Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Strappy
Stærðir S-XXL
Verð 7.850kr
Tummy tucker
Stærðir S-XXL
Verð 8.890kr
Sporty
Stærðir S-XXL
Verð 7.950kr
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
Bra 30 TOPPAR OG BOLIR
Bra30 eru toppar og bolir úr supima bómul, sem er einn besti bómull í heiminum.
Þeir eru einstaklega endingagóðir og þétt ofið efnið gerir það að þeir halda brjóstunum uppi.
Tilvalið fyrir kósý daga heima við. Hentar fyrir allar skálastærðir.
Ragnhildur Þrastardóttir
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
Virk smit kórónuveirunnar eru nú í
öllum landsfjórðungum að nýju eftir
að smit greindist á Egilsstöðum á
þriðjudag. Óvitað er hvernig smitið
kom til.
Níu kórónuveirusmit greindust
innanlands á þriðjudag og var þá alls
91 í einangrun með virk smit. Eitt
gamalt smit greindist í landamæra-
skimun og er sá sem hafði smitast því
ekki smitandi.
Þróun annarrar bylgju faraldursins
sem nú hefur breiðst út hérlendis er
mjög svipuð þróun fyrstu bylgju far-
aldursins, að því er fram kom í máli
Þórólfs Guðnasonar á upplýsingafundi
almannavarna í gær.
Hann jánkaði því að rétt væri að
tala um samfélagssmit.
„Það er alveg rétt að þetta er sam-
félagssmit, þetta er sama veiran, við
erum búin að sýna fram á það. Hvort
hún kallast hópsmit eða samfélags-
smit, mér finnst það ekki vera stóra
málið í þessu en það er vissulega rétt
að hún er dreifð um landið.“
Þangað til á þriðjudag höfðu Aust-
firðingar og Héraðsbúar farið var-
hluta af annarri bylgju veirunnar.
Þórólfur segir í samtali við blaða-
mann að það sé áhyggjuefni að kór-
ónuveiran hafi náð að dreifa sér til
allra landsfjórðunga á nýjan leik.
Sama undirtegund hefur
náð að dreifa sér „mjög víða“
Smitið sem kom upp á Austurlandi
er af sömu undirtegund veirunnar og
önnur innanlandssmit sem hafa komið
upp hérlendis í annarri bylgju veir-
unnar. Það segir Þórólfur áhugavert
en enn er á huldu hvernig sú undirteg-
und sem nú hefur breitt úr sér um allt
land barst til landsins.
„Það er áhugavert að sjá að þessi
sama undirtegund af veirunni hafi náð
að dreifa sér mjög víða og skýtur upp
kollinum víða, oft er ekki hægt að sjá
nein tengsl á milli smitaðra einstak-
linga,“ segir Þórólfur og heldur áfram:
„Það náttúrulega skýrist af því að
[veiran] er oft einkennalítil og ein-
kennalaus og þannig getur hún dreifst
á milli. Það er bara það sem er viðbúið
af þessari veiru.“
Þórólfur segir smitkúrfuna svipaða
nú og hún var í byrjun mars þegar
veiran fór að gera vart við sig hérlend-
is og þess vegna sé tekið tiltölulega
hart á þeim smitum sem greinst hafa.
Þá sagði Þórólfur erfitt að segja til um
það hvort smitum muni fjölga mikið í
framhaldinu og það þurfi að fá að
koma í ljós.
Bæði Þórólfur og Alma D. Möller
landlæknir ítrekuðu á fundi gærdags-
ins að Íslendingar þyrftu að huga sér-
staklega vel að sínum persónulegu
sóttvörnum.
Þórólfur sagði á fundinum í gær að
áfram þurfi að leggja áherslu á skim-
anir og sýnatöku innanlands. Síðan
þurfi að huga að því hvort breyta þurfi
áherslum á landamærum. Þá sagði
Þórólfur það áhyggjuefni að nýgengi
smita haldi áfram að hækka hér á
landi og hann telur líklegt að Ísland
lendi á rauðum lista hjá einhverjum
Evrópuþjóðum en það getur gert Ís-
lendingum erfitt að ferðast erlendis.
