Morgunblaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Hlátur og húmor kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við vinnum áfram eftir sam- félagssáttmálanum, þvo og spritta hendur, virða 2 metra regluna. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Jónshús, félags- og íþróttastarf, s. 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrir- vara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Félag eldri borgara í Garðabæ, sími 565-6627, skrifstofa opin miðvikudaga kl. 13.30-15.30 . Korpúlfar Gönguhópur kl. 10, gengið frá Borgum, ganga við allra hæfi og gleðileg samvera. Kl. 13 kemur tónlistardúóið Ýr og Agga í heimsókn í Borgir og flytja okkur tónlistardagskrá fyrir flautu og fiðlu. Opið félagsstarf í Borgum frá kl. 8 til 16 virka daga. Minnum á skrán- ingu í dagsferðina á Suðurströndina miðvikudaginn 12. ágúst, hámarksfjöldi 40 manns, þátttökuskráning liggur frammi í Borgum. Seltjarnarnes Dagskráin í dag miðvikudaginn 5. ágúst: Kl. 10.30 er kaffispjall í króknum á Skólabraut. Kl. 11 göngutúr frá Skólabraut. Kl. 18.30 vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness. Botsía fellur því miður niður vegna ástandsins. Hlökkum til að sjá ykkur. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Smíðum vandaða sólpalla og skjólgirðingar. Gerum föst verðtilboð með tímaáætlun. Útvegum efni ef óskað er. Hafið samband á info@snorri.biz eða í síma 519-5550 Bílar Nýir 2020 Mitsubishi Outlander Hybrid. Flottasta týpa með öllum búnaði. Listaverð 6.690.000,- Okkar verð er 800.000 lægra eða 5.890.000,- Til sýnis á staðnum í nokkrum litum. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com ✝ Sigurður Jör-undur Sigurðs- son (Sissi) fæddist á Ísafirði 1. júlí 1935. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 23. júlí 2020. Foreldrar Sig- urðar voru Guðrún Ebba Jörundsdótt- ir, f. 6. 10. 1914, frá Sæbóli á Ingjalds- sandi, d. 27.8. 2011, og Sigurður Kristján Guðmunds- son frá Fossum í Skutulsfirði, bílstjóri og ökukennari, f. 30.8. 1915, d. 1.2. 1974. Sigurður var næstelstur níu systkina sem eru í aldursröð: Guðmundur Bjarni (dó ungur), Gunnar Kristján, Guðmundur Friðrik (d. 2014), Óskar, Jón, Ingibjörg Þórdís, Sigríður (d. 1990) og Jens. Sigurður bjó fyrstu æviárin á Ísafirði og fluttist síðan með for- Eyfjörð Sigurðsson, f. 1974, börn þeirra eru Aron Vikar, f. 2003, Veigar Leví, f. 2009, og Emilía Von, f. 2016. Örvar Ingi, f. 1983, maki Sigrún Tómas- dóttir, f. 1984, börn þeirra eru Hallveig Lára, f. 2012, og Tómas Valgeir, f. 2015. Viktor Stefán, f. 1993. 2) Gunnar Örn Sigurðsson, f. 1958. Börn Gunnars eru Inga Guðrún, f. 1979, maki Þorvaldur Hafdal Jónsson, f. 1979, börn þeirra eru Daníel Ingi Wium, f. 1996, Eydís Líf Hafdal, f. 1999, Unnur Dögg Wium, f. 2002, maki Jeremi, f. 2001, barn þeirra er Izabella Rós, f. 2019, Birna Kar- en Wium, f. 2004, Jón Hafdal, f. 2008 og Atli Hafdal, f. 2015. Víðir Örn, f. 1982, maki Berg- lind Klara Daníelsdóttir, f. 1981, börn þeirra eru Aníta Ólöf, f. 2005, Karítas Halla, f. 2014, og Ragnheiður Erna, f. 2016. Fann- ey, f. 1991. Sambýliskona Sigurðar var Hrefna Erna Jónsdóttir, f. 23. nóvember 1934, d. 5. febrúar 2020. Sigurður verður jarðsunginn frá Seljakirkju í Breiðholti í dag, 5. ágúst 2020, klukkan 13. eldrum sínum árið 1952 á Akranes og síðan til Reykjavík- ur sama ár. Sig- urður lærði til þjóns á Hótel Sögu ásamt því að sinna ýmsum störfum um starfs- ævina. Hann vann á bifreiðaverkstæði pabba síns ungur að árum og var einnig hjá Strætisvögnum Reykjavíkur og um tíma einnig sendibílstjóri. Sigurður vann einnig lengi á Naustinu og Glæsibæ og rak eigin stað um tíma. Synir Sigurðar og Hjördísar Björnsdóttur, f. 12. september 1935, d. 4. mars 2009, eru 1) Björn Sigurðsson, f. 1954. Börn Björns eru Hjördís, f. 1978, son- ur hennar er Hilmar Bjarni, f. 2013. Agnes, f. 1981, maki Pétur Elsku afi Sissi. Þegar við setjumst hérna niður systkinin og rifjum upp minningar um hjartahlýjan og glaðværan afa þykir okkur vænst um hvað þú hafðir alltaf gaman af krökk- unum. Þú varst alltaf til í að dekra við þau og þau höfðu svo gaman af að vera í kringum þig. Afi elskaði að spila á nikk- una fyrir krakkana og þó að hann kynni ekki eitt einasta lag með herra Hnetusmjöri sungu þau alltaf hástöfum með. Þegar Hrefna þín dó fannst okkur eins og lífsviljinn hefði smá slokknað hjá þér, enda misst- irðu alltof stóran part af lífinu. Margar nýjar og skemmtilegar minningar hafa orðið til núna undanfarið og okkar ferskustu eru þegar við skruppum til Hjördísar og rúntuðum um Sæ- fellsnesið, líka þegar við fórum öll á Ruby Tuesday þar sem þér þótti nú ekki leiðinlegt að fá þér einn öl með barnabörn- unum. Síðasta og kannski dýr- mætasta stundin okkar saman var núna í byrjun júlí þegar við fórum í tilefni af 85 ára afmæl- inu þínu öll saman í keiluhöllina og þú og Örvar rústuðuð keilu- keppninni. Það var svo gaman að sjá hvað þér fannst þetta æðislega skemmtilegt. Þarna urðu til minningar fyrir okkur öll um þig, þennan glaðværa, ljúfa og elskulega afa og lang- afa sem við áttum. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Með sorg í hjarta kveðjum við þig og höldum áfram að hugsa til þín í sumarlandinu. Hjördís, Örvar og fjölskyldur. Sissi bróðir var orðinn 20 ára þegar ég fæddist og ég kynnt- ist honum ekki mikið sem smá- strákur en það var alltaf gaman man ég þegar hann birtist heima hjá okkur. Alltaf svo fínn og flottur. Ég var aftur á móti mikið með strákunum hans Bjössa og Gunna þar sem þeir voru á mínum aldri. Síðan liðu árin og ég búin að kynnast Auði og við fórum að vinna á barnum hans í Glæsibæ. Það var líflegur tími og skemmtilegur. Sissi hafði alltaf gaman af harmóníkutónlist og var dug- legur að spila og fór á ýmis námskeið og spilaði víða og fór á mörg harmóníkulandsmót með Hrefnu, þau voru ótrúlega dugleg að fara í útilegur. Tónlistin tengdi okkur sam- an þar sem ég gutlaði á gítar og í samkvæmum innan ætt- arinnar tókum við oft saman lagið okkur til mikillar ánægju, veit ekki um hina. Við höfum reynt að kalla saman systkinin og maka og þá hefur oft verið glatt á hjalla og mikið spilað og sungið. Það er góð minning að hafa fengið þau öll í Fossvoginn til okkar í byrjun október sl. og þá var Hrefna með. Síðan aftur núna í byrjun maí hérna fyrir austan þegar þau komu í vöfflukaffi og að skoða nýju bygginguna hjá okkur Auði. Sissi hafði verið langt niðri eftir að Hrefna dó í febrúar en það var svo gaman hvað hann lyftist allur þegar hann fékk nikku í hendur og við spiluðum öll saman eins og áður fyrr, hann meira að segja gleymdi hækjunni þegar hann kvaddi og fór út í bíl. Það var að birta til og hann átti skemmtilegan afmælisdag 1. júlí en fékk lungnabólgu upp úr því. Hann virtist ætla að hrista hana af sér eins og ann- að í gegnum lífið en allt í einu var þetta búið og hann fór á fund Hrefnu í sumarlandinu. Blessuð sé minning þeirra beggja. Jens Sigurðsson (litli bróðir). Elsku bróðir. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Þú fórst svo skyndilega, heyrði í þér í vikunni á undan og þá varstu á sjúkrahúsi en allur að hressast. Það var að birta til hjá þér eftir áföll síðustu ára þar sem þið Hrefna lentuð í erfiðu bílslysi og þið fylgdust að saman í gegnum veikindi hennar sem höfðu sigur í byrjun febrúar. Þetta reyndi mikið á þig. Þú varst svo spenntur að komast í nýju íbúðina sem Jóna hennar Hrefnu aðstoðaði þig með að fá. Þig vantaði ýmislegt í nýju íbúðina og ég hlakkaði til að aðstoða þig við að ná í þessa hluti. Þú keyrðir strætó á sama tíma og Guðbjörn maðurinn minn og þið gátuð talað enda- laust um vinnuna. Þú elskaðir Ísafjörð og tal- aðir oft um hvað þú áttir góða æsku þar. Þú varst óþreytandi að segja sögur þaðan. Ég man sérstaklega eftir frásögninni þegar þú varst að hjóla á bryggjunni á Ísafirði 12 ára gamall og fullt af fólki þar í kring þegar Mummi bróðir datt í sjóinn. Þú stökkst út í sjóinn á eftir honum áður en nokkur gat hreyft legg né lið. Þú varst stóri bróðir og taldir aldrei eft- ir þér að gæta systkina þinna til að létta undir með pabba og mömmu. Harmóníkan var í uppáhaldi hjá þér og þú spil- aðir víða og þú varst svo ánægður með harmóníkuna sem Hrefna gaf þér. Þetta var áhugamál ykkar beggja. Það var góð stund sem við áttum öll systkinin saman hjá Auði og Jenna fyrir austan í byrjun maí og það var svo gaman að hlusta á þig spila með þeim, þú varst loksins svo glaður. Minning þín lifir. Þín systir. Ingibjörg Sigurðardóttir. Sigurður Jörundur Sigurðsson  Fleiri minningargreinar um Sigurð Jörund Sigurðs- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ GuðfinnaSoffía Sveins- dóttir fæddist 22. desember 1944. Hún lést 25. júlí á Dvalarheimilinu Höfða Akranesi. Eiginmaður henn- ar er Brandur Jónsson frá Graf- ardal, f. 13.10. 1938. Foreldar hennar voru Sveinn Hjálmarsson bóndi Svarfhóli, f. 29.9. 1901, d. 26.2. 1985, og Lína Arngrímsdóttir húsmóðir, f .13.8. 1913, d. 8.4. 2001. Systkini Guðfinnu Soffíu eru; Guðríður Sveinsdóttir, f. 6.6. 1936, Sóley Guðrún Sveins- dóttir, f. 22.12. 1944, Friðrik Axel Sveinsson, f .8.6 1947, vör Lilja, f. 3.1. 1966, gift Birni Þorra Viktorssyni. Þau eiga þrjú börn og eitt barna- barn. Sveinn, f. 8.9. 1967, kvæntur Olgu Grevtsova, þau eiga þrjú börn. Jón, f. 5.6. 1970, kvæntur Bergnýju Dögg Sophusdóttur, þau eiga þrjá dætur. Heiðdís Björk, f. 15.4. 1981, hún á tvö börn. Guðfinna starfaði samhliða búskap við hin ýmsu störf og rak m.a. blómabúð á Akranesi, Akrablóm, um 10 ára skeið. Hún var mikill handverks- maður, fagurkeri og hafði un- un af hvers kyns ræktun. Guðfinna og Brandur fluttu árið 2000 að Jörundarholti 24 á Akranesi og bjuggu þar meðan heilsan leyfði. Þau fluttu á Dvalarheimilið Höfða 1. apríl 2020 eftir að hafa dvalið á HVE nokkra mánuði. Útför Guðfinnu Soffíu Sveinsdóttur verður gerð frá Akraneskirkju í dag, 5. ágúst 2020, og hefst athöfnin klukk- an 13. Hjálmar Sveins- son, f. 8.3. 1949, Arngrímur Sveinsson, f. 8.3. 1949, d. 21.10. 2006, Þórður Sveinsson, f. 29.10. 1951, d. 29.4. 1990, Stúlka Sveinsdóttir, f. 29.10. 1951, d. 29.10. 1951. Guðfinna Soffía ólst upp á Svarfhóli í Svínadal og bjó þar til ársins 1965 er þau Brandur Jónsson giftu sig 10. júlí og hófu bú- skap í Katanesi í Hvalfjarð- arsveit. Hún gekk í skóla í Reykja- nesi við Ísafjarðardjúp og í Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Börn þeirra eru fjögur; Sal- Amma Guðfinna var amma af bestu sort. Bakaði bestu pönns- ur í heimi, leyfði manni að glamra á píanóið í sveitinni, sprauta vatni út um allan garð- skála og bauð í bestu göngu- túrana. Hún gerði meira að segja heiðarlegar tilraunir til að kenna mér að prjóna. Með ömmu Guðfinnu gat maður bara verið. Það er gæfa að eiga fal- legar minningar af ömmu eins og hún átti að sér að vera. Amma Guðfinna hætti aldrei að vera amma. Það sást greini- lega þegar langömmutelpan mætti til leiks. Hún brosti svo blítt og einlægt í hvert skipti sem þær hittust og var alltaf að passa upp á að barnið hefði það sem best. Um kvöldið fékkstu hvíldina, í hjartanu fann ég þökk. Er ég hugs’um góðu stundirnar þá verð ég ansi klökk. Mér alltaf tók á móti, opinn faðmur þinn. Í Katanesi, stundirnar, þangað reikar hugur minn Tína, skoða, sjóða, skeljar og fjörugull. Sykurmola og ömmupönnsur ég borðaði kappsfull. Þú gafst þér alltaf tíma og kenndir mér svo margt. Í sólskálanum að vökva blóm þar var svo hlýtt og bjart. Af þínum góðu mannkostum mun heyra Salvör Tinna. Hvíl í friði og góða ferð, elsku amma Guðfinna. Anna Lilja Björnsdóttir. Elsku amma mín hefur kvatt þennan heim. Þó að það sé erf- itt að missa ömmu sína er mikill friður að vita af henni á betri stað eftir erfið seinustu ár. Við amma vorum alltaf mikl- ar vinkonur þegar ég var að alast upp. Ég fór í ófá skipti eft- ir skóla upp í Jörundarholt í heimsókn. Þá sátum við amma oftast fyrir framan sjónvarpið að horfa á Nágranna eða Glæst- ar vonir og prjónuðum saman. Amma hefur kennt mér ótal dýrmæta hluti sem munu fylgja mér út lífið. Hún kenndi mér að prjóna almennilega, elda kjöt- bollur, baka pönnukökur, skreyta rjómatertuna, taka upp kaftöflur, borða hamsatólg og margt annað sem ég held mikið upp á. Það var alltaf mikið fjör þeg- ar við ömmubörnin fengum að koma að gista í Jörundarholtinu og var það fastur liður að fara á vídeóleiguna að leigja mynd og kaupa skyndibita. Þeim þótti svo vænt um að fá barnabörnin til sín og við nutum þess að vera í dekri. Það var alltaf til ís og kókómjólk fyrir okkur krakkana og endalaust af spól- um. Við systurnar kunnum Sögur úr Andabæ líklega utan að eftir að hafa horft á hana ótal sinnum í Jörundarholtinu. Amma var ótrúleg fé- lagsvera og fannst ekkert betra en að fá heimsóknir. Hún tók ávallt vel á móti mér hvort sem ég mætti ein eða með vinkonur mínar í heimsókn. Sú heimsókn sem stendur þó upp úr er þeg- ar ég mætti með þrjár vinkon- ur með mér í heimsókn og amma ákvað að gera pönnu- kökur fyrir okkur. Það dugði ekkert minna en tvær upp- skriftir handa okkur og gerði amma þær með bros á vör. Gestrisnin hennar ömmu var ómetanleg. Seinasta skiptið sem ég hitti ömmu var dýrmæt stund. Amma og afi sátu saman úti á svölum, amma með sólgleraugu og sólhatt og greinilega að njóta þennan sólríka dag tveimur dögum áður en hún lést. Þó að hún hafi litið veik- burða út sá maður samt sem áður ánægjuna í andlitinu. Mér þótti dýrmætt að geta stokkið og heilsað upp á hana og afa reglulega á Höfða og ánægjan leyndi sér ekki í hvert skipti sem ég kom þó að heimsókn- irnar væru yfirleitt stuttar. Ég veit fyrir víst að amma er komin á betri stað og að hún er þjáningarlaus. Amma fær loks- ins að hitta Ásdísi Birtu og hún komin með enn einn vernd- arengilinn til sín. Það verður ljúft að hitta þær þegar minn tími er kominn en áður en að því kemur munu allar óteljandi minningarnar um ömmu ylja. Takk fyrir dýrmætu stundirnar og alla hjálpina og stuðninginn sem þú hefur veitt mér í gegn- um tíðina. Ég lofa að passa upp á afa þar til þið sameinist á ný. Þín ömmustelpa, Guðný Rós. Guðfinna Soffía Sveinsdóttir Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horn- inu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.