Morgunblaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 Minjar Fjórtán ár eru síðan varnarliðið hætti starfsemi hér. Vera Bandaríkjahers markaði spor í sögu Íslendinga og þessi þota á stalli við Keflavíkurflugvöll minnir fólk á þá tíma. Árni Sæberg Hægt og bítandi verður myndin skýr- ari. Efnahagslegar af- leiðingar kórónuveiru- faraldursins eru fordæmalausar. Í löndum Evrópusam- bandsins dróst lands- framleiðsla milli ára saman um 11,9% á öðrum ársfjórðungi eftir 3,2% samdrátt á þeim fyrsta. Þetta er mesti efna- hagssamdráttur í áratugi og miklu meiri en í eftirleik fjármálakrepp- unnar 2008. En staðan er misjöfn. Verst er staðan á Spáni, Ítalíu og í Frakk- landi. En jafnvel Þýskaland glímir við erfiðleika. Efnahagssamdráttur hefur aldrei verið meiri í einum fjórðungi en apríl til júní síðast- liðnum – yfir 10% miðað við sömu mánuði á síðasta ári. Athyglisvert er að evruríkin glíma við meiri samdrátt en önnur lönd. Samdrátt- urinn er ekki aðeins meiri á evru- svæðinu heldur eru ríkisskuldir sem hlutfall af landsframleiðslu hærri. Evrulöndin glíma við meira atvinnuleysi en þau ríki Evrópu- sambandsins sem standa utan við myntbandalagið. 9,7% af heimsfram- leiðslunni glatast Öll stærstu hagkerfi heimsins hafa orðið fyrir þungu höggi vegna Covid-19. Kína glímir við erf- iðleika. Í fyrsta skipti frá því að hagskýrslugerð hófst þar í landi minnkaði landsfram- leiðsla á milli ársfjórð- unga. Janúar til mars var samdrátturinn 6,8%. Kínversk stjórn- völd hafa hins vegar gefið út að dæmið hafi snúist við og hag- vöxtur á öðrum fjórð- ungi hafi verið 3,2%. Hagfræðingar hafa deilt á opinberar hag- tölur kínverskra stjórnvalda – segja þær ýktar til að draga upp betri mynd af efnahagslegri frammistöðu. En óháð slíkum deil- um reiknar Alþjóðabankinn með að hagvöxtur í Kína falli niður í 2% á þessu ári frá 6% á síðasta ári og jafnvel verði vöxturinn enginn. Í Bandaríkjunum er staðan verri. Samdrátturinn á öðrum árs- fjórðungi var tæplega 9,5%. Um 15 milljónir starfa hafa glatast í efna- hagslegum hremmingum vegna Covid-19. Þjóðskrá Bandaríkjanna telur að meira en helmingur heim- ila hafi orðið fyrir tekjumissi. Hag- fræðingar vara við að það taki mörg ár að vinna upp þann skaða sem vírusinn hefur valdið fyr- irtækjum og heimilum. Í Suður-Kóreu féll lands- framleiðslan um 2,9% á öðrum árs- fjórðungi. Efnahagssamdrátturinn í Japan var 3,4% á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þannig er hægt að fara yfir heiminn. Ekkert land kemst hjá því að takast á við efna- hagsleg áföll vegna Covid. Þróunarbanki Asíu taldi í maí að efnahagslegur kostnaður heimsins af Covid-19 gæti orðið allt að 8,8 billjónir dollara eða 9,7% af heims- framleiðslunni. Frá því að sérfræð- ingar bankans lágu yfir tölum hef- ur útlitið aðeins versnað. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn [AGS] telur að alþjóðlegur hagvöxtur verði neikvæður um 4,9%. Sam- drátturinn verður mestur hjá iðn- ríkjunum eða 8% gangi spár sjóðs- ins eftir. Góðu fréttirnar eru þær að þrengingarnar eru tímabundnar. Efnahagur heimsins ætti, að öðru óbreyttu, að fá góðan byr í seglin á næsta ári. AGS spáir 5,9% hag- vexti. En hagspár eru brothættar. Þróist heimsfaraldurinn á verri veg hefur það neikvæð áhrif á bú- skap heimsins. Það þarf ekki hag- fræðinga til að átta sig á því. Sögulegur samdráttur