Heilsugæslan skimar ekki fyrir
veirunni hjá einkennalausum
Alma sagði mikið álag á heilsugæsl-
unni og benti á að skimun væri ekki í
boði fyrir einkennalausa nema í úr-
tökum Íslenskrar erfðagreiningar
(ÍE). Til þess að fara í skimun hjá ÍE
þarf fólk að fá boð í skimun en fyrir-
tækið skimar nú fyrir veirunni í
stórum hópum fólks sem tengjast
smituðum einstaklingum að einhverju
leyti.
Alma segir í samtali við blaðamann
að sú skimun ÍE gangi vel. Áður hafði
ÍE líka skimað fyrir veirunni í slembi-
úrtökum en því var hætt fyrir nokkr-
um dögum. Lítið var um smit í slembi-
úrtökum.
„Þetta er samfélagssmit“
Virkt smit á Egilsstöðum og veiran þar með virk í öllum landsfjórðungum að nýju Níu innanlands-
smit greindust á þriðjudag Þróun annarrar bylgju faraldursins svipuð og þróun hinnar fyrstu
Ljósmynd/Lögreglan
Fundur Þríeykið svokallaða ásamt Agnesi Agnarsdóttur, fagstjóra sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á upplýsingafundi í gær.
2
1
2
1
2
1
2
11 1
1
1
1
1
1
1 1 100
1
1
1
1
2
2
4
3
2 2 2
3
6
6
2
1
5
2
5
1
6
9
2
10
13
1
3
1
2
2
2
1
3 3 3
2 2
5
4
2
1
2
1
1
3
1
3
6
1
8
1
7
1
11
2
1
4
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna
frá 15. júní til 4. ágúst
147.005 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
71.602 sýni746 einstaklingar eru í sóttkví
1.926 staðfest smit
91 er með virkt smit
Heimild: covid.is
Innanlands
Landamæraskimun:
Virk smit Með mótefni
21,0 ný smit sl. 14 daga á
100.000 íbúa
Nýgengi smita
innanlands:
júní júlí ágúst
9
11
2
Alma D. Möller landlæknir segir að
hvorki Google né Apple muni safna
neinum persónuupplýsingum með
blátannartækni (e. bluetooth) sem
er væntanleg í ágúst og miðar að
því að auðvelda smitrakningu.
Tæknirisinn Google hefur ítrekað
verið gagnrýndur fyrir það hvernig
hann fer með persónuupplýsingar
og spurði blaðamaður Ölmu því
hvort hægt væri að treysta tækni
sem Google legði fram í baráttunni
við faraldurinn og snerti viðkvæm-
ar persónuupplýsingar um stað-
setningu fólks.
„Engum persónuupplýsingum er
safnað með þessari tækni. Það er
bara símtækið sem fær gögnin,“
segir Alma. Persónuvernd í hverju
landi mun þurfa að samþykkja blá-
tannartæknina.
Skiptast á leynikóðum
Tæknin felst í því að þegar símar
eru nálægt hver öðrum og virkni
blátannartækninnar hefur verið
heimiluð af eigendum símanna
skiptast þeir á leynikóðum. Ef ein-
staklingur hefur verið nálægt smit-
uðum fær hann tilkynningu um það
í símann sinn og er með henni beð-
inn um að setja sig í samband við
smitrakningarteymið. ragnhildur-
@mbl.is
AFP
Google Google og Apple standa að baki tækninni en Google hefur legið
undir ámæli vegna meðhöndlunar fyrirtækisins á persónuupplýsingum.
Safna ekki per-
sónuupplýsingum
Ný smitrakningartækni er væntanleg
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI