Morgunblaðið - 30.07.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.07.2020, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 30. júlí 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 135.17 Sterlingspund 174.11 Kanadadalur 100.95 Dönsk króna 21.308 Norsk króna 14.818 Sænsk króna 15.415 Svissn. franki 147.19 Japanskt jen 1.2846 SDR 189.96 Evra 158.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 191.5075 Hrávöruverð Gull 1931.65 ($/únsa) Ál 1661.5 ($/tonn) LME Hráolía 43.55 ($/fatið) Brent Hagnaður Arion banka af áfram- haldandi starfsemi nam 4.958 millj- ónum króna á öðrum ársfjórðungi og jókst um 76% frá öðrum ársfjórðungi síðasta árs. Tekjur af kjarnastarf- semi hækka um 1,8% á milli ára og þá lækkuðu rekstrargjöld um 3,5%, aðallega vegna skipulagsbreytinga á árinu 2019. Arðsemi eiginfjár nam 10,5% en var 4,3% fyrir sama tímabil í fyrra. Sé litið til fyrstu sex mánaða árs- ins nemur hagnaður af áframhald- andi starfsemi 3.676 milljónum króna og arðsemi eiginfjár 2,9% á því tímabili. Heildareignir námu 1.182 millj- örðum króna í lok júní 2020 í sam- anburði við 1.082 milljarða í árslok 2019 en lausafé bankans jókst einnig þar sem ekki varð af fyrirhugaðri 10 milljarða arðgreiðslu. Heildarskuld- ir bankans námu 993,422 milljörðum króna í lok júní 2020 en 892,03 millj- örðum í árslok 2019. Eiginfjárhlut- fall bankans var 28,1% í lok júní 2020 en var 24% í árslok 2019. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, segir afkomuna á öðrum ársfjórð- ungi góða og bankinn hafi náð mark- miði sínu um 10% arðsemi. „Það er sérstaklega ánægjulegt í ljósi þess að eiginfjárstaða bankans er afar sterk og langt umfram kröfur eftirlitsaðila,“ er haft eftir Benedikt í tilkynningu. „Þrátt fyrir gott upp- gjör á öðrum ársfjórðungi er mikil- vægt að taka fram að enn er umtals- verð óvissa í starfsumhverfi bankans vegna Covid-19. Faraldurinn, þróun hans og áhrif á bæði innlent og al- þjóðlegt efnahagslíf munu áfram setja mark sitt á starfsemina. Óviss- an snýr fyrst og fremst að þróun eignasafns bankans.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Uppgjör Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi nam 5 mö kr. Umskipti hjá Arion banka  Hagnaður jókst um 76% á 2. ársfjórðungi ALVÖRU VERKFÆRI 145 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Hagnaður af rekstri Íslandsbanka á öðrum fjórðungi ársins nam 1,2 milljörðum króna, samanborið við 2,1 milljarðs króna hagnað á sama tíma í fyrra. Eignir bankans námu í lok tímabilsins rúmum 1.303 millj- örðum króna, og jukust þær um nær níu prósent frá áramótum, þegar þær voru 1.199 ma.kr. Eigið fé bank- ans nemur 179,7 mö.kr., og dróst það örlítið saman frá áramótum þegar það var 180,1 milljarður. Eiginfjár- hlutfall bankans var 22,2% við lok annars ársfjórðungs, og arðsemi eig- in fjár var 2,8% á ársgrundvelli, sam- anborið við 4,9% á sama tíma í fyrra. Vaxtatekjur minnkuðu Eins og segir í tilkynningu frá bankanum drógust vaxtatekjur sam- an um 2,1% á öðrum fjórðungi, en skýringin er að mestu leyti 2% lækk- un stýrivaxta Seðlabankans seint á fyrsta fjórðungi ársins og í öðrum fjórðungi. Þóknanatekjur drógust saman um 16,4%, sem rakið er að stærstum hluta til minni kortaveltu. Í tilkynningunni kemur einnig fram að stjórnunarkostnaður hafi lækkað um 5,6% sem beri vott um að kostn- aðarhagræðing síðastliðinna ára sé farin að skila árangri. Neikvæð virðisbreyting útlána nam 2,4 mö. kr., sem skýrist að stærstu leyti af endurmati á mögu- legum áhrifum heimsfaraldurs kór- ónuveiru á útlán á stigi 2 til fyrir- tækja í ferðaþjónustu, eins og útskýrt er í tilkynningunni. Birna Einarsdóttir bankastjóri segir í tilkynningunni m.a. að góður gangur hafi verið í útlánum á tíma- bilinu. „Lausa- og eiginfjárhlutföll eru áfram sterk og er bankinn því í einkar góðri stöðu til að vinna áfram með sínum viðskiptavinum.