Morgunblaðið - 05.08.2020, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
úr silki
LEIKFÖNG
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Ný og endurbætt
netverslun
Stjórnvöld leita nú leiða til að
bregðast við auknum ferða-
mannafjölda hingað til lands, fjölda
sem er kominn að þolmörkum
greiningargetu Landspítalans hvað
varðar landamæraskimun.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
segir að ýmsar leiðir séu færar en
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
greindi frá því á upplýsingafundi al-
mannavarna að samgöngu-
ráðuneytið ynni nú að því að skapa
reglugerð sem miðaði að því að tak-
marka þann fjölda ferðamanna sem
til landsins kemur ef þess gerist
þörf.
Sigurður telur þó að aukin grein-
ingargeta sýkla- og veirufræðideild-
ar Landspítalans, sem er um 2.200
sýni úr landamæraskimun daglega,
væri besta leiðin enda hafi skimun
á landamærum gefist vel.
Þurfum að ráða við eftirspurn
Að sögn Sigurðar er vaxandi
spurn á meðal erlendra ferðamanna
eftir því að koma til landsins nú í
ágúst.
„Við þurfum auðvitað að ráða við
það. Þá eru nokkrar leiðir til þess
færar. Ein væri sú að auka skim-
unargetuna. Önnur væri að flokka
lönd einhvern veginn öðruvísi en
gert er. Við sjáum þó að það sé
ólíklegt að grænum löndum fjölgi,
það er frekar að einhver grænu
landanna verði rauð. Á sama hátt
gæti ferðavilji Evrópubúa breyst.
Við höfum verið að greina stöðuna
og undirbúa okkur ef við þyrftum
að grípa inn í með einhverjum öðr-
um leiðum en fyrst og fremst erum
við að leitast við að ráða við verk-
efnið vegna þess að það hefur geng-
ið mjög vel,“ segir Sigurður Ingi og
bendir á að af þeim 70.000 sem
skimaðir hafa verið á landamærum
hafi einungis 30 greinst með virk
smit, þar af 15 erlendir ferðamenn.
Erfitt er, að sögn Sigurðar, að
spá fyrir um það hversu margir
muni vilja koma hingað á næstunni
þótt augljóslega sé áhugi ferða-
manna á því að koma til Íslands í
ágúst mikill.
Sigurður Ingi segir að mögulegt
sé að setja á reglugerð sem tak-
marki hversu margir koma hingað
til lands. Það sé samt sem áður
flókið og því undirbúi ráðuneyti sig
nú.
ragnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rigning Ferðamenn streyma til landsins eins og rigningin sem féll í stríðum straumum á þessa ágætu ferðamenn.
Leita leiða til að bregðast
við ferðamannastraumi
Ferðamenn sýna mikinn áhuga á ferðum hingað í ágúst
Ragnhildur Þrastardóttir
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Fleiri einkennalitlir eða einkenna-
lausir hafa greinst smitaðir af kór-
ónuveiruni nú en þegar faraldurinn
stóð sem hæst hérlendis í vor, að
sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarna-
læknis sem segir að „mjög margir“
þeirra sem sýkjast af kórónuveir-
unni fái lítil einkenni COVID-19.
Þrjú innanlandssmit greindust á
mánudag og tvö við landamæra-
skimun en enn var óljóst hvort smit-
in úr landamæraskimuninni væru
ný, og hinir smituðu því smitandi,
eða gömul, og hinir smituðu því með
mótefni og ekki smitandi, þegar
Morgunblaðið fór í prentun í gær-
kvöldi.
Of snemmt að fagna
Rannsókn Oxford-háskóla á 9
þúsund heilbrigðisstarfsmönnum
sýndi fram á að þeir sem hefðu feng-
ið væg einkenni COVID-19 væru
ólíklegri til að fá jákvæða svörun út
úr mótefnamælingu en þeir sem hafi
sýnt meiri einkenni. Þórólfur segir
að rannsókn Íslenskrar erfðagrein-
ingar á mótefni veirunnar í Íslend-
ingum sýni að hið sama sé uppi á
teningnum hérlendis.
Spurður hvort það gefi til kynna
að veiran hafi verið útbreiddari í ís-
lensku samfélagi en áður var talið
segir Þórólfur:
„Allt upp í helmingur þeirra sem
hafa sýkst hafa fengið það lítil ein-
kenni að þeir hafa ekki leitað til heil-
brigðiskerfisins eða hafa verið ein-
kennalausir þannig að klárlega eru
mjög margir sem sýkjast sem fá lítil
sem engin einkenni.“
Þrátt fyrir að fjöldi greindra
smita hafi verið minni á mánudag en
dagana þar á undan sagði Þórólfur á
upplýsingafundi almannavarna í
gær að of snemmt væri að fagna ár-
angri þeirra hertu aðgerða sem gildi
tóku í síðustu viku. Þá sagði Þór-
ólfur viðbúið að fjöldi nýrra smita
myndi sveiflast á milli daga.
Tveir þeirra þriggja sem greind-
ust með kórónuveirusmit innanlands
á mánudag voru í sóttkví og sagði
Þórólfur það ánægjulegt. Enn er
unnið að raðgreiningu og smitrakn-
ingu vegna smitanna, en þau greind-
ust öll á höfuðborgarsvæðinu. Virk
smit voru í öllum landshlutum í gær
nema á Austurlandi.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðis-
ins ætlar að fjölga sýnatökum vegna
kórónuveirunnar næstu daga og
verða sýni tekin á öllum heilsu-
gæslustöðvum umdæmisins á hverj-
um degi næstu daga, að sögn Óskars
Reykdalssonar, forstjóra Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins. Hann
sagði á upplýsingafundi almanna-
varna í gær að sýnatökum hjá fólki
sem hefur einkenni kórónu-
veirunnar hafi fjölgað undanfarna
daga og muni fjölga enn frekar
næstu daga.
Til að anna eftirspurn verður
sýnatökutjald tekið í notkun á Suð-
urlandsbraut, þar sem fólk getur
keyrt í gegn, jafnvel í tvöfaldri röð,
og látið taka sýni úr sér úr bílnum.
Óskar sagði mikilvægt að fólk
hringdi á undan sér og léti meta
hvort tilefni væri til sýnatöku og að
gefnu tilefni minnti hann á að teldi
heilbrigðisstarfsfólk að einstakling-
ur þyrfti að fara í sýnatöku væri
uppi grunur um kórónuveirusmit og
að því ætti fólk að einangra sig þar
til niðurstaða sýnatöku lægi fyrir.
Fleiri greinast án einkenna en áður
Þeir sem fá væg einkenni eru ólíklegri til að mælast með mótefni Fimm smit greindust á mánudag,
þar af þrjú innanlands Austurland ósnert Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fjölgar sýnatökum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sýnataka Tjald fyrir ökumenn sem vilja fara í sýnatöku var reist í gær.
2
1
2
1
2
1
2
11 1
1
1
1
1
1
1 1 100
1
1
1
1
2
2
4
3
2 2 2
3
6
6
2
1
5
2
5
1
6
9
2
10
1
13
1
3
1
2
2
2
1
3 3 3
2 2
5
4
2
1
2
1
1
3
1
3
1
3
6
1
8
1
7
1
11
2
1
4
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna
frá 15. júní til 3. ágúst
júní júlí ágúst
145.259 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
70.471 sýni734 einstaklingar eru í sóttkví
1.918 staðfest smit
83 eru með virkt smit
Heimild: covid.is
Innanlands
Landamæraskimun:
Virk smit Með mótefni
Beðið eftir mótefnamælingu
18,5 virk smit sl. 14 daga
á 100.000 íbúa
Nýgengi smita
innanlands:
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI