Morgunblaðið - 06.08.2020, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
Fram kemur í umsókninni að
markmiðið með deiliskipulagstillög-
unni sé einkum að svara eftirspurn
eftir húsnæði til ýmiss konar nota á
svæðinu, þ.e. við gömlu höfnina.
Ennfremur að skapa rými fyrir við-
burði af ýmsum toga. Til hliðsjónar
þurfi að hafa þá þróun sem átt hefur
sér stað í sjávarútvegi hér á landi
undanfarin misseri. Greinin hafi ver-
ið að tæknivæðast hratt og því minni
þörf á húsnæði fyrir hafnsækna
starfsemi. Á Granda sé nú þegar
rekin ein stærsta útgerð og fisk-
vinnsla í landinu (Brim), fiskmark-
aður og fjölmörg nýsköpunar-
fyrirtæki í tengslum við sjávarútveg,
t.d. í Sjávarklasanum.
Á Línbergsreitnum í dag eru
gömlu verbúðirnar (friðlýst ytra
byrði bygginga) sem liggja meðfram
Grandagarði. Aðrar byggingar inn-
an reitsins liggja við Fiskislóð 16-32
og er margvísleg starfsemi í þeim,
m.a. ferðaskrifstofa, bílaleigur,
verslun með útivistarfatnað, dekkja-
verkstæði og litlar fiskvinnslur.
Flest húsanna á reitnum eru stál-
grindahús eða skemmur. Þau voru
reist á seinni hluta síðustu aldar.
Áhugasamir geta skoðað deili-
skipulagstillöguna á vefnum
www.reykjavik.is, skipulag í kynn-
ingu. Hægt er að koma ábendingum
og athugasemdum á framfæri til 31.
ágúst 2020.
Mikil uppbygging á Granda
Ný stefna borgarinnar varðandi uppbyggingu á Granda Nýbyggingar rísi milli Grandagarðs og
Fiskislóðar en eldri hús verða rifin Stærð nýbygginga á reitnum verður um 40 þúsund fermetrar
Tölvumyndir/ASK arkitektar
Línbergsreiturinn Þannig hugsa arkitektarnir sér að reiturinn geti mögulega litið út. Nýbyggingarnar verða á 2-4 hæðum og skjólsæl svæði inn á milli.
Morgunblaðið/sisi
Fiskislóð Nokkur hús á reitnum verða að víkja. Þetta eru aðallega stál-
grindahús og skemmur. Þarna eru rekin í dag nokkur smærri fyrirtæki.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð samþykkti á dögunum að
auglýsa breytingu á deiliskipulagi
vesturhafnar Örfiriseyjar vegna svo-
nefnds Línbergsreits. Reiturinn er á
landfyllingu á bak við gömlu verbúð-
irnar á Grandanum. Þarna stendur
til að rífa eldri lágreistar byggingar
og byggja nýjar í þeirra stað. Að
auki verður byggt á lóðum sem
standa ónotaðar í dag. Ekki verður
heimilt að byggja íbúðir né reka hót-
el á reitnum.
Í umsókn ASK arkitekta fyrir
hönd Línbergs ehf. kemur fram að
stefnt sé að því að byggja á reitnum
alls 33.150 fermetra nýbyggingar
auk 4.900 fermetra bílageymslu, eða
alls 38.050 fermetra. Uppbyggingin
verður í þremur áföngum og gert er
ráð fyrir því að full starfsemi verði á
þeim svæðum sem ekki eru í bygg-
ingu á hverjum tíma.
Línbergsreitur afmarkast af
Grunnslóð, Fiskislóð, Djúpslóð og
Grandagarði. Svæðið er í eigu Faxa-
flóahafna sf. en Línberg ehf., Tjarn-
argötu 28, er rétthafi á svæðinu.
Stofnandi þess félags var ADVEL
eignarhaldsfélag ehf., Suðurlands-
braut 18. Forsvarsmaður er Hjör-
leifur Jakobsson fjárfestir.
