Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 25

Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla Afurðaverð á markaði 4. ágúst 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 346,66 Þorskur, slægður 393,88 Ýsa, óslægð 350,97 Ýsa, slægð 306,66 Ufsi, óslægður 92,23 Ufsi, slægður 110,91 Gullkarfi 370,20 Blálanga, slægð 63,67 Langa, óslægð 227,86 Langa, slægð 120,99 Keila, óslægð 34,95 Keila, slægð 56,89 Steinbítur, óslægður 143,65 Steinbítur, slægður 297,62 Skötuselur, slægður 573,36 Grálúða, slægð 13,46 Skarkoli, slægður 384,18 Þykkvalúra, slægð 271,95 Langlúra, óslægð 231,00 Sandkoli, slægður 24,00 Bleikja, flök 1.442,57 Hlýri, óslægður 298,57 Hlýri, slægður 264,62 Kinnfiskur/þorskur 1.003,67 Lúða, slægð 595,95 Lýsa, óslægð 56,26 Skata, slægð 27,00 Stórkjafta, slægð 111,55 Undirmálsýsa, óslægð 34,54 Undirmálsýsa, slægð 32,00 Undirmálsþorskur, óslægður 146,32 Undirmálsþorskur, slægður 83,00 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Margir leggja leið sína að gömlu höfninni í Reykjavík til að skoða skipin og bátana eða bara líflegt mannlífið sem þar er að finna alla daga. Fólk staldrar gjarnan við Slippinn, ekki síst erlendir ferða- menn, sem eru óvanir að sjá skip á þurru landi. Undanfarna daga hef- ur sanddæluskipið Dísa verið í skveringu í Slippnum og er skipið nú orðið eins og nýtt. Stefnt er að því að sjósetja Dísu í lok vikunnar, samkvæmt upplýs- ingum Eysteins Dofrasonar, verk- efnastjóra hjá Björgun, eiganda skipsins. Næst liggur leið skipsins til Bíldudals, þar sem dælt verður af hafsbotni hráefni fyrir kalkþörungaverksmiðjuna. Dísa á svo að hefja dælingu í Landeyjahöfn 15. september næst- komandi, en óhætt er að fullyrða að ekkert skip hefur unnið jafn öt- ullega að því að halda höfninni op- inni undanfarin ár og Dísa. Óhemjumagn af sandi Frá 2010 til loka árs 2019 er heildarmagn dýpkunarefnis úr Landeyjahöfn og innsiglingunni að henni rúmlega 4,1 milljón rúm- metra (m³), samkvæmt upplýs- ingum Vegagerðarinnar. Þetta er geysilegt magn af sandi og margfalt meira en áætlað var þegar höfnin var hönnuð. Í mats- skýrslu fyrir Landeyjahöfn (Bakkafjöruhöfn, 2008) og tengdar framkvæmdir var heildarmagn viðhaldsdýpkunar áætlað um 30 þúsund m³ á ári og eftir aftaka- veður var reiknað með að gæti þurft að fjarlægja um 80 þúsund rúmmetra. Reyndin hefur orðið sú að margfalt meira hefur þurft að losa úr höfninni. Til dæmis var 317.700 rúmmetrum af sandi dælt upp árið 2019 og árið 2020 er áætl- að að dæla alls upp 300.000-500.000 rúmmetrum. Forsendur áætlunar á umfangi viðhaldsdýpkunar hafa því ekki staðist. Fyrir því eru nokkrar ástæður og vegur þar þyngst gosið í Eyjafjallajökli vorið 2010, að mati sérfræðinga. Í kjölfar þess stór- jókst framburður frá jöklinum sem veldur meiri efnisburði í innsigl- ingu Landeyjahafnar en reiknað var með þegar höfnin var hönnuð. Björgun hefur gert út skipið Dísu frá 2013 en áður hét það Scandia. Dísa er 623 brúttótonn, smíðuð í Álaborg í Danmörku 1968. Dísa/Scandia kom fyrst til lands- ins í ársbyrjun 2011 og var þá í eigu Íslenska gámafélagsins, sem verið hafði lægstbjóðandi í dæl- inguna. Skipið hóf strax að vinna við dýpkun Landeyjahafnar. Dísa getur borið 540 rúmmetra af efni og dælt niður á 25 metra dýpi. Dísu var á sínum tíma gefið nafn í höfuðið á Þórdísi Unndórsdóttur, sem verið hefur skrifstofustjóri Björgunar í áratugi. Björgun gerir einnig út sand- dæluskipið Sóleyju og hefur gert síðan 1988. Sóley er notuð til að afla hráefnis til vinnslu í landi, til dýpkunar og landgerðar. Skipið ber allt að 1,450 rúmmetra af efni og getur dælt upp efni af allt að 40 metra dýpi. Dísa duglegust allra að dæla  Sanddæluskipið Dísa í skveringu í Slippnum  Byrjar að dýpka í Landeyjahöfn á nýjan leik í haust Morgunblaðið/sisi Í Slippnum Dísa er orðin flott og fín á nýjan leik og verður sjósett í lok vikunnar. Næst liggur leiðin til Bíldudals til að dæla upp kalkþörungum af hafsbotni. Morgunblaðið/Styrmir Kári Landeyjahöfn Dísa hefur unnið þar við dýpkun allt frá árinu 2011.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.