Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 24
✝ BrynhildurKristinsdóttir
fæddist á Vífils-
mýrum í Önundar-
firði 25. júlí 1935.
Hún andaðist á
Hjúkrunarheim-
ilinu Tjörn á Þing-
eyri 8. apríl 2020.
Brynhildur var
fyrsta barn Kristins
D. Guðmundssonar,
f. 1913 í Reykjavík,
d. 1985 á Ísafirði, og Guðfinnu
Vilhjálmsdóttur, f. 1917 á Hálsi á
Ingjaldssandi, d. 1998 í Reykja-
vík. Alsystir Brynhildar er
Selma, f. 9. júní 1938. Kristinn og
Guðfinna slitu samvistum.
Systkini Brynhildar samfeðra:
Hrafnhildur, f. 3. desember
1947, Sólveig Stefanía, f. 23
ágúst 1949, og Guðmundur
Ágúst, f. 17. nóvember 1951.
Systkini Brynhildar sam-
mæðra: Vilma Mar, f. 21. desem-
ber 1940, Hjálmar Diego Arnórs-
son, f. 26. nóvember 1942, Hall-
dóra Friðgerður Arnórsdóttir, f.
22. maí 1944, Hörður Diego Arn-
órsson, f. 24. mars 1946, Jóhann
Pétur Diego Arnórsson, f. 13.
desember 1949, Alma Diego Arn-
órsdóttir, f. 9. ágúst 1953, og Guð-
finna Hrefna Arnórsdóttir, f. 12.
janúar 1955, d. 28. janúar 2020.
Brynhildur ólst upp á Vífils-
mýrum hjá föðurforeldrum sín-
um. Þau voru Guðmundur Ágúst
mundsdóttir. Sonur Jóhanns er
Auðunn Halldór, f. 13. janúar
2014. 2) Árni Guðmundur, Vöðl-
um, f. 1963. Kona hans er Erna
Rún Thorlacíus og þau eiga þrjú
börn: Jakob Einar, f. 1983 (faðir
hans er Jakob Jakobsson), maki
hans er Sólveig Margrét Karls-
dóttir og eiga þau eina dóttur,
Míu Henríettu f. 9. maí 2012,
Brynjólf Óla, f. 1989, og Benja-
mín Bent, f. 1995, maki hans er
Rakel Ósk Rögnudóttir. 3) Guð-
rún Rakel, Þingeyri, f. 1970.
Maður hennar er Jón Sigurðsson
og þau eiga þrjú börn: Hildi, f.
1991, maki hennar er Emil Ólaf-
ur Ragnarsson og þau eiga eina
dóttur, f. 30. júní 2020, Agnesi, f.
1997, maki hennar er Andri Mar-
inó Karlsson (faðir Hildar og
Agnesar er Sólmundur Frið-
riksson) og Hönnu Gerði, f. 2003.
Brynhildur bjó á Vífilsmýrum
hjá föðurforeldrum sínum og
seinna á Flateyri þar til hún flutti
í Vaðla 1956, til Brynjólfs. Hún
hafði þá lokið námi í Húsmæðra-
skólanum á Ísafirði. Á Vöðlum
var hún húsmóðir og bóndi, en
vann einnig utan heimilis í seinni
tíð, m.a. annars við fiskflökun og
í mötuneyti grunnskólans í Holti.
Hún var ein af stofnendum Kven-
félags Mosvallahrepps og var
komin í hóp heiðursfélaga. Hún
hafði mikinn áhuga á garð- og
blómarækt ásamt margvíslegri
handavinnu sem hún lagði stund
á allt til dánardags.
Vegna samfélagslegra að-
stæðna fór útför Brynhildar fram
í kyrrþey hinn 6. maí 2020 frá
Holtskirkju í Önundarfirði. Minn-
ingarathöfn verður haldin þar í
dag, 25. júlí 2020, klukkan 14.
Jónsson bóndi, f.
1885, d. 1963, og
Guðjóna Brynhild-
ur Nikólína Jóns-
dóttir ljósmóðir, f.
1890, d. 1972. Upp-
eldissystkini Bryn-
hildar voru Kjart-
an, f. 1914, d. 1964,
Jóhann Guðmundur
Þorkell, f. 1916, d.
1990, Sigríður
Ólafía, f. 1917, d.
1999, Birgir Þórður Móses, f.