Uppbygging áformuð lengi
Fyrst árið 2007 voru uppi áform
um uppbyggingu á svæðinu milli
Fiskislóðar og Grandagarðs. Þau
áform urðu að engu í bankahruninu.
Árið 2017 kynnti Línberg ehf.
hugmynd að uppbyggingu á reitn-
um. Í hugmyndinni fólst að rífa átta
hús og byggja þess í stað nýbygg-
ingar, samtals 36.800 fermetra.
Stjórn Faxaflóahafna var þessu
fylgjandi en borgaryfirvöld féllust
ekki á áformin. Í umsögn skipulags-
fulltrúa borgarinnar segir m.a. að ef
heimila eigi landnotkun verslunar og
þjónustu á Línbergslóð verði slíkt
svæði í Örfirisey stækkað umtals-
vert. Hafnsækin starfsemi gæti þar
með verið á undanhaldi.
Nú hafa borgaryfirvöld skipt um
skoðun og heimilað að auglýsa deili-
skipulag fyrir reitinn. „Heyrst hafa
vangaveltur um hvort ný uppbygg-
ing á svæðinu kunni að ýta í burtu
hafnsækinni starfsemi sem á heima
við höfnina en við teljum svo ekki
vera,“ segir í minnisblaði Hildar
Gunnlaugsdóttur, skipulagsfulltrúa
Faxaflóahafna. Hún bendir á að ný-
verið hafi lóð við Fiskislóð 41 verið
auglýst til úthlutunar. Tvær um-
sóknir bárust um lóðina, báðar voru
fyrir bifvélaverkstæði og bílaleigu,
en engin umsókn barst um hafn-
sækna starfsemi á svæðinu
„Segja má að Grandagarður og
bryggjurnar við Vesturhöfnina séu
andlit hafnarinnar og oftast nær
það sem fólk á við þegar það ræðir
um aðdráttarafl svæðisins,“ segir
Hildur Gunnlaugsdóttir skipulags-
fulltrúi í minnisblaði.
Verbúðirnar við Grandagarð eru
í eigu Faxaflóahafna og er hluti
þeirra nýttur undir fjölbreytta
starfsemi verslana og veitinga-
staða með hagstæðri leigu, bætir
Hildur við. Þessi þróun mun á
komandi árum teygja sig yfir í
næstu verbúðalengju, meðal ann-
ars í tengslum við og á grundvelli
uppbyggingar á Línbergsreitnum.
Húsin sem standa andspænis ver-
búðunum hafa líka fyllst fjöl-
breyttri starfsemi sem er í senn
hafsækin og full af mannlífi. Þar
standa hlið við hlið gamalgróinn
veitingastaður, Kaffivagninn,
hafnarvigtin og hús sem áður hýsti
starfsemi Slysavarnafélagsins.
Húsið fær senn nýtt hlutverk sem
veitingastaður með nýrri bryggju
sem nýtist bæði veitingastaðnum
og fyrir viðlegu björgunarsveit-
anna. Sjávarklasinn, Fiskmarkaður
Íslands og Grandi mathöll deila
húsnæði sem er í eigu Faxaflóa-
hafna. Starfsemi Sjávarklasans
hafi farið fram úr björtustu vonum
og hyggist stækka við sig og Faxa-
flóahafnir séu áfram um að það
verði á hafnarsvæðinu. Með upp-
byggingu á Línbergsreitnum verði
til húsnæði sem er hentugt fyrir
þróunarverkefni, hátækni- og
frumkvöðlafyrirtæki sem „útskrif-
ast úr fóstri“ Sjávarklasans.
Verbúðirnar eru nýttar fyrir
verslun og veitingastarfsemi
GRANDAGARÐUR OG BRYGGJURNAR ANDLIT HAFNARINNAR
Morgunblaðið/Eggert
Grandinn Í blíðskaparveðri flykkist
fólk á svæðið og fær sér ís í Valdís.