklu laxagengd og kann þar að skipta máli breytt veiðifyrirkomu- lag, en þetta sumar er fyrsta sumarið sem maðkur er ekki leyfður í Elliðaám. Veruleg bjartsýni ríkti meðal veiðimanna fyrir sumarið. Ástæð- ur fyrir því voru nokkrar. Fiski- fræðingar gáfu undir fótinn með sterkt smálaxasumar og einnig voru menn minnugir þess að mjög góð ár fylgdu í kjölfar niðursveiflu sem varð árið 2012 og 2014. Slíkt er ekki að gerast núna og í mörg- um þekktari ám á Íslandi er veiði undir væntingum annað árið í röð. Á móti kemur í mörgum þessum ám að víða er veitt á færri stangir en í hefðbundnu ári. Þar eru kórónuveiruáhrif að verki. Margir erlendir veiðimenn hafa ekki séð sér fært að koma og ekki hefur verið hægt að manna allar stangir með skömmum fyrirvara. Ekki er rétt að afskrifa sumarið en ljóst er að það mun í besta falli ná meðalári og líkast til ekki því. Stefnir í slakt meðalsumar  Besta veiðin í sumar hefur verið á Suðurlandi  Eystri Rangá í sérflokki og í síðustu viku veiddust þar 700 laxar  Veiði í ám á Vesturlandi veldur vonbrigðum Morgunblaðið/Eggert Skúlason Vænn Erlendur veiðimaður með vænan lax í Hofsá í Vopnafirði. Afl ahæstu árnar Heimild: www.angling.is 0 500 1.000 1.500 2.000 2.500 Staðan 23. júlí 2020 Veiðistaður Stanga- fjöldi Veiði 24. júlí 2019 25. júlí 2018 Eystri-Rangá 18 2.275 1.183 1.070 Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki 18 897 467 1.114 Urriðafoss í Þjórsá 4 657 636 955 Norðurá 15 582 184 1.231 Miðfjarðará 10 540 493 1.058 Þverá og Kjarrá 14 477 355 1.817 Haffjarðará 6 428 256 948 Langá 12 385 155 842 Laxá í Kjós 8 325 75 551 Selá í Vopnafi rði 6 308 374 492 Hofsá og Sunnudalsá 6 276 325 280 Laxá á Ásum 4 275 202 335 Blanda 16 262 325 668 Elliðaárnar 6 222 303 566 Hítará 6 210 57 337 Talningar í Stóra-Bretlandi benda til þess að grágæsum sé nú að fækka. Þetta kom fram á facebook- síðu Skotveiðifélags Íslands. Dr. Arnór Þórir Sigfússon dýra- vistfræðingur sagði að talningar 2017 og 2018 hefðu bent til fækk- unar grágæsa. Árið 2018 voru ekki taldar nema 56.000 grágæsir, sem er það minnsta sem hefur sést síðan 1976. Mögulega getur verið um talningarskekkju að ræða. Tölur fyrir 2019 eru ekki komnar en eru væntanlegar í ágúst eða september. „Nú vantar okkur ungahlutfall grágæsa hér á landi undanfarin þrjú ár til að túlka þetta. Það segir svolítið til um afkomu gæsastofn- anna á hverju ári og þar með hvort þeir eru að stækka eða minnka,“ sagði Arnór. Hann naut stuðnings úr veiðikortasjóði til að lesa aldur veiddra gæsa af vængjum þeirra. Arnór hefur ekki fengið styrk til þess í þrjú ár. Ungahlutfallið gaf vísbendingar um afkomu gæsa- stofnanna sem hér eru veiddir. gudni@mbl.is Vísbendingar eru um fækkun grágæsa Morgunblaðið/RAX Grágæsir Vísbendingar eru um að stofninn sé að minnka. Mynd úr safni. Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póst- mála hefur vísað frá kæru á hendur Póst- og fjarskiptastofnun vegna út- hlutunar tíðniheimilda fyrir 5G- senda. Kærendur voru Geislabjörg, félag fólks um frelsi frá rafmengun, og þrír ónafngreindir einstaklingar sem kröfðust þess að ákvarðanirnar yrðu felldar úr gildi. Póst- og fjarskiptastofnun krafð- ist frávísunar á þeim forsendum að kærendur væru ekki aðilar að mál- inu enda ættu þeir ekki beinna lög- varinna hagsmuna að gæta af úr- lausn þessa máls. Kærendur höfnuðu því. Um væri að ræða álita- efni á sviði umhverfisréttar og ljóst að heilsufarsáhrif féllu þar undir. AFP 5G Einn kærenda flutti frá Reykja- vík til þess að forðast rafmengun. 5G-kæru vísað frá Stjórn VR dró yfirlýsingu sína frá 17. júlí til baka í gær. Í yfir- lýsingunni var mælst til þess að stjórnarmenn sem VR tilnefnir í Lífeyrissjóð verzlunarmanna sniðgengju væntanlegt hluta- fjárútboð Icelandair. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður félagsins, hefur verið gagnrýndur af Samtökum atvinnulífsins, seðla- bankastjóra og fleirum fyrir að reyna með tilmælunum að hafa áhrif á fjárfestingarákvarðanir stjórnar- manna sem hann tilnefnir í stjórn líf- eyrissjóðsins. VR dró yf- irlýsingu sína til baka Ragnar Þór Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.