Morgunblaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 www.gilbert.is N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið Kynsjúkdómar hafa fylgtmanninum frá örófi aldaog valdið honum ýmsumóþægindum. Þetta eru sjúkdómar af völdum baktería eða veira sem eiga það sameiginlegt að smitast milli fólks við alls kyns kyn- mök. Margir þessara sjúkdóma valda einkennum við kynfæri og sumir geta einnig gefið einkenni frá öðrum líffærum. Flestir kyn- sjúkdómar smitast auðveldlega við nána líkamlega snertingu, eru oft einkennalausir og því erfitt að var- ast þá. Talið er að jafnvel helmingur þeirra sem fá kynsjúkdóm viti ekki að þeir eru smitaðir því þeir finna ekki fyrir neinum einkennum. Geta verið hættulegir Kynsjúkdómar geta verið hættu- legir og því mikilvægt að koma í veg fyrir smit og meðhöndla þá ef smit verður. Algengustu kynsjúkdómar á Íslandi eru klamydía, kynfæra- áblástur (herpes) og kynfæravörtur (HPV-veira). Sjaldgæfari eru lek- andi, HIV og alnæmi, lifrarbólga B, sárasótt, tríkómónassýking, flatlús og kláðamaur. Þeir sjúkdómar sem orsakast af bakteríum eða sníkjudýrum eru auðlæknanlegir með sýklalyfjum, t.d. klamydía og lekandi. Veiru- sjúkdóma eins og kynfæraáblástur, kynfæravörtur, lifrarbólgu B og HIV er erfiðara að lækna og geta fylgt smituðu fólki ævilangt. Ein- kenni er þó hægt að meðhöndla og halda niðri og draga úr hættu á að smita aðra. Bólusetning er til gegn nokkrum kynsjúkdómum, s.s. lifrar- bólgu B og HPV-veiru. Síðustu ár hefur mikill árangur náðst í baráttu við HPV-veirur sem sumar valda vörtum á kynfærum og aðrar geta leitt til frumubreytinga í leghálsi. Árangurinn hefur náðst með bólusetningu hjá unglings- stúlkum. Tíðni kynsjúkdóma hefur verið hærri hér á landi en í nágranna- löndunum og samkvæmt Farsótta- fréttum embættis landlæknis frá apríl síðastliðnum virðist tíðni ákveðinna kynsjúkdóma hafa aukist á undanförnum misserum. Aukning virðist vera á tíðni sjúkdóma, s.s. sárasóttar og lekanda sem voru á miklu undanhaldi hér fyrir nokkrum árum. Aukningin er einkum meðal karla sem stunda kynlíf með körl- um. Tíðni klamydíu virðist vera svipuð og hefur verið undanfarin ár en það er algengasti kynsjúkdómur á Íslandi með tæplega 2.000 greind tilfelli á ári. Einhverjir kunna að spyrja sig af hverju kynsjúkdómar séu þetta al- gengir á Íslandi. Gæti það verið vegna þess að fólk sýnir ekki nægj- anlega ábyrgð í kynhegðun? Sú staðreynd að sumir kyn- sjúkdómar eru einkennalausir er m.a. ástæðan fyrir því að smit er al- gengt. Fólk getur verið með smit- andi sjúkdóm án þess að vita af því og smitað aðra. Notkun kyn- sjúkdómavarna minnkar líkurnar verulega á að smitast af kyn- sjúkdómi auk þess sem það minnkar einnig líkur á að smitast af kyn- sjúkdómi ef bólfélagar eru færri en fleiri. Vanda val á bólfélaga Það er á ábyrgð hvers og eins að verja sig gegn kynsjúkdómum. Notkun smokka við kynmök minnk- ar töluvert líkur á að smitast af kyn- sjúkdómum svo framarlega sem smokkurinn er rétt notaður. Hver og einn getur með ábyrgri hegðun haft mikil áhrif á hvort hann smitast af kynsjúkdómi.  Mikilvægt er að nota smokka þegar kynmök eru höfð við „nýjan“ bólfélaga.  