Morgunblaðið - 30.07.2020, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 30.07.2020, Qupperneq 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 Flatey Framkvæmdir hafa staðið yfir á bryggjunni í Flatey á Breiðafirði, þar sem tréverkið er endurnýjað. Kristinn Magnússon Slitgigt í mjöðm og hné eru tiltölulega al- gengur sjúkdómur. Smám saman finnur sjúklingur fyrir stirð- leika og verk sem verð- ur verri með tímanum. Ganga verður erfið sem og smávægilegar athafnir eins og að fara í sokka. Endanleg meðferð við slitgigt er gerviliðaaðgerð þegar allt annað hefur verið reynt og hafa þessar að- gerðir sýnt sig geta bætt lífsgæði sjúklinga umtalsvert. Undirritaður starfaði erlendis um árabil við gerviliðaskurðlækningar. Ekki ætla ég að þreyta lesandann á því að bera saman mismunandi heil- brigðiskerfi en staðreyndin er sú að ég varð mjög hugsi yfir stöðunni á Íslandi þegar ég hóf þar störf. Bið- listarnir voru lengri en ég var vanur. Tilfinningin sem ég fékk var ann- ars vegar að þetta „væri bara svona“ – eins og eitthvert sér- íslenskt menningarlegt fyrirbrigði og að fjallið væri einfaldlega orðið of stórt. Svona eins og litla barnið sem hefur sig ekki í að taka til í herberg- inu sínu þar sem draslið er einfald- lega orðið of mikið. Umræðan um þetta var og er líka furðulega lítil að mínu mati og deyr fljótlega út, sér- staklega þar sem Landspítalinn og ís- lenska ríkið, eigandi hans, tekur varla þátt í henni. En hvað snýst þetta um? Vandamálið er í raun ákaflega einfalt þegar maður hugsar um heildarmyndina. Þetta snýst um venju- legt fólk sem hefur fengið slitgigt í liðina og getur lítið að því gert. Flestir eru eflaust ósköp venjulegt fólk, er í vinnu eða komið eftirlaun og flestir hafa borgað sína skatta til ríkisins og staðið við sitt gagnvart ríkinu. En er ríkið að standa við sitt á móti? Er eðlilegt að biðtíminn sé svona langur af því að fólk var svo óheppið að fæðast á Íslandi? Er þetta bara svona? Af hverju er farið svona með þetta fólk? En þá eiga læknarnir auðvitað að forgangsraða. En hvernig áttu eiginlega að gera það? Vissulega eru augljós tilfelli þar sem þetta er gert. Hins vegar er vel þekkt samkvæmt fræðunum að röntgenmynd af mjöðm eða hné með slitgigt, hversu slæm eða falleg hún er, hafi ekki endilega samband við einkenni sjúklinga, þar á meðal verk. Það er einnig erfitt að meta verk. Verkur er mjög einstaklings- bundið fyrirbæri sem er breytilegur milli sjúklinga og einnig upplifunar sjúklinga af sínum verk. Einnig get- ur sami sjúklingur verið mismun- andi góður eða slæmur af sínum verk á mismunandi tíma. Hvernig á eiginlega að meta þetta? Hvaða sjúklingur er verri en annar? Og svo er enn einn sjúklingahóp- ur sem gjarnan gleymist og stendur mér nærri. Sjúklingar sem þurfa enduraðgerðir á gerviliðum. Hvað á að gera við þá? Hvað á að gera við þetta fólk sem truflar sennilega stóra Excel-skjalið? Þetta fólk er al- veg með jafn slæma verki og hinir, ef ekki verri. Enduraðgerðir á gerviliðum eru ekki þær einföldustu, skurðlæknar sem framkvæma þær eru fáir og að- gerðirnar eru erfiðar að skipuleggja þar sem þær eru tæknilega flóknar. Þetta fólk sést oftast ekki á neinum listum þegar upplýsingar eru gefnar um fjölda á biðlista. En nú ætla ég mér að koma að kjarna málsins. Hvernig leysum við þetta? Er raunverulegur áhugi til staðar á þessu verkefni eða einskorðast áhuginn við uppgerðaráhuga þegar einhver kemur í viðtal vegna þess að fjölmiðlar hafa slysast til að fjalla um sjúkling sem hefur þurft að bíða lengi eftir lausn sinna mála? Lausnin á skimunarvandamálinu á Covid-19-veirunni vakti nefnilega athygli mína. Skimanir voru fram- kvæmdar af Íslenskri erfðagrein- ingu vegna þess að Landspítalinn, sjálft háskólasjúkrahúsið, gat það ekki á þeim tíma. Hvað gerðist svo þegar þetta fyrirtæki hætti sínum skimunum? Þá gat Landspítalinn skyndilega leyst vandamálið. Senni- lega vegna þess að þeir urðu hrein- lega að gera það. Þess vegna spyr ég, eru biðlist- arnir á Landspítalanum eftir gervi- liðaskurðaðgerðum vonlaust verk- efni eða ekki? Ef þetta er vonlaust að mati ríkisins – af hverju þá bara ekki að viðurkenna það opinberlega og gefast upp. Ef þetta er gerlegt, snýst þetta þá um áhugaleysi eða peningaleysi af hálfu ríkisins? Eða eigum við að