Morgunblaðið - 27.07.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 27.07.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020 BROTINN SKJÁR? Við gerum við allar tegundir síma, spjaldtölva, og tölva Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Allir þeir fjölmörgu sem heimsótt hafa listamanninn Pál á Húsafelli ljúka lofs- orði á listsköpun hans. Það er fyrir flesta mikil upplifun að sjá hann flytja verk þekktustu tónskálda veraldar á steinhörp- una sína. Það er ekki síður mikil upplifun að sjá hvernig hann breytir grjóti í listaverk og port- rettverkin hans af nágrönnum hans í uppsveitum Borgarfjarðar og þjóðþekktum Íslendingum eiga engan sinn líka. Hann vinnur verk sín af hógværð og á enga ósk heit- ari en að fá að sinna listsköpun sinni í sátt við Guð og menn. Páll er friðarins maður. Á undanförnum ár- um hafa vinir Páls og fjölskylda lyft grett- istaki við að skapa hon- um viðunandi vinnu- aðstöðu. Nú má segja að sú vinna sé nokkurn veginn í höfn. Þá var draumur hans um leg- steinasafn að verða að veruleika, safn sem geyma átti safn leg- steina sem öldum saman voru settir á leiði fólks víðs vegar um Borgar- fjörð. Efni í þessa legsteina var sótt í Bæjargilið fyrir ofan Húsafell, hið sama gil og Páll sækir grjótið til að móta verk sín úr. Nú hefur skyndilega syrt í álinn og svo virðist sem vinna allra þeirra sem hér hafa lagt hönd á plóg hafi verið unnin fyrir gýg. Með dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem gekk fyrr í þessum mánuði, er Páli gert að brjóta niður og fjarlægja legsteinasafnið, sem var nær tilbúið til notkunar. Það er í öllu þessu samhengi dap- urlegt til þess að hugsa að ástæðan fyrir því að dómurinn féll á þennan veg eru mistök á mistök ofan hjá stjórnsýslu Borgarbyggðar. Það er í raun óskiljanlegt hvernig stjórn- sýslu sveitarfélagsins hefur tekist að klúðra þessu máli. Það er enn dapurlegra til þess að hugsa að sveitarfélagið hefur fengið ítrekuð tækifæri til að lagfæra mistök sín. Tækifæri sem ekki hafa verið not- uð. Valkostirnir sem sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur núna eru skýrir: Annars vegar að grípa til þeirra úrræða sem hún hefur til að koma í veg fyrir niðurrif hússins eða velja þann kostinn að aðhafast ekkert. Velji sveitarstjórnin síðari kostinn verður það henni og stjórn- sýslu Borgarbyggðar til ævarandi skammar. Listin og stjórnsýslan – til varnar frænda mínum Páli á Húsafelli Eftir Andrés Magnússon Andrés Magnússon »Með dómi Héraðs- dóms Vesturlands, sem gekk fyrr í þessum mánuði, er Páli gert að brjóta niður og fjar- lægja legsteinasafnið, sem var nær tilbúið til notkunar. Höfundur er lögfræðingur og er fjór- menningur við Pál að skyldleika. Úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlinda- mála setti ofan í við Skipulagsstofnun með því að fyrirskipa stofn- uninni að afgreiða matsáætlun vegna vindorkuvers í landi Hróðnýjarstaða í Dala- byggð „án frekari tafa“. Skipulags- stofnun hafði lögum samkvæmt fjórar vikur til að afgreiða erindið en þegar heilt ár var liðið án þess að neitt gerðist kaus framkvæmdarað- ilinn að kæra seinaganginn, enda jafngilti staða málsins því að Skipu- lagsstofnun hefði stöðvað sjálft verk- efnið. Úrskurðarnefndin tók undir með kærandanum og hafnaði vand- ræðalegum rökstuðningi Skipulags- stofnunar fyrir seinaganginum. Næsta spurning er hvort Skipu- lagsstofnun kjósi nú að hunsa líka þennan úrskurð með þögninni líkt og hún hefur ítrekað komist upp með að sniðganga landslög í öðrum málum með nákvæmlega sama hætti og gerðist með vindorkuverkefnið í Dalabyggð. Þessi stjórnsýsla snýr ekki eingöngu að einka- fyrirtækjum heldur hinu opinbera líka. Nærtækt er að nefna að í fyrrasumar gagn- rýndi formaður bæj- arráðs Akureyrar að Skipulagsstofnun hefði legið á matsskýrslu vegna Hólasandslínu í 20 vikur án þess að ból- aði á afgreiðslu málsins sem landslög mæltu skýrt fyrir um að hún ætti að klára á fjórum vikum. Nærtækt er líka að nefna breikk- un Vesturlandsvegar sem Skipulags- stofnun ákvað að þyrfti að sæta mati á umhverfisáhrifum með tilheyrandi töfum, framkvæmd sem öllum er ljóst að er óhjákvæmileg og bókstaf- lega lífsnauðsynleg. Þá má nefna vegagerð í Árneshreppi á Ströndum sem komin er á framkvæmdaáætlun en þarf að sæta mati á umhverfis- áhrifum þrátt fyrir að vera ekki lagn- ing nýs vegar heldur lagfæring til að tryggja íbúum viðunandi samgöngur á landi. Nú eru á döfinni vegafram- kvæmdir sem stjórnvöld hafa sett á dagskrá sem lið í átaki til atvinnu- sköpunar og innviðauppbyggingar í kjölfar Covid-faraldurs. Er fram- gangur þeirra verkefna líka háður því hvenær Skipulagsstofnun þókn- ast að klára það sem að henni snýr? Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sýndi rökum Skipu- lagsstofnunar fyrir slugsinu gagn- vart vindorkuverkefninu bless- unarlega lítinn skilning. Ég sá að þau rök voru óþægilega kunnugleg og það framar öðru rak mig til að stinga niður penna. Í janúar 2020 kærði ég nefnilega ákvörðun Skipu- lagsstofnunar um að uppbygging Kjalvegar í Bláskógabyggð skyldi sæta mati á umhverfisáhrifum með tilheyrandi töfum á framkvæmdum. Kæran var lögð fram fyrir hönd Fannborgar ehf., félags sem annast ferðaþjónustu í Kerlingarfjöllum og hefur þarna ríkra hagsmuna að gæta. Úrskurðarnefndin vísaði málinu frá og taldi ekki hægt að „játa kær- anda [Fannborg] kæruaðild“ í mál- inu. Það er sjónarmið nefndarinnar og því er ég ósammála en það er önn- ur saga. Skipulagsstofnun tók sér tæplega sjö mánuði til að komast að niðurstöðu um hvort vegafram- kvæmdin skyldi vera háð mati á um- hverfisáhrifum. Stofnunin sagði að seinaganginn mætti „fyrst og fremst rekja til sumarfría og manneklu“ og í vindorkumálinu var borið við „fjölda umfangsmikilla mála“ og „viðvarandi manneklu“. Fleira var tínt til sem úr- skurðarnefndin benti kurteislega á að héldi ekki gagnvart lögum. Skipulagsstofnun heyrir undir ráðuneyti umhverfis- og auðlinda- mála og einhver kynni nú að hugsa: Getur ekki umhverfisráðherra gripið inn í atburðarásina og séð til þess að stofnunin fari að lögum? Þá vill svo til að í ráðherrastóli situr fyrrver- andi framkvæmdastjóri Land- verndar sem gerði það að sérstakri íþrótt í fyrra lífi sínu á starfsferlinum að kæra og tefja framkvæmdir og framkvæmdaáform af ýmsu tagi í tugatali. Litið var á kæruferli sem möguleika til tæknilegra tafa og oft með góðum árangri, af sjónarhóli kærandans. Að manni læðist því mið- ur sá grunur að umhverfisráðherr- ann sé ekki manna líklegastur til að hnippa í Skipulagsstofnun og benda henni á að standa við skyldur sínar á þeim tíma sem lög mæla fyrir um. Nefna má svo í lokin stóra spurn- ingu sem ýmsir löglærðir menn velta fyrir sér og væri áhugavert að láta reyna á fyrir dómstólum: Eru úr- skurðir, sem kveðnir eru upp eftir að frestir til slíks eru fyrir löngu út- runnir, ekki einfaldlega marklausir? Skipulagsstofnun vísað í skammarkrók Eftir Pál Gíslason » Í ráðherrastóli situr fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Land- verndar sem gerði það að sérstakri íþrótt að kæra og tefja fram- kvæmdir af ýmsu tagi í tugatali. Páll Gíslason Höfundur er verkfræðingur. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Veiði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.