1920, d. 1998, Málfríður Guð-
laug, f. 1922, d. 1995, Stein-
grímur Karl, f. 1923, d. 2012, Jón
Önfjörð, f. 1926, d. 1982, og
Gunnar Pétur, f. 1929, d. 1958,
öll föðursystkini hennar, auk
Birgittu Þuríðar, f. 1922, d. 2014,
sem var bróðurdóttir Guðjónu,
og Guðmundar Óla, f. 1941, d.
1987, sem var sonur Málfríðar,
einnar föðursysturinnar.
Brynhildur giftist Brynjólfi
Árnasyni bónda á Vöðlum, f. 12.
júlí 1921 í Dýrafirði, d. 8. októ-
ber 2018, hinn 25. apríl 1957.
Börn þeirra eru: 1) Gunnhildur
Jóna, Flateyri, f. 1957. Maður
hennar er Þorsteinn Jóhannsson
og þau eiga þrjú börn: Arnór
Brynjar, f. 1982, maki Isak Gust-
avsson, Jón Ágúst, f. 1986, maki
Hrefna Valdemarsdóttir og þau
eiga einn son, Valdemar Leó, f.
25. júlí 2018, og Jóhann Inga, f.
1989, maki Gerður Ágústa Sig-
Elsku mamma. Ég man þegar
þú varst að prjóna og ég kom með
bók til þín og sagði: „Mamma, ég
stafa og þú lest.“ Og þú last.
Ég man þegar þú fékkst gall-
steinakastið og ég hélt að þú værir
að deyja.
Ég man þegar þú kenndir mér
að bræða kertavax ofan á vatn í
skál og búa til mynstur.
Ég man þegar þú kenndir mér
að prjóna og ég gat aldrei haft
puttann með bandinu út í loftið
eins og þú.
Ég man þegar þú varst að
sauma á mig pils og blússur og svo
fékk ég að nota saumavélina
seinna.
Ég man að þú gafst mér alltaf
bók í jólagjöf og svo eitthvað til að
sauma út á gamlárskvöld því þá
var ég búin með jólabækurnar.
Ég man þegar ég ætlaði að taka
utan um þig á spilavist í Holti og
þú varst í nýju peysunni þinni. En
ég villtist á þér og annarri konu,
hún átti eins peysu. Þú fórst aldrei
aftur í peysuna.
Ég man þegar þú saumaðir
magann á lambinu með ljós-
móðurnálinni frá ömmu þinni.
Ég man hvað þú varst alltaf
glöð þegar við sumarkrakkarnir
komum með egg úr hænsnakof-
anum. Þú hugsaðir svo vel um
hænurnar þínar.
Ég man alla snúðana, ástar-
pungana, pönnukökurnar og brún-
ar, bakaðar úr eggjunum.
Ég man þegar ég skar með þér
rabarbara til að gera saftina áður
en yrði smalað til að taka af.
Ég man gleðina þína við að
nostra í garðinum, sérstaklega á
lygnum vor- og sumarkvöldum.
Ég man að sem unglingur var
ég ekki alltaf viljug til að hjálpa
þér en fljót til þegar pabbi þurfti
aðstoð. Þú sást samt til þess að ég
færi aldrei í mjaltir.
Ég man þegar við lærðum sam-
an á bíl, ég 17 ára, þú 52 ára. Það
var góð hugmynd hjá þér. Þá gastu
skroppið það sem þig langaði.
Ég man allar góðu stundirnar
með þér og stelpunum mínum
þegar þær bættust í hópinn.
Ég man líka allar erfiðu stund-
irnar í veikindum þínum síðustu
25 ár. En þú stóðst alltaf upp aft-
ur. Þá kom mamma aftur.
Ég kvaddi þig í síðasta sinn 12.
mars með nýþvegna sokka handa
litlu ömmustelpunni sem var á
leiðinni. Svo lokaði Covid á sam-
skiptin.
Ég er svo þakklát fyrir allar
samverustundirnar og ferðirnar í
Vaðla síðustu misseri, það voru
góðar stundir.
Síðasti draumurinn sem þú
sagðir mér í febrúar var um
pabba. Hann kom gangandi yfir
hlaðið heima með tvær fötur fullar
af eggjum og bað þig að gera eitt-
hvað við þau. Hvað á ég að gera
við þetta allt? spurðir þú. Hann
sagði að þú vissir það best hvernig
væri hægt að nota eggin. Nú ertu
komin til hans, hann hefur verið
farið að vanta þig til að sjá um
hænurnar.
