Morgunblaðið - 05.08.2020, Side 14

Morgunblaðið - 05.08.2020, Side 14
14 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 Föstudaginn í síðustu viku áttu að verða tímamót á netaverkstæðinu á Skarfabakka því eftir langa starfsævi ætlaði heiðursmaðurinn Sigþór Sig- urðsson að láta af störfum eftir 23 ára starf hjá okkur í Hampiðjunni, orðinn rúm- lega 71 árs að aldri. Loksins þegar átti að njóta efri áranna eftir ævi- langa vinnu, laus við alla ábyrgð og frelsi til að gera það sem manni sýnist, þá rann tíminn út. Slíkt er erfitt að skilja en engu er hægt að ráða og engu er hægt að breyta. Sigþór ólst upp frá unga aldri við netagerð hjá afa sínum á Kirkjusandi en fór síðar á sjóinn frá Ísafirði og var lengst af á skuttogaran- um Guðbjarti ÍS. Árið 1995 byrjaði hann í hálfu starfi hjá Netagerð Vestfjarða því þeir voru tveir af Guðbjarti sem skiptu með sér einu starfi á sjó og einu í landi. Tveimur árum síðar flytja þau hjónin suður og Sigþór hefur störf í Hampiðjunni sem þá var í Bakkaskemm- unni sem stendur við Reykjavíkurhöfn. Sigþór tók sveinspróf í netagerð vorið 1999. Þegar landsins full- komnasta netaverkstæði var byggt árið 2008 við Skarfa- bakka þá fluttist vinnustaður hans frá Reykjavíkurhöfn inn í Sundahöfn en þar var komið mikið og gott vinnu- pláss og fullkomin tæki og búnaður til að létta störfin svo viðbrigðin voru mikil. Sigþór var ósérhlífinn og mikill fagmaður og varð fljótlega aðstoðarverkstjóri og skömmu síðar verkstjóri. Hann var fær stjórnandi sem Sigþór Sigurðsson ✝ Sigþór Sig-urðsson fædd- ist 15. mars 1949. Hann lést 20. júlí 2020. Útförin fór fram 30. júlí 2020. náði að halda öll- um þráðum í höndum sér þótt mikið væri í gangi og hafði yf- irsýn yfir öll verkefni þótt á stundum væru þau fjölmörg. Tíminn til að vinna þau var oft skammur og álag- ið mikið því ekki mátti láta skipin bíða. Honum var einkar lagið að útdeila verkum þannig að allir hefðu verkefni við hæfi og honum sjálfum féll aldrei verk úr hendi. Þrátt fyrir mikla og oft og tíðum krefjandi vinnu fann Sigþór tíma fyrir tómstundir og spilaði golf í frítímanum og það veitti honum mikla ánægju. Seinni árin var farið með vinum og fjölskyldu á suðrænar slóðir og í þeim ferðum naut hann sín vel. Á sjónum vandist hann því að rökræða um pólitík og málefni líðandi stundar og það fylgdi honum í land. Slíkri umræðu hafði hann gaman af og var alltaf með skýrar skoðanir á öllum mál- um og fylgdi staðfastur lífs- skoðun sinni. Fyrir hönd Hampiðjunnar hf. og samstarfsmanna, sem hafa misst góðan félaga og vin, vil ég koma á framfæri þakklæti fyrir óeigingjarnt og eljusamt starf Sigþórs og framlag hans til vaxtar og viðgangs fyrirtækisins. Gerði, börnunum þremur og fjölskyldum þeirra sendum við okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Missir ykkar er mikill og sár en megi minn- ingin um góðan dreng styrkja ykkur og efla. Hjörtur Erlendsson forstjóri. Fyrir mistök birtist þessi grein ekki með öðrum greinum um Sigþór í gær, á útfarardegi. Morgunblaðið biðst vel- virðingar á mistökunum. ✝ ValgerðurHrefna Gísla- dóttir fæddist í Reykjavík 22. febr- úar 1927. