Morgunblaðið - 05.08.2020, Side 23

Morgunblaðið - 05.08.2020, Side 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 Enska liðið Brentford var í sviðsljósinu í gærkvöldi þegar fram fór úrslitaleikurinn um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. Rifjaðist þá upp þegar harðir stuðningsmenn Brentford lögð- ust á sveif með íslenska landslið- inu rétt fyrir aldamótin. Ekki veitti af óvæntum stuðn- ingi því Íslendingar léku þá gegn heimsmeisturum Frakka á Stade de France í París í síðasta leik í undankeppni EM 2000. Undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar hafði Ísland komið mjög á óvart í sterkum riðli og átti Ísland möguleika á að komast á EM, eða í umspil, þegar einungis leik- urinn í París var eftir. Lið Brentford var nýliði í c- deildinni haustið 1999 og hafði unnið d-deildina um vorið. Her- mann Hreiðarsson var leikmaður liðsins og stuðningsmenn Brent- ford voru ekki vanir því að leik- menn liðsins ættu möguleika á að komast á stórmót. Mættu þeir því til Parísar og studdu sinn mann á leiknum. „Það var engu líkara en að 99 prósent áhorfenda á Stade de France hefðu verið slegnir í rot með óvæntri uppreisn. Hinir, þar á meðal fimmtíu stuðningsmenn Brentford sem mættir voru til að styðja Hermann Hreiðarsson, gengu hreinlega af göflunum,“ skrifaði breska dagblaðið Gu- ardian um stemninguna þegar Brynjar Björn Gunnarsson jafn- aði 2:2. Stuðningsmenn Brentford mega sætta sig við að leika áfram í b-deildinni næsta vetur. En ef til vill geta hörðustu stuðn- ingsmennirnir gert sér dagamun og stutt Þrótt í Vogum en Her- mann tók þar við stjórnartaum- unum á dögunum. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Eftir fimm mánaða hlé vegna kór- ónuveirufaraldursins hefst Evr- ópudeildin í knattspyrnu á nýjan leik í dag. Keppnin verður með nokkuð breyttu sniði en áður og eft- ir að 16-liða úrslitin klárast í dag og á morgun mun restin af keppninni klárast með hraðmóti í Þýskalandi. Þá verður Meistaradeildin einnig spiluð í ágúst í Portúgal en alls verða 26 Evrópuleikir á dagskrá næstu átján daga. Útsláttarkeppnin er almennt haldin með því sniði að liðin leika heima og að heiman og þurfa að hafa samanlagt betur yfir einvígin tvö til að komast í næstu umferð. Sex af átta fyrri viðureignum í 16- liða úrslitunum fóru fram 12. mars, rétt áður en öllu mótahaldi var af- lýst. Í þessum sex leikjum verða einvígin kláruð með hefðbundnu sniði, það lið sem á eftir heimaleik tekur á móti andstæðingi sínum á heimavelli næstu tvö kvöld. Aftur á móti tókst ekki að spila fyrri leikinn í viðureignum Inter – Getafe og Se- villa – Roma. Uppgjör þeirra fer fram með nýja sniðinu, liðin mætast í einum leik í Þýskalandi þar sem sigurvegarinn fer áfram. Þannig munu svo fjórðungs- úrslitin öll vera leikin, með einum leik milli liða í borgunum Köln, Düs- seldorf, Gelsenkirchen og Duisburg, 10. og 11. ágúst. Undanúrslitin verða svo spiluð 16. og 17. ágúst áð- ur en úrslitaleikurinn sjálfur fer fram í Köln 21. ágúst. Ragnar gæti mætt stórliði Þrjú lið standa ansi vel að vígi nú þegar. Enska lið Manchester Unit- ed vann 5:0-sigur á LASK í Aust- urríki og því ætti leikur liðanna á Old Trafford í kvöld að vera