Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 20

Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ V eirur eru ósýnilegur óvinur og hættulegar fyrir vikið. Þær ráðast að okkur þegar minnst varir og geta gert skelfilegt tjón. Ríkis- stjórnin hefur líka verið nánast ósýnileg frá upphafi og valdið skaða. Hún kaus að auka útgjöld til þess að kaupa sér vinsældir. Framtíðin skipti engu. Staða ríkissjóðs er nú um 100 milljörðum lakari en ef stefnu Viðreisn- arstjórnarinnar hefði verið fylgt. Sagnfræðingurinn Yuval Noah Harari, sem skrifaði bókina Sapiens, talar um að stjórn- málamenn hafi ekki lengur framtíðarsýn held- ur hugsi fyrst og fremst um að fylla stólana sem þeim bjóðast. Margir segja eflaust að það sé ekki rétt, markmiðið sé alltaf að hjálpa vin- um og flokksmönnum að komast að kjötkötl- unum. Sala ríkisbankanna á sínum tíma til tveggja hópa, sem höfðu það eitt sér til ágætis að vera þóknanlegir hvor sínum stjórnarflokki, er líklega skelfi- legasta dæmið um slæm stjórnmál á þessari öld. En slæm- ar ákvarðanir í fortíðinni mega ekki verða til þess að eng- inn þori að gera neitt. Tónninn í núverandi stjórnarsamstarfi var sleginn þeg- ar formaður Framsóknarflokksins skýrði hvernig flokk- arnir náðu saman: „Með því að einbeita okkur að þessum verkefnum sem allir eru meira og minna sammála um að þurfi að fara í þá getum við vonandi náð að uppfylla þær væntingar sem landsmenn hafa til ríkisstjórnar.“ Með öðrum orðum, við tók fjögurra ára starfsstjórn sem ætlaði ekki að breyta neinu. Núvitund er leið til að efla vellíðan með því að beina athygli að líðandi stund og finna betur fyrir sjálfum sér, hugsunum sínum og líðan. Núvitund skeytir því hvorki um fortíð né fram- tíð. Þetta kann að hjálpa einstaklingum, en er afleit stefna í stjórnmálum. Samt mætti kalla ríkisstjórnina Núvitundarstjórnina, því að hún hefur enga stefnu nema það „sem allir eru meira eða minna sammála um“. Og þó. Flokkarnir hafa skapað nýja auð- mannastétt með því að vera á móti markaðs- tengdu auðlindagjaldi í sjávarútvegi. Þeir vilja ráða því hvað fólk borðar með innflutnings- höftum og tollum á erlend matvæli. Ráðherrar eru einhuga um að hér skuli vera gjaldmiðill sem flöktir bæði í logni og vindi. Loks telja þeir best að Ísland sé aukafélagi í Evrópusam- bandinu, án atkvæðisréttar. Ríkisstjórnin sameinast um kyrrstöðuna. Þegar loksins kemur eitthvað frá stjórnarflokkunum verður það oft broslegt, til dæmis tillagan um sex ára kjör- tímabil forsetans „eins og í nágrannalöndunum“. Ísland þarf framsækna ríkisstjórn, stjórn sem vill að þjóðin öll njóti afraksturs af sameiginlegum auðlindum, gerir Ísland að virkum þátttakanda í alþjóðastarfi og hverfur frá einangrunarhyggju, tryggir öllum lands- mönnum jafnan atkvæðisrétt, beitir sér fyrir lægra mat- vælaverði og stöðugum gjaldmiðli. Þjóðin þarf stjórn sem berst gegn veirum og óværum. Benedikt Jóhannesson Pistill Ósýnilegi óvinurinn Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð samþykkti á síð-asta fundi sínum að heim-ila umhverfis- og skipu-lagssviði að bjóða út framkvæmdir vegna ljósleiðaravæð- ingar dreifbýlis í Reykjavík. Um er að ræða m.a. fram- kvæmdir á Kjalarnesi, Álfsnesi, Úlfarsfelli, Hólmsheiði og Elliða- vatnslandi. Miðað er við 136 styrk- hæfa staði samkvæmt lista sem lagð- ur var fram í borgarráði og að þeim verður lagður ljósleiðari og sett upp tengibox. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður krónur 112.560.000. Þar af er áætlaður hluti Reykjavíkurborgar 50 milljónir og fjarskiptasjóður styrkir verkefnið um krónur 48.960.000, samkvæmt samningi við Reykjavíkurborg. Inntaksgjald sem húseigendur/íbúar þurfa að greiða til fjarskiptafélags verði kr. 100.000 án virðisaukaskatts. Flýta verkinu vegna Covid Áætlað er að lokað útboð fari fram hið fyrsta og að framkvæmdum ljúki eigi síðar en 1. apríl 2021. Verk- efnið er hluti af áætlun um að flýta fjárfestingarverkefnum Reykja- víkurborgar með það að markmiði að veita viðspyrnu við atvinnuleysi af völdum Covid-19. Fram kemur í greinargerð Ámunda Brynjólfssonar, skrif- stofustjóra framkvæmda og viðhalds hjá borginni, að í febrúar 2018 var auglýst eftir hæfum aðilum til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi í dreifbýli Reykjavíkur með stuðningi frá opinberum aðilum. Farið verður í lokað útboð milli þeirra aðila sem skiluðu inn umsóknum. Samið verður við þann sem óskar eftir lægstu styrkupphæð til uppbyggingar kerf- isins og uppfyllir að öðru leyti upp- settar kröfur. Séu tilboð hins vegar hærri en sem nemur kostnaðar- áætlun verður þeim hafnað. Við afgreiðslu málsins í borgar- ráði voru lagðar fram bókanir og fóru þær í gamalkunnan farveg milli full- trúa meirihlutaflokkanna og Vigdísar Hauksdóttur, áheyrnarfulltrúa Mið- flokksins. „Með vaxandi notkun netsins hefur þörf almennings fyrir gögn og hraðan gagnaflutning margfaldast og er ljósleiðaravæðing lykillinn að því að anna þessari eftirspurn. Reykjavík er meðal fremstu borga heims þegar kemur að góðri nettengingu íbúa og er þessi aðgerð hluti af því að bjóða upp á frábæra innviði sem sóma sér vel á 21. öldinni og þá tækniþróun sem henni fylgir,“ bókaði meiri- hlutinn. „Það er mjög gleðilegt að ljós- leiðaravæðing dreifbýlis í Reykjavík sé nú loksins að verða að veruleika. Það er samt kaldhæðnislegt að Co- vid-19 þurfi til en verkefnið er keyrt á þeim grunni í gegnum kerfið. Algjört áhugaleysi hefur einkennt störf meirihlutans gagnvart þessu hverfi Reykjavíkur, sem er svo mikilvægt borginni í stóra samhenginu. Íbúar á þessu svæði hafa ekki staðið jafnfætis öðrum íbúum Reykjavíkur og er það borgarstjóra og meirihlutanum til skammar því enginn áhugi var á að sækja um fjármagn í fjarskiptasjóð,“ bókaði Vigdís m.a. Þyrlar upp rugli og ryki „Það er beinlínis allt rangt í bók- un Miðflokksins, að venju,“ gagnbók- uðu fulltrúar meirihlutans. „Það er furðulegt að borgarráðs- fulltrúi Miðflokksins nenni að reyna að þyrla upp rugli og ryki í þessu já- kvæða máli í stað þess að samfagna Kjalnesingum og öðrum sem njóta munu góðs af.“ Ljósleiðari lagður í dreifbýli Reykjavíkur Morgunblaðið/Þórður Kjalarnes Fjölmargir staðir verða tengdir ljósleiðara á næstu mánuðum. Markmið íslenskra stjórnvalda á sviði fjarskipta fyrir landið í heild er að 99,9% lögheimila og fyrirtækja eigi kost á 100 Mb/s þráðbundinni nettengingu í árs- lok 2020. Til að það takist þarf að veita ríkisstyrki til ljósleið- arauppbyggingar í dreifbýli ut- an markaðssvæða. Nýverið var samþykkt 400 milljóna kr. viðbótarfjárveiting til fjarskiptasjóðs. Fjárveitingin er liður í sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda fram á næsta vor, til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kór- ónuveiru. Þessu til viðbótar leggur samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytið til 43 millj- ónir kr. sem framlag úr byggða- áætlun. Styrkir til 17 sveitar- félaga námu að þessu sinni samtals 317,5 milljónum. Einnig var samið við Neyðarlínuna sem fékk 125,5 milljónir kr. til að leggja ljósleiðara og byggja upp