Morgunblaðið - 27.07.2020, Side 15

Morgunblaðið - 27.07.2020, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020 Menning Fjölmenningarsamfélaginu í Reykjavík var fagnað um helgina á hátíð þar sem fjölskyldur af mörgu þjóðerni komu saman og elduðu heimaeldaða rétti fyrir gesti og gangandi. Íris Eftir fjóra sólar- hringa af erfiðum samningaviðræðum og mörgum sársauka- fullum málamiðlunum hafa leiðtogar Evrópu komist að samkomulagi um byltingarkenndan 750 milljarða evra björgunarsjóð. Sem merki um samhug gagnvart Ítalíu, Spáni og öðrum löndum sem enn eru í sár- um vegna COVID-19-krísunnar er samkomulagið stórt skref fram á við fyrir Evrópusambandið. Það gerir hins vegar lítið til að taka á dýpstu vandamálum evrusvæðisins. COVID-19-krísan hefur fært myntbandalagið að barmi glötunar. Þótt afleiðingar neyðarástandsins séu víða hafa sum lönd orðið harðar úti en önnur. Ítalía, Frakkland og Spánn hafa orðið fyrir flestum dauðs- föllum og verstu efnahagsáföllunum; þá virðist Suður-Evrópa, sem reiðir sig á ferðamenn að miklu leyti, munu þurfa langan tíma til að rétta úr kútn- um. Enn verra er að þótt ríkisskuldir séu miklar um allt evrusvæðið eru þær komnar á hættulegt stig í mörg- um suðlægari löndunum, einkum Ítalíu. Fyrstu viðbrögðin við faraldr- inum ollu töluverðum sárindum með- al Ítala, sem fannst mörgum (með nokkrum sanni) að Norður-Evrópu- búar hefðu hneigst til að kenna Ítöl- um um vandræðin frekar en að bjóða þeim aðstoð. Jafnvel þeir ítölsku stjórnmálaleiðtogar sem fylgja ESB að málum, allt frá forsetanum Sergio Mattarella og niður eftir valdastig- anum, upplifðu að ESB hefði fjar- lægst Ítali pólitískt í kreppunni. Angela Merkel Þýskalandskanslari á hrós skilið fyrir að átta sig á umfangi vandans. Í maí lögðu hún og Emmanuel Macron Frakklandsforseti fram tillögu um 500 milljarða evra björgunarsjóð sem yrði fjármagnaður með skuldum útgefnum af ESB og myndi úthluta styrkjum til þeirra svæða og atvinnugeira sem hafa orð- ið verst úti. Framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins byggði síðan ofan á tillögu Frakka og Þjóðverja með því að bæta ESB-lánum ofan á styrkina svo að heildarupphæðin varð 750 milljarðar evra. Samkomulagið sem svefnvana ESB-leiðtogar komust að snemma að morgni 21. júlí er kærkomið af nokkrum ástæðum. Þótt einhvers konar samkomulag hafi alltaf verið líklegt var það áhyggjuefni að við- ræðurnar gæti dregist á langinn út árið, þannig að misklíð innan ESB myndi aukast og draga athygli stjórnmálamanna frá öðrum verk- efnum. Að samkomulag sé í höfn áður en Evrópa skellir í lás í ágúst er sigur í sjálfu sér. Enn betra er að samkomulagið fel- ur í sér marga jákvæða þætti tillögu Merkel og Macron, þar sem 390 millj- arðar evra vegna ESB-styrkja eru efstir á blaði, án margra skilyrða. Fjögur af efnaðri ríkjum Norður-- Evrópu, með Hollendinga í farar- broddi, höfðu áður sett það sem skil- yrði að ESB veitti eingöngu lán, sem væru háð því að ríkisstjórnirnar sem þægju þau framkvæmdu umbætur sem ESB krefðist (og að þjóðirnar samþykktu þau). En ágeng skilyrði af því taginu hafa slæmt orð á sér eft- ir samskipti ESB og Grikklands fyrir áratug, þannig að Suður-Evrópu- þjóðirnar gátu engan veginn sam- þykkt neitt slíkt. Enn fremur er lántökukostnaður stjórnvalda svo lítill – ekki síst vegna 1,35 billjóna evra Neyðarkaupaáætl- unar Seðlabanka Evrópu vegna far- aldursins – eða ESB-lán hefðu lítið hjálpað. Ef eitthvað er hefðu þau dregið úr sjálfbærni varðandi greiðslu skulda, sérstaklega á Ítalíu, þar sem skuldir ríkissjóðs stefna í að verða 160% af landsframleiðslu á næsta ári. Á efnahagslegu hliðinni munu 390 milljarðar evra í styrkjum á næstu þremur árum reynast umtalsverð innspýting. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins býst við því að hagkerfi ESB dragist saman um 8% á þessu ári og verði 12,8 billjónir evra. Björgunarstyrkirnir yrðu þannig jafngildi 3% af vergri lands- framleiðslu, eða 1% fyrir hvert ár. Ef hagkerfi Ítalíu skreppur saman um 10% á þessu ári munu þeir 82 millj- arðar evra sem eyrnamerktir eru landinu jafngilda 5% landsfram- leiðslu. Þótt þeir séu mun smærri en fjárhagslegir örvunarstyrkir hverrar þjóðar gætu ESB-styrkirnir þannig engu að síður aðstoðað við pen- ingaleg björgunarstörf Seðlabanka Evrópu. Helsti kosturinn við björg- unarsjóðinn er þó pólitískur. Með honum sýnir Evrópusambandið að það getur komið Evrópubúum til hjálpar þegar þeir þurfa mest á því að halda. Þetta ætti að veita nauðsyn- legt mótvægi við vantrú á sambandið og draga úr reiði fólks vegna krís- unnar. Frá sjónarhóli stjórnsýslu er sam- komulagið mikill sigur fyrir Fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem var oft utanveltu í mynt- bandalagskreppunni 2010-12. Það verður Framkvæmdastjórnin sem tekur 750 milljarða evra lánið til að fjármagna sjóðinn og hún mun beina styrkjum og lánum með fjárveit- ingavaldi sínu innan ESB. Með annað augað á greiðslu skuldarinnar eftir 2027 mun hún einnig hafa yfirumsjón með leit að nýjum tekjustofnum fyrir ESB, svo sem skatti á stafræna þjón- ustu eða kolefnisjöfnunarskatti inn- flutnings. Gallinn er sá að vegna þess að björgunarsjóðurinn var felldur inn í víðtækari samningaviðræður um fjárhagsáætlun ESB 2021-27 þurfti að gera nokkrar óheppilegar mála- miðlanir. Áður en heimsfaraldurinn brast á var Evrópska græna sam- komulagið til að takast á við loftslags- breytingar flaggskipsframtak Ursulu von der Leyen, forseta Fram- kvæmdastjórnarinnar. Nú hefur ver- ið dregið úr fjárveitingum til að styðja við umskipti í hreinni orku- gjafa. Önnur stór áskorun fyrir ESB er heimaræktað einræði. Andlýðræð- islegar stjórnir á borð við ríkisstjórn Viktor Orbán, forsætisráðherra Ung- verjalands, komast enn upp með að virða réttarríkið að vettugi og mis- nota svæðisbundna samheldnisjóði ESB í eigin þágu, sem er ástæða þess að eitt af helstu forgangsmálum Merkel var að skilyrða aðstoð ESB í framtíðinni við virðingu fyrir rétt- arríkinu. En slík skilyrði voru tekin út, að því er virðist af ótta við hótun Orbán um að beita neitunarvaldi (sem var ólíklegt að myndi gerast, þar sem Ungverjaland hefði hvort eð er áfram þegið mikla styrki af ESB). Með útgöngu Bretlands í janúar var einnig von um að losna við út- breiðslu þjóðarafslátta, sem var bitlingur sem Margaret Thatcher, þáverandi forsætisráðherra Bret- lands, tryggði landi sínu fyrst á ní- unda áratugnum (en aðrar þjóðir sem lögðu meira til ESB en þær fengu til baka fylgdu síðar í kjölfarið). Ákvæði um slíkt ýta jafnan undir hugsunar- hátt nísku og samvinnuskorts sem grefur undan evrópskri samstöðu. En í stað þess að snúa þjóðarafslætt- ina niður mútar ESB í raun hinum óstýrilátu Hollendingum, Austurrík- ismönnum, Svíum og Dönum með enn meiri afsláttum sem felast í nýja samkomulaginu. Eftir myntbandalagskrísuna 2010- 12 benti mannúðarfrömuðurinn George Soros á að Merkel gerði alltaf rétt nóg til að halda evrunni gang- andi „en aldrei meira en það“. Þetta á enn við. Björgunarsjóðurinn er kær- komið skref fram á við en hann leysir ekki grunnvanda evrusvæðisins, svo sem ósjálfbæra skuldaþróun á Ítalíu, tilhneigingu til verðhjöðnunar í Þýskalandi og skort á endurstillingu hagkerfa. Evrusvæðið er sloppið fyr- ir horn í þetta sinn en það er samt engan veginn komið í varanlegt skjól. Eftir Philippe Legrain » Samkomulagið sem svefnvana ESB- leiðtogar komust að snemma að morgni 21. júlí er kærkomið af nokkrum ástæðum. Philippe Legrain Höfundur er meðlimur í Evrópu- stofnun London School of Economics og fyrrverandi efnahagsráðgjafi for- seta framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins. Evrópa bjargar sér

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.