Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 37
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég fékk tölvupóst frá Guðmundi
með svofelldum haus: „Ný íslensk
sinfónía (… þannig séð)“. Kersknis-
legur fyrirvari þarna enda er verkið
með þeim hætti að hefðbundnar
hugmyndir okkar um snið sinfóníu-
verks eiga ekki beint við þessa plötu
sem Guðmundur var að gefa út, þótt
hún beri nafnið Sinfonia. Ekki að
það komi mér á óvart enda hefur
Guðmundur lengi verið með helstu
jaðartónskáldum
Íslands og verk
hans storka jafn-
an rækilega öll-
um þeim hug-
myndum sem
hægt er að hafa
um byggingu og
eðli tónlistar. Ef
Wire-tímaritið myndi dæma verk
Guðmundar færu þau í þann eðla
flokk „Outer Limits“.
Guðmundur hefur verið virkur
í íslensku tónlistarlífi um árabil og
meðal annars tekið drjúgan þátt í
starfsemi S.L.Á.T.U.R., samtaka ís-
lenskra tónlistarmanna sem reyna
reglulega á þanþol tónlistarinnar.
Guðmundur hefur og skrifað tón-
verk fyrir tónlistarhópa á borð við
Caput, Elju, Kammersveit Reykja-
víkur, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Nordic Affect, Duo Harpverk sem
og fjölda erlendra tónlistarhópa,
þ.á m. skosku BBC sinfóníu-
hljómsveitina. Verk hans má m.a.
nálgast á gudmundursteinn.band-
camp.com.
Það er Carrier Records í
Bandaríkjunum sem gefur Sinfonia
út. Fyrirtækið er framsækið með
eindæmum og hefur og gefið út
plötu með Þráni Hjálmarssyni. Sin-
fonia kemur út bæði á geisladisk og
vínyl í handgerðum umbúðum eftir
listamanninn Sam Rees, sem hefur
verið búsettur á Íslandi. Um er að
ræða nýlegt tónverk sem var frum-
flutt í mars á síðasta ári af tónlistar-
Út á ystu nöf
hópnum Fengjastrúti. Upptakan fór
fram 10. mars 2019 í Masterkey-
hljóðverinu á Seltjarnarnesi og var
upptökustjórn í höndum Guðmund-
ar og Jespers Pedersen. Þau sem
skipuðu Fengjastrút þennan örlaga-
ríka dag voru Björn Davíð Krist-
jánsson, Þórunn Björnsdóttir, Páll
Ivan frá Eiðum, Andrés Þór Þor-
varðarson, Gunnar Grímsson, Ást-
hildur Ákadóttir, Svanur Vilbergs-
son, Hafdís Bjarnadóttir og Hall-
varður Ásgeirsson. Tónsmíðin not-
ast við sérstilltar munnhörpur,
flöskur og ýmis sérstillt hljóðfæri til
að ná fram svokölluðum míkrótón-
um. Þá eru nóturnar ekki á pappír
eins og venjulega tíðkast. Nóturnar
eru myndband þ.e.a.s. tónlistar-
mennirnir horfa á myndband á með-
an þeir spila en það er regla frekar
en undantekning í verkum Guð-
mundar Steins. Engin jöfn bil eða
beinar línur fyrirfinnast og allt er á
skjön. Lítið sem ekkert getur gerst
á sama tíma. Það er vissulega til-
finningin er hlustað er. Verkið er af-
ar afstrakt og einkennist af lágværu
slagverki og blæstri sem titrar
óreglulega. Guðmundur nýtir sér
líka þagnir á áhrifaríkan máta.
Stundum er eins og detti á dúna-
logn en svo læðist blástur inn eins
og úr fjarska, líkt og vindgnauð sem
fer eftir eigin lögmálum. Blásturinn
er eins og segir varfærinn og við-
kvæmnislegur og gefur það fram-
vindunni brothættan blæ.
Það er meira en vert að benda
á efnislega útgáfu plötunnar. Eintök
Rees eru listaverk í sjálfu sér, bæði
geisladiskarnir og vínyllinn. Hægt
er að versla í gegnum bandcamp-
síðuna. Þess má geta að vínyllinn,
sem var pressaður í tíu stykkjum,
er einstakur upp á það að gera að
hver og ein upptaka er sérstök.
Verkið spilað tíu sinnum fyrir tíu
eintök!
Guðmundur hefur þá gefið út
þrjú verk á árinu til þessa. Í apríl
kom Skartamannafélagið 2 út og
Horpma XII-XVI kom út í sama
mánuði. Í báðum verkum eru mörk
og mæri þess mögulega könnuð til
hlítar, verkefni sem tónlistargyðjan
á fullt í fangi með að greina og
skilja. Er það vel!
