Morgunblaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Kolbrún Baldursdóttir, borg- arfulltrúi Flokks fólksins, hefur flutt tillögu í borgarráði um eflingu starfsemi í Mjódd í Neðra- Breiðholti. Tillögunni var vísað til meðferðar skipulags- og samgöngu- ráðs. Óhætt er að segja að Mjóddin sé miðpunktur Neðra-Breiðholts. Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvaðan þessi nafngift er fengin. Mjóddin er örnefni á mótum Breiðholtsmýrar og Breiðholts, meðfram mýrinni og náði niður undir Blesugróf. Mýrin var mjög blaut en Mjóddin var þurrari og þar lá leiðin úr Reykjavík að Breiðholtsbænum. Þjónustu- hverfið fyrir Breiðholt reis á Mjódd- inni og er kennt við hana. Merking nafnsins er „það sem er mjótt“ eða „þrengsli“, segir á Vísindavef Há- skóla Íslands. Um þessar mundir er unnið að endurbótum utandyra í Mjóddinni og Kolbún vill að göngugatan í Mjódd verði gædd meira lífi. „Göngugatan í Mjódd hentar mjög vel fyrir þá sem langar að hitta aðra eða sjá skemmtilega hluti.Verslun í bland við veitingasölu, uppákomur, gjörninga og styttri viðburði svo sem uppistand, stutta leikþætti, tónlistar- og söngatriði og fleira í þeim dúr er eitthvað sem laðar að. Skreyta mætti götuna meira með listaverkum, mála hana með glaðlegum litum, setja upp fleiri lítil leiktæki og aðra afþreyingu sem þarna myndi passa inn,“ segir Kolbrún í greinargerð. Vel mætti vinna markvisst að því að gera þetta svæði að helsta kjarna Breiðholtsins. Með því að glæða göt- una lífi muni það auka aðsóknina og breikka hóp við- skiptavina. Kolbrún flutti einnig tillögu um endurgerð bíla- stæða í Mjódd. Til ársloka 2018 var í gildi samningur milli Reykjavíkur og Svæðisfélags v/ göngugötu í Mjódd. Sá samn- ingur sé fallinn úr gildi og hafi ekki verið endurnýjaður. Viðræður gangi hægt og endurgerð bílastæðanna á svæðinu er orðið afar brýnt mál. Leggur Kolbrún til að gengið verði sem fyrst til samninga með hags- muni Mjóddar að leiðarljósi. Það var árið 1995 að byggt var yfir göngugötuna, sem liggur milli versl- unarhúsanna við Þönglabakka og Álfabakka. Yfirbyggingin er úr gleri og plasti en burðarvirkið úr límtré. „Verslunarmiðstöðin í Mjódd er öfl- ugur verslunarkjarni þar sem er að finna fjölbreytta verslun, þjónustu og læknastofur,“ má lesa á vefsíð- unni www.mjodd.is. Þar kemur fram að í verslunarmiðstöðinni í Mjódd séu um 70 fyrirtæki og mörg hver hafa verið hér frá upphafi. Þau eru í húsum við Álfabakka, Þönglabakka og Þarabakka. Í göngugötunni er hægt að leigja sölubása þar sem handverksfólk, listiðnaðarfólk og hönnuðir geta leigt til skemmri eða lengri tíma til að kynna sig og selja sínar vörur. Eins og að framan segir hefur að undanförnu verið unnið að því að lag- færa útivistar- og torgsvæði í Mjódd í Breiðholti. Svæðið var orðið illa far- ið og mikil þörf á viðhaldi. Verkið er unnið í þremur áföng- um. Fyrsta áfanga, endurgerð torgs- ins fyrir framan Breiðholtskirkju, á milli kirkjunnar og Þangbakka 8-10, er lokið. Svæðið var hellulagt og komið fyrir gróðurbeðum, leikja- svæðum, bekkjum og lýsingu. Torgið sem er á milli Sambíóanna, Landsbankans og Þangbakka 10 var næst á dagskrá og eru framkvæmdir hafnar. Samið var við K 22 ehf. að vinna verkið fyrir 35,4 milljónir króna. Þriðji áfanginn verður endurgerð svæðisins austan Landsbankans, milli Þönglabakka 8-10 og versl- unarmiðstöðvarinnar í Mjódd. Verk- ið var nýlega boðið út og bárust 5 til- boð. Reykjavíkurborg hefur samið við lægstbjóðanda, Stjörnugarða ehf., um að vinna verkið fyrir rúmar 53 milljónir. Óhætt er að segja að Mjóddin hafi tekið stakkaskiptum þegar þessum framkvæmdum lýkur. Vill fá meira líf í göngugötuna  Borgarfulltrúi flytur tillögu um alls kyns uppákomur í Mjódd  Unnið að því að fegra útisvæðið Kolbrún Baldursdóttir Morgunblaðið/sisi Göngugatan Margir leggja leið sína þangað en Kolbrún borgarfulltrúi telur að hægt sé að gæða götuna meira lífi. Endurnýjun Borgin hefur staðið að miklum framkvæmdum utandyra í Mjódd. Nú er unnið á torginu á milli Sambíóanna og verslunarmiðstöðvarinnar. Öryggisíbúðir Eirar til langtímaleigu Grafarvogi Reykjavík Tveggja og þriggja herbergja vandaðar öryggisíbúðir Eirar til ótímbundinnar leigu í Grafarvogi, Reykjavík. Eirborgir, Fróðengi 1—11, 112 Reykjavík. Eirarhús, Hlíðarhúsum 3—5, 112 Reykjavík. • Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti búið lengur heima. • Öryggisvöktun allan sólarhringinn. • Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð. • Góðar gönguleiðir í nágrenninu. Eir öryggisíbúðir ehf. Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík. Sími 522 5700 Pantið skoðun í síma 771 5500 og eða sendið beiðni um gögn og upplýsingar á netföngin sveinn@eir.is / tinna@eir.is Vegir á hálendi Íslands hafa nú flestir verið opnaðir fyrir umferð. Snjóalög ráða mestu um opnunar- tíma á hverju sumri. Mjög snjóþungt var víða í vetur og því voru margir hálendisvegir opnaðir seint. Bleyta í vegum getur einnig valdið því að vegir opnist seint. Eyjafjarðarleið (F821) á hálend- inu var opnuð rétt fyrir síðustu helgi. Þetta er ein þriggja leiða af Sprengisandsleið norðan megin. Til marks um snjóþyngslin í vetur þurftu vegagerðarmenn að fara í gegnum sjö metra skafl til að opna veginn. Skaflinn var í reynd snjóflóð við Hrauntanga á Eyjafjarðardal. Notuð var hjólaskófla, CAT 972 M, sem er 26 tonna vél. Flóðið var 75 metra langt og sjö metrar niður á veg þar sem mest var. Það tók einn og hálfan dag að moka í gegnum skaflinn. Ekki er óvenjulegt að Eyjafjarðarleið opni svona seint að sumri Vegagerðin birtir að vori og fram á sumar kort sem sýnir hvar fjall- vegir eru opnir. Kortið er uppfært jafnóðum og aðstæður breytast. sisi@mbl.is Ljósmynd/Grétar Ásgeirsson Eyjafjarðarleið Það tók skófluna einn og hálfan dag að moka sig í gegn. Flestir vegir færir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.