Morgunblaðið - 06.08.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Meiriháttar ehf.
er vel tækjum búið alhliða
jarðverktakafyrirtæki
Allar nánari upplýsingar eru á, meiriháttar.is
í síma S:821 3200 eða með tölvupósti í info@meirihattar.is
Við höfum mikla reynslu og erum lausnamiðaðir
þegar kemur að húsgrunnum sama hvort sem er
í auðveldu moldarlagið eða klöpp sem þarf að
fleyga.
Við útvegum einnig allskyns jarðvegsefni.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Tilkomumikið var að sjá þegar þrír
ungir hafernir flugu yfir flæðarmáli
nærri Stykkishólmi á dögunum. Þess-
ir fuglar eru á öðru og þriðja ári og
því komnir vel á legg. Einnig mátti
þarna líta fullorðinn fugl sveima með-
fram ströndinni og af merkjum að
dæma er sá ellefu ára gamall, skv.
myndunum hér á síðunni sem Bogi
Þór Arason tók.
Sem jafnan fyrr heldur haförninn,
konungur íslenskra fugla, sig mikið
við Breiðafjörðinn en talið er að 2/3
stofnsins séu þar. Svo er alltaf nokk-
uð af örnum sunnan Snæfellsness-
fjallgarðs, á Vestfjörðum og við
Húnaflóa, en arnarpörin á landinu um
85 talsins. „Við teljum arnarvarpið í
ár hafa heppnast vel, en eftir nokkrar
vikur ætti þetta allt að vera komið á
hreint. Ungarnir eru alltaf í hreiðum
vel fram í ágúst,“ segir Kristinn
Haukur Skarphéðinsson, fuglafræð-
ingur hjá Náttúrufræðistofnun Ís-
lands, við Morgunblaðið. Vitað er um
59 arnarhreiður á landinu þetta sum-
ar, en metárið í fyrra voru hreiðrin 65
og úr þeim fóru á flug alls 56 ungar.
Algengur í Reykhólasveit
„Varla líður sú vika að við sjáum
ekki haferni við mynni Króksfjarðar í
Reykhólasveitinni. Fuglinn er mjög
algengur á þessum slóðum,“ segir
Svavar Gestsson, fyrrverandi
alþingismaður og sendiherra, sem á
sér dvalarstað við Króksfjarðarnes og
dvelst þar mikið.
„Frá í fyrra minnist ég þess að hafa
eitt sinn séð fimm erni saman í einum
hópi. Svo er alveg stórkostlegt að sjá
ernina svífa hér um og steypa sér nið-
ur, en til þess finnur fuglinn bestar
aðstæður í vestanáttinni. Þá sést oft
til arna á Fellsströnd og Skarðs-
strönd í Dölunum, en þá svífur fugl-
inn tignarlegar með fjallsbrúnum.“
Ungfuglar Flugu yfir flæðarmáli nærri Stykkishólmi og vöktu athygli allra sem til sáu. Tugir unga komust á legg í sumar og almennt er viðkoma stofnsins um þessar mundir með ágætum.
Ernirnir eru tilkomumiklir á flugi
Konungar fuglanna við Stykkishólm 85 pör á landinu og 59 hreiður í ár Ungar á hreiðrum
langt fram í ágúst Eru mest við Breiðafjörð og Húnaflóann Steypir sér hátt í vestanáttinni
Ljósmyndir/Bogi Þór Arason
Flug Ellefu ára gamall fugl á flugi „í forsal vinda“, svo vitnað sé í kvæði skáldanna um þennan konung fuglanna.