Í þjóðhagsspá sem birt var undir lok júní gerir Hagstofan ráð fyrir að landsframleiðslan hér á landi dragist saman um 8,4% á þessu ári. Gangi spáin eftir er þetta mesti samdráttur í lýðveldissög- unni og þarf raunar að fara aftur til ársins 1920 til að finna verra dæmi. Sérfræðingar Hagstofunnar reikna hins vegar með „snörpum viðsnúningi á næsta ári og að vöxt- ur landsframleiðslunnar verði 4,9%“ og að á næstu árum þar á eftir verði hagvöxtur 2,5%-2,9%. Afleiðingar Covid á íslenskt efnahagslíf eru í mörgu alvarlegri en hjá öðrum löndum og skiptir þar mestu hve mikilvæg ferða- þjónustan er orðin eftir ótrúlega uppbyggingu á síðustu árum. Aug- ljóst er að verulegur samdráttur verður í útflutningi vöru og þjón- ustu. Hagstofan býst við yfir 30% samdrætti og þá mest í þjón- ustuútflutningi ferðaþjónustunnar. En einnig er reiknað með sam- drætti í útflutningi sjávarafurða. Í grein 15. apríl síðastliðinn bendi ég á að ekkert hagkerfi fái staðist til lengri tíma ef komið er í veg fyrir efnahagslega starfsemi borgaranna. Engu skipti hversu öflugt og stórt hagkerfið er. Und- irstöðurnar byrji hægt en örugg- lega að molna – „velsæld breytist í fátækt og örbirgð, öflugt heil- brigðiskerfi brotnar niður, al- mannatryggingar komast í þrot“. Fylgifiskar efnahagslegra þreng- inga eru pólitískur órói og sundr- ung. Súrefni í fjárlögum Í flestu hafa aðgerðir íslenskra stjórnvalda verið áhrifaríkar þótt á stundum hafi tekið of langan tíma að hrinda þeim í framkvæmd að fullu. Fyrir því eru margar ástæður – sumar kerfislægar sem er áminning um hve þunglamalegt og svifaseint regluvætt þjóðfélag er orðið. En markmið ráðstafana í efna- hagsmálum – ríkisfjármálum og peningamálum – hefur verið skýrt: Að verja fyrirtækin og lífsafkomu almennings. Líkt og ég benti á í apríl var gripið til róttækra að- gerða til að „koma okkur í gegnum fyrsta leikhluta af nokkrum“. Fréttir síðustu daga um að lík- lega sé seinni bylgja hins illvíga víruss skollin á undirstrika enn frekar þá staðreynd að við vitum ekki hversu lengi stríðið mun standa. Augljóst er að stjórnvöld verða að grípa til enn frekari ráð- stafana til koma í veg fyrir að efnahagslegur skaði verði meiri. Alþingi kemur saman síðar í mánuðinum til að afgreiða nýja fjármálastefnu en 1. október kem- ur nýtt þing saman og þá leggur fjármálaráðherra fram fjárlaga- frumvarp fyrir komandi ár. Eng- um dylst að ríkisstjórn og þing- menn standa frammi fyrir vandasömu verkefni og erfiðum ákvörðunum við fjárlagagerðina. En undan þeim verður ekki vikist, þótt kosningar séu eftir rúmt ár. Það vitlausasta sem þingið getur gert við núverandi aðstæður er að freista þess að auka tekjur ríkisins með þyngri álögum á fyrirtæki og/ eða heimili. Í þeim leik tek ég ekki þátt. En að opna fyrir súrefnis- krana skatta og gjalda er ekki að- eins skynsamleg leið heldur arð- bær fjárfesting til framtíðar fyrir ríkissjóð og almenning. Tekju- grunnur ríkis og sveitarfélaga verður styrkari til lengri tíma og ráðstöfunartekjur launafólks meiri. Þetta er ekki flóknara. Eftir Óla Björn Kárason » Það vitlausasta sem þingið getur gert er að reyna að auka tekjur ríkisins með þyngri álögum á fyrirtæki og heimili. Í þeim leik tek ég ekki þátt. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Þurfum að skrúfa frá súrefninu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.