Morgunblaðið - 06.08.2020, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Herðubreið Þjóðarfjallið á sléttunni fangar alltaf auga og athygli.
Hvað sástu nýtt ?
Landkönnuðir. Hvað gerðir þú í ferðalaginu og hvað
sástu nýtt? Ferðalög eru lærdómur í bland við skemmt-
un. Kórónuveiran hefur ráðið því að landinn hefur
haldið sig að mestu innanlands í sumar og margir
staðir hafa verið fjölsóttir, þótt sárafáir túristar frá út-
löndum séu nú á landinu bláa. Hér segir frá útsýnis-
fjalli austur í Hreppum, Stuðlagili, Þórsmörk og forn-
um leiðum að Fjallabaki. Allt afar forvitnilegt!
„Líðandi sumar hefur verið frábært,
nýst til ferðalaga vítt og breitt um
landið. Margar þessar ferðir hafa ver-
ið til þess að afla efnis í sjónvarps-
þætti og nú í vikunni fór ég í því skyni
með góðu fólki yfir Fimmvörðuháls,“
segir Sigmundur Ernir Rúnarsson,
sjónvarpsstjóri á Hringbraut.
„Ganga á Hestfjallahnjúk, sem er
nærri Ásólfsstöðum í Þjórsárdal, nú í
sumar er eftirminnileg. Fjallið er um
700 metra hátt en af því er ótrúlegt
útsýni. Af toppnum blasa við Mælifellshnjúkur í Skaga-
firði, Háöldur á Sprengisandi og í suðaustri djarfar fyrir
Hvannadalshnjúk. Svona gæti ég haldið áfram; þetta
fjall á fáa sína líka. Þá lauk ég við Botnssúlurnar í sumar;
þetta tignarlega fjall sem er inn af Hvalfirðinum. Syðsta-
Súla er alls ekki auðveld viðureignar enda þarf að príla
um grjóturð. Svo var dæmigert og broslegt að gönguna
hófum við í sól og bjartviðri en komum til baka í þoku!“
Á ferðalögum reynir Sigmundur Ernir að komast að
fallegum en földum fossum. Í sumar varð til dæmis á
vegi hans Sneplufoss í Þjórsárdal og vinahópnum var
sýndur Kvernufoss við Skóga undir Eyjafjöllum. „Þá var
upplifun að koma að Kolugljúfri í Víðidal í Húnaþingi
vestra. Hrikalegt gljúfur þar sem Víðidalsáin fellur fram
í fossum sem kenndir eru við tröllkonuna Kolu.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kolugljúfur Fossarnir falla fram í gljúfri í Víðidalnum.
Útsýnisfjallið og
földu fossarnir
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
„Nauthúsagil sem er á leiðinni inn í
Þórsmörk hefur komið sterkt inn að
undanförnu. Margir hafa lagt leið sína
þangað eins og sést hefur á myndum
úr ferðalögum á landið eins og margir
hafa birt á félagsmiðlum í sumar,“
segir Katrín Guðjónsdóttir, ferða-
þjónustubílstjóri í Garðabæ. „Reyni-
viðartré vex á barmi gilsins og stofnar
þess teygja sig langt fram svo eftir-
tekt vekur. Þá eru í gilinu tveir fossar
og annar þeirra mjög tilkomumikill.
Sé svo að uppi á brún gilsins er fallegt útsýni yfir
Markarfljótsaura, Stóra-Dímon og Fljótshlíð. Annars er
erfitt að lýsa aðstæðum þarna með mörgum orðum. Best
er að bregða sér á staðinn og virða svo fyrir sér kynja-
myndir klettana og leyfa ímyndunaraflinu að taka völdin
í heilabúinu. Þá kemur margt fallegt fram: hugmyndir í
orðsins fyllstu merkingu.“
Þórsmörk stendur alltaf fyrir sínu. Skógi vaxið svæðið
er stórbrotið og gaman að skoða. Þá hafa Merkuferðir
alltaf yfir sér ævintýrablæ; það að slarkast á jeppum yfir
óbrúaðar árnar sem er þó hættulítið ef varlega er farið.
