Morgunblaðið - 06.08.2020, Page 20

Morgunblaðið - 06.08.2020, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nýliðinn júlí var fremur kaldur mið- að við það sem algengast hefur verið á síðari árum, samkvæmt tíðarfars- yfirliti Veðurstofunnar. Árið í heild hefur til þessa verið kaldara en meðaltal síðustu 10 ára. Meðalhiti í Reykjavík fyrstu sjö mánuði ársins er 4,7 stig sem er 0,6 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,6 stigum undir meðal- lagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn rað- ast í 41. sæti á lista 150 ára. Á Akur- eyri var meðalhiti mánaðanna sjö 4,1 stig. Það er 1,0 stigi ofan meðallags áranna 1961 til 1990 en -0,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 35. sæti á lista 140 ára. Meðalhiti í Reykjavík í júlí var 10,7 stig en í júní var hann 10,2 stig. Á Akureyri var meðalhitinn 10,1 stig, talsvert lægri en í júní, þegar hann var 1,1 stig. Hæsti hiti júlímánaðar mældist 24,8 stig á Egilsstaðaflugvelli hinn 12. Mest frost í mánuðinum mældist -2,0 stig á Grímsstöðum á Fjöllum hinn 1. og í Miðfjarðarnesi hinn 3. Á stöðinni á Dyngjujökli fór frost- ið mest í -9,5 stig hinn 25. Ekki hefur sést meira frost á hitamæli á landinu í júlí, segir Veðurstofan. Frostnætur urðu alls 13 í mánuðinum. Er það óvenjulegt í júlí, en hins vegar var það aðeins á fáum stöðvum í senn, í ýmsum landshlutum. Júlílágmarks- hitamet voru sett á allmörgum stöðvum. Úrkoman hefur verið 13% um- fram meðallag í Reykjavík fyrstu sjö mánuði ársins, en 30% umfram meðallag á Akureyri. Úrkoma í Reykjavík í júlí mældist 44,7 millimetrar, 14 prósent undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 35,3 mm og er það rétt ofan meðallags áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mæld- ist úrkoman 27,7 mm. Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meira í Reykjavík voru 7,3 færri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri sex daga, einum færri en í meðalári. Mikil úrkoma féll um norðvestan- og norðanvert landið í hvassviðri um miðjan mánuðinn og féllu sólar- hringsúrkomumet á fáeinum stöðv- um. Vart varð við skriðuföll og ár urðu vatnsmiklar. Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 217,5 í júlí, sem er 46 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældust sól- skinsstundirnar 187,8 og er það 29 stundum meira en í meðalári. Morgunblaðið/Eggert Hagstæð tíð Þrátt fyrir að sumarið hafi verið í kaldara lagi hefur tíð almennt verið hagstæð og spretta góð. Árið 2020 kaldara en meðaltal síðustu 10 ára  Nýliðinn júlí var með þeim kaldari á öldinni  Hlýrra á Akureyri í júní en júlí  Úrkoma á árinu umfram meðallag Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Skipstjóri skemmtiskútunnar Hetairos segir að öllum sóttvarnareglum hafi verið fylgt á ferðalagi skútunnar um Ísland og Græn- land. Ein kona af 16 manna áhöfn var greind með kórónuveirusmit við komuna til þorpsins Nanortalik á suðurodda Græn- lands og var í kjölfarið sett í sóttkví. Fram kom í Morgunblaðinu sl. laugardag að skútan hafði viðdvöl hér á landi, bæði á Akureyri og Ísafirði, og var ljósi varpað á ferðir skútunnar og umrætt smit. Viðdvöl á Íslandi Í yfirlýsingu frá Graham Newton skip- stjóra, sem blaðinu hefur borist, segir að skipið hafi haldið frá Bretlandseyjum 2. júlí sl. og að fyrir brottför hafi allir skipverjar verið skimaðir fyrir kórónuveirunni. Hann segir að við komuna til Íslands þann 6. júlí hafi öll áhöfnin verið skimuð í Reykjavík- urhöfn og reynst laus við smit. Samkvæmt heimildum blaðsins hélt skútan norður um land og hélt til á Eyjafirði, m.a.á Pollinum við Akureyri. Þaðan sigldi Hetairos til Ísa- fjarðar og kom þar að landi 18. júlí. Sam- kvæmt upplýsingum frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða fóru starfsmenn stofnunarinnar um borð og skimuðu skipverja. Að sögn Grahams reyndust öll prófin neikvæð. Næsta dag var haldið áleiðis til Græn- lands. Graham lýsir því að við komuna til Nanortalik hafi tveir grænlenskir lög- reglumenn komið um borð og gefið þau fyr- irmæli að skipverjar skyldu ganga til heilsugæslustöðvar og undirgangast skim- un, en að því loknu væri þeim frjálst að heimsækja verslanir, en skyldu halda sig frá kaffi- og veitingastöðum. Segir Graham að þeim tilmælum hafi verið fylgt í hví- vetna. Einn smitaður um borð Niðurstöður skimunar sýndu að ein af skipverjum var smituð af kórónuveirunni og var hún í kjölfarið sett í einangrun í þorp- inu. Allt bendir til þess að þetta smit sé það 14. sem mælist á Grænlandi, en ekkert smit hafði þá greinst síðan í lok maí og er því eina virka smitið þar í landi. Strangar mælingar Í yfirlýsingu skipstjórans segir að sam- kvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyf- irvöldum á Grænlandi hafi skimunin sýnt mjög veika jákvæða niðurstöðu um smit. Hann telur að yfirvöld þar hafi sett mjög lágan þröskuld á niðurstöðu greininga, sem séu strangari og umfram þá staðla sem gefnir hafa verið út af Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnuninni. Graham tekur fram að „rannsóknir okkar eigin lækna leiddu í ljós að í öðrum löndum sem nota sömu tæki [og í Grænlandi] hefðu niðurstöður sýnatöku verið neikvæðar“. Að sögn Graham er skipverjinn sýkti laus úr einangrun og er frjálst að ferðast um Grænland, en hefur ekki snúið aftur um borð í Hetairos. Hann staðhæfir að allir aðrir skipverjar séu við góða heilsu og und- ir stöðugu eftirliti. Upplýsingar um stað- setningu skútunnar liggja ekki fyrir. Skipverjum Hetairos heilsast vel  Skipverjar tvisvar skimaðir hér á landi  Skipstjóri segir öllum reglum fylgt  Einn skipverji af 16 greindist smitaður á Grænlandi  Veikt smit og varla greint með hefðbundinni aðferð Ljósmynd/Guðmundur Kristjánsson Sigling Skemmtiskútan Hetarios liggur við bryggju á Ísafirði. Síðar sigldi hún til Nanortalik á Grænlandi þar sem skipverji greindist með kórónusmit. Allt um sjávarútveg PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA TIL SÖLU RAV4 Þetta einstaka eintak er til sölu Toyota RAV4 hybridVX, árgerð 2020 – ekinn 7.500 km. Verð 7.500.000. Upplýsingar í 896 6818.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.