Vandaðu valið á bólfélaga. Það þarf ekki að byrja á því að hafa kyn- mök við fyrstu kynni. Áfengisneysla slævir dómgreind- ina og eykur líkur á að gera hluti sem þú hefðir ef til vill ekki gert allsgáður. Hver og einn þarf líka að taka ábyrgð á því að smita ekki aðra. Það er einfalt að fara í kynsjúkdóma- tékk og fólk sem er að hefja nýtt samband ætti að gera slíkt til að reyna að koma í veg fyrir að smita aðra af kynsjúkdómi. Í kyn- sjúkdómatékki er hægt að greina bakteríusjúkdómana klamydíu og lekanda með stroki eða þvagsýni. Herpes- og HPV-smit greinist af einkennum og HIV, sárasótt og lifrarbólgu má finna með blóðrann- sókn. Ef fólk grunar að það hafi smitast af kynsjúkdómi eða finnur fyrir ein- kennum frá kynfærum, s.s. sviða við þvaglát, útferð úr typpi eða leg- göngum, óútskýrðum milliblæð- ingum, blöðrum/sárum á kynfærum eða kviðverkjum, er um að gera að hafa samband á næstu heilsugæslu- stöð og ræða við lækni eða hjúkrunarfræðing og fá leiðbeiningu um framhaldið. Greining er sjaldn- ast flókin og nægir að taka þvagsýni eða strok. Stundum þarf blóðrann- sókn og nákvæmari skoðun. Varnir og ábygð kynhegðan Ef greining staðfestir kyn- sjúkdóm er mikilvægt að smitrakn- ing fari fram, þ.e. leit að öðrum sem hafa verið í nánum samskiptum við hinn smitaða. Það er gert sam- kvæmt sóttvarnalögum og þarf hinn smitaði að gefa upp nöfn þeirra sem gætu hafa smitast og er kannað 6- 12 mánuði aftur í tímann. Meðferð flestra kynsjúkdóma er þeim að kostnaðarlausu sem hana þurfa. Algengustu sjúkdómana er auðvelt að lækna og afleiðingar sjaldnast alvarlegar. Ef sjúkdóm- urinn uppgötvast ekki eða meðferð dregst geta smitin orðið fleiri og af- leiðingarnar alvarlegri. Til þess að draga úr smitum kynsjúkdóma og fækka alvarlegum afleiðingum þeirra er mikilvægt að sýna ábyrga kynhegðun og nota kynsjúkdóma- varnir. Besta vörnin er því smokk- ur, hafa fáa bólfélaga og velja þá vel. Frekari upplýsingar um kyn- sjúkdóma má finna á vefsíðunni heilsuvera.is. Kynsjúkdómar – sýnum ábyrgð Ljósmynd/Aðsend Samskipti Það þarf ekki að byrja á því að hafa kynmök við fyrstu kynni. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á friðlýstum svæðum sem Umhverfisstofnun hefur umsjón með hafa nú verið gerðar varúðarráðstafanir vegna kórónuveirunnar og viðburðum þar aflýst. Er það gert með tilliti til smitvarna. Fræðslugöngur falla niður á Fjallabaki, í Þjórsárdal, í Fjaðrárgljúfri, í Mývatnssveit og við Goðafoss, enda erfitt að halda tveggja metra reglunni þar. Fræðslugöngur verða á öðrum friðlýstum svæðum þar sem gætt verður að því að gestir virði fjarlægðarmörk auk þess sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Varúðarráðstafanir á friðlýstum svæðum Fræðslugöngur felldar niður Frá mörgum góðum slóðum segir í nýju riti Ungmennafélags Íslands, Göngum um Ísland. Þar er að finna upplýsingar um gönguleiðir í öllum landshlutum og er þar meðal annars byggt á upplýsingum frá göngufólki sem hefur gaman af því að kanna áhugaverða staði eða príla upp um fjöll og firnindi. Í Reykjavík er meðal annars hægt að fara í skemmtilega tveggja stunda göngu milli útilistaverka í miðborg- inni. Er leiðsögn um þá leið og fleiri fáanleg á símaappinu Wapp. Á sama stað er einnig að finna leiðsögn um Kársnesið í vesturbæ Kópavogs - og reyndar fleiri slóðir þar í bæ. Úr Garðabæ segir svo frá gönguleiðum um skógi vaxna Vífilstaðahlíð í sunnanverðri Heiðmörk, en helstu stiklur um markverða staði þar eru sömuleiðis í bókinni góðu. Af öðrum í bókinni má meðal ann- ars nefna leiðsagnir um Suðurnesin og vísaður er vegurinn að Gunnuhver, skammt vestan við Reykjanesvita. Þar kraumar jörðin og glöggt má sjá jarðfræðina í deiglu og hvernig landið mótast. sbs@mbl.is Göngubók UMFÍ Á góðum slóð- um gangandi Reykjavík Styttuganga er góð hug- mynd. Ingólfur er á Arnarhólnum. Rauðhólar Áhugavert er að skoða fá- gætar jarðminjar á svæðinu. Morgunblaðið/Eggert Heilsuráð Ása Sjöfn Lórensdóttir, fagstjóri heilsuverndar skóla- barna, Þróunarmiðstöð ís- lenskrar heilsugæslu Ósk Ingvarsdóttir, yfirlæknir mæðraverndar, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.