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 26. júlí 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Gísli Jóhannsson, f. 1891, d. 1978, og Grímheiður Elín Pálsdóttir, f. 1895, d. 1986. Systkini hennar voru Jónína Margrét, f. 1921, d. 2011, Ingibjörg, f. 1923, d. 2008, Jó- hann, f. 1925, d. 1968, Páll Garð- ar, f. 1928, d. 1951, og Magnús Ragnar, f. 1930, d. 2016. Valgerður giftist 1. maí 1954 Andrési Gilssyni, stýrimanni, f. desember 1958, d. 9. mars 1997, kona hans er Kristjana Frið- björnsdóttir, f. 20. ágúst 1959. Börn þeirra eru Friðbjörn, f. 1982, Elísa, f. 1988, og á hún einn son. 3) Grímheiður, f. 18. júlí 1961, maður hennar er Jó- hann Bogason, f. 7. janúar 1958. Þeirra börn eru Una Björk, f. 1980, hennar maður er Valur Ingvi Magnússon, f. 1977, og eiga þau tvö börn. Íris Hrund, f. 1985, hennar maður er Nick Ward, f. 1988, og eiga þau einn son. Andrés Valur, f. 1991, kona hans er Katrín Harðardóttir, f. 1991, og eiga þau tvær dætur. Valgerður ólst upp í Reykja- vík ásamt foreldrum sínum og systkinum. Hún lærði hattasaum í Iðnskólanum og fór til Dan- merkur í húsmæðraskóla ásamt Ingibjörgu systur sinni. Val- gerður starfaði lengst af við verslunarstörf. Valgerður verður jarðsungin frá Áskirkju í dag, 5. ágúst 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. 17 júní 1926, d. 21 október 2015. For- eldrar hans voru hjónin Gils Magn- ússon, f. 1895, d. 1930, og Ingveldur Pétursdóttir, f. 1896, d. 1987. Andrés og Val- gerður eignuðust þrjú börn. Börn þeirra eru: 1) Guð- ríður, f. 10. septem- ber 1955, maður hennar var Val- geir Daðason, f. 30. ágúst 1951, d. 28. febrúar 2012. Dætur þeirra eru Hrefna, f. 1976, henn- ar maður er Ingvar Hermanns- son, f. 1979, og eiga þau þrjú börn. Andrea, f. 1981, og á hún þrjú börn. 2) Páll Garðar, f. 22. Elsku mamma mín, nú sitjum við hérna systurnar og hugsum um þig, hversu heppnar við vorum að hafa þig sem mömmu. Það eru margar góðar minningar sem við eigum og getum hlýjað okkur við. Margs er að minnast, t.d. allar úti- legurnar sem þið pabbi fóruð með okkur um landið ásamt Nínu og Brandi. Við hugsum oft til þess hvernig þið komuð okkur öllum fyrir, þið tvö og þrír krakkar í lítilli Volkswagen-bjöllu ásamt farangri. Ekki var lifað á sjoppufæði, það var eldaður hafragrautur á morgnana því það mátti enginn vera svangur, allir þurftu að hafa næga orku og var allur matur eldaður á prímus. Þú varst afskaplega bóngóð og nutum við systkinin góðs af því. Það var sama hvort maður hringdi að nóttu eða degi til, alltaf sagðir þú já. Eins varst þú dugleg að snat- tast með ömmu og systur þínar. Þú varst alltaf tilbúin að passa barna- börnin, fórst með þau í sund og barnamessur á sunnudögum. Þetta var þér allt svo lítið mál. Við fjölskyldan höfum verið að minnast þess hversu gott samband ykkar pabba var og hversu mikla virðingu þið báruð fyrir hvort öðru. Þið fóruð í tjaldútilegur tvö saman eftir að við hættum að koma með. Seinna meir fóruð þið árlega til Kanarí þar sem þið dvölduð í 2-3 mánuði. Fyrir nokkrum árum fór stór- fjölskyldan