Morgunblaðið - 06.08.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 06.08.2020, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Björgun úr ám og viðbrögð vegna mögulegra kórónuveirusýkinga eru meðal þeirra verkefna sem starfs- fólk fjallaskála og björgunarsveitar- menn glíma við þessa dagana. Ferðafélag Íslands rekur fjöl- marga skála á svæðinu sem kennt er við Fjallabak og í samtali við Jó- hann Kára Ívarsson, rekstrarstjóra skála, segir hann að þar á bæ hafi allt verið gert til að mæta sótt- vörnum s.s. með hólfun á vist- arverum og salernum. Verkferlar hafa verið settir í gang til að mæta mögulegu smiti og komi upp grun- semdir gangi skálaverðir í það að einangra viðkomandi og flytja á næstu heilsugæslu. Að hans sögn hafa engin smit komið upp á svæð- inu, en í Emstruskála hafi komið upp grunur eftir að erlendur ferða- langur veiktist. Hann var sóttur af björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli. Giftusamleg björgun úr Kaldaklofi Blaðamaður náði tali af Magnúsi Kristjánssyni, formanni sveitar- innar, sem var þá á leið til byggða eftir giftusamlega björgun í Kalda- klofskvísl, rétt sunnan við Hvanngil. Ökumaður hafði þar fest bíl sinn í ánni og þurfti að bjarga sér á þak bílsins þar sem hann beið björgunar í tæpar tvær stundir. Vel tókst að koma manninum í land sem og bíln- um. Maðurinn var vel búinn en hætt kominn vegna aðstæðna. Aðspurður segir Magnús að smit- varna sé gætt í leit og björgun. Björgunarsveitarmenn hafi grímur og hanska sem þeir noti eftir þörf- um. Þurfi að flytja fólk eru bílar björgunarsveita stúkaðir af með byggingarplasti sem þannig myndi sóttvarnarhólf. Að sögn hefur sum- arið verið rólegt og lítið um óhöpp. Ljósmynd/Magnús Ingi Gunnarsson Björgun Ökumanni jeppabifreiðar var giftusamlega bjargað úr Köldukvísl eftir nokkra dvöl á þaki bílsins. Björgunarsveitir Landsbjargar frá Hellu og Hvolsvelli komu til aðstoðar. Ljósmynd/Sighvatur Bjarnason Hálendið Í Landmannalaugum eru aðalstöðvar björgunarsveita að fjalla- baki. Huga þarf að sóttvörnum í öllum verkefnum á tímum kórónuveiru. Ýmis viðbúnaður á Fjallabaksleið  Sóttvarnir efldar í skálum  Björgun í Kaldaklofskvísl Öllum leiksýningum Borgarleik- hússins hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna sam- komutakmarkana. Sömuleiðis hefur sýningum Þjóðleikhússins verið frestað. Endurfrumsýna átti sýninguna Níu líf í Borgarleikhúsinu 13. ágúst en nú hefur því verið slegið á frest. Magnús Geir Þórðarson þjóðleik- hússtjóri sagði í samtali við mbl.is í gær að mikil óvissa ríkti og enn lægi ekki fyrir hvenær hægt yrði að hefja sýningar nú í haust. „Við nálgumst þessi mál auðvitað af samfélagslegri ábyrgð og í sam- ræmi við tilmæli stjórnvalda. Við vöndum okkur við þetta verkefni eins og öll önnur. Við höfum frest- að upphafi nýs leikárs, kynningu þess og upphafi kortasölu. Það mun allt fara í gang um leið og að- stæður leyfa.“ „Þetta er engin óskastaða,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir, leik- hússtjóri Borgarleikhússins. „Við bíðum bara fregna á hverjum degi eins og allir aðrir landsmenn og vonumst til þess að geta farið á fullt sem fyrst.“ Ljósmynd/Grímur Bjarnason Frestað Endurfrumsýningu á Níu lífum sem fjallar um ævi Bubba Morthens hefur verið frestað. Starfsemi leikhúsa er í óvissu vegna veirufaraldursins. Allar sýningar á ís  Óvissa með starfsemi leikhúsanna  Sýningar og æfingar settar á bið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.