Megið þið njóta samvista í
Sumarlandinu eins og þið viljið
hafa þær. Við fjölskyldan sjáum
um það sem er hér. Blessuð sé
minning ykkar beggja, Brynhild-
ar og Brynjólfs á Vöðlum.
Ykkar dóttir,
Guðrún Rakel Brynjólfsdóttir.
Í dag minnast vinir, ættingjar
og fjölskylda Brynhildar Kristins-
dóttur frá Vöðlum, ömmu Binnu,
en hún lést 8. apríl og var jarð-
sungin við fámenna athöfn vegna
aðstæðna í vor. Í dag hefði hún
orðið 85 ára og það er sárt að geta
ekki verið með að kveðja ömmu í
dag frekar en við jarðarförina.
Minningin um góða konu mun ylja
í staðinn og draga fram tár á
hvarm.
Amma var góð, gjafmild og
ljúfmannleg við okkur barna-
börnin. Að þrasa og skattyrðast
geymdi hún fyrir sín eigin börn.
Við vorum fædd kræsingum úr
búri hennar og klædd hannyrðum
úr höndum hennar. Henni var
mjög umhugað um að bæta á mig
kílóum þar sem henni þótti ég
helst til magur og beið ávallt stafli
með minnst hundrað pönnukök-
um þegar ég kom í heimsókn,
einn! Síðan gæddi maður sér á
góðmetinu með kaldri kúamjólk
og góðum félagsskap við stóra
Brynhildur
Kristinsdóttir
24 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020
Minningar
✝ Líney SoffíaDaðadóttir
fæddist 9. janúar
1957 á Skarði í
Dalsmynni í S-
Þingeyjarsýslu.
Hún lést 17. júlí
2020 á hjúkr-
unarheimilinu Lög-
mannshlíð á Akur-
eyri.
Foreldrar henn-
ar voru Valgerður
Jónsdóttir, f. 30.8. 1932 á Skarði
í Dalsmynni, d. 9.6. 2015, og
Daði Eiðsson, f. 17.1. 1932 í
Sörlatungu í Hörgárdal, d. 5.2.
1981. Systkini Líneyjar Soffíu
1.9. 1908 á Skuggabjörgum í
Grýtubakkahreppi, d. 23.1.
1996, og Árni Sigurður Sigur-
jónsson, f. 11.8. 1905 í Stóra-
Gerði í Eyjafirði d. 23.11. 1979.
Þau bjuggu lengst af í Melgötu 3
á Grenivík. Börn þeirra eru: 1)
Rósa Björg, f. 22.3. 1979. Maki
Erlingur Heiðar Sveinsson, f.
2.2. 1977. Börn þeirra Alex-
andra Eik, f. 2002, Hugi Már, f.
2008, og Kara Eir, f. 2010. 2)
Valgerður Lóa, f. 18.6. 1982.
Maki Gunnar Georg Gunnars-
son, f. 8.4. 1968. Börn þeirra
Soffía Líndal, f. 2009, og Sonja
Líndal, f. 2011. 3) Arnheiður
Sigrún, f. 1.10. 1987. Maki Vífill
Már Viktorsson, f. 6.3. 1990.
Börn þeirra Karítas Von, f.
2013, og Ruben Þeyr, f. 2020. 4)
Líney Ingibjörg, f. 6.1. 1993.
Útför Líneyjar Soffíu fer
fram frá Laufáskirkju í dag, 25.
júlí 2020, klukkan 13.30.
eru: Jóhanna
Sigurlaug, f. 5.10.
1953; Sigrún Jóna,
f. 4.10. 1955; Her-
mann Skírnir, f.
4.8. 1958; Jórlaug
Valgerður, f. 10.7
1960; Jón Heiðar, f.
10.2. 1962, d. 4.9.
1964; Jón Heiðar, f.
18.8. 1964; Svava
Guðrún, f. 1.9.
1965.
Líney Soffía giftist 30.12.
1979 Gísla Sigurgeiri Árnasyni
sjómanni, f. 17.12. 1949 í Sæ-
landi á Grenivík. Foreldrar hans
voru Lovísa Sigurgeirsdóttir, f.
Soffía systir hefur nú kvatt
þennan heim, eftir erfið veikindi.
Hún barðist við alzheimersjúk-
dóminn með ótrúlegu hugarfari.
