Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
50 ára Antonía er
Hornfirðingur, fædd og
uppalin á Höfn í
Hornafirði og býr þar.
Hún er heimavinnandi
húsmóðir.
Maki: Benedikt Ás-
kelsson, f. 1965, sjó-
maður á Þóri SF-77 hjá
Skinney-Þinganesi.
Dætur: Kristjana Arna, f. 1990, og Kar-
en Ása, f. 2003.
Foreldrar: Arnór Kristjánsson, f. 1942,
fyrrverandi trillusjómaður, og Droplaug
Jónsdóttir, f. 1943, fyrrverandi skólaliði.
Þau eru búsett á Höfn í Hornafirði.
Antonía
Arnórsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fólk sem er að reyna að ganga í
augun á þér móðgar þig hugsanlega alveg
óvart. Og ánægjan minnkar ekki áhrif
framtaksins.
20. apríl - 20. maí
NautMenn bíða í röðum eftir að eignast
vináttu þína. Henni fylgja friður og þæg-
indi, sem byggja þig upp fyrir átök dags-
ins.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þig langar til að flýja hversdags-
leikann í dag. Bilið milli sveiflnanna er
venju fremur breitt í dag, nema þér takist
að finna jarðsambandið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur þurft að einbeita þér
mjög að ákveðnu verkefni sem þú sérð nú
fyrir endann á. Berðu vandlega saman
verð og gæði.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
Mundu að þú verður að henta maka þínum
ekki síður en hann/hún verður að henta
þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er rétti tíminn til þess að bera
upp spurningu sem hefur lengi verið að
brjótast um í þér. Láttu það ekki valda þér
vonbrigðum, heldur vera þér lærdómur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að hjálpa öðrum gefur stundum ekk-
ert tilbaka, ekki einu sinni vissuna um að
hafa gert gott. Staldraðu því við.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hvort sem það er vinna,
samningur eða samband, þá ertu spennt-
ur yfir því. Einbeittu þér að þeim sem
þurfa á meiri hjálp að halda en þú.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Eldmóður skiptir öllu máli þeg-
ar hvetja skal áfram liðið þitt. Einhver leit-
ar til þín með peningatilboð og forðastu
þau öll þótt það sé ofurmannlegt verkefni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ekki staða þín heldur
þolinmæði og þrautseigja sem segja til um
hversu flott persóna þú ert. En þegar gest-
irnir mæta á svæðið vandast málið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhverjar breytingar eru yfir-
vofandi svo láttu hendur standa fram úr
ermum í stað þess að leggjast í kör.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Rómantíkin liggur í loftinu og þú
ert tilbúinn til þess leiks. Veltu fyrir þér
hæfni þinni til að virða viðhorf sem eru
andstæð þínum eigin.
Íslands í Norðurskautsráðinu þar til
hann var skipaður sendiherra í Hel-
sinki 1. janúar 2018. Auk Finnlands
var hann einnig sendiherra gagnvart
Eistlandi, Lettlandi, Litáen og Úkra-
ínu. Þann 1. júní sl. tók hann við
starfi sendiherra í Moskvu en undir
það sendiráð heyra auk Rússlands
ríki í Mið-Asíu og Kákasus, Hvíta-
Rússland og Moldóva, alls 10 ríki.
„Eftir tveggja áratuga störf að
stjórnmálum, þar sem ég fékkst mik-
ið við utanríkis- og alþjóðamál, má
Árið 2007 var Árni Þór kjörinn al-
þingismaður fyrir Vinstri græna í
Reykjavík. Á Alþingi gegndi Árni
Þór margvíslegum störfum, var m.a.
formaður utanríkismálanefndar, for-
maður þingmannanefndar EFTA,
sat í Norðurlandaráði, var varafor-
maður og formaður þingflokks VG,
varaforseti Alþingis og átti sæti í
mörgum þingnefndum.
Árni Þór hóf störf í utanríkisþjón-
ustunni 1. janúar 2015, var sendi-
herra norðurslóðamála og fulltrúi
Á
rni Þór Sigurðsson
fæddist í Reykjavík 30.
júlí 1960 og ólst upp í
Smáíbúðahverfi og í
Hlíðunum. Á æskuárum
var hann mörg sumur í sveit á Stóru-
Borg í Víðidal í Vestur-Húnavatns-
sýslu og stundaði síðan sjómennsku á
togurum meðfram menntaskólanámi.
Hann varð stúdent frá MH 1979 og
lauk meistaraprófi í þjóðhagfræði og
rússnesku frá Óslóarháskóla 1986 og
stundaði framhaldsnám í rússnesku
við Stokkhólmsháskóla og Ríkis-
háskólann í Moskvu 1986-1988. Síðar
lauk hann diplómanámi í opinberri
stjórnsýslu við Háskóla Íslands og
meistaraprófi í alþjóðasamskiptum
við HÍ með utanríkisstefnu Rúss-
lands sem sérgrein.
Árni Þór var fréttaritari RÚV í
Moskvu meðan á námsdvöl þar stóð
og síðan fréttamaður hjá RÚV eftir
að námi lauk. Hann hóf störf í sam-
gönguráðuneytinu 1989, var rit-
stjórnarfulltrúi á Þjóðviljanum um
tíma og starfaði síðan við kjara- og
félagsmál hjá Kennarasambandi Ís-
lands 1992-1997. Árni Þór var kjör-
inn borgarfulltrúi í Reykjavík fyrir
Reykjavíkurlistann 1994 og sat í
borgarstjórn til ársins 2007. Þar var
hann m.a. formaður leikskólaráðs,
skipulags- og byggingaráðs og sam-
göngu- og umhverfisráðs, var for-
maður hafnarstjórnar 1994-2006.
„Í borgarstjórn var uppbygging
leikskólakerfisins þýðingarmesta
verkefnið sem ég tók þátt í og hvíldi
töluvert á mínum herðum. Á þeim ár-
um beitti ég mér líka fyrir samein-
ingu hafna við Faxaflóa þannig að
hafnirnar í Reykjavík, á Akranesi,
Grundartanga og í Borgarnesi voru
sameinaðar í Faxaflóahafnir.“
Árni Þór var formaður Hafna-
sambands Íslands um sjö ára skeið
og sat í stjórn Sambands íslenskra
sveitarfélaga, m.a. sem varafor-
maður 2002-2007. „Á þeim tíma sat
ég sem einn af fulltrúum Íslands á
sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins í
Strassborg og sinnti þar einkum um-
hverfismálum og sjálfbærri þróun
sem var afar lærdómsríkt.“ Þá var
Árni Þór forseti borgarstjórnar
2002-2005.
segja að ég sé nú kominn á vettvang
sem samræmist afar vel menntun
minni og starfsreynslu. Vegna Covid-
faraldursins verð ég ekki kominn til
starfa í Moskvu fyrr en um miðjan
ágúst en það eru sannarlega spenn-
andi og krefjandi verkefni fram und-
an, ekki síst í tengslum við viðskipti
Íslands og Rússlands, sem vitaskuld
hafa orðið fyrir áhrifum af viðskipta-
þvingunum Vesturlanda í garð Rúss-
lands. Engu að síður eru þar marg-
vísleg tækifæri sem brýnt er að nýta
til hins ýtrasta.“
Árni Þór er mikill fótbolta-
áhugamaður og fer oft á völlinn. „Ég
ætla að fylgjast vel með rússneska
boltanum, enda eru nokkrir Íslend-
ingar að spila í honum, meðal annars
í liðum frá Moskvu.“
Fjölskylda
Eiginkona Árna Þórs er dr. Sigur-
björg Þorsteinsdóttir, f. 24.9. 1955,
ónæmisfræðingur. Foreldrar hennar
voru Soffía G. Jónsdóttir, f. 24.12.
1925, d. 14.6. 1998, handavinnukenn-
ari og verkstjóri í Reykjavík, og Þor-
steinn Þórðarson, f. 4.12. 1930, d.
10.3. 2018, bóndi á Brekku í
Norðurárdal.
Börn Árna Þórs og Sigurbjargar
eru 1) Sigurður Kári Árnason, f. 9.11.
1986, yfirlögfræðingur heilbrigð-
isráðuneytisins, búsettur í Reykja-
vík. Maki: Elín Dís Vignisdóttir lög-
fræðingur. Börn þeirra eru Elísa
Rán, f. 12.4. 2017, og Árni Kristján, f.
20.9. 2019; 2) Arnbjörg Soffía Árna-
dóttir, f. 4.8. 1990, doktorsnemi í
stærðfræði við University of
Waterloo í Kanada; 3) Ragnar Auðun
Árnason, f. 26.12. 1994, stjórnmála-
fræðingur, búsettur í Reykjavík.
Kærasta: Karítas Ríkharðsdóttir
sjávarútvegsfræðingur, búsett á
Raufarhöfn.
Bræður Árna Þórs: Friðrik Sig-
urðsson, f. 22.5. 1957, sjávarlíffræð-
ingur og ráðgjafi í Þrándheimi;
Steinar Sigurðsson, f. 13.9. 1958; d.
13.11. 2019, arkitekt í Reykjavík;
Þórhallur Sigurðsson, f. 7.8. 1964,
arkitekt í Kaupmannahöfn; Sigurður
Páll Sigurðsson, f. 10.9. 1968, ljós-
myndari í Kaupmannahöfn.
Foreldrar Árna Þórs voru hjónin
Þorbjörg J. Friðriksdóttir, f. 25.10.
Árni Þór Sigurðsson sendiherra – 60 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Sigurður Kári með Árna Kristján á bakinu, Árni
Þór, Sigurbjörg, Elísa Rán í fangi móður sinnar Elínar Dísar, og Arnbjörg
Soffía á Borgarfirði eystri nýverið. Á myndina vantar Ragnar Auðun.
Spennandi verkefni í Rússlandi
Feðgar Árni Þór, Sigurður Kári og Ragnar Auðun á fótboltaleik.
30 ára Kristrún er bú-
sett á Álftanesi. Hún
er með diplóma úr
viðskiptafræði frá HÍ
og diplóma úr verk-
efnastjórnun frá HR.
Hún starfar sem
launasérfræðingur hjá
Orkuveitu Reykjavíkur.
Maki: Tryggvi Lárusson, f. 1979, fram-
kvæmdastjóri og löggiltur bifreiðasali.
Synir: Frosti, f. 2016, og Flóki, f. 2019.
Foreldrar: Jóhann Gunnar Arnarsson, f.
1973, og Kristín Ólafsdóttir, f. 1972, fv.
ráðsmannshjón forseta Íslands, búsett í
Kópavogi.
Kristrún Dröfn
Jóhannsdóttir
n 2 töflur fyrir eða með fyrsta drykk og 2 töflur fyrir svefn
n Dregur úr þreytu og óþægindum.
n Inniheldur öfluga B-vítamínblöndu og
magnesíum ásamt rósepli og kaktus extrakt.
Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana
Vertu laus við
þynnkuna í sumar!
.
Til hamingju með daginn
Álftanes Flóki Tryggvason fædd-
ist 10. apríl 2019 kl. 14.49. Hann
vó 3.728 g og var 50,5 cm langur.
Foreldrar hans eru Tryggvi Lár-
usson og Kristrún Dröfn Jó-
hannsdóttir.
Nýr borgari