Morgunblaðið - 05.08.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 05.08.2020, Síða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI S P LÚNKUNÝ OG STÓRSKEMMT I L EG RÓMANT Í SK GAMANMYND. KAT I E HOLMES JOSH LUCAS Sýnd með íslensku tali HEIMSFRUMSÝNING! Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe in aðalhlutverki. Grímuklæddur gestur gengur hér hjá verki Andys War- hols af Maó, formanni kínverska kommúnistaflokksins, frá árinu 1972, á sýningu á verkum bandaríska lista- mannsins vinsæla sem hefur verið opnuð í Tate Modern- safninu í London. Tate-söfnin í Bretlandi voru opnuð að nýju fyrir helgi, eftir að hafa verið lokuð síðan í mars. Aðgangur er háður takmörkunum, gestir þurfa að bóka miða fyrir fram og er fáum hleypt inn í einu. AFP Tate-söfnin bresku opin að nýju Nýjasta breiðskífa bandarísku tónlistarkonunnar Taylor Swift, Folklore, sem kom út með litlum fyr- irvara 24. júlí, fór beinustu leið í fyrsta sæti plötu- sölulistans þar í landi. Um 846 þúsund eintök seldust á einni viku sem þykir harla gott nú á tímum tónlistarstreymis og minnkandi plötusölu víða um lönd. Dagblaðið New York Times telur að þennan árang- ur megi að miklu leyti þakka umfangsmikilli og út- hugsaðri markaðsherferð vikurnar fyrir útgáfu plöt- unnar. Útgáfudagur var ekki kunngjörður fyrr en um sólarhring áður og kann það líka að hafa vakið meiri áhuga fyrir plötunni. Svo merkilega vill til að aðeins tvær aðrar plötur hafa selst betur fyrstu viku eftir útgáfu á síðustu fjórum árum og eru það síðustu plötur Swift, Reputa- tion og Lover. Reputation kom út 2017 og seldust 1,2 milljónir eintaka af henni fyrstu vikuna. Lover kom út í fyrra og seldust 867 þúsund eintök af henni. Hina miklu plötusölu nú má eflaust líka þakka til- boðum á vefsíðu Swift því þar má fá ýmsan varning tengdan henni sendan heim með plötunni og má þar nefna snjallsímastanda og peysur merktar Swift. Plata Swift beint í toppsætið AFP Söluhá Taylor Swift hefur gert það gott hin síðustu ár. Bandaríski konsertpíanistinn Leon Fleisher er látinn, 92 ára að aldri. Fleisher varð á sjötta og sjöunda áratugnum einn vinsælasti klassíski píanóleikarinn í heimalandinu, auk þess að leika víða um lönd, en hætti þá að geta beitt hægri hendinni, sökum áunninna álagsmeiðsla. Í mörg ár kom hann því fram á tón- leikum og lék, auk þess að hljóðrita, efnisskrá fyrir einungis vinstri höndina. Þótti hann ná frábærum árangri á því sviði og frumflutti til að mynda mörg verk er voru sér- staklega samin fyrir hann. Tók hann einnig að stjórna hljómsveit- um og kenna og kenndi hann mast- erklassa, nú síðast á netinu í liðinni viku. Fleisher reyndi árum saman að nota hægri höndina að nýju, og með aðstoð sérstakrar nuddtækni og bótoxsprauta tók hann árið 1995 að leika opinberlega að nýju með báð- um höndum, og þótti rýnum sem og aðdáendum hann gera það listavel. Píanóleikarinn Leon Fleisher allur Við flygilinn Leon Fleisher leikur hér á tónleikasviði, með báðum höndum. Rappsveitin Afkvæmi guðanna hef- ur gefið út lag eftir 18 ára hlé og ber það titilinn „DramaLama“. Í tilkynningu frá sveitinni segir að lagið fjalli um tilvistarkreppur, hortugheit og rokk og ról og má hlusta á það bæði á YouTube og Spotify með því að slá Dramalama í leitarglugga. Afkvæmi guðanna skipa Elvar Gunnarsson og Kristján Þór Matthíasson en Páll „Guli drek- inn“ Þorsteinsson féll frá á síðasta ári. Sveitin gaf síðast út breiðskíf- una Ævisögur árið 2002 og var hún tilnefnd til Íslensku tónlistarverð- launanna árið 2003. Afkvæmi guðanna rjúfa 18 ára þögn Hissa Stilla úr myndbandi við lagið „DramaLama“ sem finna má á YouTube. Enski laga- og söngleikjasmiðurinn Andrew Lloyd Webber er einkar ósáttur við kvikmyndina sem leik- stjórinn Tom Hooper gerði eftir hinum vinsæla söngleik hans Cats, eða Kettir. Myndin var frumsýnd í fyrra og hlaut afar neikvæða gagn- rýni hvarvetna. Í viðtali við The Sunday Times segir Webber að gallinn við nálgun Hoopers hafi verið sá að hann vildi fara alveg nýja leið og vildi ekki ráðfæra sig við neinn sem kom að hinni upphaflegu uppfærslu söng- leikjarins. Webber segir myndina í heild sinni fáránlega en hann byggði söngleikinn á ljóðabók eftir TS Eliot, Old Possum’s Book of Practical Cats, og hefur hann notið mikilla vinsælda allt frá frumsýn- ingu árið 1981. Webber telur Ketti Hoopers fáránlega AFP Ósáttur Webber bætist í hóp þeirra sem telja kvikmyndina Cats hörmulega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.