Hún sagði sjálf í byrjun hans: „Ég
ætla ekki að láta þennan sjúkdóm
stjórna mér.“
Ef ætti að lýsa henni koma
manni helst til hugar sterkar lýs-
ingar úr Íslendingasögum; „hún
var kvenskörungur mikill“. Við
höldum að orðið uppgjöf hafi ekki
verið til í hennar orðaforða, sem
var nú þó nokkuð fjölbreyttur.
Hún naut þess alla tíð að vera
úti í náttúrunni. Á vorin vann hún
í garðinum baki brotnu, oftast
berfætt í grænum gúmmískóm og
kvartbuxum. Garðurinn var líka
algjör sælureitur með fjölbreyttri
flóru og ýmsum hlutum sem hún
bar heim úr fjörunni og fjallaferð-
um sínum. Kenndi þar margra
grasa; s.s. skeljar, steinar, bein og
hnyðjur. Þetta rogaðist hún með
heim, sama hversu fyrirferðin og
þyngdin var mikil. Fjaran var
henni mjög hugleikin.
Við systkinin höfum í gegnum
tíðina ferðast mikið saman um
landið og brallað ýmislegt.
„Soffíugrill“ var einn af viðburð-
unum sem enginn lét fram hjá sér
fara. Þá safnaðist stórfjölskyldan
saman í garðinum hennar og þar
var grillað og glaðst saman. Þegar
við gerðum okkur grein fyrir því
að tíminn styttist með henni var
það eina sem við gátum gert að
njóta hans saman. Reglulegir
föndurhittingar og bíltúrar síð-
ustu ára eru ómetanlegar minn-
ingar, sem lifa innra með okkur.
Þar var mikið hlegið og rifjuð upp
atvik frá uppvextinum og ferða-
lögunum okkar saman. Ekki var
alltaf dúnalogn hjá systkinahópn-
um í Ægisíðunni og margs að
minnast.
Já, Soffía systir ræktaði garð-
inn sinn hérna megin og við vitum
að hinum megin verður blómlegur
garður sem bíður hennar. Gísli,
Rósa, Vallý, Addý, Líney og fjöl-
skyldur, við eigum saman minn-
ingu um sterka, trausta og lífs-
glaða konu sem bætti heiminn
meðan hún lifði. Sú minning er
okkur öllum dýrmæt og á eftir að
ylja okkur öllum sem hana þekkt-
um um ókomin ár.
Svava, Jórlaug Valgerður
(Systa) og Sigrún Daðadætur.
Það hefur verið höggvið stórt
skarð í fjölskylduna. Hér eftir
vantar einn hæsta tóninn í hlátra-
sköllin þegar verið er að hittast af
ýmsum tilefnum. Þín verður sárt
saknað á mörgum heimilum eftir
að hafa verið kölluð á brott allt of
snemma.
Við háðum marga orrustuna í
Ægisíðu í uppeldinu. Það var aðal-
lega þegar þú sem unglingur
varst að siða mig sem strákpjakk
til. Bæði vorum við þrjósk og
gerðum helst öfugt við það sem
okkur var sagt að gera. Ég setti
höfuðið hærra þegar ég lá á gólf-
inu til að sjá textann í sjónvarpinu
en skyggði á textann fyrir ykkur
hinum. Oft sagðir þú mér að
lækka hausinn. Þetta endaði oft
með slagsmálum. Ég hafði þó ekki
vit á að setja vatn í nýja gosdrykk-
inn Fresca og setja tappann aftur
á eftir að þú hafðir drukkið hana
til hálfs. En faðir okkar hafði hug-
myndaflug til þess.
Þú fórst lífsbrautina þráðbeint
og vissir alltaf hvað þú vildir. Þú
hafðir þrek og dug til að gera hlut-
ina sjálf ef ekki vildi betur til.
Kæra systir, farðu í friði á þann
stað sem okkur er ætlaður eftir
þetta líf.
Gísla, dætrum og fjölskyldum
þeirra sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Jón Heiðar Daðason.
Líney Soffía
Daðadóttir
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarleg helgi-
stund kl. 11. Sr. Petrína Mjöll
Jóhannesdóttir flytur hugleiðingu og
þjónar fyrir altari. Félagar úr kór
Árbæjarkirkju leiða sönginn og Benja-
mín Gísli Einarsson leikur á flygilinn.
Kaffi og spjall eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Helgihald fellur niður
vegna sumarleyfa sóknarprests og
starfsfólks Áskirkju. Næst verður
messað í kirkjunni sunnudaginn 9.
