Morgunblaðið - 30.07.2020, Síða 35

Morgunblaðið - 30.07.2020, Síða 35
Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Tryggðu þér borð á www.matarkjallarinn.is fylgir hverri ferðagjöf sem innleyst er hjá Matarkjallaranum FORDRYKKUR Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Ég ætlaði nú bara að búa til Insta- gram til að halda utan um myndir af honum og fylla ekki mitt eigið Insta- gram af hundamyndum. Ég bjóst aldrei við því að hann yrði svona vin- sæll! Ég hef alltaf haft gaman af ljós- myndun og myndvinnslu. Hugo er líka mikill karakter og ég held að per- sónuleiki hans og gæði myndanna geri hann eftirtektarverðan,“ segir Ásta Haraldsdóttir, eigandi hundsins Hugos sem má segja að hafi nú hlotið titil áhrifavalds í heiminum en hund- urinn er nú með hátt í 19.500 fylgj- endur á samfélagsmiðlinum Insta- gram. Glaði hundurinn Hugo Þar gengur hann undir nafninu „Happy dog Hugo, eða á íslensku „glaði hundurinn Hugo“. Ásta hefur búið ásamt eiginmanni sínum Jóni Kristjánssyni í Massachusetts í Bandaríkjunum, þar sem hann starfar, í rúmlega eitt og hálft ár en þau hjónin bjuggu til In- stagram-aðgang fyrir Hugo fljótlega eftir að þau fengu hann. Hugo, sem er tæplega níu mánaða, er af svokall- aðri „mini goldendoodle“-tegund sem er blanda af hundategundunum „gol- den retriever“ og „toy poodle“. Segir Ásta að fylgjendafjöldi Hugos hafi fjölfaldast í kórónuveirufaraldrinum en í mars á þessu ári fylgdu honum um 5.000 manns. Schwarzenegger sýndi áhuga „Þetta hefur farið hratt vaxandi á síðustu mánuðum,“ segir Ásta og bætir við að á sama tíma og fylgjend- unum fjölgaði hafi þau hjónin farið að fá mikið af fyrirspurnum frá fyr- irtækjum, fjölmiðlum og fólki sem vildu vita meira um Hugo. Meðal annars deildi tímaritið Cosmopolitan mynd af Hugo á Instagram-síðu sinni. „Toppurinn var samt líklega þegar Patrick Schwarzenegger, sonur Arn- old Schwarzenegger, sendi mér skila- boð og hafði áhuga á því að fá sér ná- kvæmlega eins hund og Hugo,“ segir Ásta. „Okkur finnst ótrúlega gaman að vera með þetta Instagram og Hugo er orðinn mjög vanur myndavélinni. Stundum þegar ég tek upp mynda- vélina stillir hann sér upp sjálfur en svo á öðrum stundum er hann þreytt- ur og þá leyfi ég honum að hvíla sig og bíð bara eftir betra tækifæri til þess að ná góðri mynd,“ segir Ásta spurð út í það hvað Hugo „segi“ við því að vera orðinn Instagram- stjarna. Hún bætir við að eftir að vin- sældir Hugos fóru að aukast hafi mörg fyrirtæki sóst eftir samstarfi með þeim og segir að Hugo sé hæst- ánægður með að fá reglulega nýtt dót og nammi til að smakka. Ásta segir að þau hjónin hafi dottið í lukkupottinn með Hugo sem er að hennar sögn alveg yndislegur, róleg- ur, klár og elskar alla. Gott að vera með félaga í Covid „Okkur hefur alltaf langað í hund saman en við ferðumst mikið og ein- hvern veginn hentaði aldrei að eiga hund þegar við bjuggum á Íslandi. Þegar við fluttum til Bandaríkjanna sáum við hvað það er auðvelt að eiga dýr hérna. Flestir veitingastaðir og verslanir leyfa dýr og það er auðvelt að ferðast með þau innanlands,“ segir Ásta. Hún segir að þau hjónin séu hæst- ánægð með að búa í Bandaríkjunum og stefni ekki á að flytja annað á næstunni. „Það hefur hins vegar líka verið undarlegt að búa hér á þessum tím- um í Covid-faraldrinum þar sem ástandið hefur alls ekki verið gott og við höfum verið mikið föst heima við. Það hefur því verið mikill kostur að eiga eins frábæran félaga og Hugo sér við hlið til að létta lundina.“ „Bjóst aldrei við að hann yrði svona vinsæll“ Goldendoodle-hundurinn Hugo, sem er í eigu Ástu Haraldsdóttur og Jóns Kristjánssonar, hefur heldur betur slegið í gegn á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hann er nú með hátt í 19.500 fylgjendur. Fyrirsæta Hundurinn Hugo hefur sannarlega heillað marga enda einstaklega mikið krútt og góð fyrirsæta en nú fylgja honum 19.400 manns á samfélagsmiðlinum Instagram. Fjölskylda Ástu þykir vænt um fyrstu myndina af Hugo ásamt henni og Jóni. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.