Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 11
Hlöllabátar Vörur og hráefni veit-
ingastaðarins verða í verslunum.
Hráefni og vörur veitingastaðanna
Barion og Hlöllabáta verða innan fárra
vikna fáanlegar í matvöruverslunum.
Þetta staðfestir athafnamaðurinn og
eigandi staðanna, Sigmar Vilhjálms-
son, í samtali við Morgunblaðið.
Barion-staðirnir eru tveir talsins,
annars vegar í Mosfellsbæ og hins
vegar úti á Granda. Hafa staðirnir not-
ið gríðarlegra vinsælda en þar má
finna mikið úrval fjölbreyttra rétta. Að
sögn Sigmars munu landsmenn nú
geta reynt fyrir sér í eldhúsinu með
Barion-hráefnið. „Við höfum verið að
þróa sósur á Barion, sem fólk mun nú
geta nálgast í búðum. Að auki verða
hamborgarabrauð og 175 gramma
hamborgarakjöt sett inn í búðir í
fyrstu umferð. Í framhaldinu höfum
við áhuga á að setja inn fleiri vörur,“
segir Sigmar og bætir við að hug-
myndinni svipi mjög til verkefnisins
sem sett var af stað hjá Hamborgara-
fabrikkunni á sínum tíma, en finna má
allar helstu vörur síðarnefnda veit-
ingastaðarins í fjölda verslana.
„Í grunninn er hugmyndin og hug-
myndafræðin sú sama. Ég hef gert
þetta áður með fabrikkusósurnar auk
þess sem við settum inn Shake&Pizza-
vörurnar í verslanir. Þegar við fórum
af stað með Barion þróuðum við okkar
eigin sósur og bragðtegundir og það er
ástæða þess að við teljum þetta eiga
erindi í verslanir,“ segir Sigmar.
Líkt og fyrr segir verður sömuleiðis
hægt að nálgast vörur Hlöllabáta í
verslunum innan fárra vikna. Gerir
Sigmar ráð fyrir að vörurnar verði í
hillum verslana í ágústmánuði. „Það er
ekki alveg útséð með tímasetningu en
þetta verður komið í ágúst. Af Hlölla-
vörunum mun fólk geta keypt sósuna
frægu, Hlölla-kryddið og Hlölla-
brauðið, bæði lágkolvetna og venju-
legt.“ aronthordur@mbl.is
Vörur Barion og Hlöllabáta í búðir
Vörurnar verða fáanlegar í verslunum í ágústmánuði
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTAHáaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380
Hreinsum allar yfirhafnir,
trefla, húfur og fylgihluti
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: Mán-fös: 11-18
Lau: 11-15
www.spennandi-fashion.is
2020
HAUST
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
SKOÐIÐ
NETVER
SLUN
LAXDAL
.IS
NÚ ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
40-60%
GÆÐAFATNAÐUR
SEM ENDIST
VELKOMIN
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
ÚTSALA -30-50% afsláttur af völdum vörum