Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 50

Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Þetta er mikill heiður,“ segir klassíski harmóníkuleikarinn Jónas Ásgeir Ásgeirsson, sem mun frum- flytja harmóníkukonsert ásamt kammersveitinni Elju í kvöld í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði. Konsertinn, sem er eft- ir Finn Karlsson, er þriðji íslenski harmóníkukonsertinn og sá fyrsti þeirra sem saminn er fyrir Íslend- ing. „Það er frábært að geta stuðl- að að sköpun þeirra,“ segir Jónas. Hann lauk meistaranámi í Kaup- mannahöfn nýverið og snerist meistararitgerð hans um klassíska harmóníku á Íslandi. Jónas segir þá Finn þekkjast vel, þeir séu báðir búsettir í Kaup- mannahöfn og hafi verið í námi við tónlistarháskólann þar. Finnur hefur samið tvö kammerverk sem Jónas hefur flutt, annað þeirra var fyrir harmóníkutríó og hitt fyrir harmóníku, söng og slagverk. „Hann hefur kynnst harmóníkunni og mér sem hljóðfæraleikara og stakk upp á því við mig að fyrra bragði hvort við ættum ekki bara að skella í þetta,“ segir Jónas og vísar þá til konsertsins. Þeir hafi síðan velt fyrir sér hvaða hljóm- sveit þeir ættu að fá með sér í lið og fundist Elja liggja beint við. Jónas hafði flutt með þeim harm- óníkukonsert eftir Þuríði Jóns- dóttur jólin 2018 og þekkti því vel til sveitarinnar. Elja leikur á fimm stöðum Jónas heldur í tónleikaferðalag ásamt kammersveitinni Elju þar sem verk Finns verður frumflutt. „Það er gaman að koma þessu verki sem víðast,“ segir Jónas. Auk þess verða á efnisskránni verk eftir Caroline Shaw, Igor Stravinsky og Felix Mendelssohn. Leikið verður á fimm stöðum undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Í kvöld, 30. júlí, kl. 20, verða tónleikar í Menningar- húsinu Miðgarði í Skagafirði. Föstudags- og laugardagskvöld, 31. júlí og 1. ágúst, kemur Elja fram á vegum Berjadaga á Ólafs- firði. Á sunnudag leikur sveitin í félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði. Þriðjudaginn 4. ágúst verður síðan haldið á Kirkjubæjar- klaustur og tónleikar haldnir í fé- lagsheimilinu Kirkjuhvoli. Hring- ferðinni lýkur með tónleikum í Háteigskirkju í Reykjavík föstu- daginn 7. ágúst. Konsert Finns verður síðan hljóðritaður fyrir geisladisk sem Jónas er að vinna að. Diskurinn mun innihalda íslenska samtíma- tónlist fyrir klassíska harmóníku. „Það eru til íslensk harmóníku- verk eftir mjög merk tónskáld sem hafa aldrei verið hljóðrituð eða jafnvel aldrei verið flutt,“ segir Jónas. Hann sá því í hendi sér að tilvalið væri að safna sam- an íslenskum tónsmíðum fyrir harmóníku. Með þessu vonast hann til að kynna harmóníkuna sem klassískt hljóðfæri hérlendis og kynna íslenskar tónsmíðar er- lendis. „Það er mjög spennandi að taka upp verk eftir Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörns- son sem ég hef ekki fundið neinar heimildir um að hafi verið flutt áður.