ágúst 2020 kl. 11.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa
sunnudaginn 26. júlí kl. 20. Guðsþjón-
usta á léttum nótum, séra Eva Björk
Valdimarsdóttir leiðir stundina, Sæ-
berg Sigurðsson baritónn syngur lög úr
ýmsum áttum við undirleik Jónasar
Þóris kantors og messuþjónar að-
stoða í helgihaldinu.
DIGRANESKIRKJA | Sunnudaginn
26. júlí kl. 11 er messa með fermingu í
Hjallakirkju. Messan verður í umsjá sr.
Sjafnar Jóhannesdóttur og Lenku Má-
téova, organista Kópavogskirkju. Ath!
Yfir sumartímann er samstarf milli
kirknanna í Kópavogi um helgihald.
DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 18 er vigilmessa og messa á
pólsku kl. 19.
DÓMKIRKJAN | Guðþjónusta kl. 11.
Prestur séra Sveinn Valgeirsson.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudaginn
26. júlí er messa og ferming kl. 10.30.
Fermdur verður Askur Örn Eiríksson.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggva-
dóttir
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsa-
messa verður í Grafarvogskirkju
sunnudaginn 26. júlí kl. 11.
Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar,
Stefán Birkisson spilar og Þórdís Sæv-
arsdóttir leiðir söng.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Kvöldguðsþjónusta sunnudaginn 26.
júlí kl: 20. Prestur sr. Karl V. Matthías-
son og Ásbjörg Jónsdóttir sér um tón-
listina.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sumar-
kirkjan, samstarfsverkefni kirkna í
Hafnarfirði og Garðabæ. Helgistund í
Garðakirkju á Álftanesi kl. 11 í umsjón
Hafnarfjarðarkirkju. Sr. Jón Helgi Þór-
arinsson og sr. Sigurður Kr. Sigurðs-
son leiða stundina ásamt Kristínu Jó-
hannesdóttur organista. Boðið upp á
kaffisopa á eftir í Króki þar sem gömlu
lögin verða sungin við gítarundirleik.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Messuþjónar að-
stoða. Félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti er Kjart-
an Jósefsson Ognibene. Hádegis-
messa miðvikud. kl. 12. Bænastundir
kl. 12. fimmtud. og föstud. Orgel-
tónleikar fimmtud. kl. 12:30. Tómas
Guðni Eggertsson leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Alda Úlf-
arsdóttir leiðir safnsðarsöng og syng-
ur einsöng. Organisti er Guðný Einars-
dóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnu-
daginn 26. júlí kl. 11 er messa með
fermingu í Hjallakirkju. Messan verður
í umsjá sr. Sjafnar Jóhannesdóttur og
Lenku Mátéova, organista Kópavogs-
kirkju. Ath! Yfir sumartímann er sam-
starf milli kirknanna í Kópavogi um
helgihald.
MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Við byrjum í kirkjunni og göng-
um svo út undir bert loft og göngum
saman á jafnsléttu í Mosfellsdal.
Stöldrum við á einstaka stað, biðjum
og lofsyngjum Guð og njótum gjafa
sköpunar hans. Prestur sr. Ragn-
heiður Jónsdóttir. Organisti Kristján
Hrannar.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA | Sunnudaginn 26. júlí
verður prjónamessa í Neskirkju, eins
og verið hefur síðustu sumur. Meðlimir
úr prjónahópi Neskirkju aðstoða við
helgihaldið og fólk er hvatt til að taka
með sér handavinnu. Félagar úr kór
Neskirkju leiða söng. Prestur er sr.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Kaffi
og samfélag á torginu í guðsþjónust-
unni og eftir hana.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11,
sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og
þjónar fyrir altari, Tómas Guðni Egg-
ertsson leikur á orgel og félagar úr Kór
Seljakirkju syngja, messukaffi í lokin.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Messa –
ferming kl. 14. Fermdur verður Hrafn
Alex Eymundsson. Kór Seyðisfjarðar-
kirkju leiðir almennan safnaðarsöng.
Organisti er Rusa Petriashvili. Prestur
er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og
meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
sunnudag kl. 11. Sr. Egill Hallgríms-
son annast prestsþjónustuna. Organ-
isti er Jón Bjarnason.
STRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir
þjónar. Félagar úr Kór Þorlákskirkju
leiða söng við undirleik Esterar Ólafs-
dóttur organista.
Sóknarnefnd og sóknarprestur.
Morgunblaðið/ÓmarStrandarkirkja.