Morgunblaðið - 06.08.2020, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
SANGSIN gæðavara frá Kóreu
BREMSU
VÖRUR
í flestar gerðir bíla
Afurðaverð á markaði
4. ágúst 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 346,66
Þorskur, slægður 393,88
Ýsa, óslægð 350,97
Ýsa, slægð 306,66
Ufsi, óslægður 92,23
Ufsi, slægður 110,91
Gullkarfi 370,20
Blálanga, slægð 63,67
Langa, óslægð 227,86
Langa, slægð 120,99
Keila, óslægð 34,95
Keila, slægð 56,89
Steinbítur, óslægður 143,65
Steinbítur, slægður 297,62
Skötuselur, slægður 573,36
Grálúða, slægð 13,46
Skarkoli, slægður 384,18
Þykkvalúra, slægð 271,95
Langlúra, óslægð 231,00
Sandkoli, slægður 24,00
Bleikja, flök 1.442,57
Hlýri, óslægður 298,57
Hlýri, slægður 264,62
Kinnfiskur/þorskur 1.003,67
Lúða, slægð 595,95
Lýsa, óslægð 56,26
Skata, slægð 27,00
Stórkjafta, slægð 111,55
Undirmálsýsa, óslægð 34,54
Undirmálsýsa, slægð 32,00
Undirmálsþorskur, óslægður 146,32
Undirmálsþorskur, slægður 83,00
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Margir leggja leið sína að gömlu
höfninni í Reykjavík til að skoða
skipin og bátana eða bara líflegt
mannlífið sem þar er að finna alla
daga. Fólk staldrar gjarnan við
Slippinn, ekki síst erlendir ferða-
menn, sem eru óvanir að sjá skip á
þurru landi. Undanfarna daga hef-
ur sanddæluskipið Dísa verið í
skveringu í Slippnum og er skipið
nú orðið eins og nýtt.
Stefnt er að því að sjósetja Dísu í
lok vikunnar, samkvæmt upplýs-
ingum Eysteins Dofrasonar, verk-
efnastjóra hjá Björgun, eiganda
skipsins. Næst liggur leið skipsins
til Bíldudals, þar sem dælt verður
af hafsbotni hráefni fyrir
kalkþörungaverksmiðjuna.
Dísa á svo að hefja dælingu í
Landeyjahöfn 15. september næst-
komandi, en óhætt er að fullyrða að
ekkert skip hefur unnið jafn öt-
ullega að því að halda höfninni op-
inni undanfarin ár og Dísa.
Óhemjumagn af sandi
Frá 2010 til loka árs 2019 er
heildarmagn dýpkunarefnis úr
Landeyjahöfn og innsiglingunni að
henni rúmlega 4,1 milljón rúm-
metra (m³), samkvæmt upplýs-
ingum Vegagerðarinnar.
Þetta er geysilegt magn af sandi
og margfalt meira en áætlað var
þegar höfnin var hönnuð. Í mats-
skýrslu fyrir Landeyjahöfn
(Bakkafjöruhöfn, 2008) og tengdar
framkvæmdir var heildarmagn
viðhaldsdýpkunar áætlað um 30
þúsund m³ á ári og eftir aftaka-
veður var reiknað með að gæti
þurft að fjarlægja um 80 þúsund
rúmmetra. Reyndin hefur orðið sú
að margfalt meira hefur þurft að
losa úr höfninni. Til dæmis var
317.700 rúmmetrum af sandi dælt
upp árið 2019 og árið 2020 er áætl-
að að dæla alls upp 300.000-500.000
rúmmetrum.
Forsendur áætlunar á umfangi
viðhaldsdýpkunar hafa því ekki
staðist. Fyrir því eru nokkrar
ástæður og vegur þar þyngst gosið
í Eyjafjallajökli vorið 2010, að mati
sérfræðinga. Í kjölfar þess stór-
jókst framburður frá jöklinum sem
veldur meiri efnisburði í innsigl-
ingu Landeyjahafnar en reiknað
var með þegar höfnin var hönnuð.
Björgun hefur gert út skipið
Dísu frá 2013 en áður hét það
Scandia. Dísa er 623 brúttótonn,
smíðuð í Álaborg í Danmörku 1968.
Dísa/Scandia kom fyrst til lands-
ins í ársbyrjun 2011 og var þá í
eigu Íslenska gámafélagsins, sem
verið hafði lægstbjóðandi í dæl-
inguna. Skipið hóf strax að vinna
við dýpkun Landeyjahafnar. Dísa
getur borið 540 rúmmetra af efni
og dælt niður á 25 metra dýpi.
Dísu var á sínum tíma gefið nafn
í höfuðið á Þórdísi Unndórsdóttur,
sem verið hefur skrifstofustjóri
Björgunar í áratugi.
Björgun gerir einnig út sand-
dæluskipið Sóleyju og hefur gert
síðan 1988. Sóley er notuð til að
afla hráefnis til vinnslu í landi, til
dýpkunar og landgerðar. Skipið
ber allt að 1,450 rúmmetra af efni
og getur dælt upp efni af allt að 40
metra dýpi.
Dísa duglegust allra að dæla
Sanddæluskipið Dísa í skveringu í Slippnum Byrjar að dýpka í Landeyjahöfn á nýjan leik í haust
Morgunblaðið/sisi
Í Slippnum Dísa er orðin flott og fín á nýjan leik og verður sjósett í lok vikunnar. Næst liggur leiðin til Bíldudals til að dæla upp kalkþörungum af hafsbotni.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Landeyjahöfn Dísa hefur unnið þar við dýpkun allt frá árinu 2011.