Morgunblaðið - 27.07.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 27.07.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining áhitabreytist eftir aldri? ThermoScan7eyrnahita- mælirinnminnveit það.“ BraunThermoScan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Starf sem miðar að því að efla lýðræði og mannréttindi er lang- hlaup, sem snýst um að breyta kerfum og hugsunarhætti,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. „Á þriggja ára starfi mínu hjá ÖSE urðu engin afgerandi tímamót en áfangasigrar náðust í ýmsum löndum meðal annars þar sem valdamenn viðurkenna mikilvægi þeirrar aðstoðar sem í boði er. Í slíkri ráðgjöf vitna ég stundum til árangurs sem náðst hefur í jafn- réttismálum á Íslandi og hefur í raun gjörbreytt samfélaginu til hagsbóta fyrir alla.“ Níu ár erlendis Fyrr í þessum mánuði lét Ingibjörg Sólrún af störfum hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu en hún var í forsvari þeirrar undirstofununar sem sinn- ir mannréttinda- og lýðræðis- málum. Aðal framkvæmdastjóri ÖSE hefur einnig látið af störfum, sem og forsvarsmenn stofnana sem fjalla um annars vegar fjöl- miðlafrelsi og hins vegar réttindi þjóðarbrota minnihlutahópa. Hér kom til andstaða fulltrúa Tyrk- lands og Tadsíkistan sem settu sig gegn því að samningur um áframhaldandi störf Ingibjargar yrði framlengdur. Það gekk eftir því öll aðildarlöndin sem eru alls 57 hafa hvert og eitt neitunarvald þegar kemur að ráðningu æðstu yfirmanna stofnunarinnar. Ingibjörg er nú flutt heim til Íslands eftir störf í samtals níu ár erlendis, fyrst á vegum UN- Women í Afganistan og Tyrklandi og nú síðstu þrjú árin fyrir ÖSE, með aðsetur í Varsjá í Póllandi. Ég var grandalaus „Ég var grandalaus. Hafði úr ýmsum áttum upplýsingar um að engin andmæli væru gerð við framlengdan starfssamning við mig. Þó er því ekki að leyna að aðkoma frjálsra félagasamtaka að fundum ÖSE hefur valdið nokkr- um vanda síðustu árin vegna at- hugasemda Tadsekista og Tyrkja,“ segir Ingibjörg Sólrún. Nefnir þar að Tyrkir hafi gert at- hugasemdir við samstarf ÖSE við ýmis samtök, m.a. samtök skráð í Þýskalandi, sem hafa aðstoðað flóttamenn sem koma frá Tyrk- landi til Þýskalands. Telji Tyrkir samtökin eiga hugmyndafræði- lega samleið með Fethullah Gulen og segja hann hafa staðið á bak við valdaránstilraunina í Tyrk- landi sumarið 2016. „Allir sem tengjast Gulen eru nánast útskúfaðir í Tyrklandi, sem gerir þýsku samtökin þó ekki að hryðjuverkasamtökum eins og látið er í veðri vaka. Mér finnst fráleitt að forstjóri ODIHR ákveði upp á sitt eindæmi hvaða samtök eigi að útiloka af þessum ástæð- um og það sjónarmið mitt naut stuðnings fulltrúa alls þorra að- ildarríkja ÖSE. Hins vegar eru Tyrkir víða að senda ríkjum skila- boð um ganga ekki gegn þeirra afstöðu. Vilja með því sýna styrk sinn. Þjóðir vilja líka síður fara gegn Tyrklandi, þar sem nú eru rúmlega þrjár milljónir flótta- manna frá Sýrlandi sem enginn veit hvert fara ef Tyrkir gefa eft- ir og opna landamæri sín.“ Fulltrúar Aserbaídsjan og Tadsíkistan lögðust gegn því að Harlem Désir frá Frakklandi héldi starfi sínu sem stjórnandi þeirrar deildar ÖSE sem fjallar um frelsi fjölmiðla. Sjálfstæður fréttaflutningur er stór þáttur í lýðræðinu „Í fjölda ríkja er sótt að fjöl- miðlamönnum sem eru fangels- aðir og jafnvel drepnir, samanber nýleg dæmi frá Rússlandi, Möltu og Slóvakíu. Það er mjög mik- ilvægt að hafa öflugan fjölmiðla- fulltrúa eins og Désir sannarlega var. Fjölmiðlar og blaðamenn eiga mjög undir högg að sækja, sérstaklega sjálfstæðir blaðamenn sem tala gegn valdinu. Víða á Vesturlöndum eru stjórnvöld að reyna að ná tökum á fjölmiðlum og fréttaflutningi og því þarf að berjast gegn. Aðhaldshlutverk fjölmiðla er mikilvægt og samtal milli þeirra og ráðamanna og sjálfstæður fréttaflutningur er stór þáttur í lýðræðinu,“ segir Ingibjörg Sólrún. Andstöðu í ýmsum ríkjum gegn til dæmis starfi frjálsra fé- lagasamtaka og frelsi fjölmiðla telur Ingibjörg Sólrún geta meðal annars ráðist af því að hugmyndir í löndunum um lýðræði og mann- réttindi séu allt aðrar en gerist í Vestur-Evrópu. Einhver gæti haldið því fram að þau ættu ekki samleið með ÖSE en það er ein- mitt hlutverk stofnunarinnar að aðstoða þau við innleiðingu lýð- ræðis og mannréttinda. Stofnunin var sett á laggirnar í kjölfar falls Berlínarmúrsins og uppbrots Sov- étríkjanna um 1990. Í upphafi lá þungi starfsins í aðstoð við ný- frjáls ríki við að koma á lýðræð- islegu fyrirkomulagi og margþætt eftirlit með þing- og forsetakosn- ingum í öllum aðildarríkjunum vegur mjög þungi í starfinu. „Við höfum séð talsverða galla á fram- kvæmd kosninga til dæmis í Hvíta-Rússlandi, Aserbaídsjan og Kasakstan. Slíkt sést ef skýrslur okkar eru lesnar. Einnig höfum við séð mál þróast til betri vegar með okkar aðstoð svo sem í Georgíu og Albaníu. Svo eru líka lönd sem voru alveg lokuð, svo sem Úsbekistan, en þar hefur orð- ið mjög jákvæð þróun í lýðræð- isátt á allra síðustu árum og stjórnvöld hafa í auknum mæli leitað aðstoðar ÖSE.“ Ólík menning Sjónarmið kennd við þjóðern- ishyggju, popúlisma og einangrun eru áberandi um þessa mundir. Hvað þessu viðvíkur segir Ingi- björg Sólrún áhyggjuefni að and- stæður í samfélögum séu orðnar meiri en áður var og milli ólíkra hópa séu stóryrði áberandi. „Hér á Íslandi eru flestir sammála um flest grunngildi, eins og sést hefur að undanförnu á tímum Covid. Í mörgum löndum hafa alvarlegar sprungur í sam- félagsgerðinni orðið mjög sýni- legar – sem hafa víkkað og dýpk- að við fordæmalausar aðstæður. Þar kemur til að víða eru stórir hópar í einstaka löndum afskiptir, svo sem innflytjendur. Fólk í minnihlutahópum mætir ýmsum fordómum og er afskipt. Róm- afólk í mörgum löndum Evrópu er oft og víða í þröngri stöðu; hefur ekki aðgengi að innviðum sem við teljum sjálfsagða, svo sem að rennandi vatni eða netinu og tölvum sem í mörgu tilliti eru lyklar að þátttöku í samfélaginu. Allt eru þetta atriði sem ÖSE hef- ur bent á, en ættu auðvitað að vera sjálfsögð verkefni stjórn- valda í hverju landi. Kjarni máls- ins er samt sá að ÖSE er í kreppu og ráðning nýrra yfirmanna verð- ur vandasöm. Í öllu starfi á al- þjóðavettvangi þarf að sýna sveigjanleika og sanngirni og bera virðingu fyrir ólíkri menn- ingu ríkjanna en það er ekki hægt að gefa afslátt af mannrétt- indum.“ Ekki hægt að gefa afslátt af mannréttindum? segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um brotthvarf sitt frá ÖSE Morgunblaði/Arnþór Birkisson Djúpar sprungur í samfélagsgerð  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem fæddist árið 1954, hefur lengi verið áberandi í íslensku þjóðlífi. Var borgarstjóri 1994- 2003 og alþingismaður fyrir og eftir þann tíma. Utanríkis- ráðherra 2007-2009, en hefur sl. níu ár starfað á alþjóðavett- vangi. Er nýlega flutt heim til Ís- lands og segir næstu verkefni óákveðin. Hver er hún? AFP Flótti Milljónir eru á vergangi í Evrópu um þessar mundir og mikilvægt verkefni alþjóðlegra stofnana er að tryggja réttindi og stöðu þess fólks. Leiðtogi „Í slíkri ráðgjöf vitna ég stundum til árangurs sem náðst hefur í jafnréttismálum á Ís- landi og hefur í raun gjör- breytt samfélaginu til hagsbóta fyrir alla,“ segir Ingibjörg Sólrún um störf sín undanfarin ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.