forms- atriði. Basel vann 3:0-útisigur á Frankfurt í Þýskalandi í mars en liðin mætast í Sviss annað kvöld. Bayer Leverkusen er svo einnig í vænlegri stöðu eftir 3:1-sigur á Rangers í Skotlandi en liðin mætast á BayArena á morgun. Staðan er töluvert jafnari í öðrum einvígum. Olympiacos og Wolves skildu jöfn í Grikklandi, 1:1, og mætast í Wolverhampton á Eng- landi annað kvöld. Ögmundur Krist- insson markvörður er genginn til liðs við grísku meistarana en getur ekki byrjað að spila með liðinu fyrr en á næstu leiktíð, því miður þar sem aðalmarkvörður þeirra, José Sá, er meiddur. Shahktar Donetsk vann 2:1-sigur í Þýskalandi gegn Wolfsburg og mætast liðin í Kiev í kvöld. Þá fær landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson og félagar hans í FC København Basaksehir í heim- sókn frá Tyrklandi sem vann heima- leikinn, 1:0. Takist danska liðinu að snúa taflinu við í kvöld mun það að öllum líkindum mæta Manchester United í fjórðungsúrslitunum. Það eru síðan tvo einvígi í 16-liða úrslitunum sem ekki eru byrjuð. Inter frá Ítalíu og spænska liðið Ge- tafe mætast í Gelsenkirchen í kvöld og spila aðeins einn leik um að kom- ast áfram, rétt eins og Sevilla og Roma gera í Duisburg annað kvöld. Allir leikirnir fara auðvitað fram fyrir luktum dyrum eins og tíðkast hefur í kjölfar veirufaraldursins. Þá munu liðin geta skipt inn allt að fimm varamönnum í hverjum leik eins og leyft hefur verið í flestum deildarkeppnum í sumar og fari leikir í framlengingu má skipta einu sinni til viðbótar. Þótt Evrópuleik- irnir á næstu vikum verði ekki eins og við þekkjum þá, er ánægjulegt að menn hafi fundið leið til að klára þessar virtu keppnir, sem skipta knattspyrnuna svo miklu máli. kristoferk@mbl.is Evrópudeildin snýr loks aftur  Ragnar Sigurðsson og félagar í København þurfa sigur á heimavelli  Manchester United í vænlegri stöðu  Ögmundur ekki gjaldgengur AFP Líklegir Bruno Fernandes og Anthony Martial eru sigurstranglegir með Manchester United í Evrópudeildinni. Knattspyrnuþjálfarinn Ólafur Kristjánsson er mættur til starfa hjá danska liðinu Esbjerg en hann hætti með FH á dögunum og tók við danska liðinu. Undirbúningurinn fyrir næsta tímabil í Danmörku er farinn af stað en Esbjerg mætir Skive í 1. umferð dönsku B-deildarinnar 13. september næstkomandi. Féll Esbjerg úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Fyrsti leikurinn undir stjórn Ólafs verður gegn Aarhus Fremad í æfingaleik næstkomandi mánudag. Mættur til starfa í Danmörku Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Mættur Ólafur Kristjánsson er mættur til Danmerkur. Körfuboltamaðurinn Jón Arnór Stefánsson er á leiðinni í Val úr KR samkvæmt heimildum karfan.is sem greindi frá þessu í gær. Jón Arnór er 38 ára gamall og af mörgum talinn besti körfubolta- maður Íslandssögunnar. Hann á 20 ára meistaraflokksferil að baki og þar af lék hann þrettán tímabil er- lendis. Finnur Freyr Stefánsson er þjálf- ari Vals en hann gerði KR að Ís- landsmeisturum fimm sinnum árin 2014 til 2018, þrisvar með Jón Arn- ór innan sinna raða. Jón Arnór sagður á leiðinni í Val Morgunblaðið/Árni Sæberg Bestur Er Jón Arnór Stefánsson á leiðinni á Hlíðarenda í vetur? Norðurlandamótinu í júdó sem átti að fara fram 12.