saman til Tyrklands og nutum við öll ferðarinnar og mun hún hlýja okkur um ókomin ár, þú og pabbi með börnum ykkar, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabörnum. En lífið var ykkur ekki alltaf auðvelt. Það var ykkur mikið áfall þegar Palli bróðir dó langt fyrir aldur fram og upp úr því missti pabbi heilsuna. Það var aðdáunar- vert að sjá hversu dugleg þú varst að hugsa um hann, fara með hann í bíltúr, sund og annað sem hann hafði gaman af. Ekki er hægt að minnast mömmu nema að tala um það að enginn mátti fara svangur frá henni og þegar við systur vor- um með afmæli voru alltaf nokkrar kökur frá mömmu. Mamma var bara svona, alltaf að gefa af sér. Elsku mamma, hvíl í friði og takk fyrir að hafa verið mamma okkar. Guðríður (Gurrý) og Grímheiður (Heiða). Elsku amma, það eru svo marg- ar minningar sem koma upp í hug- ann þegar ég hugsa til baka. Þú Valgerður Hrefna Gísladóttir ✝ Árni Páll Jó-hannsson fædd- ist í Stykkishólmi 13. október 1950. Hann lést 23. júlí 2020 á Landspítalanum. Foreldrar hans voru Unnur Ólafsdóttir, f. 23. september 1910, d. 28. október 2001, og Jóhann K. Rafns- son, f. 10. febrúar 1906, d. 6. júlí 2000. Eftirlifandi bróðir hans er Rafn J. Jóhannsson, f. 29. maí 1939, kona hans er Birna G. Pétursdóttir. Þau eiga fimm börn, 14 barna- börn og 14 barnabarnabörn. Árni Páll kvæntist 31. maí 1982 eftirlifandi konu sinni, Sólveigu Benjamínsdóttur lækni, f. 21. apr- íl 1952. Börn þeirra eru: 1) Þor- kell Ólafur, f. 25. febrúar 1983, viðskiptafræðingur. Hann er kvæntur Yabei Hu, þau eiga dótt- lista- og handíðaskóla Íslands 1975-88. Upp úr 1980 fór hann að fást við kvikmyndagerð og vann tals- vert næstu áratugi við gerð kvik- mynda, aðallega sem leikmynda- hönnuður. Auk þess kenndi hann við Alþjóða kvikmyndaskólann í Köln 1997 og ’98. Í lok tíunda ára- tugarins fór hann að hanna sýn- ingar og söfn. Hann hannaði skála Íslands fyrir Heimssýn- inguna í Lissabon 1998 og í Hann- over 2000 auk fleiri sýninga er- lendis, m.a. í París, London og Prag. Á Íslandi hannaði hann fjölmargar sýningar, t.d. Mor- mónasýningu á Hofsósi, Galdra- sýningu á Ströndum, Bátahúsið á Siglufirði og Fransmenn á Ís- landi, Fáskrúðsfirði. Hann hélt myndlistarsýningar frá 1968 fram á þennan dag, bæði einka- og samsýningar. Hann fékk Edduna fyrir leik- mynd ársins 2007 og 2009 og heiðursverðlaun Eddunnar 2007. Vegna fjöldatakmarkana á samkomum verður útför aðeins opin nánustu vinum og aðstand- endum. urina Andreu Yang Chi. 2) Benjamín Náttmörður, f. 13. júní 1985, tónlist- armaður. Hann á soninn Örlyg Óma með barnsmóður sinni Stefaníu Svav- arsdóttur. Áður var Árni Páll kvæntur Magdalenu Sigurð- ardóttur hjúkrun- arfræðingi, f. 1952. Sonur þeirra er Skrýmir, f. 6. ágúst 1975, kennari, kvæntur Halldóru Jóns- dóttur, hún átti fyrir dæturnar Ísold og Hólmfríði Jakobsdætur. Þau eiga dótturina Sögu. Árni Páll lærði ljósmyndun en fékk auk þess snemma áhuga á myndlist. Hann var ljósmyndari á Dagblaðinu, síðar DV, fram yf- ir miðjan níunda áratuginn. Jafn- framt kenndi hann við Mynd- Árni Páll, kær frændi, er látinn. Hann átti eftir nokkra mánuði í sjötugt þegar kallið kom. Ungur lærði Árni Páll til ljós- myndara, ef til vill vegna áhrifa frá föður sínum, Jóhanni Rafnssyni, sem átti mikið safn ljósmynda. Það safn varð grunnurinn að Ljós- myndasafni Stykkishólms. Það var margt sem prýddi Árna Pál. Hann var vel að manni, ljós yfirlitum og fríður. Hann var stórbrotinn persónuleiki og kraft- mikill í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Ósérhlífinn, vinnusamur og sérlega áræðinn í listsköpun sinni. Það var aldrei neitt hefð- bundið við Árna Pál. Þrítugur að aldri fékk hann listamannalaun ásamt félaga sín- um og fyrrverandi bekkjarbróður mínum, Magnúsi Kjartanssyni. Þeir kvittuðu fyrir launin með sýningu í Nýlistasafninu 1981. Árni Páll sendi móður minni, Guð- rúnu Rafnsdóttur, boðsbréf á sýn- inguna. Óhætt er að segja að sú sýning var ekki lík neinni sýningu sem hún hafði áður séð. Árni Páll var frumlegur og stórhuga og steig ný spor við hvert verk. Hann elskaði að búa til nýja heima og kom víða við. Hann hélt einkasýningar og tók þátt í samsýningum. Þekktastur er hann þó líklega fyrir gerð leik- mynda fyrir fjölda íslenskra kvik- mynda, hönnun sýningarsetra, svo sem Franska spítalans á Fáskrúðsfirði, Mormónasafnsins á Hofsósi og Galdrasafnsins á Hólmavík og hönnunar sýning- arskála Íslands á heimssýning- um. Hann sá alltaf möguleika en ekki takmarkanir. Þess ber vitni umsókn hans til Umhverfis- og tækninefndar Skagafjarðar árið 2000. Bókun nefndarinnar var svohljóðandi: „4. Naust, Hofsósi – Árni Páll Jóhannsson sækir um leyfi til að endurbyggja fiskhjall í Naustinu. Meðfylgjandi teikning gerð af Árna Páli Jóhannssyni. – Samþykkt.“ Það leið ekki á löngu áður en Árni Páll hafði komið upp frábæru sumarhúsi að Naustum. Hann bjó einnig til Hólmatjörn, þar sem fjölskyldan hafði búið sér heimili. Hátt í þriðjung ævinnar barð- ist Árni Páll við krabbamein. Hann vildi helst ekki ræða líðan sína en í öll þessi ár barðist hann við sjúkdóminn og kom ótrúlega miklu í verk þrátt fyrir veikindin. Sólveig, kona Árna Páls, stóð við hlið hans sem klettur. Framlag hans til samfélagsins er ómetanlegt. Konu Árna Páls, Sólveigu, börnum hans, bróður hans, Rafni og fjölskyldu, sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Rósa Eggertsdóttir og Gunnar Jónsson. Við systkinin minnumst hér okkar kæra frænda og vinar, Árna Páls Jóhannssonar. Hann barðist lengi við alvarleg veikindi sem að lokum höfðu betur. Árni Páll var yngstur af kynslóð móður okkar og voru þau systkinabörn. Við er- um elst næstu kynslóðar og ald- ursmunurinn því lítill. Allt frá bernskuárum þekktum við Árna Pál sem stóra, flotta frænda okkar frá Stykkishólmi. Hann var hávax- inn, ljós yfirlitum og glæsilegur með blik í auga og jafnvel brillj- antín í hárinu. Hann sýndi Ísleifi 14 ára þá ræktarsemi sem ung- lingur að taka hann með sér og vinum sínum á bíó að sjá listrænar kvikmyndir, til dæmis grínmyndir Tati. Þegar hann lauk ljósmynda- námi vildi svo til að Fríða varð stúdent um sama leyti og þótti honum viðeigandi að myndatakan við þetta tækifæri yrði lokaverk- efni hans. Þá voru teknar bæði hefðbundnar stúdentsmyndir og svo sveinsstykkið, sem var port- rettmynd. Áhugi hans á listsköpun og hönnun kom snemma í ljós og á þeim sviðum skapaði hann sér starfsvettvang. Á þessum árum hittum við hann við opnanir á myndlistarsýningum hans, sem margar hverjar voru mjög nýstár- legar og mínímalískar, eða á rölti í miðbæ Reykjavíkur og á kaffi- húsum. Alltaf urðu fagnaðarfundir og mikið spjallað. Áratugirnir liðu við nám og störf, stofnun fjöl- skyldna og barnauppeldi hérlendis og erlendis. Alltaf þegar fundum bar saman voru sagðar fréttir af verkefnum sem stóri frændi var að vinna að, leikmyndir í kvikmynd- um og leikhúsi, söfn sem verið var að skapa eða endurskapa, jafnvel hönnun sýningarskála á Heims- sýningum. Hann gerði líka upp hús og byggði sér og fjölskyldu sinni hús og jafnvel endurskapaði landslag í sínu nánasta umhverfi. Sköpunarkraftur og hugkvæmni var óþrjótandi og starfsorkuna var erfitt að hemja. Hann var alltaf að skapa og töfra fram listaverk ým- ist stærri en hið almenna ímynd- unarafl ræður við eða smágerð fín- leg verk sem sögðu margfalt meiri sögu en umfang þeirra gaf til kynna og sýndu svo vel næmni hans sem listamanns. Við undurfagra stuðlabergsvík á Höfðaströnd í Skagafirði byggðu Árni Páll og Sólveig sér hús. Gam- alt eyðibýli, Naust, breyttist í íbúð- arhús sem fellur einstaklega vel að umhverfinu og umvefur íbúa skjóli og nútímaþægindum án þess að raska einstakri fegurð víkurinnar og umhverfis hennar. Handbragð og hugkvæmni Árna Páls gerir húsið að listaverki. Árni og Sólveig byggðu sér einnig hús í Ölvisholti í Holtum og þar kom hann sér upp góðri vinnustofu. Við munum aldr- ei geta fullþakkað Árna Páli að hafa skapað þann sælureit sem Naust eru og meðal annars þar mun minningin um hönnunarhæfi- leika hans, listfengi og færni lifa. Minningar um stóra, flotta frænda okkar munu lifa með okk- ur, hann var ekki einungis stór á velli með stóra persónu, heldur var hann stór í öllum sínum viðfangs- efnum, skarpgreindur, húmoristi, næmur og listfengur eldhugi sem fannst ekkert verkefni óyfirstígan- legt. Þakka þér samfylgdina, kæri frændi og vinur. Við sendum Sólveigu, sonum Árna og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Arnfríður Ólafsdóttir, Ísleifur Ólafsson, Sigríður Ólafsdóttir. Okkar elskaði föðurbróðir Árni Páll er látinn. Hann hefur í gegn- um árin verið okkur sem bróðir og rataði jafnvel og við um búrið á æskuheimili okkar. Þar inni voru oft margir í einu að leita sér að góðgæti í gogginn sem þar leynd- ist. Þegar eitthvað hefur verið um að vera hjá okkur fjölskyldunni þá Árni Páll Jóhannsson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI PÁLL JÓHANNSSON listamaður, Hólmatjörn í Holtum, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 23. júlí. Útför fer fram í dag, miðvikudaginn 5. ágúst. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir athöfnina. Sólveig Benjamínsdóttir Skrýmir Árnason Halldóra Jónsdóttir Þorkell Ó. Árnason Yabei Hu Benjamín N. Árnason barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.