Morgunblaðið - 30.07.2020, Page 6

Morgunblaðið - 30.07.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 Gríðarstórt bjarg blasti við í veg- stæði þar sem unnið er að breikkun hringvegarins fyrir neðan Lágafells- kirkju í Mosfellsbæ. Skyldi þetta vera álfasteinn? „Nei, þetta var klöpp sem var þarna og losnaði innan úr miðri skeringu. Þetta var ekki stakur steinn í upphafi leiks,“ sagði Magnús Steingrímsson, staðarstjóri verktak- ans Loftorku Reykjavík ehf. Vegagerðin sendi frá sér tilkynn- ingu í gær um að sprengja þyrfti klöpp sem væri í vegstæðinu og því fylgdi talsvert ónæði fyrir þá sem væru í nágrenninu. Gefin eru hljóð- merki fyrir og eftir sprengingarnar. Magnús sagði að búið væri að sprengja þarna af og til í um mánuð og þyrfti sjálfsagt að sprengja einn mánuð í viðbót. Misjafnt er hve oft er sprengt á dag, stundum tvisvar og suma daga er ekkert sprengt. Það fer allt eftir því hvernig gengur að bora klöppina. „Þetta er frekar leiðinleg klöpp, hún brotnar illa,“ sagði Magnús. Grjótið sem losnar við bergsker- inguna er flokkað og svo notað að hluta til í fyllingar undir veginn þar sem verið er að breikka hann. Annað er notað í hljóðmanir á svæðinu. Áætlað er að bergskeringar í verk- inu séu upp á 13.000 rúmmetra. Verið er að breikka og endurbæta hringveginn á 1.100 metra kafla milli Skarhólabrautar og Langatanga. Breikka á vegstæðið svo að hægt verði að koma þar fyrir fjórum ak- reinum og aðskilja akstursstefnur með vegriði. Í verkinu felast m.a. bergskeringar inn í Lágafell. Hljóð- varnarveggir og hljóðmanir verða gerð. Auk þess á að byggja biðstöð Strætó og tengja stíga við hana. Í verkinu er innifalinn frágangur yfirborðs raskaðra svæða, það er plöntun og gróðursetning, öll nauð- synleg lagnavinna og uppsetning og tenging 60 ljósastaura. gudni@mbl.is Bergsneið skorin úr jaðri Lágafells  Sprengja þarf í um mánuð til viðbótar  Grjótið notað und- ir veginn og í manir Morgunblaðið/Árni Sæberg Mosfellsbær Sprengt er úr Lágafelli vegna breikkunar hringvegarins á milli Skarhólabrautar og Langatanga. Þetta bjarg var hluti af klöppinni. Gísli Rúnar Jónsson, leikari og rithöfundur, lést á heimili sínu sl. þriðjudag, 67 ára að aldri. Gísli Rúnar fæddist í Reykjavík 20. mars 1953, sonur hjónanna Guðrúnar Valgerðar Gísladóttur skáldkonu og Jóns Konráðs Björnssonar kaup- manns. Hann stundaði leik- listarnám við Leiklist- arskóla Ævars Kvaran 1969-70, var í námi og leik- hústengdum störfum hjá LA 1970- 71, í undirbúningsnámi við Leiklist- arskóla leikhúsanna 1974 og leiklist- arnámi þar 1974-75, stundaði framhaldsnám í leiklist við The Drama Studio í Lond- on og brautskráðist þaðan 1981. Gísli hóf feril sinn sem skemmtikraftur í sjónvarpi með Júlíusi Brjánssyni í Kaffi- brúsakörlunum 1972- 73 og lék síðan í, leik- stýrði og skrifaði fjölda útvarps- og sjón- varpsþátta. Þá kom hann að tveimur tug- um áramótaskaupa, og gerði auglýsingar fyrir útvarp og sjónvarp. Hann stofnaði og rak Gríniðjuna hf. í félagi við Eddu Björgvins- dóttur, Þórhall Sigurðsson (Ladda) og Júlíus Brjánsson á níunda og tí- unda áratug síðustu aldar. Þá var hann leikari, leikstjóri, höfundur og þýðandi að leikritum, skemmti- dagskrám, revíum og kabarettum fyrir Þjóðleikhúsið, LR, LÍ, LA, Al- þýðuleikhúsið, Hitt leikhúsið, Út- varpsleikhúsið, Listahátíð o.fl. Einn- ig var hann flytjandi efnis á hljóm- plötum og mynddiskum af marg- víslegu tagi og lék í kvikmyndum. Bækur eftir Gísla eru m.a. Bo & Co – með íslenskum texta, Ég drepst þar sem mér sýnist – Gísli Rúnar & Grínarar hringsviðsins segja sögur úr