Morgunblaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 5. Á G Ú S T 2 0 2 0
Stofnað 1913 182. tölublað 108. árgangur
GRÍÐARLEG
TÆKIFÆRI
Á ÁSBRÚ
MINNAST UPPRUNANS
BARÁTTAN UM
EVRÓPUBIKARA
HEFST Á NÝ
ÍSLENDINGADAGUR Í MANITOBA 10 SOLSKJÆR Í GÓÐRI STÖÐU 23VIÐSKIPTAMOGGINN
Ráðamenn leita nú leiða til að
bregðast við auknum ferða-
mannafjölda hingað til lands, fjölda
sem er kominn að þolmörkum grein-
ingargetu Landspítalans hvað varð-
ar landamæraskimun.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
segir að ýmsar leiðir séu færar en
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
greindi frá því á upplýsingafundi al-
mannavarna að samgöngu-
ráðuneytið ynni nú að því að setja
reglugerð sem miðaði að því að tak-
marka þann fjölda ferðamanna sem
til landsins kemur ef þess gerist
þörf.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri segir að svo stöddu
engar vísbendingar um að hertar
aðgerðir undanfarna daga vegna
kórónuveirufaraldursins hafi leitt til
afbókana til Íslands. Þar með talið
hjá ferðamönnum frá Suður-Evrópu
sem koma jafnan síðar á sumrin en
ferðamenn frá Norðurlöndunum og
Þýskalandi. „Mér þætti sérkennilegt
ef eitthvað slíkt væri komið fram nú
þegar. Markaðurinn er einfaldlega
ekki svo næmur. Ég myndi ætla að
þeir sem væru að koma hingað núna
hefðu síður áhyggjur af veirunni,“
segir hann. »4 og ViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/RAX
Ferðamenn Búast má við gestum hingað
til lands frá Suður-Evrópu nú síðsumars.
Engar vísbendingar
enn um afbókanir
Ari Edwald,
forstjóri Mjólk-
ursamsölunnar,
segir veltuna það
sem af er ári
vera um 2%
minni en í fyrra.
Vegna kórónu-
veirufaraldurs-
ins hafi sala á
fyrirtækjamark-
aði dregist sam-
an um tugi prósenta. Samdráttur-
inn á þeim vettvangi hafi verið um
30% í maí en salan síðan aukist.
Meiri umbúðanotkun
Ari segir aukna veltu á smá-
sölumarkaði hafa vegið upp sam-
dráttinn á fyrirtækjamarkaði. Hins
vegar kalli smásalan á meiri um-
búðanotkun, ásamt því sem verð á
aðdráttum, eins og umbúðum, hafi
hækkað þegar krónan gaf eftir.
Ari segir arðsemina af rekstri
MS óviðunandi til lengdar.
Hvað snertir áform MS um að
reisa nýjar höfuðstöðvar á Hólms-
heiði segir Ari að MS þurfi að taka
afstöðu til þess hvort það ráði við
slíkt verkefni. Nánar er rætt við
Ara í ViðskiptaMogganum í dag.
Veltan hjá MS 2%
minni en í fyrra
Ari
Edwald
Ágúst Ásgeirsson
Jóhann Ólafsson
Byggingar í Beirút í Líbanon skulfu er tvær risa-
stórar sprengjur sprungu á hafnarsvæði borgar-
innar síðdegis í gær með þeim afleiðingum að í það
minnsta 78 týndu lífi. Yfir þrjú þúsund slösuðust.
Höggbylgjan sem myndaðist eftir sprengjuna
fannst á Kýpur, sem er í um 240 kílómetra fjar-
lægð.
Fréttamaður frönsku fréttaveitunnar AFP á
staðnum sagði tjón hafa orðið á hverri einustu
verslun í viðskipta- og verslunarhverfinu Hamra.
Sprengingarnar eiga sér stað á sama tíma og
Líbanar glíma við verstu efnahagskreppu sína í
áratugi. Hefur hún steypt helmingi þjóðarinnar í
fátækt. Efnahags- og atvinnulíf hefur hrunið í Líb-
anon undanfarna mánuði og gjaldmiðill landsins
stórlækkað gagnvart Bandaríkjadollar. Fyrir-
tækjum hefur verið lokað í kippum og fátækt auk-
ist hratt á sama tíma og atvinnuleysi hefur stór-
aukist.
Þá er sprengt á sama tíma og beðið er dóms-
kvaðningar í máli vegna aftöku Rafic Hariri for-
sætisráðherra í gífurlega öflugri bílsprengingu í
Beirút árið 2005. Ásamt honum lést 21 maður í til-
ræðinu mikla. Fjórir meintir liðsmenn Hezbollah-
samtakanna eru sagðir bera ábyrgð á tilræðinu en
þeir eru sóttir til saka að þeim fjarstöddum fyrir
rétti í Hollandi.
Yfirmaður öryggismála í Beirút, Abbas Ibra-
him, sagði í gærkvöldi að hugsanlega hafi gamalt
og haldlagt sprengiefni í geymslu í vöruhúsi á
hafnarsvæðinu sprungið. Líbanskir fjölmiðlar
segja að um sé að ræða natríumnítrat, sem gert
var upptækt fyrir meira en einu ári.
Reiðubúin að aðstoða við björgunarstarf
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guð-
laugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sendu
Líbönum samúðarkveðjur í gærkvöldi. Katrín
sagði hug Íslendinga hjá þeim sem hefðu misst
ástvini og þeim þúsundum sem væru slösuð; hugur
Íslendinga væri hjá líbönsku þjóðinni.
Guðlaugur Þór tók í sama streng og Katrín og
sagðist harmi sleginn yfir atburðum gærdagsins.
Enn fremur sagði hann Íslendinga reiðubúna til
að aðstoða við björgunarstarf í Beirút.
Að minnsta kosti 78 látin
AFP
Eyðilegging Gríðarleg eyðilegging blasti við á hafnarsvæðinu í Beirút, sem og víðar í höfuðborginni, eftir að sprengjurnar mannskæðu sprungu.
Gríðarleg eyðilegging eftir tvær kröftugar sprengingar í Beirút Viðbúið að
tala látinna hækki Forsætis- og utanríkisráðherra senda samúðarkveðjur
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Lán til bíla- og tækjakaupa ein-
staklinga námu nærri 1,2 milljörð-
um króna hjá Landsbankanum í
júnímánuði og hafa aldrei numið
hærri upphæð.
Vekur slíkt athygli í ljósi þess að
á tímabilinu var bylgja heimsfarald-
urs kórónuveiru nýyfirstaðin. Að-
spurður segir Arnbjörn M. Rafns-
son, forstöðumaður bíla- og
tækjafjármögnunar Landsbankans,
að ástæðurnar þar að baki séu
margþættir. Þó megi rekja aukn-
inguna að mestu til uppsafnaðrar
eftirspurnar sem skapaðist í kjölfar
faraldursins.
80% vegna notaðra bifreiða
„Við fundum fyrir miklum sam-
drætti í apríl og svo aftur í maí.
Hins vegar tók þetta aðeins við sér
um miðjan maímánuð og því skýrist
aukningin að hluta af tilfærslu. Fólk
hélt að sér höndum á þessum tíma,“
segir Arnbjörn.
Lán til bíla- og tækjakaupa í júlí-
mánuði voru ekki síður mikil og
námu þá rétt um 1.008 milljónum
króna. Er skýringin þar að baki
mikil aukning í sölu notaðra bif-
reiða. Segir Arnbjörn að um 80% af
fjármögnun bankans í flokki bíla og
tækja megi rekja til notaðra bif-
reiða. „Þetta skýrist einvörðungu af
aukningu í sölu notaðra bíla. Það
kemur kannski til af því að fólk var
hvatt til að ferðast innanlands og
ákvað þess vegna að endurnýja bíl-
inn. Framboð af slíkum bílum er
mikið enda eru bílaleigur að skera
niður flotana. Mér heyrist á bílasöl-
um að það vanti nýlega bíla í sölu,“
segir Arnbjörn.
Mikið lánað til bílakaupa
Útlán Landsbankans vegna bíla- og tækjakaupa námu 1,2 milljörðum í júní
MMet slegið ... »6