taka sömu umræðuna ár eftir ár án þess að eitthvað ger- ist? Íslensk stjórnvöld og Landspít- alinn þurfa að stíga fram og sýna sínar hugmyndir. Það furðulega er að skurðlæknar Landspítalans eru sjaldnast spurðir um hvaða hug- myndir þeir hafa um vandamálið og hvernig mögulega Landspítalinn gæti leyst biðlistavandamálin. Er hægt að fjölga liðskipta- aðgerðum á Landspítalanum með því að gera aðgerðir um helgar? Er hægt að gera tímabundið átak í liðskiptaaðgerðum meðan aðrar valkvæðar aðgerðir bíða? Væri hægt að láta skurðlækna Landspítala framkvæma aðgerð- irnar á öðrum spítölum? Eða eiga bara allir sjúklingarnir að fara í aðgerð erlendis eða á Klín- íkinni þar sem bara sumir sjúkling- ar geta borgað fyrir aðgerð? Eru sjúklingar með slitgigt í mjöðm eða hné eða þeir með lausa gerviliði ekki nógu fínn sjúklinga- hópur til að einhver nenni að tala um þá og eigum við bara að vona það besta? Eftir Ásgeir Guðnason » Tilfinningin sem ég fékk var annars veg- ar að þetta „væri bara svona“ – eins og eitt- hvert séríslenskt menn- ingarlegt fyrirbrigði og að fjallið væri einfald- lega orðið of stórt. Ásgeir Guðnason Höfundur er bæklunarskurðlæknir sem starfar sem sérfræðingur í lið- skiptaaðgerðum og enduraðgerðum gerviliða á Landspítalanum. Staða gerviliðaskurðlækninga á Landspítalanum – áhugaleysi eða getuleysi? Alveg er það maka- laus brota- og svika- vilji sem borgarstjóri og hans meirihluti í Reykjavík hefur við- haft í flugvallarmál- inu. Og enn meiri undrun vekur að bæði alþingismenn og ráð- herrar skuli ekki grípa í taumana. Burt skal flugvöllurinn segja Dagur og samstarfsmenn hans í borgarstjórn, þvert ofan í allt samkomulag um að flugvell- inum verði ekki raskað nema ný lausn liggi fyrir. Flugið og einkabíllinn eru fyrir Reykvíkingum, segja Dagur og fé- lagar. Ríkisstjórnin virðist krók- loppin í málinu, gleypir borgarlínu úr lófa borgarstjórans, þótt enginn viti almennilega um hvað hún snýst eða hvaða vanda hún leysir eða kostar þjóðina í peningum. Dagur gerir meira að segja tilraun til að fórna Sundabraut. Hann ætlar að byggja fyrir Sundabraut og íbúðar- hús í veg fyrir flugið. Ætlunin er að þrengja að fluginu og hrekja það þannig burt. Svo berast fregnir af því að fjár- málaráðherra hefur líka lagt niður vopn sín eða þannig má lesa bréf ráðuneytisstjórans til borgarstjór- ans á dögunum. Flugvallarvinir segja að samkomulag sem sam- gönguráðherra gerði við borgar- stjórann í nóvember 2019 sé að engu haft, en þar segir: „Þá lýsir Reykjavíkurborg jafn- framt yfir vilja sínum til þess að tryggja nauðsynlegar breyt- ingar á aðalskipulagi.“ Og minna má enn fremur á dýrasta sátt- mála sögunnar í sam- göngumálum, sem þrír lykilmenn ríkisstjórn- arinnar gerðu með borgar- og bæjar- stjórum höfuðborgar- svæðisins um borg- arlínu fyrir tæpu ári upp á 120 milljarða. Þau þurfa því að bera saman bækur sínar, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra og Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra. Dagur B. Eggertsson er að ná öllu sínu fram og getur slátrað flugvelli þjóðar- innar í Vatnsmýrinni innan tuttugu mánaða. Flugvöllurinn snýr að lífs- gæðum og lífsöryggi Ég hef aldrei á langri ævi horft á annan eins skrípaleik og flugvallar- málið. Báðir aðilar málsins fara með vilja þjóðarinnar eins og í svikamyllu. Að vísu er þetta allt ætlunarverk Dags B. Eggerts- sonar, og ekkert þýðir að ræða málið við hann, byggingaráformin og brotaviljinn liggja fyrir. Alþingi ber að verja flugvöllinn í Vatns- mýrinni, því að hann er hluti af lífs- gæðum og lífsöryggi landsmanna. Nær væri að setja lög sem tækju skipulagsvaldið af borginni hvað flugvöllinn varðar og setja hann inn í stjórnarskrá. Nú þrefa stjórn- málamenn í stjórnarskrármálinu um embætti forseta Íslands sem ekkert hefur til saka unnið. Þó hef- ur þjóðin átt forseta sem greip í neyðarhemil tvisvar þegar meiri- hluti á Alþingi virtist hafa tapað glórunni í Icesave. Eftir Guðna Ágústsson Guðni Ágústsson »Ég hef aldrei á langri ævi horft á annan eins skrípaleik og flugvallarmálið. Báðir aðilar málsins fara með vilja þjóðarinnar eins og í svikamyllu. Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Tekst Degi borgar- stjóra að slátra Reykjavíkurflugvelli?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.