sviðsljósinu – & skugga þess og Laddi: Þróunarsaga mannsins sem kom okkur til að hlæja. Eiginkona Gísla var Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir leikkona. Þau skildu. Synir þeirra eru Björgvin Franz og Róbert Oliver. Stjúpdætur Gísla og dætur Eddu eru Eva Dögg og Margrét Ýrr Sigurgeirsdætur. Andlát Gísli Rúnar Jónsson Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Töluverð umferð fólks hefur verið á vinsælum gönguleiðum á hálendinu. Páll Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Ferðafélags Íslands, segir um- ferð um skála félagsins á hálendinu vera umfram þær spár sem settar voru fram. „Það hefur verið bara nokkuð gott hjá okkur og almennt mikil umferð um skálana. Engu að síður erum við að horfa á samdrátt sem nemur allt að 50% af þeim fjölda sem var í fyrra,“ segir Páll og bætir við að Ís- lendingum á hálendinu hafi stórfjölg- að. „Við erum að sjá mun fleiri Ís- lendinga koma í skálana og lendum þannig kannski ekki eins illa í því og aðrir. Það hefur orðið ákveðin sprengja í útivistaráhuga lands- manna í sumar, það eru miklu fleiri að fara í ferðir og þar með fleiri sem fara í skálana,“ segir Páll. Ferðafélag Íslands heldur úti skipulögðum ferð- um undir leiðsögn fararstjóra, en flestir þátttakendur eru félagar í FÍ. Páll segir að slíkum ferðum hafi fjölg- að talsvert. „Á Laugaveginum hafa erlendir ferðamenn verið í meirihluta á síðustu árum en í sumar eru Íslend- ingar í miklum meirihluta. Það hefur alltaf verið þannig að 95% þátttak- enda í ferðum hjá okkur eru Íslend- ingar. Það er mikil þátttaka og við höfum fjölgað ferðum sem nemur um 30% af ferðaáætluninni í sumar og þessar viðbótarferðir hafa langflest- ar nú þegar selst upp,“ segir Páll. Fækkun á Fimmvörðuhálsi Skúli H. Skúlason, framkvæmda- stjóri Útivistar, segir umferð um skála og tjaldsvæði í sumar sömuleið- is hafa verið vonum framar. „Við sjáum svolítið af íslenskum hópum koma í dag sem er mjög ánægjulegt og þessar klassísku gönguleiðir hafa verið að fá traffík. Þannig að þetta hefur verið vonum framar, eða fram- ar því sem maður óttaðist kannski frekar,“ segir Skúli og bætir við að Útivist hafi þurft að vísa fólki frá tjaldsvæðum vegna fjöldatakmark- ana. „Við erum með skála og tjald- svæði í Básum og þar hefur þurft að takmarka fjöldann við samkomu- takmarkanir og við höfum alveg þurft að vísa fólki frá þar. Við brugðumst við með því að taka það upp að fólk bóki fyrirfram svo við höfum getað haft stjórn á fjöldanum,“ segir Skúli. Hann segir mestan samdrátt hafa orðið í skálum á Fimmvörðuhálsi. „Á Fimmvörðuhálsi er töluverð fækkun, sem kannski skýrist af því að Íslendingar taka þá göngu frekar á einum degi en erlendir ferðamenn eru meira í því að gista. Þar sjáum við kannski mestu dýfuna.“ Engilbert Olgeirsson, fram- kvæmdastjóri Hellismanna, sem reka ferðaþjónustuna við Land- mannahelli, segir sömuleiðis að tals- vert meira sé um Íslendinga á há- lendinu en oft áður. „Það er búið að vera alveg slatti. 85% af okkar kúnn- um eru erlendir ferðamenn en Ís- lendingar hafa skilað sér betur núna en undanfarin ár. Við bjuggumst við alveg um 70% samdrætti en það virð- ist ekki ætla að verða svo mikið,“ seg- ir Engilbert. „Sprengja“ í áhuga landsmanna  Minni samdráttur en búist var við á hálendinu  Mun fleiri Íslendingar en undanfarin ár  FÍ hefur fjölgað ferðum um 30%  Töluverð fækkun á Fimmvörðuhálsi  Tjaldsvæði hafa þurft að vísa fólki frá Morgunblaðið/GSH Hálendið Ferðamenn hafa margir hverjir lagt leið sína í Landmannalaugar. LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.