fjarskiptainnviði. Styrkir til 17 sveitarfélaga ÁTAKIÐ ÍSLAND LJÓSTENGT Augljósspirringsgætti í máli Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þegar hann hafði orð á því að þeg- ar til kastanna kæmi nytu Íslendingar þess í engu að standa framarlega í lofts- lagsmálum á alþjóðvett- vangi. Í viðtali um kæru Rio Tinto til Landsvirkjunar sagði Bjarni að það skyti skökku við að standa á al- þjóðlegum ráðstefnum með þjóðum sem lýstu árangri í aðgerðum gegn losun gróð- urhúsalofttegunda sem einu af mikilvægari mál- efnum samtímans, en á sama tíma keyptu stórir bílaframleiðendur í ríkjum Evrópusambandsins vörur frá framleiðendum, sem virtu markmiðin að vettugi. Sagði Bjarni að munað gæti tugum prósenta í kolefnislosun, en þrátt fyr- ir það fengju framleið- endur á íslensku áli ekki eina evru umfram aðra framleiðendur fyrir sína framleiðslu. Við setningu markmiða um að draga úr losun gróð- urhúsalofttegunda standa lönd misvel að vígi. Þótt það hljómi eins og ósvífni má í raun segja að þau lönd, sem eru með allt niðr- um sig í þessum efnum, séu í bestu stöðunni. Auðveld- ast sé fyrir þau að ná mikl- um árangri á skömmum tíma. Jafnvel mætti ganga svo langt að segja að það sé betra að vera tossi en til fyrirmyndar. Þar má taka sem dæmi lönd í Austur- Evrópu og uppbyggingu í austurhluta Þýskalands. Þar voru úreltir, mengandi iðnaðarinnviðir, sem ein- faldlega þurfti að skipta út. Samhliða slíkri endurnýjun dregur verulega úr losun. Á Íslandi er langt síðan margt af því var gert, sem nú er horft til í öðrum lönd- um. Þar er reynt að draga úr losun við upphitun (eða kælingu) húsa. Hér hefur heitt vatn úr iðrum jarðar verið notað til upphitunar í áratugi. Á meðan reynt er að finna aðrar leiðir til að framleiða raf- magn en að brenna gasi og olíu víðast hvar annars staðar hefur vatnsorka verið not- uð á Íslandi. Vissulega eru þessir orkugjafar á Íslandi nátt- úruleg hlunnindi, sem ekki er alls staðar að finna. Engu að síður þurfti fram- sýni og áræði til að ráðast í að nýta þau með þeim hætti, sem gert hefur verið hér á landi. Við setningu losunar- markmiða er hins vegar ekki tekið tillit til þess hver staðan er í hverju landi. Það er einfaldlega miðað við losun á tilteknum tíma og ákveðið að dregið skuli úr henni um ákveðið hlut- fall. Það gefur augaleið að þegar rafmagn og hiti fást þegar án losunar minnkar svigrúmið til að draga enn meira úr losun verulega. Þar við bætist að reglu- verkið í þessum málaflokki er stundum þannig að það leiðir jafnvel til óþarfa los- unar. Það á til dæmis við um þá kvöð að hér þurfi að verja milljörðum í að flytja inn og blanda svokölluðu lífeldsneyti í bensín og dísilolíu vegna þess að 5% af seldu eldsneyti skuli vera af endurnýjanlegum uppruna. Hér hefur raf- bílavæðing gengið hratt og notkun endurnýjanlegrar orku til að knýja bílaflot- ann komin vel yfir þessi 5%, en vegna þess að bíl- arnir eru hlaðnir með því að stinga þeim í samband í heimahúsum eða á vinnu- stöðum telst það ekki með. Sigríður Andersen, þing- maður Sjálfstæðisflokks, hefur fjallað um þetta og bent á að það myndi muna um minna ef hægt hefði verið að nota milljarðana sjö, sem farið hafa í líf- eldsneyti, til að endurbæta vegi á Íslandi. Það er því eðlilegt að Bjarni skuli vera argur yfir þeim tvískinnungi, sem rík- ir í aðgerðum gegn losun gróðurhúsalofttegunda, og um að gera að fylgja því eftir til að rétta hlut Ís- lands. Er betra að vera tossi en til fyrirmyndar?} Mótsagnir í loftslagsmálum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.