Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 6

Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 Hof 1 Austurhús og Klettasel í Sveitarfélaginu Hornafirði Fasteignamiðstöðin er með til sölu jörðina Hof 1 Austurhús og Klettasel í Sveitarfélaginu Hornafirði. Staðsetning 20 km frá þjóðgarðinum í Skaftafelli í vestur og 38 km frá Jökulsárlóni í austur. Hof 1 Austurhús á um 1/5 hluta heildarjarðarinnar sem er mjög landmikil. Húsakostur er mjög glæsilegt einbýlishús og sumarhús. Einbýlishúsið er um 120,1 m2 auk þess sambyggt sérstakt gestaherbergi 28 m2 og geymsla 10,2 m2. Einbýlishúsið skiptist í alrými með eldhúsi, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Öll tæki í eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum fylgja með. Allar innréttingar í húsunum eru sérsmíðaðar úr þýskum hlyn (cycamore) og hvítir eldhússkápar, þvottahúsinnrétting og baðinnrétting. Í gestaherberginu er einnig baðherbergi. Gólfefni er íslenskt gabbró sem var flutt frá Breiðamerkursandi til Reykjavíkur, þar sem grjótið var unnið í flísar, alls 150 fermetrar á gólf og tæpir 100 fermetrar á verönd. Fyrir utan húsið er heitur pottur og jafnframt er húsið skreytt með steindum gluggum eftir Nínu Tryggvadóttur. Húsið er steypt í hólf og gólf og er með torfþaki. Með glæsilegri húsum sem Fasteignamiðstöðin hefur haft til sölu. Sumarhúsið er 32,2 m2 stakstætt fullbúið hús með 1 svefnherbergi, alrými með eldhúskróki og baðherbergi. Útsýni er glæsilegt. Náttúrufegurð Öræfanna er engu lík. Í vestri handan við svartan Skeiðarársand blasir við Lómagnúpur þar sem einn af landvættum Íslands tók sér bólfestu. Öræfajökull trónir yfir sveitinni með hæsta fjall landsins Hvannadalshnjúk og niður hlíðar fjallanna skríða tignarlegir skriðjöklar. Í suðri blasir við Ingólfshöfði umleikinn svörtum sandi og hafinu. Fyrsti landnámsmaður Íslands Ingólfur Arnarson tók sér þar vetursetu, en í dag ráða þar lundinn og aðrir fuglar ríkjum. Áhugaverð jörð og húsakostur sem vert er að skoða. Frábær staðsetning. Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Til að draga úr líkum á smiti með- al viðskiptavina Hertz hafa þrif á bifreiðum fyrirtækisins verið auk- in. Auk hefðbundinna þrifa eru stýri og gírstöng nú sérstaklega hreinsuð. Að sögn Sigfúsar B. Sig- fússonar, forstjóra Hertz, er þetta gert til að sporna við hugsanlegri útbreiðslu veirunnar hér á landi. Er hreinlæti af þeim sökum í for- grunni. „Við höfum strokið sér- staklega af stýrum og gírskipt- ingum. Það er helsta breytingin. Við ákváðum að grípa til þessara ráðstafana enda er meira gætt að öllu hreinlæti núna. Svo eru bíl- arnir auðvitað þrifnir venjulega,“ segir Sigfús. Auk vandaðra þrifa tryggir Hertz að engin snerting eigi sér stað við afhendingu bifreiða. Segir Sigfús að umrædd lausn beri heit- ið „handfrjáls afhending“. Þannig geta viðskiptavinir gengið frá öll- um helstu atriðum símleiðis eða með tölvu. „Þetta er kerfi sem hefur verið í gangi hjá okkur í tæp tvö ár, sem var mjög heppilegt þegar þetta byrjaði. Við erum með allt á netinu; þú kvittar undir og sendir til okkar rafrænt. Síðan höfum við sett upp lyklabox á mörgum stöðum þannig að þetta eru pappírslaus viðskipti. Það þarf enginn að snerta eitt eða neitt,“ segir Sigfús og bætir við að fleiri fyrirtæki færist nær þessu kerfi. „Þetta er mjög gott kerfi, þú gerir þetta allt saman sjálfur. Það eru auðvitað fleiri fyrirtæki að nota svona kerfi.“ Handfrjáls afgreiðsla bílaleigna  Hreinsa gírstöng og stýri sérstaklega  Viðskiptavinir ganga frá leigu og greiðslu á netinu  Vanda þrif til að koma í veg fyrir útbreiðslu kórónuveirunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Bílar Vönduð þrif eru í forgangi hjá bílaleigum hér á landi. Allt er gert til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu heimsfaraldurs kórónuveiru. Svo virðist sem hægt hafi á fjölgun ferðamanna hér á landi. Leiga bifreiða til ferðamanna tók við sér þegar landamæri opnuðust en að sögn Hjálmars Péturssonar, forstjóra Avis, er pöntunum nú að fækka. „Mér finnst eins og ferðamönnum sé að fækka og eftirspurnin að minnka eftir að smitin komu upp,“ segir Hjálmar sem kveðst ekki bjartsýnn á framhaldið. „Þetta er bara brot af því sem það var. Við erum að horfa til þess að verða kannski 60-70% niður allt árið,“ segir Hjálmar. Svipað er upp á teningnum hjá Hertz þar sem hægt hefur mjög á fjölgun pantana. Segir Sigfús að 30% af tekjum síð- asta árs væri afar góður árang- ur í ár. Gríðarlegt tekjufall NÝ SMIT HAFA ÁHRIF Hvalaskoðunarbáturinn Amma Helga leggur úr höfn á Húsavík áleiðis til fundar við hina vinalegu risa á Skjálfanda. Að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins hefur sumarið gengið þokkalega. Flestir farþegar eru erlendir ferðamenn en Íslendingar hafa tekið vel við sér. Nóg er af hnúfubak í ætisleit og mikil sjón að sjá. Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn til móts við hnúfubaka „Við tökum eftir því að það eru klár- lega fleiri að nýta sér fjarviðtölin,“ segir Tanja Dögg Björnsdóttir, framkvæmdastjóri sálfræðiþjónust- unnar Mín líðan, sem býður upp á fjarsálfræðiþjónustu í gegnum sam- nefnda vefsíðu, sem er jafnframt fyrsta íslenska fjargeðheilbrigðis- þjónustan með starfsleyfi frá emb- ætti landlæknis. „Áður en faraldurinn skall á var sálfræðiþjónusta á netinu ný fyrir fólki, og eins gildir um allt nýtt þá var fólk feimið við að prófa hana. En í þessu ástandi neyddist fólk til að nýta sér þessar leiðir og fékk tæki- færi til að sjá að þetta virkar vel,“ segir Tanja. Margir kjósi frekar að þiggja sálfræðimeðferð í gegnum fjarviðtöl þótt misjafnt sé hvað henti hverjum. Þá segist Tanja eiga von á því að fleiri muni sækja sér sálfræðiþjón- ustu gegnum netið þegar líða tekur á haustið. „Andleg vanlíðan birtist oft nokkrum mánuðum eftir áföll,“ seg- ir hún og nefnir fjármálahrunið árið 2008 sem dæmi en þá hafi fleiri fundið fyrir vanlíðan þegar lengra var liðið frá hruni. Íslendingar erlendis nýti sér þjónustuna Síðasta sumar hóf Mín líðan að bjóða upp á fjarviðtöl en áður var einungis boðið upp á staðlaða með- ferð, sem fer einungis fram í gegn- um netið. Samanstendur hún af 10 meðferðartímum, þar sem öll sam- skipti við sálfræðing fara fram í gegnum skrifaðan texta. Aðgangur að meðferðinni er í 14 vikur og hægt er að sinna meðferðinni á eigin hraða. „Eftir að þessi vitundarvakning varð [í kjölfar faraldursins] þá er fólk að sjá kostina við það að nýta sér sálfræðimeðferð í gegnum netið, bæði staðlaðar meðferðir og fjar- viðtöl. Það eru margir vinnuveitend- ur sem bjóða sínu fólki að sinna þessu á vinnutíma og þá getur fólk bara bókað fundarherbergi og farið í viðtalið þar, án þess að þurfa að bíða á biðstofu og keyra í umferð. Þannig að töluverður tími er spar- aður,“ segir Tanja. Íslendingar sem búsettir eru er- lendis eru stór hópur þeirra sem hafa sótt sér sálfræðiþjónustu í gegnum vefinn, með fjarviðtölum og staðlaðri meðferð. „Þetta hentar þeim aðilum vel og öllum sem kjósa þetta frekar,“ segir Tanja. Fjarviðtöl ryðja sér til rúms í sál- fræðiþjónustu  Fjarviðtöl algeng  Búist við aukinni eftirspurn þegar líða tekur á haustið Morgunblaðið/Golli Þunglyndi Vanlíðan getur komið fram nokkrum mánuðum eftir áföll. „Það er greinilegt að þessi þjón- usta er nauðsyn- leg,“ segir Kristín Ólafsdóttir, fram- kvæmda- stjóri Píeta- samtakanna. 200 símtöl hafa borist Píeta- símanum frá stofnun hans, fyrir mánuði síðan, sem jafngildir u.þ.b. 6 símtölum á dag. Símtöl í Píetasímann eru öll utan af- greiðslutíma Píetasamtakanna en 30 einstaklingar hafa komið í viðtöl í júlí eftir símtal. „Við fögnum því að fólk skuli leita sér aðstoðar og við hvetj- um fólk eindregið til að hafa samband,“ segir Kristín. 200 símtöl í Píetasímann SÓLARHRINGSAÐSTOÐ Kristín Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.