Morgunblaðið - 05.08.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 05.08.2020, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tvennt litaralla umræðuá heimsvísu og er óþægilega samofið, afleiðingar kórónuveiru og hat- rammar kosningar í Bandaríkjunum. Kannanir sýna enn að demókratar hafi sigurlíkurnar með sér, þrátt fyrir að þora ekki að sýna fram- bjóðanda sinn, nema sem Konna, sem her Baldra talar fyrir. Repúblikanar hafa sinn umdeilda forseta í endurkjöri en hann er hvergi falinn. Trump hafði vindinn í bakið í byrjun kosningaárs, einkum vegna góðs árangurs í efna- hagsmálum. Andstæðingunum tókst að koma veirunni á hina vogarskálina og eðlisþyngd hennar jókst í takt við hækk- andi smit- og dánartölur. Í Bandaríkjunum, sem í Evrópu, voru menn óviðbúnir fárinu. Lítil geta var til að mæla smit veirunnar hratt í byrjun. Enda hefði þurft að gera það í tug- milljónatilvikum á fáum vikum. Eftir að bætt var úr með miklu átaki birtist árangurinn m.a. í stórum stökkum smittalna. Til- finningin, sem ýtt var undir, var að faraldurinn væri stjórnlaus sem þessu nam! Í kosningafári þar sem fjöl- miðlar ráða sér ekki fyrir brennandi þörf á að snúa við stöðunni frá 2016 sem þeir við- urkenndu aldrei, gengur illa að halda gæðum í fréttamennsku. Á skrítna fjölmiðlinum á Íslandi og í hornum Alþingis flokkast það sem „kynþáttahatur“ að nefna upphátt hvaðan kór- ónuveiran kom og hvernig Vesturlönd voru (ekki) vöruð við hvers mætti vænta. Það skiptir augljóslega miklu fyrir framtíðina að fara rækilega yfir það hvers vegna dróst að hringja aðvörunarbjöllum. Samkomulag Kína og Banda- ríkjanna hefur goldið þessa, og óleystra átaka um viðskipta- hætti. Andstæðingar Trump forseta í kosningabaráttunni fullyrða að hann hafi stigið fast á bandarískar bremsur gagn- vart Kínastjórn vegna ótta síns um hrakfarir í kosningunum. Því hafi hann ýtt undir átök við öflugan og dularfullan andstæð- ing og fylgi þar aldagömlum hernaðarbrögðum um að þjóðarleiðtogi sem stendur höll- um fæti eigi fá bjargráð væn- legri en að kalla fram ógnandi óvin og setja í aðalhlutverk á heimasviðinu. Ekkert þjappi fólki betur um leiðtoga sinn en það. Þess vegna séu átök um meintar tækninjósnir Kína sem Bandaríkin hafi blásið upp langt umfram efni. Staðreyndin er hins vegar sú að hinn vestræni heimur hafði fram að því brugðist við málinu eins og nytsamir sakleysingjar og látið risafyrirtæki sín, stjórnlaus af græðgi, ráða för. Því er fróðlegt að lesa nýja aðalgrein í Spiegel sem lengi hefur legið við an- keri á vinstri kanti Þýskra stjórnmála. Þar kemur að Michael Roth, mikill áhrifa- maður þýska krataflokksins í ríkisstjórn Merkel, og fer þar með Evrópumál og birtir stefnumið vegna 6 mánaða for- setatíðar lands síns í ESB. Hann telur nauðsynlegt að spyrja spurningar um hvernig ESB eigi að að halda sínum hlut gegn hinu mikla og ágenga Kína. Svar Roth er að Evrópa verði að sýna öfluga samstöðu og nota víðfeðmt markaðssvæði sem aðaltól í þeim slag. Varð- andi „5G“, sem er táknrænt um kjarna átakanna, verði Evrópa að byggja á innlendum fram- leiðendum varðandi vöru sem er viðkvæm af öryggisástæðum. Roth segir að Bandaríkin hafi dregið sig inn í skel heltekin af einkahagsmunum sínum. Á sama tíma herðist Kína í sinni framgöngu. Því sé Evrópu nauðugur sá kostur að sýna aukna festu. Auðvitað séu sam- skiptin við Kína flókin. Kína sé og hljóti að vera mikilvægt sam- starfsland en um leið efnahags- legur keppinautur. Um flest vegni Kína og ESB best í nánu samstarfi. Nefna megi pestir og heimsfaraldra, heimshlýnun og lausn svæðis- bundinna deilna. Viðurkenna skuli að forysta einsflokksríkis geri allt sem hún má til að reka fleyg á milli og veikja samstöðu ESB-landa. Atburðirnir í Hong Kong sýni hve Kína fari sínu fram hvað sem afstöðu um- heimsins líður og nefna megi út- þenslu á Suður-Kínahafi og at- burði í Xinjiang-héraði í því sambandi. Roth bendir á að kórónufárið sýni hversu háð Evrópa sé orðin einstökum svæðum í heiminum, eins og lyf og annar búnaður, framleiddur í Kína, dragi fram. Kínverska stjórnin hafi ekki hikað við að nýta sér þau vand- ræði til pólitísks ávinning. Þá víkur Roth að „fullveldis- málum“, og eru áherslurnar sérlega athyglisverðar. „Aukið evrópskt fullveldi er því mál málanna nú!“ segir hann. Og svo: „Evrópa þarf að verða enn sjálfstæðari varðandi flutninga- mál, orku- og náttúruauðlindir svo fátt eitt sé nefnt.“ Roth sagði hins vegar ótækt að hverfa jafnlangt frá Kína eins og Bandaríkin ætli sér. Því þótt kórónuvírusinn og helstu valdaríki hafi breyttt miklu um alþjóðavæðinguna þá hafi þau ekki afnumið hana. Roth hefur aldrei heyrt um fullveldi ESB (EES) ríkja, svo séð verði. Ekki frekar en flestir flokkar á Íslandi! Stundum æpir það sem ósagt er látið en hitt er aðallega skrítið} Óvænt merkjasending F orsætisráðherra rakti í nýlegu við- tali aðdraganda að myndun ríkis- stjórnarinnar og forsendur fyrir samstarfinu. Annars vegar ákall þjóðarinnar um stöðugleika og hins vegar að ráðherrum kæmi vel saman. Slík hreinskilni er lofsverð og engin ástæða til þess að bera brigður á að einmitt þetta hafi sam- einað flokkana. Þegar stefnumálin skipta engu er auðvelt að mynda ríkisstjórn, því að býsna margir þingmenn eru þægilegir í viðkynningu. Stjórnarflokkarnir sameinuðust um að stöðnun væri samheiti við stöðugleika. Í stöðnun nýtur hinn svifaseini sín. Fyrir rúmum áratug bar misheppnuð gamanmynd sama heiti og þessi pistill. Gagn- rýnandi sagði: „Að upplagi hefur myndin alla burði til þess að verða skondin og lífleg. Leik- arar eru góðir, sagan sniðug og sögusviðið sjarmerandi, en hún nær sér aldrei alveg upp úr þeim stirða fasa sem loðir við.“ Betur er varla hægt að lýsa ríkisstjórninni. Illu heilli hefur kórónuveiran aftur stungið sér niður á Íslandi. Flestir eru sammála um að vel hafi tekist til í vor um viðbrögð. Vísindin réðu ferðinni, en þekking á þessum vágesti var auðvitað takmörkuð þá. Margir töldu sig vita betur en sérfræðingarnir. Þessir sjálfskipuðu spekingar fengu heitið kóvitar í almennri umræðu. Af fyrri glímu við veiruna illskeyttu mátti læra að skjót og fumlaus viðbrögð skipta öllu. Aðgerða- og ákvarð- anafælni eru afdrifarík. Jóhanna Jakobsdóttir, rannsóknasérfræðingur við Mið- stöð í lýðheilsuvísindum við HÍ, er í hópi þeirra sem hafa fylgst best með þróun farald- ursins. Andstætt kóvitunum talar hún af þekk- ingu og reynslu. Hún skrifaði á FB í liðinni viku (samantekt af nokkrum færslum): „Voðalega þarf þessi ríkisstjórn marga fundi til að ræða einfaldan hlut. Það eru meira en tveir sólarhringar síðan ríkisstjórninni var ljóst að það er samfélagssmit (ekki hópsmit) í gangi og þau funda enn. Þetta getur þýtt, ef við erum óheppin, aukavikur í takmörkunum. deCODE raðgreindi sýnin og ríkisstjórnin vissi fyrir mörgum dögum að um samfélags- smit væri að ræða. Við nýttum okkur ekki for- skotið í þeim upplýsingum strax heldur kom- um okkur á þennan stað. Einn dagur getur breytt öllu.“ Jóhanna bendir líka á að heilsugæslan í Reykjavík tók í sumar bara sýni þrjá daga í viku og vísaði sýktu fólki frá. Hún skrifar: „Heilsugæslan þarf að skilja að sýnataka er ekki gerð fyrir einstaklinginn. Það skiptir hann voðalega litlu máli hvort hann greinist degi síðar en það skiptir almannaheill miklu máli hvenær smitrakning fer í gang.“ Þegar loksins var farið gang var sett upp sýning með þremur ráðherrum, sem greinilega vildu ná í hluta af þeirri virðingu sem þríeykið hefur notið. En vandinn snýst ekki um hégóma heldur skjót viðbrögð. Það bað nefnilega enginn um hik og aðgerðaleysi. Benedikt Jóhannesson Pistill Hlauptu hlunkur, hlauptu Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Efnahagskreppan hefur einnig valdið alvarlegum vandamálum í heilbrigðiskerfi landsins. Skortur er á nauðsynlegum búnaði og lyfjum, og kórónuveiran hefur aðeins gert illt verra. Tæplega 500 smit voru greind á laugardaginn; í heildina hafa meira en 3.600 manns greinst með veiruna. Ungbarnadauði hefur aukist nýverið, en á einni nóttu í síð- ustu viku fæddust sjö börn andvana á einum spítala í Harare. Mótmæli bönnuð í borginni Kórónuveirufaraldurinn hefur einnig afhjúpað spillingu sem hefur þrifist meðal æðstu ráðamanna rík- isins. Heilbrigðisráðherra var fjar- lægður úr embætti vegna vafasamra ríkissamninga við fyrirtæki sem seldi ríkinu sóttvarnagrímur á upp- sprengdu verði. Stjórnarandstæðingurinn Jacob Ngarivhume kallaði til mót- mælanna, en hann er formaður stjórnmálaflokksins Transform Zim- babwe. Í aðdragandanum voru mót- mælin bönnuð og hernum og lög- gæsluliðum var beitt gegn þeim sem gerðu tilraun til að mótmæla í borg- inni. Margir voru handteknir, þar á meðal rithöfundurinn Tsitsi Dang- arembga, sem tilnefnd er til Booker- verðlaunanna í ár. Mannréttindasamtökin Am- nesty International hafa fordæmt aðgerðir stjórnvalda og saka þau um kúgun á friðsamlegum mótmæl- endum. Blaðamaður handtekinn Forsetinn hefur tekið harkalega á stjórnarandstæðingum, mótmæl- endum og blaðamönnum á síðustu vikum. Í síðustu viku var rannsókn- arblaðamaðurinn Hopewell Chi- n‘ono, sem hefur fjallað ítarlega um spillingu í ríkisstjórninni, handtek- inn til að hvetja fólk til að mótmæla stjórnvöldum á Facebook. Chin‘ono hefur verið hávær gagnrýnandi Mnangagwa, en handtaka hans olli miklu fjaðrafoki meðal stjórnarand- stæðinga. Þá hefur Mnangagwa og rík- isstjórn hans kennt erlendum áhrif- um um vandamálin í landinu. Tals- maður Zanu-PF, stjórnmálaflokks forsetans, kallaði sendiherra Banda- ríkjanna í landinu „þrjót“ og sakaði hann um að kynda undir uppreisn- arhreyfingum í landinu. Þá var sendiherranum hótað brottvísun úr landinu. Í kjölfar handtöku Chin‘ono hafa stjórnvöld hert aðför sína gegn stjórnarandstæðingum. Í ávarpi á þriðjudaginn hótaði forsetinn að hart yrði tekið á þeim sem reyna að sundra þjóðinni og veikja stjórnkerfi landsins. Mótmælendur teknir höndum í Simbabve AFP Simbabve Emmerson Mnangagwa tók við embætti forseta í kjölfar valdaráns sem endaði með afsögn Roberts Mugabe, sem var forseti í 37 ár. FRÉTTASKÝRING Pétur Magnússon petur@mbl.is Götur miðborgar Harare,höfuðborgar Simbabve,voru nær tómar á föstu-daginn síðasta. Slík sjón hefur orðið algeng í borgum víða um heim, þar sem útgöngubönn vegna kórónuveirufaraldursins hafa verið sett, en í Harare var ástæðan önnur. Hundruð hermanna og lög- gæsluliða höfðu verið kallaðir til vegna mótmæla sem áttu að fara fram í borginni á föstudaginn. Vega- tálmar sem voru reistir á meðan út- göngubanni stóð yfir voru notaðir til að stýra umferð inn í borgina til að koma í veg fyrir mótmælin, sem beindust gegn forsetanum, Emmer- son Mnangagwa, og ríkisstjórn hans, sem hefur verið uppvís að spillingu og óstjórn, ekki síst í kjölfar, og vegna, heimsfaraldursins. Kyndilberi nýrra tíma Þegar 37 ára valdatíð harðstjór- ans Roberts Mugabe lauk í kjölfar valdaráns árið 2017 vonuðust margir eftir nýjum tímum í Simbabve. Fyrr- verandi varaforseti Mugabe, Emm- erson Mnangagwa, tók við embætti forseta og hét því að minnka spill- ingu, rétta af efnahag landsins, og starfa í þágu allra landsmanna. Við honum blöstu hindranir. Eftir um fjögurra áratuga óstjórn var Simbabve í slæmu ásigkomulagi. Nýi forsetinn málaði sig engu að síð- ur sem kyndilbera nýrra tíma í rík- inu. Nú, þremur árum síðar, er efna- hagur Simbabve í molum. Verðbólga hefur náð rúmlega 700 prósentum og matarskortur er útbreiddur. Í vik- unni varaði Matvælaáætlun Samein- uðu þjóðanna (WFP) við því að fæðuöryggi um 60% Simbabvem- anna væri í hættu. Efnahagsleg áhrif kórónuveiru- faraldursins hafa verið mikil í Sim- babve, en margir íbúar landsins segja að efnahagurinn sé verr settur nú en hann var í valdatíð Mugabe. Á mánudaginn opnaði kauphöll Simbabve eftir að hafa verið lokuð í einn mánuð, en henni var lokað til að vernda gjaldmiðil ríkisins í lok júní. Á sama tíma takmörkuðu stjórnvöld heimildir til símgreiðslna, sem voru sagðar notaðar í ólöglega starfsemi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.