Morgunblaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 Lögreglan á Suðurlandi og Almannavarnir fengu tilkynningu á þriðjudag um að Múlakvísl væri að grafa í sundur veginn við Afréttisá, sem liggur upp í Þakgil. Lögreglumenn frá Vík fóru á vettvang auk starfsmanna frá Vegagerðinni. hindra frekari skemmdir. Aukin rafleiðni hefur mælst í Múlakvísl sökum þess að jarðhitavatn blandast ánni. Brennisteinslykt hefur fundist við ána og gasmælar við Láguhvola hafa sýnt aukið gasútstreymi. Gerð var hjáleið á staðnum meðan viðgerð á veginum átti sér stað en henni lauk um klukkan þrjú í nótt. Er vegurinn um svæðið nú öruggur yfirferðar samkvæmt upplýsingum frá Vega- gerðinni. Þá verður búinn til varnarveggur til að Múlakvísl gróf í sundur veg við Afréttisá Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Á þriðja hundrað örnefni sem bera í sér forliðinn þrætu- hafa fundist við skráningu örnefnalýsinga hjá Stofn- un Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Emily Leth- bridge, rannsókn- arlektor hjá stofnuninni, segir að örnefni séu lýsandi fyrir sam- félagsleg og efna- hagsleg viðhorf. Emily segir þó aðspurð að þrætu-örnefnin sýni ekki að Ís- lendingar hafi verið þrætugjarnir, fremur sýni þau hversu ómissandi landsins gæði voru fyrir fólk á fyrri tímum. „Þau segja mest um gildi hvers strás, fólk vildi væntanlega ekki berj- ast heldur var lífið svo erfitt að fólk þurfti að passa vel upp á hvað það átti og hverju það hafði aðgang að.“ Þrætu-örnefnin er gjarnan að finna á landamerkjum eða nálægt þeim. „Örnefnin benda til þess að oft hafi orðið deilur þar sem voru landskikar á milli landa og hvert hálmstrá var mikilvægt fyrir skepnur,“ segir Emily. Skráning örnefnalýsinga er nú á lokastigum og er stefnt á að opna örnefnagrunninn í lok ársins. Þá verða gögnin aðgengileg almenningi á vefsíðunni nafnid.is. Starfsfólk Stofnunar Árna Magn- ússonar, sem í sumar er að stórum hluta háskólanemar þegar horft er til þessa verkefnis, vinnur að því að skrá 12.500 skjöl sem innihalda örnefni en fjöldi örnefna er áætlaður 400-500 þúsund. Örnefnunum fylgja gjarnan baksögur. „Í örnefnalýsingu fyrir Veiðileysu í Árneshreppi, Strandasýslu, sem Guðrún S. Magnúsdóttir skráði árið 1975, er t.d. sagt um Þrætupart: „mun hafa verið ágreiningsefni milli ábúenda Kambs og Veiðileysu,“ skrif- ar Emily í pistli um málið á vef Árna- stofnunar. Flestir Íslendingar geti fundið ættingja í safninu Algengustu Þrætu-örnefnin eru Þrætutunga, en 44 slíkar finnast á landsvísu, Þrætupartur, en 28 slíkir eru á landinu, og Þrætuás, sem á sautján fulltrúa víðs vegar um landið. Emily segir í samtali við blaða- mann að aðaláhersla skráningar örnefnagagnanna sé að gera safn þeirra aðgengilegt þannig að allir geti farið inn á nafnid.is og slegið inn bæj- arnöfn eða örnefni og fengið þannig fram allar niðurstöður þar sem bæjarnafnið eða örnefnið kemur fyr- ir. Sömuleiðis verður hægt að fletta upp fólki, heimildarmönnum eða skrásetjurum og gerir Emily ráð fyr- ir því að flestir Íslendingar muni geta fundið ættingja í safninu. Emily segir „gríðarlega mikil- vægt“ að örnefnasafnið sé gert að- gengilegt. „Örnefni eru menningararfur og snúast líka um sögu landslags, um- hverfissögu og samspil manns og náttúru. Það er ekkert sambærilegt þessu safni til annars staðar á Norð- urlöndum og ef til vill ekki annars staðar í heiminum heldur.“ Verkefnið er unnið í samstarfi við Landmælingar Íslands og er það styrkt af innviðasjóði Rannís og styrktarsjóði Áslaugar Hafliðadóttur hjá Háskóla Íslands. Hátt í 300 örnefni tengjast þrætum Ljósmynd/Emily Lethbridge Skjal Skrá sem er á meðal elstu skjala örnefnasafnsins. Skráin er eftir Jón Klemensson sem sett var saman einhvern tímann á árunum 1840-50.  Þrætu-örnefnin segja ýmislegt um erfiða lifnaðarhætti á árum áður  Skrá 12.500 skjöl sem inni- halda 400 til 500 þúsund örnefni  Rannsóknarlektor segir örnefnasafnið mikilvægan menningararf Emily Lethbridge Karlmaður á tíræðisaldri, sem var fluttur á sjúkrahús með þyrlu Land- helgisgæslunnar eftir þriggja bíla árekstur við Stóru-Laxá hjá Flúðum 10. júlí síðastliðinn, lést á sjúkrahúsi á þriðjudag. Oddur Árnason, yfirlög- regluþjónn á Suðurlandi, segir að maðurinn hafi dvalið á sjúkrahúsi allt frá því að slysið varð. Ökumenn bílanna þriggja voru allir einir á ferð þegar slysið varð, en hinir tveir hlutu minniháttar áverka. Þyrla Gæslunnar var á flugi í námunda við svæðið og gat því brugðist hratt við og flutti manninn á Borgarspítalann. Hann hafði fengið aðhlynningu á sjúkrahúsi í tæpar þrjár vikur þegar hann lést. Hafa þá sex manns látist í umferðarslysum á þessu ári. Lést þrem- ur vikum eftir slys  Sex hafa látist í umferðarslysum í ár Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Verðmerkingum í íþróttavöruversl- unum á höfuðborgarsvæðinu er ábótavant. Þetta kemur fram í niður- stöðum könnunar sem gerð var á vegum Neytendastofu. Alls var farið í 18 íþróttavöru- verslanir nærri höfuðborginni. At- hugasemdir voru gerðar við 16 versl- anir, þar af átta varðandi bæði vefsíðu og verslun. Þá fengu fjórar verslanir athugasemd við verslun og aðrar fjórar við verðmerkingar á vef- síðu. Margar ábendingar berast Að sögn Þórunnar Önnu Árna- dóttur, forstjóra Neytendastofu, var ákveðið að gera úttektina í kjölfar ábendinga frá neytendum. „Við fáum heilmikið af ábendingum um verð- merkingar, hvort sem það er í mat- vöruverslunum, íþróttaverslunum eða annars staðar. Í þessum tilvikum vantaði bara verðmerkingar,“ segir Þórunn og bætir við að sumarstarfs- menn hafi framkvæmt úttektina. Aukinn mannafli gerði könnunina jafnframt mögulega. „Þetta er slæmt á miklu fleiri stöð- um en bara í þessum búðum. Við er- um ekki mörg en núna erum við með sumarstarfsmenn sem eru að kíkja á þetta. Miðað við þetta virðist vera þörf fyrir reglubundið eftirlit,“ segir Þórunn. Í kjölfar úttektarinnar verður framangreindum verslunum gert að laga verðmerkingar. Fari svo að ekkert hafi verið að gert við næstu heimsókn hefur Neytendastofa heimild til að sekta fyrirtækin. „Við höfum reyndar heimild til að sekta verslanir eftir fyrstu heim- sókn. Hins vegar er það svo að við sektum eftir aðra heimsókn. Við för- um alltaf aftur og könnum hvort búið sé að bæta úr,“ segir Þórunn og bæt- ir við að farið verði í umræddar verslanir síðar í sumar. Vörur illa verðmerktar í íþróttavöruverslunum  Neytendastofa sektar verslanirnar verði ekkert að gert  Athugasemdir gerðar við 16 verslanir af 18 Verslun Íþróttavörur eru ekki nægilega vel verðmerktar. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Björgunarskip Landsbjargar höfðu í nógu að snúast í gær vegna smá- báta í vanda. Á þremur tímum bár- ust jafnmörg útköll en engin slys urðu á sjómönnum. Fyrst varð bát- ur vélarvana austur af Horni um hálfþrjúleytið, síðan annar klukku- stund síðar í mynni Eyjafjarðar og loks sá þriðji síðdegis vestur af Garðskaga. Útkall vegna þriggja smábáta í vanda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.