Morgunblaðið - 30.07.2020, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
„Töfrar Íslands felast í andstæðum
myrkurs og birtu,“ segir Guðfinna
Mjöll Magnúsdóttir, hönnuður og um-
hverfisfræðingur, sem starfar hjá
Skógræktarfélagi Reykjavíkur í
Heiðmörk. Skógarnir þar eru einhver
mesti sælureitur höfuðborgarsvæð-
isins, enda sækir fólk þangað mikið á
öllum tímum ársins. Nú er þar allt í
blóma og sjálfsagt væri hægt að eyða
heilu dögunum í Heiðmörk í náttúru-
skoðun og lautarferðum.
„Andstæðurnar í skammdeginu og löngum dögum
finnst mér hellandi, skammdegið kallar á meiri dvala og
inniveru og þegar sól er hátt á lofti er gaman að vera úti.
Sumarið með sínum löngu sólríku dögum er algjört
ævintýri og vildi ég óska að maður þyrfti ekki að sofa á
sumrin. En þá eru forréttindi að vinna úti eins og ég
geri. Var hins vegar núna í byrjun vikunnar að detta í
sumarfríi. Hjá mér er fastur liður á sumrin að fara í
Þjórsárdal; þennan stórbrotna stað í uppsveitum Árnes-
sýslu og upp við hálendisbrúnina. Víða þar er hrjóstrug
náttúra og vikur liggur yfir. En svo koma andstæðurnar
sem gera svæðið heillandi, til dæmis Gjáin, dalkvos með
fossum, hvönnum og grænum hvömmum, bókstaflega
falin í landinu. Algjör paradís, rétt eins og Fljótshlíðin
þar sem fjölskyldan mín á sér svæði og dvelst þar oft
löngum stundum.“
Ljósmynd/Gísli Gíslason
Þjórsárdalur Gjáin er falin perla með læk og fossum.
Andstæður heilla
og algjör paradís
Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir
„Ég sigldi um höfin á frökturum í
tuttugu ár og að sjá landið rísa úr
hafi þegar komið var að utan fannst
mér alltaf jafn stórkostlegt. Að vera
uppi í brú á fallegum sumarnóttum
og horfa utan af hafi til Vatnajökuls
áður en ský drógust að honum er
engu líkt,“ segir Dagþór Haraldsson
leiðsögumaður.
„Annars hef ég verið á ferðinni um
landið alla ævi og farið mikið um víð-
erni öræfanna, sem orka sterkt á
mig. Sprengisandur er mögnuð leið; þessi óendanlega
auðn þegar ekið er þvert yfir landið um svarta sanda. Á
stöku stað eru þó uppsprettur og lækir og þá er segin
saga að þar eru víðfeðmar breiður af eyrarrós sem setja
sterkan svip á náttúru og umhverfi. Af þessari hálendis-
leið er svo stórbrotin sýn til Hofsjökuls í vestri og
Vatnajökuls í austri. Báðir þessir jöklar og raunar fleira
í náttúrunni hefur fengið nýjan svip á síðustu árum.
Raunar breytist landið sífellt og alltaf; birta og veðrátta
hafa þar mikið að segja – kannski ekki síst hver hugsun
manns sjálfs er. Frá síðustu vikum er leiðangur að hinu
ægifagra Stuðlagili og stíflunni við Kárahnjúka mér
minnisstæður. Þá var farið var um Jökuldalsheiðina og
þar var mér ofarlega í huga skáldsaga Halldórs Laxness
Sjálfstætt fólk þar sem sagði svo eftirminnilega frá bú-
skapnum í Sumarhúsum.“
Ljósmynd/Helgi Jóhannsson
Stuðlagil Staður sem fannst óvænt er mjög vinsæll.
Stöku staðir og
ferð að Stuðlagili
Dagþór
Haraldsson
„Það er svo skemmtilegt þegar sagan
og náttúran fléttast saman, þá gerast
stundum ævintýri,“ segir Vésteinn
Valgarðsson, stuðningsfulltrúi og
sagnfræðingur. „Það heillar mig að
koma á slóðir gamalla þjóðsagna.
Eins og til dæmis þegar ég heimsótti
Myrká í Hörgárdal á dögunum, þar
sem djákninn gamli liggur undir
stórum steini. Undanfarin ár hef ég
ferðast kerfisbundið um landið, hluta
fyrir hluta, og núna er ég með Norð-
urlandið efst á blaði. Í sumar hef ég meðal annars skoðað
torfkirkjuna á Víðimýri í Skagafirði og burstabæinn í
Glaumbæ, yndisleg gömul hús sem falla svo vel að lands-
laginu. Í Glaumbæ er byggðasafn með margt merkra
muna að finna, þar á meðal útskurðarmuni eftir Bólu-
Hjálmar og vatnshelda tágakörfu gerða af Fjalla-
Eyvindi, sem var ekki bara útlagi heldur líka hagleiks-
maður sem átti sér fáa líka.“
Vésteinn fór svo um Borgarfjörð í síðustu viku; um fal-
lega dali og skógi vaxin lönd. „Ég vitjaði þar grafar
Snorra í Húsafelli og skoðaði draugaréttina hans og
spreytti mig á Kvíahellunni, en hún var einum of fyrir
mig, eða alls 186 kíló. Henni hafa fáir valdið, en margir
þó reynt af öllum kröftum.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagafjörður Byggðasafnið í Glaumbæ er forvitnilegt.
Ævintýri náttúru
og Íslandssögunnar
Vésteinn
Valgarðsson
„Uppalin í sveit kom nánast af sjálfu
sér að ég færi snemma að lesa í land-
ið,“ segir Fanney Ásgeirsdóttir á
Kirkjubæjarklaustri sem er þjóð-
garðsvörður á vestursvæði Vatna-
jökulsþjóðgarðs. „Ljótarstaðir í
Skaftártungu, heimaslóð mín, er við
Tungufljót með öllum sínum gljúfr-
um, fossum og flúðum sem ber að
varast eins og mér lærðist fljótt. En
þar voru líka grynningar til að vaða
og seinna hyljir til að synda í, upp-
spretta endalausra leikja og fínasta kennslustofa í nátt-
úrufræði sem mótaði án efa viðhorf mín til framtíðar.
Mamma sá svo um að vekja athygli okkar á hverjum
fugli sem flögraði um og kenndi okkur að þekkja öll
blóm sem við fundum.“
Fanney bjó lengi á Akureyri, þar sem fallegar nátt-
úruperlur eru í grenndinni og þar tiltekur hún Kjarna-
skóg. „Sumarnætur fyrir norðan eru fallegar; þegar sól
roðar himininn og setur einstakan svip á landið. Í Þist-
ilfirðinum þar sem ég átti heima í nokkur ár sat ég oft
límd við gluggann og horfði á listaverkin verða til. Í júní
væri svo gott að þurfa aldrei að sofa, því nóttin er gjarn-
an enn þá fallegri en dagurinn. Nóttlaus voraldar ver-
öld, orti Stephan G. og það er held ég besta lýsingin.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sumarnótt Blóðrauð sólin sígur í haf um miðnætti.
Ég sat og horfði á
listaverkin verða til
Fanney
Ásgeirsdóttir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Snæfellsjökull Fjall hlaðið orku sem margir greina. Jökullinn hefur tign-
arlegan svip og er leyndardómsfullur, eins og segir frá í mörgum bókum.
Lífsorkunnar leitað
á ferðum um landið
Landinn er á flandri og ferðast innanlands. En hverj-
ir eru töfrar íslenskrar náttúru og sælla langra
sumardaga? Mörg eru þau sem finna líforkuna með
því að fara um landið, heimsækja nýja staði, skipta
um umhverfi og hitta skemmtilegt fólk. Lifa og njóta
og setja allt í samhengi. Sumarið er tíminn og mesta
ferðahelgi ársins er fram undan. sbs@mbl.is
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is