“ Minni hagnaður Íslandsbanka  Eignir jukust um 9%  Stjórnunar- kostnaður lækkaði Morgunblaðið/Eggert Banki Kostnaðarhagræðing farin að skila árangri hjá Íslandsbanka. kjötræktun, en talið er að úr einni stofnfrumu megi rækta allt að 10 tonn af kjöti. „Um 200 milljónum dýra er slátr- að á hverjum degi í heiminum en engu dýri þarf að slátra við stofn- frumuræktun á kjöti. Þetta er bylt- ingarkennd nýjung sem mun breyta matvælaframleiðslu í heiminum.“ Kílóverð mörg hundruð þúsund Hún segir dýravaxtarþætti lang- stærstu kostnaðarliði í framleiðslu á stofnfrumuræktuðu kjöti og nemi um 90% af framleiðslukostnaðinum. Í dag eru tæplega 50 fyrirtæki sem keppast nú við að koma ræktuðu kjöti á neytendamarkað. MESOkine er því hugsað til þess að lækka þenn- an kostnarlið umtalsvert. Liv segir þó markaðinn enn á þróunarstigi og verði það næstu tvö til þrjú árin. „Það er fyrirsjánlegt að þessi nýja framleiðslugrein þurfi í framtíðinni gríðarlegt magn af vaxtarþáttum fyrir framleiðslu sína. Til þess að gera kjötræktun samkeppnishæfa á neytendamarkaði er okkar markmið að skaffa þessa vaxtarþætti á mun hagkvæmara verði en þeir fást í dag. Að gera það mögulegt að búa til vöru sem er samkeppnishæf við hefð- bundið kjöt. Í dag myndi kílóið lík- lega kosta mörg hundruð þúsund krónur,“ segir Liv og bætir því við að markmiðið í vöruþróun fyrirtækisins gangi einnig út á það að neytandinn finni ekki mun á hefðbundnu kjöti og ræktuðu kjöti. ORF Líftækni hefur framleitt vaxtarþætti í erfðabreyttu byggi í meira en áratug. Styrkurinn mun gera fyrirtækinu mögulegt að hefja sókn inn á nýjan markað og styðja við framþróun og vöxt nýrrar grein- ar. „Með MESOkine erum við að út- víkka vöruframboð okkar og fara inn á nýjan markað. Stefnan er að verða leiðandi fyrirtæki í heiminum í fram- leiðslu og sölu á ódýrum, hreinum vaxtarþáttum á stórum skala fyrir kjötræktun.“ 400 milljónir í bylt- ingarkennda tækni  ORF Líftækni sækir á ný mið og hlaut eftirsóttan styrk Kjötræktun Bioeffect-húðvörurnar frá ORF hafa verið hryggjarstykkið í rekstri fyrirtækisins undanfarin ár en nú sækir það á nýja markaði. BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is ORF Líftækni hefur verið boðinn 2,5 milljóna evru styrkur, um 400 millj- ónir króna, frá Evrópusambandinu til framleiðslu á nýrri vöru sem felur í sér þróun og framleiðslu á dýra- vaxtarþáttum fyrir stofnfrumurækt- un á kjöti (kjötræktun). Um rann- sókna- og nýsköpunarstyrk er að ræða sem veittur var úr Horizon 2020-styrkjakerfi Evrópska efna- hagssvæðisins (EES) og ber varan heitið MESOkine og verður fram- leidd með OrfeusTM-framleiðslu- kerfi fyrirtækisins og nýrri og bylt- ingarkenndri prótínhreinsiaðferð til þess að framleiða og markaðssetja fyrrnefnda vörulínu af vaxtarþátt- um. Fara þarf í gegnum langt og strangt umsóknarferli til þess að hljóta styrkinn en ríflega 2.000 fyrir- tæki sækja árlega um. „Það er gríðarlega mikil viður- kenning og heiður að hljóta þennan styrk og ljóst að það er stórt og spennandi verkefni fram undan hjá okkur,“ segir Liv Bergþórsdóttir, forstjóri ORF Líftækni, við Morg- unblaðið. Breytir matvælaframleiðslu Kjötræktun er nýr og ört vaxandi iðnaður þar sem stofnfrumur eru ræktaðar til að framleiða kjöt með aðstoð vaxtarþátta. Dýravaxtar- þættir eru náttúruleg efni í dýrum sem stýra og auka þroskun dýra- frumna. Eru þessi efni nauðsynleg til framleiðslu á stofnfrumuræktuðu kjöti. Að sögn Livar drífa horfur í umhverfismálum, vaxandi kjöteftir- spurn og dýravelferð áfram þróun á ● Jóhann Möller hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sjóðastýringafyrir- tækisins Stefnis hf. og mun taka við starfinu 1. ágúst. Í tilkynningu frá Stefni kemur fram að Jóhann hafi starfað á fjár- málamarkaði í 20 ár og hjá Stefni frá árinu 2006 við stýringu á innlendum hlutabréfasjóðum auk þess að veita hlutabréfateymi félagsins forstöðu síð- astliðin þrjú ár. Jóhann stýrir Stefni hf. Jóhann Möller

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.