-13. september í Laugardalshöll hefur verið frestað vegna kórónuveirunnar. Júdó- samband Íslands greindi frá þessu í fréttatilkynningu í gær. Búist var við um 300 júdómönnum víðs vegar að frá Norðurlöndunum. Ákvörðunin var tekin af formönn- um júdósambanda Norðurlandanna í sameiningu, en stefnt er að því að halda næsta Norðurlandamót á Ís- landi í apríl 2021. Júdómótinu frestað þar til í apríl FÓTBOLTI Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Arnór Gauti Jónsson var búinn að sýna góða takta í úrvalsdeildinni með Fylki í sumar en verður nú fjarri góðu gamni næstu vikur eftir að hafa ristarbrotnað á æfingu. „Ég braut bein í ristinni, ekki í fyrsta sinn, þetta gerðist líka í desember,“ sagði Arnór Gauti í samtali við Morgunblaðið í gær en hann fór í að- gerð um síðustu helgi. „Ég fékk skrúfu og verð fyrir vikið fljótari að koma mér í gang aftur, verð styttri tíma í gifsi og verð tilbúnari í átök þegar ég kem aftur. Í heildina verð ég frá í sex, sjö vikur vonandi. Maður veit auðvitað aldrei nákvæmlega hvernig þetta fer en ég vona það besta. Vonandi verð ég kominn á fullt eftir sex vikur.“ Arnór er 18 ára gamall en hann kom í Árbæinn frá Aftureldingu í sumar þar sem hann var fasta- maður í fyrstu deildinni í fyrra. Það virtist þó ekki vera of stórt stökk fyrir miðjumanninn unga sem hefur komið við sögu í sex deildarleikjum fyrir Fylki í sumar og byrjað fjóra þeirra. Árbæingar hafa spilað vel í sumar, eru í 3. sæti eftir níu leiki, en margir ungir leikmenn hafa fengið að spreyta sig með liðinu. „Ég var búinn að spila nokkra leiki í röð og það var frábært að geta það, nýkominn í gott lið. Þetta er frábært lið og þegar því gengur vel, þá gengur öllum vel. Það gerði mér auðveldara fyrir að komast inn í þetta,“ sagði Arnór sem er von- góður um að geta spilað sitt hlutverk fyrir Fylki áður en tímabilinu lýkur. Það er ekki ólíklegt, sem stendur á mótið ekki að klárast fyrr en í lok október og þá er búið að fresta næstu leikjum vegna hertra aðgerða stjórnvalda vegna kór- ónuveirunnar. „Nú er verið að fresta leikjum aftur, sem auð- vitað hjálpar mér aðeins, þótt auðvitað sé þetta ástand hundleiðinlegt. Nú er aðallega bara leið- inlegt að vera meiddur og geta ekki einu sinni horft á fótbolta!“ sagði Arnór Gauti við Morg- unblaðið. Ekki einu sinni hægt að horfa á  Arnór Gauti verður frá í sex til átta vikur Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Efnilegur Arnór Gauti Jónsson hefur komið sterk- ur til leiks með Fylki í úrvalsdeildinni en verður nú frá næstu vikur eftir að hafa ristarbrotnað. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið að engir áhorfendur verði leyfðir á lands- leikjum á vegum sambandsins í sept- ember vegna kórónuveirunnar. Norska knattspyrnusambandið greindi frá þessu. Íslenska karlalandsliðið leikur tvo leiki í mánuðinum í Þjóðadeildinni; á heimavelli gegn Englandi og á úti- velli gegn Belgíu. Íslenska kvennalandsliðið leikur sömuleiðis tvo leiki í september. Eru þeir báðir í undankeppni EM og á heimavelli. Gegn Lettlandi 17. sept- ember og Svíþjóð 22. september. Fámennt í Laugardal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.