» Guðmundur nýtirsér líka þagnir á
áhrifaríkan máta.
Stundum er eins og
detti á dúnalogn en svo
læðist blástur inn eins
og úr fjarska, líkt og
vindgnauð sem fer eftir
eigin lögmálum.
Sinfonia er nýtt verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson afstrakttónsmíð sem tekin var upp með
tónlistarhópnum Fengjastrúti á síðasta ári. Það er Carrier Records í Bandaríkjunum sem gefur út.
Tónskáld Guðmundur
Steinn Gunnarsson hefur
nú samið sinfóníu.
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020
Annað starfsár tónleikaraðar til
styrktar Hallgrímskirkju í
Saurbæ í Hvalfirði hófst núna í
sumar og rennur allur ágóði sem
fyrr til styrktar þessum menn-
ingarstað. Í kjölfar Covid-19 varð
að aflýsa nokkrum af fyrstu tón-
leikunum og þar sem tónlistarfólk
og skemmtikraftar hafa orðið fyr-
ir verulegum tekjumissi undan-
farna mánuði var ákveðið að
sækja um styrk úr tónlistarsjóði
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins og rennur hann alfarið
til flytjenda á tónleikunum.
Fjórðu tónleikarnir í röðinni
hefjast á morgun, sunnudag 26.
júlí, kl. 14 og eru það ljóða-
tónleikar.
Mæðgurnar Ragnhildur Dóra
Þórhallsdóttir sópran og Arn-
björg Arnardóttir píanóleikari
munu koma saman á tónleikum í
fyrsta sinn og flytja ljóðaflokkana
Liederkreis opus 39 eftir Robert
Schumann, Cuatro madrigales
amatorios eftir Joaquin Rodrigo
og Þrjá söngva úr Pétri Gaut eft-
ir Hjálmar Ragnarsson.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. og
eru allir velkomnir. Einnig er
hægt að styrkja málefnið með því
að leggja inn á söfnunarreikning
0552-14-100901, kt. 590169-2269.
Mæðgur Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir og Arnbjörg Arnardóttir.
Fyrstu tónleikar mæðgna í
Hallgrímskirkju í Saurbæ
Hinn umdeildi
franski rithöf-
undur Michel
Houellebecq var
að vanda ómyrk-
ur í máli í pistli
sem hann flutti í
franska ríkis-
útvarpinu í byrj-
un viku og sagð-
ist þar m.a. telja
að heimurinn
yrði sá sami að farsótt lokinni en …
bara aðeins verri.
Segir í frétt AFP að pistillinn
hafi verið sem blaut tuska í andlit
þeirra sem telja að faraldurinn
verði einhvers konar vendipunktur
í mannkynssögunni til hins betra.
Houellebecq segist ekki trúa í hálfa
sekúndu yfirlýsingum í þá veru að
ekkert verði eins og það áður var.
„Við munum ekki vakna í nýrri ver-
öld að einangrun lokinni,“ mælti
rithöfundurinn og bætti við að þró-
un mála eftir tilkomu faraldursins
hefði verið furðulega eðlileg.
Houellebecq varaði hins vegar
við því að fjar- og heimavinna og
tilskipuð fjarlægð fólks á milli, af-
leiðingar farsóttarinnar, myndu
flýta fyrir frekari einangrun sem
tækninýjungar hefðu þegar leitt af
sér. Farsóttin væri hin fullkomna
afsökun fyrir því að gera mannleg
samskipti óþörf.
Heimurinn verður
samur en þó verri
Michel
Houllebecq
Um þriðjungur bandarískra safna á
á hættu að verða lokað endanlega
vegna tekjutaps síðustu mánaða.
Þetta kemur fram í könnun á veg-
um sambands bandarískra safna,
American Alliance of Museums, um
áhrif Covid-19 á söfn í landinu. Að
sögn framkvæmdastjóra sambands-
ins, Lauru Lott, myndi það þýða að
að um 12.000 söfn skelltu í lás.
Könnunin, sem fór fram í júní,
náði til 750 safnstjóra víðs vegar
um Bandaríkin. Meirihluti safn-
anna (87%) hefur einungis fjár-
magn til þess að halda starfseminni
gangandi í tólf mánuði í viðbót eða
skemur. Fjármunir rúmlega helm-
ings þeirra duga aðeins til sex mán-
aða eða skemur.
Bandarísk söfn
í mikilli hættu
Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum
stærðum, hvort sem er í veislusal eða heimahús
Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu.
FERMINGAVEIsluR
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
3ja rétta sTEIKARhlaðborð
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
PINNAMatur
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500
kaffihlaðborð
Ferming
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN