Morgunblaðið - 25.07.2020, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 25.07.2020, Qupperneq 22
Morgunblaðið/Einar Falur Caravaggio í Rómarborg. Það er kannski ekki á allra vitorði, en latínukunnáttu fólksfleygir fram ef það gengur í kór. Eða kannski: Þeir sem eruflugmæltir á latínu eru tónvísari en aðrir. Einhver skýringhlýtur í það minnsta að vera á því hve margir blómstrandi kórar hér heita latneskum nöfnum, svo sem tónleikagestum er kunn- ugt – þeir þekkja Schola Cantorum og Voces Masculorum, að ógleymdum Vox Feminae, Voces Thules, et cetera. Þið sjáið að þarna síðast sletti ég latínu, en það er bara til að sýnast, enda smartara en að sletta dönsku. Ég hef aldrei lært latneskar beygingar og dáist að tónlistarskríbentum sem geta stafsett hin flóknu kórheiti hjálpar- laust. Það er eitt að latínu sé haldið lifandi í list sem teygir rætur sínar jafn djúpt og safarík tunga Rómverja, hún er aukinheldur í móð við aðr- ar nafngiftir, allt frá lækna- stöðvum til fasteignasala – frá Domus Medica til Domusnova – og er þá gert ráð fyrir að vegfar- endur viti að domus merkir heima. Eða var það hús? Öllu athyglisverðari er stemningin sem myndast hefur fyrir því að gefa fyrirtækjum heiti sem líta út sem, eða þykjast vera, latína. Það hlýtur að vera skemmtileg afþreying fyrir latínuskólagengna að rýna í slík útspil, en ég missi einatt af glensinu því ég gæti ekki, með lokuð augu, þulið upp orð á borð við Invicta, Intrum, Fortis, Origo, Virago, Nova, Kox, Cubus, Expectus, Essensia eða Centra og sorterað hver þeirra séu sannanlega latnesk (eða annarrar fornrar rótar) og hver uppdiktuð. Það er margt sem takmörkuð almenn latínukunnátta býður upp á, bæði er hægt að smeygja inn einhverju sem hljómar lært, en það er líka hægt að snúa auðveldlega út úr. Þess er skemmst að minnast þegar Advania var kynnt sem nýtt heiti á sameinuðu afli Skýrr og fleiri upplýsingatæknifyrirtækja. Um það sköpuðust heitar umræð- ur; einhverjir þóttust hafa grafið upp að orðasambandið ad vania merkti á latínu til einskis, aðrir sögðu það falsfréttir og móðgun. Sér- fræðingar tveir, sem í sjónvarpsþætti fóru yfir málið, töldu gagnrýni á nafngiftina óverðskuldaða, í fyrsta lagi væri mjög skiljanlegt að fyrirtækið tæki upp „útlenskulegt nafn, skulum við orða það sem þýðir ekkert á íslensku þeir eru jú með starfsstöðvar í fjórum lönd- um“ og í öðru lagi gæfi nafnið, sem vissulega væri tilbúið, einfaldlega hugboð um forskot; advan- vísaði í advantage og skyld hugtök. Svo komu þeir að því sem kannski er stóri plúsinn við ný og/eða torræð orð sem valin eru sem firmaheiti. Ef orðið vekur sjúklega at- hygli, einmitt fyrir þær sakir, fá forsvarsmenn gullna stund í fjöl- miðlum til að útskýra heitið og árétta um leið fyrir hvað fyrirtækið stendur og hvað það ætlar sér. Það er víst ómetanlegt í harðri mark- aðssamkeppni – og skýrir sitthvað gagnvart grandalausum málá- hugamönnum sem vita ekki alltaf hvaðan á þá, per se, stendur veðrið. Nýtt af gamalli nál Tungutak Sigurbjörg Þrastardóttir sitronur@hotmail.com 22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Faxabraut 42c, 230 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 5 herbergja raðhús ásamt bílskúr á mjög vinsælum stað í Reykjanesbæ. Grunnskóli, leikskóli, framhaldsskóli, íþróttamannvirki og þjónusta í göngufæri. Verð kr. 46.500.000180,5 m2 Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Það hefur blasað við árum og jafnvel áratugumsaman að það er himinn og haf á milli vinnu-bragða í opinberum rekstri og einkarekstri.Þegar harðnar á dalnum – sem reynslan sýnir að gerist reglulega – eiga einkafyrirtækin ekki annan kost en að draga saman seglin og hefja niðurskurð á kostnaði. Þau byrja gjarnan fyrst á almennum rekstrarkostnaði en dugi það ekki til hefjast uppsagnir starfsmanna. Hið sama hefur ekki tíðkazt í rekstri opinberra aðila á Íslandi, hvorki hjá ríki eða sveitarfélögum. Þeir aðilar telja sig alltaf eiga þann kost að hækka skatta eða þjón- ustugjöld á almenna borgara. Niðurskurður af því tagi sem jafnan hefur verið framkvæmdur í einkarekstri hefur nánast aldrei komið til greina hjá opinberum aðilum hér og lítill grundvöllur verið fyrir því að ræða þann kost. Nú kann þetta að vera að breytast. Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins sl. miðvikudag birtist mjög athyglisvert viðtal Baldurs Arnarsonar við Birgi Jónsson, forstjóra Ís- landspósts. Þar kemur fram að á síðustu 12 mánuðum hefur starfs- fólki Íslandspósts fækkað um 25%, eða um 270 manns, úr 1.060 í 790. Birgir segir að stjórnendur hafi einblínt á „að minnka yfirbyggingu, fækka millistjórnendum og fletja út skipulagið“. Hann segir enn fremur: „Með breyttu vinnulagi í dreif- ingu höfum við sem dæmi náð að losa fasteignir á höfuð- borgarsvæðinu, sem við erum nú með í söluferli og það mun hafa umtalsverð áhrif til skuldalækkunar. Nú er staðan sú að við höfum selt öll dótturfélög okkar sem voru í rekstri og eigum eitt fasteignafélag, sem er í raun skel utan um eina fasteign sem við eigum og er í söluferli. Við eigum því engin dótturfélög í þeim skilningi þess orðs.“ Þá segir Birgir Jónsson: „Það er gríðarlegur metnaður hjá okkur öllum hjá Póstinum að standa sig vel í þessu verkefni og sem dæmi afsöluðu lykilstjórnendur Póstsins sér kjarasamnings- bundnum launahækkunum nú í vor.“ Um framtíðina á dögum rafrænna samskipta og að bréfapóstur muni nánast hverfa segir forstjórinn: „…hann er að minnka mun hraðar en við gerðum ráð fyrir. Þess er ekki langt að bíða, segjum 2-3 ár, að magnið verði orðið þannig að það verði erfitt að réttlæta það þjón- ustustig sem sett er fram í póstlögum og kostnaðinn sem því fylgir.“ Nú er rétt að taka fram að fjármálaráðuneytið hefur tekið fullan þátt í þeirri byltingu sem er að verða í sam- skiptum fólks og stofnana í samfélaginu og þegar náð fram verulegum sparnaði með því að hverfa frá hefð- bundnum bréfasendingum en kynna í stað þess notkun island.is sem eins konar pósthólf hvers og eins borgara vegna bréfasendinga. Ætla má að í fyrirsjáanlegri framtíð verði það kjarninn í slíkum samskiptum opinberra aðila við borgarana. Fleira er að gerast sem einfaldar ýmis samskipti fólks við opinbera aðila. Þannig hefur sú breyting orðið á að þeir sem hafa þurft að fá bráðabirgðaökuskírteini og þurftu áður að bíða í biðröð hjá viðkomandi sýslumanni geta nú óskað eftir því í tölvupósti og fengið það afgreitt með sama hætti. Þá er ekki langt síðan dómsmálaráðherra kynnti þá nýjung að ökuskírteini væri hægt að fá sent í snjallsíma. Allt stefnir þetta í rétta átt en eftir stendur nauðsynleg skipulagsbreyting í opinbera kerfinu sjálfu, sem hefur nánast aldrei gengið í gegnum sams konar niðurskurð á yfirbyggingu og kostnaði og einkafyrirtæki þurfa reglu- lega að ganga í gegnum. Afleiðingin af því hefur orðið sú að yfirbyggingin á opinbera stjórn- kerfinu verður sífellt viðameiri og kostnaðurinn þar með. Því hefur svo fylgt mjög óæskileg viðhorfsbreyt- ing hjá opinberum aðilum, sem hef- ur haft þær afleiðingar að starfs- menn hins opinbera hafa gleymt því fyrir hverja þeir eru að vinna – það er almenna borgara – og hafa jafn- framt seilst til þess að ná til sín valdi sem ekki er í þeirra höndum og á ekki að vera skv. stjórnskipan landsins. Sagan um Íslandspóst er skemmtileg að því leyti að svo virðist sem nýr forstjóri hafi komið þar inn fyrir rúmu ári með gjörbreytt viðhorf, sem hafi svo náð með athyglis- verðum hætti til annarra starfsmanna. Þess vegna er nú svo komið að Íslandspóstur er orðinn að fyrirmynd þess sem hægt er að gera í opinbera kerfinu almennt – og skal enn undirstrikað að það á ekki bara við um ríkið heldur líka sveitarfélögin. Og það gerist á tímum þegar rík þörf er á að taka til hendi hjá öðrum opinberum aðilum með sama hætti og gert hefur verið hjá Íslands- pósti. Hvernig er hægt að nýta þá reynslu sem þar hefur fengizt til þess að ná sama árangri í öllu opinbera kerf- inu? Ein aðferð væri sú að forstjóri Íslandspósts yrði ráðinn í sérstakt starf hjá fjármálaráðuneytinu til þess að hafa yfirumsjón með sambærilegum niðurskurði á yfirbygg- ingu og „fitu“ í öðrum þáttum opinbera kerfisins. Slíkar aðgerðir yrðu í anda þeirra hugsjóna sem ungir sjálfstæðismenn komu fram með fyrir hálfri öld undir kjörorðinu Báknið burt – þótt minna yrði úr fram- kvæmdum þegar þeir sjálfir komust til áhrifa. Aðgerðir af þessu tagi væru í anda grundvallarstefnu Sjálfstæðisflokksins og þess vegna ætti að vera hægt að ganga út frá því sem vísu að þingflokkur hans væri þeim fylgjandi. Fyrirmyndin blasir við í raunverulegum árangri slíkra aðgerða í rekstri Íslandspósts. Íslandspóstur – fyrirmynd að niðurskurði í opinberum rekstri Setjum sambærilegan niðurskurð yfirbyggingar og „fitu“ hjá öðrum opinber- um aðilum á dagskrá. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Forystumenn verkalýðsfélagsinsEflingar, Sólveig Jónsdóttir og Viðar Þorsteinsson, virðast vilja færa starfsemi þess langt aftur á síðustu öld, þegar sumir trúðu því, að kjarabætur fengjust með kjara- baráttu frekar en vexti atvinnulífs- ins: því fleiri verkföll, því betra. Af- leiðingin á Íslandi var víxlhækkun kaupgjalds og verðlags, þrálát verð- bólga, en óveruleg aukning kaup- máttar. Þau Sólveig og Viðar kunna að vera lifandi dæmi þeirra ummæla Hegels, að menn læri aldrei neitt af sögunni. Rifjast nú upp, þegar Þjóðleik- húsið sýndi árið 1977 leikritið Stalín er ekki hér eftir Véstein Lúðvíks- son. Aðalsöguhetjan er gamall sósí- alisti, sem vill ekki viðurkenna, að stalínisminn hafi brugðist. Þegar fjölskyldan flytur í nýja íbúð, heimt- ar kona hans, að hann selji bækur sínar um sósíalisma. „Við verðum að fara að gera hreint,“ segir hún. Ef til vill var þó ekki við öðru að búast af þeim Sólveigu og Viðari. Sólveig er dóttir Jóns Múla Árna- sonar, sem var einn dyggasti stal- ínisti á Íslandi. Hann var lengi á framfæri Kristins E. Andréssonar, sem tók við mestöllu Rússagullinu á Íslandi, eins og skjöl fundust um í Moskvu eftir hrun Ráðstjórnarríkj- anna. Þegar Steinn Steinarr og Agnar Þórðarson gagnrýndu stjórnarfar í Rússlandi eftir för þangað 1955, vék Jón Múli sér að þeim í Austurstræti og spurði: „Því voruð þið að kjafta frá?“ Viðar er sonarsonur Vilhjálms Þorsteinssonar, sem var líka stal- ínisti og stjórnaði lengi verkfalls- aðgerðum Dagsbrúnar. Það gerði hann til dæmis í verkfalli 1961, þegar Dagsbrún fékk fimm þúsund sterlingspunda framlag frá Kreml- verjum í verkfallssjóð sinn. Fordómar úr æsku geta lifað lengi. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Stalín er hér enn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.