Morgunblaðið - 05.08.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Útsölulok
Blússur • Kjólar • Bolir
SÉRBLAÐ
Fermingarblaðið hefur
verið eitt af vinsælustu
sérblöðum Morgunblaðsins.
Fjallað verður um allt
sem tengist fermingunni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir 18. ágúst.
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
21. ágúst 2020
Spánverjar botna hvorki upp né
niður í þeirri ákvörðun fyrrverandi
konungs síns að láta sig hverfa úr
landi. Stóra spurningin sem þeir
spyrja er hvort Jóhann Karl hafi
flúið land eða verið rekinn burt.
Konungurinn fyrrverandi, sem
er 82 ára, tilkynnti óvænt í fyrra-
dag að hann væri á förum úr landi.
Birti hann bréf þar að lútandi á
heimasíðu Spánarkonungs.
Jóhann Karl mun hafa verið við-
riðinn spillingarmál sem spænska
lögreglan rannsakar og snýst um
samninga um sölu franskrar járn-
brautarlestar til Sádi-Arabíu.
Hæstiréttur Spánar hóf í júní sl.
rannsókn á viðskiptunum. Konung-
urinn fyrrverandi sagðist myndu
svara spurningum saksóknara.
Jóhann Karl tók við völdum 1975
við andlát Francos hershöfðingja
og leiddi spænsku þjóðina til lýð-
ræðis. Hann afhenti syni sínum Fil-
ippusi völdin í júní 2014.
Óljóst er hvar nákvæmlega Jó-
hann Karl er niðurkominn. Blaðið
La Vanguardia segir hann hafa
farið árla mánudags til Portúgals
og þaðan til að dveljast með vinum í
Dóminíkanska lýðveldinu.
Dagblaðið ABC sagði í gær að
hann væri kominn á leiðarenda í
Karíbahafi. El Confidencial sagði
aftur á móti að hann gæti verið í
Portúgal, Frakklandi eða Ítalíu.
Portúgalskir miðlar sögðu Jóhann
Karl hafa verið í annaðhvort Esto-
ril eða Cascais.
Agndofa á konungsflótta
AFP
Í útlegð Hjónin Jóhann Karl og Sófía. Nú eru þau farin frá Spáni
Talið að Jóhann Karl sé í Dóminíkanska lýðveldinu
Þrír skipreika sjómenn frá Míkró-
nesíu, eyjaklasa í Kyrrahafinu fyrir
austan Filippseyjar, hrósuðu happi
yfir því að hafa bjargast í ballarhafi.
Þeir náðu landi eftir hrakninga sína
á óbyggðri og afskekktri öreyju í
gær.
Það varð mönnunum til happs að
þeir skrifuðu alþjóðlega neyðarkallið
SOS stórum stöfum í fjörusandinn.
Áhafnir bæði ástralskra og banda-
rískra herflugvéla tóku um síðir eftir
hjálparbeiðninni risastóru og létu
björgunarmiðstöð á eynni Gvam vita
hvar sjómennina var að finna.
Ástralski herinn sagðist hafa
fundið mennina á sunnudag á hinni
örsmáu eyju Pikelot, sem er um 200
km frá þeim stað þar sem mennirnir
lögðu upp í róður þremur sólar-
hringum fyrr. Vindar hröktu bát
þeirra af leið. Fór svo að eldsneyti
vélarinnar þvarr um síðir, en þá
munu þeir hafa verið staddir mitt á
milli tveggja af rúmlega 600 eyjum
og eyjaklösum Míkrónesíu.
Þyrla frá ástralska herskipinu
Canberra flaug til eyjarinnar með
matvæli og vatn og reyndist ásig-
komulag skipverja gott.
Ástralíuher/AFP
Skrifuðu í sandinn Áströlsk þyrla færði skipbrotsmönnunum mat og vatn
og síðar sótti björgunarskip frá Míkrónesíu þá á eyjuna Pikelot.
Skrifuðu í sandinn
eftir björgun
Frakkar gætu í einni svipan, hvenær
sem er, misst stjórnina á útbreiðslu
kórónuveirunnar, sagði sérstakt vís-
indaráð sem er ríkisstjórn og forseta
Frakklands til ráðgjafar í stríðinu
gegn veirunni skæðu.
Þetta sagði ráðið í gær, eftir að
skýrt var frá því að sjúklingum sem
sýkst hafa af veirunni og verið lagðir
inn á gjörgæsludeild hefur síðustu
daga fjölgað, í fyrsta sinn frá í apríl.
Í nýjasta áliti til yfirvalda segir
vísindaráðið að „veiran hefur að
undanförnu látið mun meira á sér
kræla þar sem dregið hefur úr
varnaraðgerðum.“
Til mjög strangra varna var gripið
í mars og fyrst slakað á hluta þeirra
í maí. „Jafnvægið er brothætt og við
gætum allt í einu runnið sömu leið
og til dæmis á Spáni til minni stýr-
inga.“
Þá varaði ráðið enn fremur við
nýrri og umfangsmikilli bylgjudreif-
ingu kórónaveirunnar í haust, að
sumarleyfunum í ágúst afstöðnum.
Sagði ráðið, að þegar öllu væri á
botninn hvolft væri það í höndum
einstaklinganna sjálfra hvernig til
tækist; að þeir sinntu aðgerðum
gegn smiti, svo sem með lágmarks-
fjarlægð milli manna, reglulegum
handaþvotti og notkun andlitsgríma
á almannafæri.
Síðustu þrjá daga hafa 3.376
manns smitast af kórónuveirunni í
Frakklandi. Á sama tíma voru 13
lagðir á gjörgæsludeild vegna veik-
inda og 29 manns dóu af völdum
veirunnar. Hefur veiran þar með
kostað 30.294 Frakka lífið.
Talsmaður þýsku læknasamtak-
anna segir að ný holskefla kórónu-
veirunnar sé að skella á landsmönn-
um sem kastað hefðu vörnum á glæ.
Þá sagði talsmaður stærstu kenn-
arasamtaka landsins að skólakerfið
væri ekki undirbúið undir aðra
veiruágjöf.
Ráðamenn um heim allan hafa
enn frekari áhyggjur af upplausn í
samfélagin með haustinu vegna lok-
unar skóla til að sporna við dreifingu
veirunnar.
Gætu misst
stjórn á veirunni
AFP
Sýking Í niðursuðuverksmiðjunni
Mamminger í Þýskalandi hafa nær
200 manns sýkst af veirunni.