„Landið er alltaf að breytast. Birta og veður ráða miklu
um hvaða svip landið hefur og farvegir jökulánna eru á
sífelldri hreyfingu. Allt þetta gerir ferðir um hálendið að
ævintýrum.“
Ljósmynd/Úr einkasafni
Þórsmerkurleið Margir hafa skoðað Nauthúsagil.
Hugmyndir úr
Nauthúsagili
Katrín
Guðjónsdóttir
„Líkindin milli Austfjarða og Fær-
eyja, þar sem ég var í sumar, eru
sterk. Fjöll, firðir og sjávarpláss í
brekkum sem ná niður í sjó. Þarna
koma upp í hugann staðir fyrir austan
eins og Neskaupstaður og Eskifjörð-
ur,“ segir Sigríður Halldórsdóttir,
aðstoðarmaður umhverfis- og auð-
lindaráðherra. „Mig og manninn minn
hafði lengi langað til Færeyja og um
miðjan júlí létum við verða af því. Við
sigldum þangað með Norrænu og vor-
um svo í vikulöngu tjaldferðalagi með dætrum okkar
tveimur. Mér fannst fallegt í Færeyjum, bæði náttúran
og byggðirnar. Allt er kunnuglegt, en framandi um leið.“
Fyrr í sumar kom Sigríður að Stuðlagili í Jökuldal;
stað sem þúsundir fólks hafa heimsótt í sumar og fundist
mikið til koma. „Ég hreifst af staðnum, en mér þótti líka
vissara að halda fast í höndina á 10 ára dóttur minni þeg-
ar við stóðum á brúninni vestanmegin og gægðumst ofan
í gilið,“ segir Sigríður sem hefur heimsótt flest héruð
landsins, þótt nokkrir helgidagar séu á ferðakortinu.
„Ég á eftir að kanna svæðið sunnan Vatnajökuls í
þaula, þótt ég hafi sannarlega farið þar um. Í huganum
hef ég því skipulagt leiðangur í Bæjarstaðaskóg og um
Skaftafell. Þaðan að Fjallsár- og Jökulsárlóni á Breiða-
merkursandi og Lónsöræfi þarf ég að skoða betur.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Færeyjar Fuglafjörður gæti minnt suma á Austfirði.
Færeyjar með
svip Austfjarða
Sigríður
Halldórsdóttir
„Hestaferðir um hálendið eru ævintýri
og í slíkum reisum forðast ég að líta á
klukkuna eða telja kílómetrana. Í síð-
ustu viku fórum við sex vinahjón sam-
an úr Álftaveri og riðum þaðan um
Skaftártungu og norðan Mýrdals-
jökuls um Mælifellssand og þar um
Emstrur fram í Fljótshlíð. Þetta voru
sex dagar í hnakk og bara gaman,“
segir Óskar Bergsson, löggiltur fast-
eignasali hjá Eignaborg.
„Ein af áskorununum í ferðinni var
að finna Bjarnargötur, leiðina sem þeir Kári Sölmund-
arson og Björn í Mörk fóru forðum daga til að hefna
brennunnar á Bergþórshvoli eins og segir frá í Njálu. Af
ferðalagi þessu er sprottið máltækið að ber sé hver að baki
nema sér bróður eigi, sem átti vel við í leiðangrinum nú.
Ferðalög verða alltaf betri í fylgd með góðu fólki. Þegar
við komum inn á Álftavatnaleið hittum við Eirík Jónsson í
Skaftárdal sem gat vísað okkur á Bjarnargötur. Fræði-
konan Vera Roth, sem þekkt er fyrir bókina Fornar ferða-
leiðir um Vestur-Skaftafellssýslu, var með okkur í þessari
hestaferð og hnitsetti nákvæmlega leiðina sem hinir fornu
kappar fóru – og fólk margra kynslóða á eftir þeim. Ann-
ars situr stórbrotin náttúran eftir í huga mínum nú að ferð
lokinni. Hvítir jöklar, svartir sandar, bláar árnar og græn-
ar mosabreiður. Ótrúlegt land.“
Ljósmynd/Úr einkasafni
Hestaferð Fákar á beit í fallegum haga að fjallabaki.
Bjarnargötur í
Njálssögu fundnar
Óskar
Bergsson
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að