“ Auk þess hefur Jónas pantað einleiksverk frá Þuríði Jónsdóttur, sem verður á plötunni. „Það er ótrúlega spennandi því það eru ekkert það mörg íslensk einleiks- verk fyrir harmóníku til, svo það er frábært að geta verið með í að bæta í þann hóp,“ segir Jónas. Búinn að vera á hlaupum Jónas hefur haft í nógu að snú- ast hér á landi í sumar, hann hefur meðal annars spilað með tónlist- arhópnum KIMA, meðal annars á Sumartónleikum í Skálholti þar sem þau frumfluttu verk stað- artónskáldanna Gunnars Karels Mássonar og Þórönnu Björnsdótt- ur. Hann kom einnig fram á tón- leikum Íslandsdeildar UNM þar sem myndbandsverkið Nú erum torvelt eftir Hildi Elísu Jónsdóttur var frumflutt ásamt öðrum verkum eftir ung íslensk tónskáld. Í verki Hildar brá Jónas sér í hlutverk Egils Skallagrímssonar og túlkaði Sonatorrek með harmóníkunni. „Stundum koma góðar vertíðir eins og í sumar. Ég er bókstaflega búinn að vera á hlaupum að spila. Það er náttúrlega frábært þegar það er hægt,“ segir Jónas. „Þegar maður stuðlar að sköpun fleiri tónsmíða og vinnur meira með tónskáldum og tónlistarfólki skap- ast verkefnin eiginlega af sjálfu sér. Það er ekki nóg að sitja og bíða eftir að einhver hringi, maður verður að vera sinnar eigin gæfu smiður. Ég er að reyna að koma harmóníkunni meira inn í sam- félagið, inn í tónlistarkreðsuna, og þá mun það náttúrlega vinda upp á sig.“ Jónas segir þau vera fimm Íslendinga sem stundi klassískt harmóníkunám erlendis og því sé mikið blómaskeið harmóníkunnar í vændum hér á landi. „Við erum fjögur í Kaupmannahöfn og svo er ein í Freiburg í Þýskalandi. Það hafa aldrei verið svona margir Íslendingar í framhaldsnámi á harmóníku áður. Ég tel að klass- íska harmóníkan verði á uppleið næstu áratugina út af þessu. Nú er fólk farið að vinna heima og flytur svo kannski heim. Þá byggj- um við nýja kynslóð harmóníku- leikara. Þetta er mjög spennandi,“ segir Jónas. Ljósmynd/Efi Anagnostidou Eftirsóttur „Ég er bókstaflega búinn að vera á hlaupum að spila,“ segir Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmóníkuleikari. Tónleikaferð Kammersveitin Elja verður á ferð og flugi um landið. Klassíska harmóníkan á uppleið  Jónas Ásgeir Ásgeirsson frumflytur harmóníkukonsert Finns Karlssonar ásamt Elju  Halda í tónleikaferðalag um landið  Vinnur að plötu með verkum fyrir klassíska harmóníku Tómas Guðni Eggertsson leikur á sjöttu tónleikum Orgelsumars 2020 í dag kl. 12.30 en Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir há- degistónleikum með íslenskum org- anistum alla fimmtudaga í sumar frá 25. júní til 20. ágúst og gefst áheyrendum kostur á að heyra níu íslenska organista, sem starfa við kirkjur víða um land, leika listir sínar í Hallgrímskirkju, að því er fram kemur í tilkynningu. Tómas er organisti við Selja- kirkju og mun hann flytja hið þekkta Adagio eftir Albinoni, Tokkötu og fúgu í d-moll og sálm- forleikinn O Mensch, bewein’ dein’ Sünde groß, eftir J.S. Bach ásamt kafla úr verkinu L’Ascension eftir Messiaen. Tómas lauk prófi í píanóleik frá Nýja tónlistarskólanum undir handleiðslu Vilhelmínu Ólafsdóttur vorið 1996 og hlaut BA-gráðu frá Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow árið 1999 og Postgraduate-gráðu ári síðar. Aðgangseyrir er 1.500 krónur fyrir fullorðna en ókeypis er á tón- leikana fyrir félaga í Listvinafélag- inu og börn yngri en 16 ára. Miða- sala er við innganginn. Organisti Tómas Guðni Eggertsson, organisti við Seljakirkju. Leikur verk eftir Bach, Albioni og Messiaen Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is samlegt ka nýmalað, engin h lki. á y –

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.