Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 34

Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Mjög gottúrval af gæðakjöti Komdu við eða sérpantaðu Berglind er á því að gæðin séu mikil á íslenskum veitingahúsum en núna síðast heimsótti hún veitingastaðinn Viðvík á Ólafsvík sem hún var ein- staklega ánægð með. „Á Viðvík er lögð áhersla á góða þjónustu og frábæran mat í hlýlegu og fallegu umhverfi. Matseðillinn er lítill og hnitmiðaður og gæði hrá- efna í fyrirrúmi. Við pöntuðum okk- ur fjölbreytta rétti og allir voru yfir sig hrifnir. Ég hef ekki getað hætt að hugsa um tempura-þorskinn síð- an við vorum í heimsókn og þyrfti mögulega að athuga með heimsend- ingarþjónustu í Mosfellsbæ,“ segir Berglind um staðinn. Viðvík er fallegur og notalegur fjölskyldurekinn veitingastaður með stórbrotnu útsýni til Snæfellsjökuls, yfir Breiðafjörð og Krossavík. Veit- ingastaðurinn er aðeins opinn yfir sumartímann (frá maí til september) og stendur í fallegu nýuppgerðu húsi við þjóðveginn. Húsið var byggt árið 1942 og var áður sveitabær sem bar nafnið Viðvík og þann- ig kom nafnið á veit- ingastaðnum til. Parið Aníta Rut og Gils Þorri ásamt bróður Gils, Magnúsi Darra, og maka hans Helgu eiga staðinn og hafa staðið vaktina hvern ein- asta dag yfir sum- artímann síðan stað- urinn var opnaður. Þau keyptu jörðina og gamla sveitabæinn í ágúst 2016, byrjuðu framkvæmdir í upphafi árs 2017 og var veit- ingastaðurinn opnaður um sumarið sama ár. „Viðvík er sannarlega enn ein perlan á Snæfellsnesi. Ég hefði ekki trúað því hversu undursam- legir veitingastaðir eru á þessu svæði fyrr en við fórum að ferðast þarna um í sumarfríinu okkar. Ég hugsa að það líði ekki á löngu þar til ég þarf í heimsókn aftur, þótt það væri ekki nema aðeins til að gæða mér á þessum dýrindis veit- ingum og keyra svo aftur í bæinn,“ segir Berglind en myndirnar sem hún tók af matnum eru hver ann- arri girnilegri eins og sjá má. Veitingastað- urinn Viðvík á Snæfellsnesi Þjóðin ferðast innanlands í sumar eins og flestir vita og margir hafa verið duglegir að deila jákvæðum upplifunum hér innanlands inni á bloggsíðum og samfélagsmiðlum. Veislubókarhöfundurinn Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is er ein þeirra en hún hefur gert víðreist um landið og heimsótt veitingastaði. Látlaus Viðvík er í gömlu húsi frá 1942 sem búið er að gera upp. Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Spriklandi ferskur Steiktur þorsk- hnakki, perlubygg, brennt smjör, kapers og möndlur Dásamlega ferskt Á Viðvík er að finna gott úrval af frábæru sushi. Klikkar ekki Einföld og góð samloka sem féll vel í kramið hjá krökkunum. Ómótstæðileg önd Hægeldað andalæri, jerúsalem-ætiþistlar, grænkál og appelsínugljái. Grísasamloka Rifið grísa- kjöt, sýrt rauðkál, japanskt majónes og BBQ-sósa, bor- ið fram í brioche-brauði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.