Morgunblaðið - 30.07.2020, Síða 27
Hanna Þóra Helgadóttirviðskiptafræðingur ogmatarbloggari breytti
lífsstíl sínum fyrir tveimur árum
eftir að hún fékk áfall við að sjá
mynd sem hafði verið tekin af
henni og póstað á Facebook. Hún
ákvað að prófa Ketó mataræðið
og við það varð algjör umbylting
á líðan hennar og heilsu.
Hvað varð til þess að þú
umbyltir þínu mataræði og
valdir að byrja á Ketó?
Það urðu ákveðin tímamót í
lífi mínu fyrir tveimur árum.
Pabbi hafði tekið mynd af mér
í fjölskyldu boði og ég missti
andlitið þegar ég sá hana og
hugsaði með mér ‘’vá Hanna, þú
ekki á góðum stað.’’ Á þessum
tíma leið mér ekki vel og myndin
kristalaði það. Ég var orðin
allt of þung, með mikinn bjúg,
farin að þjást af liðverkjum og
leið almennt ekki vel. Það má
eiginlega segja að við það að sjá
þessa mynd þá opnaðist eitthvað
innra með mér og ég fann mjög
skýrt á þessum tímapunkti að ég
yrði að gera eitthvað í mínum
málum.
Í framhaldinu fór ég að spá í
hvað ég gæti gert, því ég var
búin að prófa ýmislegt áður með
misgóðum árángri. Ég rakst á
umfjöllun um Ketó og fannst
sú leið höfða strax til mín. Ég
byrjaði að lesa allt sem ég komst
í um Ketó og þar á meðal var
jákvæð umfjöllum um áhrif á
frjósemi sem mér fannst afar
áhugavert og var einnig stór
þáttur í því að ég valdi að prófa
þessa leið.
Finnur þú mun á líðan þinni
og heilsu eftir að þú byrjaðir
á Ketó?
Já, ég finn gríðarlegan mun. Í
byrjun ákvað ég að gefa þessu
3 vikur og sé ekki eftir því. Ég
fann strax mun á sjálfri mér.
Fyrstu vikuna fóru 4 kg af bjúg
og eftir 3 vikur var orkan komin
í botn. Áður en ég breytti um
lífsstíl þurfti ég að leggja mig
yfir daginn. Þessi þreytuköst eru
alveg horfin núna. Eftir þessar 3
vikur leið mér það vel að það var
bara ekki aftur snúið.
Ég er orkumeiri, sef betur og
vakna úthvíld á morgnana. Ég
þarf ekki lengur að ströggla við
halda mér í kjörþyngd og líður
almennt miklu betur líkamlega
sem andlega. Það er algjört
lykilatriði að halda mig við
þetta mataræði því ef ég fæ mér
auka kolvetni finn ég strax fyrir
vanlíðan. Ég get svarið það að
það er næstum eins og þynnka,
blóðsykurinn fer í rugl og ég verð
mjög þyrst.
Tekur þú einhver bætiefni?
Já og ég held að það sé mjög
mikilvægt. Til dæmis eru góðar
fitusýrur mikilvæg viðbót við
ketógenískt matarræði og því
hreinni sem olían er - þeim mun
betra. Þess vegna tek ég Krill olíu
daglega. Mitt uppáhald er Krill
olían frá Natures aid. Einnig tek
ég B12 og járn munnspreyin, þar
sem ég hef verið blóðlítil í mörg
ár. Ég passa svo upp á steinefnin
og tek D-vítamíni alla daga. Það
er einnig mikilvægt að passa
upp á að fá nóg af trefjum þegar
maður er á ketó svo ég bæti
auka trefjum við mataðæðið. Ég
nota trefja mikið í matargerð og
bakstur. Ég á t.d. alltaf trefjakex
til og finnst mér það algjör
lifesaver.
Hvað finnst þér best við ketó?
Allur maturinn sem ég borða er
mjög góður, maður er saddur, en
samt nær maður góðum árangri
og líður vel. Ég er mikil sósu-
kona og finnst voða gott að borða
og þar sem það er svo margt
leyfilegt í ketó þá líður mér aldrei
eins og mig skorti eitthvað.
Hvað er það versta við ketó?
Að mega ekki borða ávexti. Það
fannst mér erfiðast í byrjun,
en með tímanum verður þetta
auðveldara og maður hættir að
spá í það. Ég leyfi mér jarðaber
og bláber út á mat og það er
dásamlegt.
Hvar sérðu þig eftir 5 ár?
Vonandi að halda mínu striki í
matarræði og halda áfram að láta
mér líða vel. Ég vil stækka mína
miðla og halda áfram að hjálpa
fólki. Það væri draumur að gefa
út bók.
Byrjendaráð frá Hönnu Þóru:
• Best er að kynna sér lífsstílinn
vel og auðvelt er að finna
upplýsingar á netinu.
• Gott er að fylgja öllum
„reglum“ vel fyrsta mánuðinn
því þá á árangurinn ekki eftir
að láta á sér standa.
• Mikilvægt er að undirbúa
hvað maður ætlar að borða
fyrirfram og vera óhrædd/ur
við að prófa nýjar uppskriftir.
Fjölbreytni skiptir miklu máli
upp á úthaldið.
• Það er mikilvægt að búa til
nýjar matarminningar og njóta
þeirra.
• Svo er bara að hafa gaman
að og mun að lífið er ekki
spretthlaup, þetta er langhlaup.
3ja
mánaða
skammtur
Sykurlaust
og án
gerviefna
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir,og flestum stórmörkuðum.
Munum eftir
D-vítamíninu
ALLA DAGAD-vítamín
fyrir ónæmiskerfið
Vaxandi fjöldi klínískra rannsókna sannar
að D-vítamín er ósungna hetjan sem við
þurfum öll nauðsynlega á að halda.
DLÚX vítamínmunnúði tryggir hámarksupptöku
Algjör umbylting á orku
og líðan á Ketó mataræði
Ketó lífsstíllinn umbreytti algjörlega lífi Hönnu Þóru matarbloggara til
hins betra. Nú hvetur hún og hjálpar öðrum í gegnum samfélagsmiðla.
Hanna Þóra breytti um
lífsstíl eftir að pabbi
hennar póstaði mynd af
henni á Facebook.
Fjarðarkaup og Nettó bjóða upp á ketó pakka í samvinnu við Hönnu Þóru,
en pakkinn inniheldur Krill olíu og eru ketó þvagstrimlar í kaupbæti, en
strimlarnir sýna hvort þú sért komin í ketósu eða fitubrennslu. Í pakkanum
fylgja einnig upplýsingar um ketógeniskt mataræði ásamt ráðum og
uppskrift frá Hönnu Þóru. Hægt er að fylgjast með Hönnu Þóru á
Instagram - hannathora88
Ketógenískt mataræði (KETÓ) er lágkolvetna- og fituríkt mataræði.
Það felur í sér að draga úr kolvetnaneyslu og skipta henni út fyrir
fitu. Með því að lækka kolvetnaneyslu setur maður líkamann í annað
efnaskiptaástand sem kallast ketósa, þar sem fita er notuð sem aðal
eldsneyti líkamans.
UPPSKRIFT
Trefjakexið mitt er uppáhalds
nestið mitt og gott að eiga alltaf
til. Það er svo létt að grípa í
það og gera að góðri máltíð
Inulín trefjakex
1 egg
2 msk inulin trefjar
2 dl hörfræ
1/2 dl möndlumjöl
Himalaya salt (magn eft
smekk – ég spara ekki saltið)
Öllu blandað saman í skál
og smurt þunnu lagi á
bökunarpappír
Bakið í 12-15 mínútur á 180
gráðum á blæstri þar til stökkt.
Slökkvið á ofninum og leyfið því
að þorna inní ofninum í nokkrar
mínútur.